Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1990, Side 7
FÖSTUDAGUK 14. SEPTEMBER 1990.
23
íþróttir helgarinnar:
Nýir meistarar
krýndir á morgun
- úrslit í knattspymunni ráðast á morgun - handboltinn af stað
Þaö verður í mörgu aö snúast í
íþróttalífi landsmanna um helgina.
Einu mest spennandi íslandsmóti í
1. deild karla í knattspyrnu lýkur
á laugardag og sama dag fer hand-
boltinn aö rúlla en þá hefst sjálft
íslandsmótið. Hér getur að líta það
helsta sem um er að vera í íþróttun-
um um helgina:
Knattspyrna
Einu mest spennandi íslandsmóti
í 1. deild karla lýkur laust fyrir kl.
16 á laugardaginn og þá fæst úr því
skorið hvort það verða Framarar,
KR-ingar, Vestmannaeyingar eða
Valsmenn sem fagna íslandsmeist-
aratitlinum en öll þessi hð berjst
um sigurlaunin.
• Fram og Valur leiða saman hesta
sína á Laugardalsvellinum í topp-
leik umferðarinnar. Sigri Framar-
ar í leiknum er íslandsmeistaratit-
ilhnn þeirra hvemig sem fer í öðr-
um leikjum. Það verður ekkert gef-
ið eftir í þessum leik og bæði hð
verða hreinlega að sigra th að eygja
möguleika á titlinum.
• KR-ingar leika á heimaveh gegn
íslandsmeisturunum frá því í
fyrrra, liði KA. KR er í efsta sæti
ásamt Fram, en með'mun lakari
markahlutfah. Sigri KR-ingar
verða þeir að treysta á að Fram
tapi stigum í leiknum gegn Val og
þá hampa þeir bikamum. Fyrir KA
er ekki að miklu að keppa, hðið er
í 8. sæti og með sigri á liðið mögu-
leika á að ná jafnmörgum stigum
og Víkingar tapi þeir leik sínum.
• Þriðji leikurinn, sem skiptir
miklu máli, er viðureign ÍBV og
Stjörnunnar í Eyjum. Ekkert nema
sigur getur fært Vestmannaeying-
um titilinn og þá verða þeir að
treysta á hagstaeð úrsht úr öðrum
og það sama gildir um Grindvík-
inga, þeir þurfa helst á öllum stig-
unum aö halda til að bjarga sér frá
falli.
Á Ólafsfirði verður fallbaráttu-
slagur þegar Leiftur og KS mætast.
Liðin era jöfn á botni deildarinnar
og það lið sem sigrar á góða mögu-
leika á aö halda sæti sínu. í Breið-
holti leika ÍR og Selfoss og í Garðin-
um mætast nágrannaliðin Víðir og
ÍBK.
Handbolti
íslandsmótið í handbolta hefst á
laugardaginn með keppni í 1. deild
karla og kvenna. Á laugardaginn
kl. 16.30 eru tveir leikir í 1. deild
karla. í íþróttahúsinu við Strand-
götu í Hafnarfirði leika Haukar og
Víkingur og á Selfossi leika Selfoss
og Fram. A sunnudaginn eru þrír
leikir. Kl. 16.30 leika í Kaplakrika
FH og KA og kl. 20 leika á Seltjam-
arnesi Grótta og Valur og í Vest-
mannaeyjum ÍBV og KR.
í 1. deild kvenna eru tveir leikir
á laugardag kl. 15. Fram og Valur
leika í Seljaskóla og Selfoss - Vík-
ingur á Selfossi. Á sunnudag kl. 15
leika FH og Stjarnan í Kaplakrika.
Stjarnan - Helsingör
Stjarnan leikur á sunnudags-
kvöld gegn danska liðinu Helsingör
og er leikurinn liður í Evrópu-
keppni félagsliða í handknattleik.
Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu
í Garðabæ og hefst viðureignin kl.
20. Danska hðið er frægasta lið í
heimalandi sínu og verður aö telj-
ast með bestu félagsliðum á Norð-
urlöndum.
-GH
Guðjón Þórðarson, þjálfari KA, gefur hér íslandsbikarnum léttan koss eftir að KA hafði tryggt sér íslands-
meistaratitilinn í fyrra. Nú er spurningin hvort það verði Framarar, KR-ingar, Eyjamenn eða Valsarar sem
standa í sömj sporum og KA í fyrra og fagni sigri.
leikjum. Eini möguleiki Eyja-
manna á bikamum er að þeir sigri
í sínum leik og Fram og KR tapi
stigum í viðureignum sínum og það
mundi þýða að ÍBV yrði eitt á
toppnum.
