Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1990, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1990, Qupperneq 6
22 FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990. Myriam Cyr og Maka Kotto í hlutverkum sínum i Að elska negra án þess að þreytast. Laugarásbíó: Að elska negra an þess að þreytast Laugarásbíó frumsýnir í dag kanadísk/frönsku kvikmyndina Að elska negra án þess að þreytast. Mynd þessi hefur vakið nokkra at- hygli að undanfórnu fyrir ööruvísi framsetningu en vant er. Hún ger- ist í blökkumannahverfmu í Mont- real í Kanada meðan á hitabylgju stendur. Aðalpersónurnar eru „Maður“ sem er verðandi rithöfundur og Bubbi sem vitnar í Kóraninn við öll hugsanleg tækifæri. Sá síðar- nefndi eyðir einnig tíma sínum í að hlusta á djass og lesa allt það sem Sigmund Freud lét frá sér fara. Á meöan skrifar „Maðurinn“ af kappi um hugaróra sína. Þriðja persónan er Francois, sem hefur gaman af að hlusta á enda- lausar ræður þeirra um hugðarefni sín, menningu svartra svo og gyð- inga og kristinna og svo það hve hvítar stúlkur sækist eftir því að hafa mök við svarta menn. í aðalhlutverkunum eru svörtu leikararnir Isac de Bankole og Maka Kotto sem leika „Manninn" og Bubba. De Bankole sem er frá Fílabeinsströndinni hafði lokið meistaragráðu í stærðfræði í Svartaskóla í París áður en hann sneri sér að leiklist. Kotto er frá Kamerún og hafði verið í námi í stjórnmálavísindum í Bordeaux þegar hann sneri sér að námi í kvikmyndagerð. Stjörnubíó sýnir um þessar mundir sakamálmyndina Blue Heat. Þar fer með aðalhlutverkið Brian Dennehy og leikur hann foringja hóps lögreglu- manna sem á í höggi við eiturlyfjasmyglara. Á myndinni er Dennehy ásamt einum manna sinna. Bíóhöllin: Töffarinn Ford Fairlane Andrew Dice Clay er sjálfsagt ekki mörgum kunnur hér á landi. Hann er því þekktari vestur í Bandaríkjunum þar sem hann hef- ur aukið vinsældir sínar jafnt og þétt sem grínisti á siðustu tveimur árum. í sumar átti að gera hann að súperstjörnu. Tvær kvikmyndir, The Advent- ures of Ford Fairlane og Andrew Dice Concert Movie, áttu að sjá um það. Það kom samt heldur betur afturkippur í þessar áætlanir þegar hvert stórstirnið af öðru lýsti fyrir- litningu sinni á manninum vegna þess kynþáttahaturs og kvenfyrir- svindl, spilling og morð er daglegur viðburður. Andrew Dice Clay hefur frítt lið leikara með sér, má þar nefna Ro- bert Englund, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á Freddy hinum ógurlega, Wayne Newton, Priscillu Robert Englund leikur morð- ingjann Srniley sem er allt ann- að en brosandi á þessari mynd þar sem hann hangir í fótunum á stúlku einni. Andrew Dice Clay er hér til vinstri sem einkaspæjarinn Ford Fairlane. Með honum á myndinni eru Wayne Newton og Lauren Holly. litningar sem hefur einkennt skemmtanir hans. Má segja að Andrew Dice Clay hafi fallið á eigin bragði. Þegar þetta gerðist var The Adventures of Ford Fairlane að koma á markaðinn og þrátt fyrir ágæta aðsókn vestari hafs var það ekkert á móti því sem framleiðend- ur myndarinnar höfðu vonast eftir. Og konsertmyndin hefur verið sett upp í hillu og óvíst er hvort hún verður nokkurn tíma sett á mark- aðinn sem kvikmynd, talið að hún muni fara beint á myndbanda- markaðinn. Bíóhöllin hefur nú hafið sýningar á Adventures of Ford Fairlane sem á íslensku nefnist Töffarinn Ford Fairlane. Þar leikur Andrew Dice Clay einkalöggu sem hefur það sem sérsvið að starfa í tónlistariönaðin- um. Snemma í myndinni fær hann það verkefni að rannsaka dular- fullan dauða þungarokkssöngvara. Hann fær upphringingu um að ung stúlka geti gefið upplýsingar um máliö. Ásamt kynnum sínum af stúlkunni lendir Ford Fairlane í miðju stórmáli þar sem fjárkúgun, Presley, Morris Day og Lauren Holly. Leikstjóri er Renny Harlin en hann leikstýrði einnig Die Hard 2. Harlin þykir með „heitustu" leik- stjórum í Hollywood þessa dagana og hefur uppgangur hans verið með ólíkindum. Þessi rúmlega þrítugi Finni stofn- aði sitt eigið kvikmyndafyrirtæki í Finnlandi meðan hann var enn í háskóla. Þar framleiddi hann og leikstýrði auglýsingum