Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1990, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1990, Qupperneq 6
22 FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1990. Kvikmyndahúsin - Kvikmyndahúsin Eins og við er aö búast lenda Rick og Muffy i ótrúlegustu raunum. Laugarásbíó: Á bláþræði í myndinni, sem Laugarásbíó hefur nú brugðið á tjaldið, taka þau höndum saman Goldie Hawn og Mel Gibson og kitla hláturtaugarn- ar eins og þeim einum er lagið. Auk þess er myndin búin meiri spennu og glæfraatriðum en almennt er um shkar myndir. Marianne eða „Muffy“ (Goldie Hawn) er stödd í Detroit þegar hún kemur auga á mann sem hún hefur ekki séð í 15 ár. Þetta er raunar Rick Jarmin (Mel Gibson) sem hafði verið unnusti hennar þegar hann hvarf í ferð til Mexíkó. En þótt Rick neiti við Muffy að hann sé sá sem hún heldur er ekki tii setunnar boðið fyrir hann. Rick forðar sér enda eru tveir erkifjend- ur hans líka búnir að snuðra hann upp þegar þetta gerist. Mennirnir, sem leita hans, höfðu báðir veriö í þeirri lögreglu Banda- ríkjanna sem sinnir baráttu gegn flkniefnum en gerst brotlegir í því efni. Rick haföi borið vitni gegn þeim og tryggt þeim uppihald á vegum ríkisins árum saman. Þegar þeir losna um síðir hugsa þeir Rick þegjandi þörfma. Það hafði verið Rick til verndar þessi ár að Banda- ríkjastjórn hefur í þessum efnum sérstaka áætlun til að fá vitnum í málum af ýmsu tagi nýtt nafn og sitthvað fleira til að tryggja þá fyr- ir ofsóknum þeirra sem þeir bera vitni gegn. Á fimmtán árum hefur Rick skipt margsinnis um gervi af þessu tagi en þar eð fjandmenn hans eiga vini innan kerfisins hafa þeir komist á slóð hans. Og sem hann hittir Muffy sína aftur hefst æsilegur eltingarleikur sem berst um víðan völl frá bíia- borginni Detroit til Racine í Wis- consin sem aldrei mun hafa sést í kvikmynd hér á landi. En um elt- ingarleikinn er það aö segja að í honum koma fyrir atriði sem hafa ekki heldur sést í mynd áður. Háskólabíó: Á elleftu stundu Háskólabíó frumsýndi í gær gamanmyndina Á elleftu stundu (Short Time). Aðalhlutverk leika Dabney Coleman og Teri Garr en leikstjóri er Gregg Champion. Myndin fiallar um lögreglu- manninn Burt Simpson sem á litlu gengi að fagna, bæði í vinnunni og einkalífinu. Burt er skilinn við konuna og á við þunglyndi að stríða. Eini ljósi punkturinn í til- veru hans er sonurinn, Dougie, sem Burt dreymir um að senda til Harvard einn góðan veðurdag. Þegar Burt er sagt að hann eigi við alvarlegan sjúkdóm að stríða sem muni draga hann til dauða taka hlutimir breytta stefnu. Reyndar er Burt tjáð þetta fyrir misskilning en fréttirnar fá óneit- anlega á hann og þá ekki síst vegna þess að aðeins ein vika er þar til hann kemst á eftirlaun. Til að bæta gráu ofan á svart er tryggingar- málum Burts þannig háttað að að- eins verður greitt út úr þeim ef lög- reglumaðurinn lætur lífið við skyldustörf. Til að tryggingarféð fari rétta boðleið er augljóst að Burt verður að breyta starfsháttum sínum allverulega. Burt Simpson (Dabney Coleman) fær fréttir sem umturna lifi hans. Regnboginn frumsýndi í gær spennumyndina Náttfarar (Nightbreed) með Craig Sheffer, David Cronenberg og Anne Bobby í aöalhlutverkum en leikstjóri er Clive Barker (Hellraiser). Myndin fjallar um Boone nokk- urn sem hefur átt við sálræn vandamál að stríða og m.a stendur hann í þeirri trú að hann beri ábyrgð á nokkrum hryililegum