• Tveir leikir í deildinni skipta
minna máli. FH-ingar taka á móti
Skagamönnum í Kaplakrika. FH
er í 6. sæti og getur ekki náð lengra
en tapi liðið gæti það lent í 7. sæti
og ÍA er þegar fallið í 2. deild. Þá
leika á Akureyri Þór og Víkingur
og er sá leikur keimlíkur leik FH
og ÍA. Þórsarar þegar fallnir í 2.
deild en Víkingar eygja möguleika
á 6. sætinu með sigri en gætu hafn-
að í 8. sæti með tapi. Allir leikimir
heíjast á sama tíma eða kl. 14 á
laugardag.
í 2. deild er mikil spenna á toppi
jafnt sem botni. Víðismenn eru
þegar búnir að tryggja sér 1. deildar
sætið en Breiðablik og Fylkir beij-
ast um að fylgja þeim upp. Breiða-
blik leikur á heimavehi gegn
Tindastóh, sem er í fahbaráttu, og
Fylkismenn heimsækja Grindvík-
inga. Fylkir verður að sigra til að
eiga möguleika á 1. deildar sætinu
Sýningar
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
Kees Visser sýnir í Gallerí Sævars Karls.
Á sýningunni eru þrívíð verk úr tré og
stáli og stendur hún til 5. október og er
opin á verslunartima, kl. 9-18 virka daga
og kl. 10-14 á laugardögum.
Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar
Listakonumar Björk Magnúsdóttir, Fjóla
Kristín Ámadóttir, Helga Pálína Brynj-
ólfsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Hulda Sigurðardóttir, Ingiríður Óðins-
dóttir, Kristrún Ágústsdóttir og Ragn-
hildur Ragnarsdóttir sýna textílverk.
Sýningin er opin alla daga nema þriðju-
daga kl. 14-19 og stendur hún til 16. sept-
ember.
Anna Leós sýnir í kaffistofu Hafnarborg-
ar. Þetta er þriðja einkasýning Önnu. Á
sýningunni em 42 vatnslitamyndir. Sýn-
ingin er opin alla daga frá kl. 11-19 fram
til sunnudagsins 16. september.
Hlaðvarpinn
Vesturgötu 3
Valdimar Bjamfreðsson sýnir málverk í
Hlaðvarpanum. Sýningin er opin þriðju-
daga til fóstudaga kl. 12-18 og laugardaga
kl. 10-16.
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er
opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku-
daga, fimmtudaga, fóstudaga og laugar-
daga.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Á morgun verða opnaðar þrjár sýningar
að Kjarvalsstöðum. í vestursal opnar
Kristinn Hrafnsson sýningu á högg-
myndum. í vesturforsal opnar Sæmund-
ur Valdimarsson sýningu á höggmynd-
um. í austursal og forsal opnar sýning á
verkum Kjarvals og ber sýningin yfir-
skriftina „Land og fólk“. Kjarvalsstaðir
em opnir daglega kl. 11-18 og er veitinga-
búðin opin á sama tíma.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið alla daga kl. 13.30-16 nema mánu-
daga. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Katel
Laugavegi 20b
(Klapparstigsmegin)
Til sölu em verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, grafík og leir-
munir.
Listasafn ASÍ
Grensásvegi 16
Sigurður Þórir sýnir málverk og teikn-
ingar dagana 8.-23. september. Kjörorð
sýningarinnar er, Hugarheimur: Ég mála
það sem ég hugsa. Á sýningunni em um
40 verk.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda
Þar er nú á öllum hæðvun sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega
kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Þar stendur yfir sumarsýning á íslensk-
um verkum í eigu safnsins og em þau
sýnd í öllum sölum. Leiðsögnin mynd
mánaðarins fer fram í fylgd sérfræðings
á fimmtudögum kl. 13.30-13.45. Listasafn
íslands er opið alla daga nema mánudaga
kl. 12-18 og er veitingastofa safnsins opin
á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
í Listasafni Sigurjóns í Laugamesi er nú
til sýnis úrval af andlitsmyndum Sigur-
jóns frá tímabilinu 1927-1980. Safnið er
opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
og þriðjudaga kl. 20-22. Kaffistofa safns-
ins er opin á sama tíma.
Listhús
Vesturgötu 17
Bragi Asgeirsson listmálari sýnir mál-
verk í Listhúsinu. Sýningin ber yfir-
skriftina „Að hlusta með augunum -
mála með skynfæmnum.“ Myndfrnar
em 38 að tölu, málaðar á sl. 2 árum. Sýn-
ingin er opin daglega frá kl. 14-18 fram
til 23. september.
