Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1990, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1990, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990. Dans- staðir Bjórhöllin Gerðubergi 1, sími 74420 Hljómsveit leikur á föstudags- og laugardagskvöld. Lifandi tónlist öll kvöld vikunn- ar. Danshöllin Fjölbreytt skemmtun með fyrir- taks skemmtikröftum. Bjórkráin á jarðhæðinni verður opin. Hljómsveit André Bachmann og Sexmenn leika fyrir dansi. Casablanca Diskótek föstudags- og laugar- dagskvöld. Dans-Barinn Grensásvegi 7, simi 688311 Opið fimmtudags-, föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Tónlist sjöunda áratugarins í hávegum höfð. Glæsibær Álfheimum, s. 686220 Upplyfting leikur fyrir dansi um helgina. Gikkurinn Ármúla 7, sími 681661 Lifandi tónlist um helgar. Hollywood Ármúla 5, Reykjavik Diskótek föstudags- og laugar- dagskvöld. Hótel Borg Pósthússtræti 10, Reykjavík, simi 11440 Diskótek föstudags- og laugar- dagskvöld. Sportklúbburinn Borgartúni 32, s. 29670 Rokkabillíband Reykjavíkur skemmtir föstudags- og laugar- dagskvöld á Stönginni. Aðgangur ókeypis. Skálafell, Hótel Esju Suðurlandsbraut 2, Reykjavik, simi 82200 Guðmundur Haukur leikur föstudags-, laugardags- og sunnu- dagskvöld og nk. flmmtudags- kvöld. Opið öll kvöld vikunnar. Hótel ísland Ármúla 9, sími 687111 „Rokkað á himnum", eldhress sýning með söng, leik og dansi. Stjórnin leikur fyrir dansi. Hótel Saga „Ómladí." Skemmtun Ómars Ragnarssonar, Þórhalls Sigurðs- sonar, Haralds Sigurðssonar og fleiri ágætra manna hefst aftur á laugardagskvöld. Hljómsveitin Einsdæmi leikur fyrir dansi. Mímisbar er opinn föstudags- og laugardagskvöld. Keisarinn Laugavegi 116 Opið öll kvöld. Diskótek og hljómsveitaruppákomur um helgar. Laguna og Café Krókódíll Diskótek um helgina. Tveir vinir og annar í fríi Lifandi músík föstudags- og laug- ardagskvöld. Ölver Álfheimum 74, s. 686220 Opið alla daga. Veitingahúsið Ártún Vagnhöfða 11, s. 685090 Nýju og gömlu dansarnir fóstu- dags- og laúgardagskvöld. Hljóm- sveitin Kompás leikur fyrir dansi ásamt söngkonunni Kristbjörgu Löve. Sexmenn leika i Vetrarbrautinni um helgina en hún verður nú opnuð aftur eftir sumarfrí. Rokkað á himnum Um síðustu helgi var rokksýn- ingin Rokkað á himnum frumsýnd á Hótel íslandi. Gífurlegur fjöldi tekur þátt í þessari viðamiklu sýn- ingu sem fjallar um sálina hans Jóns og Gullna liðið. Gullna liðið eru auðvitað látnir rokkkóngar, svo sem Elvis Presley, Roy Orbi- son, Buddy Holly og fleiri. Flutt eru um 70 rokklög frá árunum 1954- 1964. Tónlistarstjórn er í höndum Björgvins Halldórssonar en leik- stjóri er Bjöm G. Björnsson. Sýningar eru fóstudags- og laug- ardagskvöld. Gal í Leó verður i Sjallanum um helgina. Sjallinn á Akureyri: Gal í Leó í Sjallanum Hljómsveitin Gal í Leó skemmtir þessa helgi, föstudags- og laugar- dagskvöld, í Sjallanum á Akureyri. í Gal í Leó eru þeir Rafn Jónsson, áöur Bítlavinur, Hjörtur Howser, áöur í Kátum piltum, Baldvin Sig- uröarsson, áöur í Baraflokknum, og Spilafíflin tvö, þeir Örn Hjálm- arsson og Sævar Sverrisson. Hljómsveitin hefur að undan- förnu skemmt á pöbbum og sam- komuhúsum í Reykjavík og getið sér gott orð. Hljómsveitin Gabriel leikur blús og rokk föstudags- og laugardagskvöld í veitingahúsinu Stjána bláa. Veitingahúsið Stjáni blái hét áður Hrafninn en nýverið var skipt um eigendur. Enginn aðgangseyrir er i Stjána bláa. Danshöllin: Hallbjöm í Þórscafé Um þessa helgi verður Vetrar- brautin opnuð aftur að loknu sum- arfríi og veröur því allt á fullu í Danshöllinni nú sem endranær. í Vetrarbrautinni leika Sexmenn fyrir dansi og sérstakir gestir kvöldsins veröa starfsfólk SIS og Vífilfells. Á annarri hæð verður Hljómsveit André Bachmann en auk hans skipa hljómsveitina þeir Gunnar Bernburg, Úlfar Sigmarsson, Krist- inn Sigmarsson og Þorleifur Gísla- son. Söngkona er Áslaug Fjóla en auk hennar mun Bjarni Arason taka nokkur lög. Á laugardags- kvöld birtist Hallbjörn Hjartarson og kynnir lög af væntanlegri plötu sinni. Ólafur Haukur Guömundsson sér svo um músíkina á jarðhæð- inni. Húsið verður opnað kl. 22 og síðan er innangengt, endurgjalds- laust, milli hæða. Aðgangseyrir er kr. 750. Stjórnin leikur fyrir dansi i vetur á Hótel Islandi Hótel ísland: Stjómin komin aftur Fastagestir Hótels íslands ættu aö kætast nú því hin geysivinsæla hljómsveit Stjórnin með þau Grét- ar Örvarsson og Sigríði Beinteins- dóttur í fararbroddi mun í vetur halda uppi stuði á Hótel íslandi. Þau verða þó í fríi í desember en taka þráöinn upp aftur að nýju eft- ir áramót. Önfirðingar staddir sunnanlands ætla að skemmta sér í Ölfusborgum um helgina. Önfirsk bítlavaka Laugardaginn 6. október munu Önfirðingar og gestir þeirra koma saman og endurvekja gömlu bítla- stemmninguna aö vestan. Bítla- vakan verður haldin að sveitasetr- inu Efstalandi í Ölfusi, sem breytt hefur verið í skemmtistað. Þátttak- endur munu gista í sumarhúsum í Ölfusborgum sem eru skammt frá Efstalandi. A bítlavökunni koma fram hljómsveitirnar Grétar á gröfunni og Æfing. Auk þess koma fram Sig- urður Björnsson trúbadúr, Sara Vilbergsdóttir verður þar með börnin sín, Jóhannes Kristjánsson frá Brekku og bestu vinir bítlanna. Upplýsingar og sætaferðir í síma 52226.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.