Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1990, Blaðsíða 4
30
BOar
LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1990.
Eigum nú til sölu
úrval notaðra vélsleða
Teg. Árg. Verð
AC Prowler 1990 520.000
AC Wild Cat 1990 640.000
AC Wild Cat 1988 470.000
AC Cheetah 1989 500.000
AC Cheetah 1987 360.000
AC Jag 1989 390.000
AC Pantera 1987 350.000
PolarisSS 1983 180.000
AC Cheetah 1987 370.000
AC Jag 1989 400.000
ÓSKUM EFTIR SLEÐUM
í UMBOÐSSÖLU
MIKIL EFTIRSPURN
OpiA virka daga 9-18 og laugardaga 10-14
Góðir bílar
á góðu verði
Honda Accord EX 2000’88, sjálfsk., Renault Escape ’87, 5 g„ 5 d.,
4ra d., rauður, ek. 55.000, v. grænn, ek. 58.000, v. 1.590.000.
1.150.000
Breyttur afgreiðslutími
Opið kl. 13-17
BMW 325i 2500 '87, 5 g., 4ra d., BMW 316 SL 1800 '88, 5 g., 2ja d.,
rauður, ek. 70.000, v. 1.650.000. steingrár, ek. 19.000, v. 1.150.000.
BMW 316 '87, 5 g., 2 d., rauður, ek. Volvo 244 DL '82, 4 g., 4 d., rauður,
56.000, v. 850.000. ek. 100.000, v. 375.000.
BMW 520i 2000 '88, 5 g., 4ra d.,
gullsans., ek. 68.000, v. 1.850.000.
Nissan Sunny Twin Cam SR '88, 5
g., 3ja d., rauður, ek. 65.000. V.
950.000.
Átta
bílar
klessu-
keyrðir
þetta, ásamt slæmri afstöðu stýris-
hjóls og stýrisarms.
Metin áhættuniðurstaða:
Háls og höfuð: Miðlungs.
Bringa og bolur: Lágmarks.
Lendar og fætur: Lágmarks.
Renault25
Renault 25 er bíll sem við þekkjum
ekki hér á landi. Hins vegar er þetta
afar skemmtilegur bíll í akstri og
virkar traustur. Hann fór þó ekki
ákaflega vel í klessuprófl auto motor
und sport. Vinstri dyrastafurinn
gekk aftur og toppurinn upp, gólfið
aftur og upp. Mælaborðiö gekk ekki
teljandi inn í bílinn en það brotnaði
þegar hné ökubrúðunnar kýldust
upp undir það og beittar brúnir
mynduðust í brotunum. Stýrið gekk
heldur ekki teljandi aftur en þeim
mun meira upp, eða 35 sentímetra.
Hurðarhúnninn á ökumannshurð-
inni brotnaði af viö átak upp á 18
kílópund þegar reynt var að opna
bíbnn og þaö þurfti slökkvilið með
tæki til að komast inn í bílinn.
Renault 25 var eini bílbnn af þess-
um átta sem kviknaði í við árekstur-
inn þegar skammhlaup varð í raf-
leiöslu. Það kom líka í ljós að líkt og
í Fiat Croma slasaöist farþeginn
einnig verulega, við það að slást með
höfuðið fram í mælaborð. Við skoðun
á kvikmynd kom í ljós að við höggið
hnykktist ökumaðurinn fram og
lenti með háls og kinn á stýrinu sem
kom með miklu höggi upp og í fram-
haldi af því niður á brúnina á mæla-
borðinu vinstra megin. Þessi mikb
hnykkur reyndi mjög á banakringl-
una og hálsvöðvana að auki. Þegar
svona er í pottinn búið er spurning
hvort það kemur að miklu gagni þótt
btið hafi reynt á bringu og bol og
aðeins í meðaliagi á mjaðmir og fæt-
ur.
Metin áhættuniðurstaða:
Háls og höfuð: Hámarks.
Bringa og bolur: Lágmarks.
Lendar og fætur: Miðlungs.