og heimild- armyndum. Hann vakti fyrst at- hygli 1922 með stuttmyndinni Hold On sem var verðlaunuð í bak og fyrir. Leið hans lá til Bandaríkj- anna þar sem hann fékk fljótt starf í sjónvarpi og leikstýrði tveimur sjónvarpskvikmyndum áður en honum var boðið að leikstýra Nightmare on Elm Street 4: The Dream Master sem mokaði inn peningum fyrir framleiðendurna. Framleiðandinn Joel Silver veitti þessum unga Finna eftirtekt og var ekkert að tvístíga heldur réð hann bæði til að leikstýra The Adventur- es of Ford Fairlane og Die Hard 2. -HK BÍÓBORGIN Dick Tracy ★★★ Lifandi teiknimynd fyrir fulloröna. Stórkostleg og einstök umgjörðin er dáleiðandi en uppbyggingu vant- ar tll fyllingar. Éinnig sýnd í Bíó- höllinni. -GE Á tæpasta vaði 2 ★★★ Meira, stærra, fleiri, hærri og oftar en ekki betra en samt meira en nógu gott. Einnig sýnd í Bíóhöll- inni. -GE Stórkostleg stúlka ★★ 'A Létt og skemmtileg mynd þrátt fyr- ir ófrumlegt handrit. Julia Roberts er frábær. Einnig sýnd í Bíóhöll- inni. -HK BÍÓHÖLLIN Töffarinn Ford Fairlane ★★‘/2 Svivirðilegur, grófur, oft bráðfynd- inn, alltaf svalur, stundum frum- legur en aldrei alvarlegur. Prýðis- skemmtun fyrir þá sem kunna að meta grínið. -GE Spítalalíf ★★ Átakalítil en ágætur sjúkrahús- róman. Áferðarfalleg en rislitil. -PÁ Hrekkjalómarnir 2 ★★ Vi Flugeldasýning fyrir börn en ágæt skemmtun fyrir fullorðna líka. Góðar tæknibrellur. Einnig sýnd í Bíóborginni. -PÁ Fullkominn hugur ★★★ Framtíðarmynd sem gerist á Mars. Háspenna frá upphafl til enda. Schwarzenegger í sínu besta hlut- verki. -HK HÁSKÓLABÍÓ Robocop 2 ★★ Verri en fyrri myndin. Endalausar, þreytandi skothríðar- og spreng- ingasenur. Handritið einn khsju- haugur. -PÁ Á elleftu stundu ★★ Smellnar aðstæður og frábær elt- ingaleikur vega upp á móti fæðing- argöllum í handriti. Engin tíma- sóun. -GE Aðrar 48 stundir ★'A Handritið er aðalgalh myndarinn- ar. Ófyndinn Eddie Murphy getur, htlubjargað. -GE Ævintýri Pappirs-Pésa ★★ Nýjasta íslenska kvikmyndin er fyrir böm og góð sem slík en hún er langt frá því að vera gallalaus. -HK Leitin að rauða október ★★★ Róleg uppbygging meö hörku- spennandi síðari hluta. Sean Conn- ery gnæfir yfir aðra leikara í mynd- inni. -HK Yinstri fóturinn ★★★★ Ótrúlega góður leikur Daniels Days Lewis í hlutverki fjölfatlaös manns gleymist engum sem myndina sér. -HK Paradísarbíóið ★** ’/j Það iíður öllum vel eftir aö hafa séð þessa einlægu og skemmtílegu mynd. -HK LAUGARÁSBÍÓ Á bláþræði ★★ Ekki vantar fyrirferðina í Goldie Hawn og Mel Gibson en heldur þunnur þrettándi þegar upp er staöið. -HK Aftur til framtíðar III ★★★ Krafturinn í tímaflakkssögunni er búinn en frígfrinn eftir. Rennur áfram á fomri frægð, einföld og auðmelt en mjög skemmtileg. Sjáið endilega hinar tvær á undan. -GE Upphaf 007 ★★ Ágæt saga þótt ekki votti fyrir frumleika. Jason Connery stendur sigsæmilega. -GE REGNBOGINN Hefnd ★★ Löng ládeyöa áður en kemur aö góðu hlutunum. Quinn frábær, Scott ófrumlegur, Costner freöinn. -GE Náttfarar ★★★ Óvenjulega frumleg hrollvekja með mýstískum undirtónum. Barker er geysiefnilegur leiksfjóri. -GE Timaflakk ★★'A Unnendur visindaskáldsagna ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum með þennan framtíðarþrlller sem býöur upp á skemmtilegan og um leið fáránlegan söguþráð. -HK í slæmum félagsskap ★★★ Sálfræðiþriher í anda Hitchcocks. James Spader frábær í hlutverki bráðarinnar. -HK Nunnur ó flótta ★★ Ágæt afþreying þrátt fyrir htinn innblástur handrits. Eric Idle held- urvelli. -GE STJÖRNUBÍÓ Síðasti uppreisnarseggurinn ★ Afar vont bíó sem heföi átt að fara beint á video. Ein klisjuhrúga öll- um th ama og leiðinda. -PÁ Með tvær í takinu ★★★ Lágvær fyndni og lúmskt gaman gert að einkaspæjurum. Bráð- skemmtileg mynd þrátt fyrir galla Ihandriti. -PÁ Fram í rauðan dauðann *★'/» Lawrence Kasdan hefur áður gert betur en góðir sprettir inn á mihi gera myndina vel þess virði að sjá hana. -IIK Pottormur í pabbaleit ★★ Hin fuhkomna fjölskyldumynd sem er frumleg fyrstu mínúturnar en verður svo ósköp venjuleg. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.