Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1990, Síða 1
Jónas Ingimundarson og Gunnar Guðbjörnsson koma fram á Ijóðatón-
leikum á sunnudag og mánudag.
Norræna húsið:
Ljóðatónleikar
Á sunnudag verða haldnir ljóða-
tónleikar í Norræna húsinu og
hefjast þeir klukkan 17.00. Fram
koma Gunnar Guöbjörnsson tenór
og Jónas Ingimundarson píanó-
leikari. Flutt verður verk eftir
Schubert sem í íslenskri þýðingu
ber nafnið Malarastúlkan fagra.
Tónleikarnir verða endurfluttir á
mánudag kl. 20.30 og af gefnu til-
efni er bent á að miðasalan í Nor-
ræna húsinu hefst kl. 14.00 á
sunnudag.
Gunnar Guðbjömsson stundaði
söngnám lengst af hjá Sigurði V.
Demetz í Nýja tónlistarskólanum.
Hann fór í framhaldsnám til Prof.
Hanne-Lore Kuhse í Berlín og Paul
Wynne GrifFiths í London. Hann
hefur einnig sótt tíma hjá Nicolai
Gedda í Vín, Morges og London.
Gunnar hefur á síðustu 5 árum
komið víða fram sem einsöngvari,
bæði hér heima sem erlendis.
Þess má einnig geta að fyrir
stuttu undirritaði Gunnar náms-
samning við National Opera Studio
í London til eins árs en samhliða
mun hann áfram koma fram á tón-
leikum hér heima og í London.
Á sýningunni gefur að lita smærri og stærri skúlptúra.
Kjarvalsstaðir:
Kristinn E. Hrafnsson
Á laugardag kl. 14.00 verður opn-
uð að Kjarvalsstöðum fyrsta einka-
sýning Kristins E. Hrafnssonar
myndhöggvara. Á sýningunni, sem
lýkur þann 30. september, getur að
líta smærri og stærri skúlptúra eft-
ir Kristin sem flestir eru unnir í
málma og allir gerðir á þessu ári.
Kristinn er Norðlendingur, fædd-
ur miðsumars árið 1960 á Ólafs-
firði. Hann útskrifaðist frá
Menntaskólanum á Akureyri vorið
1981 og nam myndlist við Myndlist-
arskólann á Akureyri um eins árs
skeið þar til hann innritaðist í
myndmótunardeild MHÍ. Þar var
aðalkennari hans Jón Gunnar
Ámason. Að námi loknu í MHÍ
árið 1986 sigldi Kristinn til Þýska-
lands og nam myndmótun næstu
ijögur ár við Myndlistar-akademí-
una í Munchen, undir stjórn Edu-
ardo Paolozzi, eins af upphafs-
mönnum popplistar í skúlptúr.
Kristinn lauk hjá Paolozzi i upp-
hafi þessa árs.
Við opnunina frumflytur Örn
Magnússon píanósónötu í þremur
þáttum eftir Ríkharð H. Friðriks-
son.
Hótel Borg:
Útgáfutónleikar
Islandica
Á sunnudag heldur Islandica útg-
áfutónleika á Hótel Borg kl. 21.00 og
kynnir nýja hljómplötu sína sem er
meö íslenskum þjóðlögum og al-
þýðulögum. Platan hefur hlotið nafn-
ið Rammíslensk. Þar gefur að heyra
fornan fimmundarsöng, rímur, viki-
vaka og fleira, t.d. Ijóð eftir Halldór
Laxness og Þórberg Þórðarson o.fl.
Útsetningar eru margar nýstárlegar
og gerðar í rammíslenskum anda.
Hljómsveitin Islandica hefur um
nokkurra ára bil sérhæft sig í aö
kynna íslensk þjóðlög, aðallega er-
lendis. Á undanförnum tveimur
árum hefur hijómsveitin haldið á
sjötta tug tónieika á erlendri grund
(á Norðurlöndum, í V-Þýskalandi,
Englandi og Lúxemborg) og einnig
leikið í þarlendum útvarpsstöðvum.
Talið er að á þennan hátt hafi hljóm-
sveitin náð eyrum allt að 20 milljón
manna.
Hljómsveitin er nú nýkomin úr
tónleikaferð frá Þýskalandi og Lúx-
emborg, en í Þýskalandi tók hún
þátt í þjóðlagahátíð sem útvarpið í
Regensburg stóð að. Þar kom fram
fjöldi tónlistarmanna frá íjölmörgum
löndum úr öllum heimsálfum. Þá lék
hljómsveitin einnig á íslandskynn-
ingu í Lúxemborg sem Flugleiðir og
Ferðamálaráð stóðu að, í tengslum
við heimsókn frú Vigdísar Finn-
bogadóttur, forseta íslands.
Hljómsveitina Islandica skipa Gísli
Helgason, Guðmundur Benedikts-
son, Herdís Hallvarðsdóttir og Ingi
Gunnar Jóhannsson. Á tónleikunum
á Hótel Borg verða þeir Ásgeir
Óskarsson og Sigurður Rúnar Jóns-
son hljómsveitinni til aðstoðar.
Plata Islandica ber nafnið Rammíslensk.
Gallerí 8:
Keramik-
kynning
Vikuna 16.-23. september verður
kynning.á leirkerjum og keramik
eftir leirlistamanninn Guðnýju
Magnúsdóttur. Verkin verða til sýnis
í glugga gallerísins og í galleríinu
sjálfu á venjulegum verslunartíma
og um helgar.
Guðný hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga á íslandi, Norðurlöndunum,
Frakklandi, Japan og Bandaríkjun-
um. Guðný hefur haldið 4 einkasýn-
ingar á íslandi og 2 í Helsinki, þar
sem hún starfaði í 4 ár sem leirlista-
maður.
Verk í opinberri eigu eftir Guðnýju
hafa verið keypt i Finnlandi, Noregi
og Reykjavík.
Fjallahringur eftir Guðnýju Magnús-
dóttur.
Á laugardag verður opnuð á vesturgangi Kjarvalsstaða sýning á verkum
Sæmundar Valdimarssonar. Sýndur verður skúiptúr úr rekaviði en sýning-
unni lýkur 30. september.