morðum. Að lokum fer svo að Boone nær ekki lengur að hafa stjórn á þessum vanda- málum og afleiðingarnar eru þær að hann tekur miklum breytingum svo ekki sé meira sagt. BÍÓBORGIN Á tæpasta vaði 2 Meira, stærra, fleiri, hærri og oft- ar, en ekki betra en samt meira en nógu gott. Einnig sýnd í Bíóhöll- inni. -GE Fullkominn hugur ★★★ Framtiðarmynd sem gerist á Mars. Háspenna frá upphafi til enda. Schwarzenegger í sinu besta hlut- verki. Einnig sýnd í Bíóhöllinni. -HK Stórkostleg stúika ★★!4 Létt og sketnmtíleg mynd þrátt fyr- ir ófrumlegt handrit. Julia Roberts er frábær. Einnig sýnd í Bíóhöll- inni. -HK BÍÓHÖLLIN Hrekkjalómarair 2 ★★ 14 Flugeldasýning fyrir börn en ágæt skemmtun fyrir fúllorðna líka. Góðar tæknibrellur. Einnig sýnd í Bíóborginni. -PÁ Fim mhyrningurinn !4 Leiöinleg, heimsktileg mistök. Handrit í molum, leikstjóm í kaos. Að öllu leyti misheppnuð. -GE Þrír bræður og bíll Yfirlætislaus og bræðralagssaga. ★★ góðhjörtuö -GE HÁSKÓLABÍÓ Aðrar 48 stundir ★ 'A Handritið er aðalgalli myndarinn- ar. Ófyndinn Eddie Murphy getur litlu bjargað. -GE Ævintýri Pappírs Pésa ★★ Nýjasta íslenska kvikmyndin er fyrir böm og góö sem slík, en myndin er langt frá því að vera gaJlalaus. -HK Sá hlær best ★★'A Svört og siðferðislaus irónia sem ristir ekki alveg nógu djúpt en Mic- hael Caine er gallalaus að vanda. -GE Leitin að rauða október ★★* Róleg uppbygging með hörku- spennandi síöari hluta. Sean Conn- ery gnæfir yfir aöra leikara í mynd- inni. -HK Shirley Valentine ★★ Losnar ekki alveg við leikritskeim- inn og nær ekki að hafa full áhrif. -GE Vinstri fóturinn ★**★ Ótrúlega góður leikur Daniels Days Lewis í hlutverki fiölfatlaðs manns gleymist engum sem myndina sér. -HK Paradísarbíóið ★*★ ‘A Það líður öllum vel eftír að hafa séð þessa einlægu og skemmtilegu mynd. -HK LAUGARÁSBlÓ Á bláþræði ★★ Ekki vantar fyrirferðina í Goldie Hawn og Mel Gibson, en heldur þunnur þrettándi þegar upp er staðið. -HK Aftur til framtíðar III Krafturinn í tímaflakkssögunni er búinn en frígírinn eftir. Rennur áfram á fomri frægð, einföld og auðmelt en mjög skemmtileg. Sjáið endilega hinar tvær á undan. -GE Upphaf 007 ★★ Ágætissaga þótt ekki votti fyrir frumleika. Jason Connery stendur sig sæmilega. -GE REGNBOGINN Náttfarar ★★* Óvenjulega frumleg hrollvekja meö mýstískum undirtónum. Barker er geysiefnilegur leikstjóri. -GE Timaflakk ★★ 4 Unnendur vísindaskáldsagna ættu ekki að verða fyrir vonbrigöum með þennan framtíðarþriller sem býður upp á skemmtilegan og um leið fáránlegan söguþráö. -HK Refsarinn ★★ 'A Ofbeldisgnótt á yfirborðinu en meira býr undir sem nær ekki al- veg að skina í gegn. -GE í slæmum félagsskap ★★★ Sálfræðiþriller í anda Hítchcocks. James Spader frábær i hlutverki bráðarinnar. -HK Nunnur á flótta ★★ Ágætis afþreying þrátt fyrir lítinn innblástur handrits. Eric Idle held- ur velli. -GE STJÖRNUBÍÓ Fram í rauðan dauðann ★★‘4 Lawrence Kasdan hefur áður gert betur en góðir sprettir inn á milli gera myndina vel þess viröi að sjá hana. -Ilk Með lausa skrúfu ★,/2 Óþörf lögguviðbót, flókin til einskis og fiflaleg. Aykroyd heldur henni á floti. -GE Stálblóm ★★ Áhrifamikill leikur, sérstaklega hjá Roberts og Fields. Gott drama en á köflum átakanlega væmið. -PÁ Pottormur í pabbaleit ★★ Hin fullkomna Qölskyldumynd sem er frumleg fyrstu mínúturnar en verður svo ósköp venjuleg. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.