Menningarmiðstöðin
Gerðubergi
Þessa dagana stendur yfir sýning á
myndverkum barna. Verkin vom unnin
í hstsmiðjunni Gagn og gaman í sumar
og em viðfangsefni þrjú: Hafið, blóm og
ekki er allt sem sýnist. Sýningin er opin
kl. 13-16 á fóstudögum og laugardögum.
Aðgangtu- er ókeypis.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg
Á Mokka stendur yfir sýning á 22 ljós-
myndum unnum með blandaðri tækni
eftir Fríðu Eyjólfsdóttur. Þetta er hennar
fyrsta sýning og eru allar myndirnar
unnar á þessu ári.
Nýlistasafnið
Yatnsstíg 3b
Á morgun opnar Haraldur Ingi myndhst-
arsýningu í Nýhstasafninu (efri svalir). Á
sýningunni verða fimmtiu vatnshta-
myndir sem em hluti verks sem tekið
hefur á sig ýmis form síðan 1984. Auk
vatnshtamyndanna em nokkrar grafik-
myndir unnar á þessu ári. Sýningin
stendur tíl 30. september og er opin um
helgar frá kl. 14-20 en virka daga frá kl.
16-20.
Norræna húsið
í sýningarsölum Norræna hússins stend-
ur yfir sýning á málverkum eftir finnsku
hstakonuna Mari Rantanen. Á sýning-
unni em 29 málverk, flest máluð á síð-
asta ári. Sýningin er opin daglega kl.
14—19 tíl 23. september.
í anddyri hússins stendur yfir sýning á
grafíkverkum eftir eistneska listamann-
inn Kaljo Pohu. Hér er um að ræða 25
myndir úr tveimur myndaröðum: Kodal-
ased (Tjaldfólkið) og Kahvági (þýðir mik-
hl kraftur eða orka). Sýningin ber yfir-
skriftina Bam vatns og vinda og er far-
andsýning. Sýningin stendur th 23. sept-
ember.
Nýhöfn
Hafnarstræti 18
Guðbjörg Lind sýnir í listasalnum Ný-
höfn. Á sýningunni em málverk unnin á
sl. tveimur árum. Þetta er fjórða einka-
sýning Guðbjargar en hún hefur einnig
tekið þátt í samsýningum. Sýningin, sem
er sölusýning, er opin virka daga kl. 10-18
og frá kl. 14-18 um helgar. Lokað á mánu-
dögum. Sýningunni lýkur 26. september.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði, sími 52502
Opið alla daga nema mánudaga kl. 14-18.
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
Álfabakka 14
Þar em sýnd verk eftir Jóhönnu Boga-
dóttur. Sýnd em um 20 myndverk, mál-
verk og olíukrítarteikningar og grafik
með blandaðri tækni. Sýningin stendur
yfir th 30. október nk. og er opin frá
mánudegi th föstudags kl. 9.15-16, þ.e. á
afgreiðslutíma útibúsins. Sýningin er
sölusýning.
Sýning í
menntamálaráðuneytinu
Nú stendur yfir í menntamálaráðuneyt-
inu sýning á verkum barna í Varma-
landsskóla 1975-1990. Sýningin er hður í
bamamenningarátaki ráðuneytisins og
er gott dæmi um vel heppnað skapandi
starf með börnunum. Á sýningunni era
hátt á annað hundrað verk, myndir,
munir o.fl., unniö á fjölbreytilegan hátt.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu
Þar era til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga ogá
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Safnið er opið aha daga nema mánudaga
kl. 11-16.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162
Opið er kl. 13.30-17 alla daga vikunnar.
Rjómabúið á Baugsstöðum
s. 98-63369/98-63379/21040
Safnið er opið laugardaga og sunnudaga
frá kl. 13-18. Opið á öömm tímum fyrir
hópa. Rjómabúiö var reist árið 1905 og
var í notkun til ársins 1952. Þar var einn-
ig rekið pöntunarfélag frá 1928 th 1969.
'Slunkaríki
ísafirði
Tolli sýnir í Slunkaríki. Hann mun sýna
þar steinþrykk, myndir unnar í serigraf-
íu og ný ohumálverk. Steinþrykksmynd-
irnar vann Tolli á hinu þekkta UM stein-
þrykksverkstæði í Kaupmannahöfn fyrr
á þessu ári og er þetta í fyrsta sinn sem
Tohi heldur sýningu á verkum þessum.
Sýningin stendur th 23. september.