Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1990, Síða 2
28 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1990.
BMW 520i Opel Omega 2,4i Nissan Maxima Fiat Croma i.e. Volvo 740 Renault 25 Mercedes-Benz 200 Honda Legend
Átta bílar klessukeyrðir í öryggisprófun:
Benz og BMW öruggastir
Alkunna er að sumir bílaframleiö-
endur leggja verulega áherslu á það
í auglýsingum sínum hve öruggir
bílar þeirra séu og veiti ökumanni
og farþegum mikla vernd þegar á
reynir. Vissulega er þetta mjög mis-
munandi en þó skyldi maður halda
að allir framleiðendur reyndu að
hafa það að leiöarljósi að kaupend-
unum væri sem best borgið í þeim.
Það var því mjög forvitnilegt að
skoða sérútgáfu þýska blaðins auto
motor und sport, 19/1990, þar sem
sagt er frá árekstursprófum sem
blaðið geröi á 8 valinkunnum bílteg-
undum. Blaðið keypti sem sagt átta
nýja bíla til þess aö klessukeyra þá
og segja lesendum sínum frá niður-
stöðunni.
Bíltegundirnar voru þessar: BMW
520i; Opel Omega 2,4i; Nissan Max-
ima; Fiat Croma i.e.; Volvo 740; Re-
nault 25; Mercedes-Benz 200, Honda
Legend.
í blaðinu er gerð grein fyrir því
hvemig klessuprófið er gert. í sem
stystu máli er það á þann veg að bíl-
unum er ekið með 55 km hraða á 100
tonna steindrang, sem sjálfur er með
15 gráðu halla undan áreksturs-
horninu. Þetta er verulega harðari
árekstur en bílar eru látnir undir-
gangast til að mynda í Bandaríkjun-
um. Bíllinn er látinn lenda á drangn-
um með hægra hornið fyrir utan
hann, þannig að höggið verði skakkt,
því langflest högg í raunverulegum
slysum ber skakkt að. Blaðið getur
þess að þessi aðferð klessuprófs sé
það sem á enskri tungu kallast
„worst case“ - versta fall.
Megintilgangur prófsins var að at-
huga hve vel - eða illa - bílamir
vernduðu ökumann og framsætisfar-
Gtobusn
Bíladeild
Lágmúla 5, sími 91-681555
iab 90 ’86, gott eintak, útv/seg- Ford Sierra árg. ’85, ek. 89.000,
b., ek. 68.000, v. 650.000. grágrænsans., útv/segulb, v.
550.000.
Allir bílar yfirfarnrr og
í 1. flokks ástar.di
Isuzu Wind 4x4 D, 11 manna ’88,
ek. 72.000, innr. af Ragnari Vals.
V, 1.580.000.
MMC Lancer 4x4, 2 stk. ’87, hvítur,
ek. 72.000, blásans., ek. 55.000, bíl-
ar i góðu ásigkomuiagi, v. 820.000.
Opið í dag 10-14
Ökumannsdyr BMW opnuðust léttilega, jafnvel þótt dyrastafurinn að framan
hefði aflagast lítið eitt.
þega í versta falls árekstri. Lík-
amsskaða við slys er skipt upp í þrjá
meginflokka: háls og höfuð; bringu
og bol; lendar og fætur. Veigamestur
þessar flokka er sá fyrsti, háls og
höfuð, og er þar talað um HlC-gildi
höfuðáverka (HIC = Head Injury
Criteria). Höfuðhögg er orðið alvar-
legt ef HlC-tcdan er orðin 1000. Viö
HlC-töluna 1500 er orðiö tvísýnt um
líf. (Algengara mun að nota annan
skala fyrir HlC-mælingar, þar sem
HIC 1000 þýðir dauða. í þessari mæl-
ingu auto motor und sport er sem
sagt notaður nákvæmari skali, þar
sem hættumörk hefjast við HIC1000)
í skilgreiningum á slysaáverkum eru
höfuðáverkar taldir hvað hættuleg-
astir og þykir mest um vert að koma
út með sem lægsta HlC-tölu í prófun-
um sem þeirri sem hér er frá sagt.
BMW520Í
Við lítum á niðurstööur blaðsins
fyrir hvem bíl fyrir sig, í sömu röð
og auto motor und sport segir frá
þeim. BMW er fyrstur í röðinni og
þess er getið sérstaklega að þó vitað
hafi verið fyrirfram að bílar af 5-
Hnunni frá BMW væru mjög öruggir,
hafi frábær frammistaða bílsins í
Höfuð ökumannsbrúðunnar lenti á
stýrishjólinu ofanverðu, þar sem
það fjaðrar vel. Þetta veitti minnstu
höfuðmeiðsli allra átta bilanna i
prófinu.
þessu prófi komið á óvart. Farþega-
hólfið aflagaðist aðeins örlítiö: topp-
urinn gekk eilítið upp og dyrastafur-
inn réttist vitund. Stýrisarmurinn
gekk ekki teljandi inn í bílinn heldur
keyrðist niður, þannig að ökumaður-
inn (eða réttara sagt brúðan sem í
svona árekstrum kemur í ökumanns
stað) lenti ekki með höfuðið á miðju
stýrishjóhnu, þar sem það lætur ekki
undan, heldur efst á því þar sem það
fjaðrar, þannig að HlC-gildi var vel
fyrir neðan teljandi hættumörk, HIC
880. Fætur og mjaðmir voru litt
Opel Omega fór afar illa i prófinu. Hjólið gekk inn undir gólf, dyrastafurinn
skekktist, hurðin beyglaðist og toppurinn gekk upp. Stýri og mælaborð
gengu langt inn i bil.
meidd, ekki verulegar líkur á innri
meiðslum og brjóstmeiðsli ekki telj-
andi. Farþegahólf bílsins aflagaðist
mjög lítið og hægri hliðin var furðu
óskemmd eftir áreksturinn. Allar
hurðir mátti opna með lítilli fyrir-
höfn. Vatn og oha lak úr flakinu. Það
sem helst var fundið að var að sætis-
beltin eru úr svo teygjulausu efni aö
eldra fólki væri hætt við rifbroti út
frá beltunum.
Metin áhættuniðurstaða:
Háls og höfuð: Lágmarks.
Bringa og bolur: Lágmarks.
Lendar og fætur: Lágmarks:
Opel Omega
Um Opel Omega er sagt að sam-
kvæmt hlutfollum ætti hann að geta
haft góða krumpueiginleika framan
við farþegahólf; að sá hluti hans sem
er framan við framrúðu ætti að geta
dregið vel úr höggi þannig að far-
þegahólfið verjist vel. Því miður fór
þetta ekki sem skyldi og farþegahólf-
ið fór verr en búist var við fyrirfram.
Stýrisstöng og mælaborð gekk 15
sentímetra inn í bílinn og framhjólið
innundir sæti; raunar kom fram á
sjálfvirkri kvikmyndavél að stýrið
gekk enn lengra inn en kýldist nokk-
uð til baka undan höfði ökumanns-
ins. Fótstigin færðust 30 sm aftar í
bíhnn. Allir vökvar láku af bílnum,
hka af rafgeymi. Allar dyr reyndist
hægt að opna án hjálpártækja en
þurfti að taka rösklega á ökumanns-
hurðinni. Hins vegar var vafasamt
hvort það hefði skipt verulegu máli
því brúðan sem gilti fyrir ökumann
var með höfuðáverka upp á 1700 HIC,
það hæsta sem mældist í þessum átta
prófum. Kvikmyndin sýndi að brúð-
an skall með andlitið á stýrismiðj-
unni og hökuna á stýrisarmi, og
meira að segja framsætisfarþeginn
skall með andhtið á mælaborðið.
Miðað við þessa höfuðáverka er það
léleg huggun að mjaðma- og fótaá-
verkar voru ekki nema í meðallagi
og bringu- og bolsáverkar í lágmarki.
Metin áhættuniðurstaða;
Háls og höfuð: Hámarks.
Bringa og bolur: Lágmarks.
Lendar og fætur: Miðlungs.
Nissan Maxima
Blaðið segir að yfirleitt kaupi menn
ekki japanska bíla öryggisins vegna.
Þar komi fremur önnur atriði til
greina, svo sem eins og búnaður og
frágangur, vélarorka og verð. Samt
geti Japanir ekki veriö stikkfrí hvað
öryggi ökumanns og farþega snerti;
bílar þeirra séu vissulega ekki síst
gerðir fyrir Bandaríkjamarkað og
hljóti því að verða að uppfyha þau
skilyrði sem þar eru gerð.
Nissan Maxima er bíll sem greini-
lega er gerður með Evrópumarkað í
huga og hefur einmitt um þessar
mundir verið valinn bhl ársins í
Danmörku, fyrstur japanskra bíla að
hljóta þá útnefningu. Maxima stóð
sig ekki Ula í klessuprófinu. Stýrið
gekk 17 sentímetra inn í bílinn við
höggið en keyrðist að mestu fram og
niður aftur undan bringu öku-
mannsins sem hefði í raunveruleg-
um árekstri getað valdið einhverjum