)
Mercedes-Benz 200
Auto motor und sport er ekki í
vafa um það aö MB sé giska vel gerð-
ur bíll. Farþegarhólfið í honum
reyndist sterkast þessara átta klessu-
bíla og aflagaöist varla svo teljandi
væri, ekki einu sinni hurðirnar, og
þeim mátti öbum upp ljúka með
handafli, meira að segja ökumanns-
hurðinni, en þó þurfti að taka dálítið
hressilega á henni. Stýri og mæla-
borð gengu mjög lítið inn í farþega-
hólfið og gólfið og fótstiginn gengu
minnst inn allra þessara átta bíla.
Það er heldur af hinu iba að viö
áreksturinn varð skammhlaup í raf-
kerfi MB 200 bílsins sem setti flaut-
una í gang, svo og startarann. Þetta
hefði getað valdið íkveikju ef illa
hefði tekist til.
Ökumannsbrúðan skellti enninu í
miðkafla stýrishjólsins sem að vísu
er til þess ætlaður að fjaðra lendi
þvílíkt högg á honum. Höggið sam-
svaraði HlC-gildi 1238, sem að vísu
er hátt en ekki lífshættulegt, segir
blaðiö, og lætur þetta ekki verða MB
til áfelhs. Afgangurinn af bkamanum
er vel varinn í MB, segir blaðiö og
getur þess að í hann vanti ekkert
nema loftpúðann til þess að hann
geti státað af hámarksöryggi.
Metin áhættuniðurstaða:
Háls og höfuð: Lágmarks.
Bringa og bolur: Lágmarks.
Lendar og fætur: Lágmarks.
Honda Legend
Honda Legend, sem selst eins og
heitar lummur á Bandaríkjamarkaði
undir heitinu Acura, en fyrsti jap-
Wrm
;i
Renault 25 var eini bíliinn sem kviknaði í við áreksturinn.
Þegar klæðningin var rifin af mið-
plötunni i stýrinu á Mercedes-Benz
bilnum kom í Ijós að platan undir
hafði dældast.
Vel má sjá hvernig leðurklæðningin
á höfði ökumannsbrúðunnar hefur
flipast við höggið er hún lenti á mið-
plötunni í stýrishjóli Benzins.
farþegahólfið sjábt. Dyrastafurinn
keyrðist aftur, hurðin beyglaðist út
og toppurinn gekk upp. Mælaborðið
rifnaði að hluta til úr og gólfið gekk
svo mikið upp og aftur að fætur öku-
mannsbrúðunnar klemmdust þar
fastir. Það þurfti kúbein á hurðina
til að opna bíbnn. Topplúga úr gleri,
sem er staðalbúnaður á bílnum, fór
í mél og mask. Ökumaðurinn sló
höfðinu af miklum þunga við stýrið
og þar sem einnig vast upp á það um
80 gráður eða þar um bil má búast
við lífshættulegum höfuð- og hálsá-
verka. Fætur og mjaðmir ökumanns-
ins urðu líka fyrir verulegu hnjaski.
Blaðið dregur þá lokaniðurstöðu
af því hvernig Hondan fór aö banda-
rískur öryggisstaðall sé langt frá því
að vera viðunandi.
Metin áhættuniðurstaða:
Háls og höfuð: Hámarks.
Bringa og bolur: Miðlungs.
Lendar og fætur: Hámarks.
Niðurstöður í heild
Vafasamt er að hægt sé að tala um
endanlega niðurstöðu úr þessu viða-
mikla prófi þýska blaðsins og örugg-
ast að bta á niðurstöðu hvers bíls
fyrir sig. Hins vegar er óhætt aö segja
að þýsku hötðingjarnir, Mercedes-
Benz og BMW, komi mjög vel út úr
prófinu. Nokkra umhugsun vekur
hjá leikmanni hvers vegna áhættu-
niðurstaða fyrir háls og höfuð hjá
Mercedes-Benz er ekki metin „miðl-
ungs“ með tilliti tb þess að HlC-gildi
Gólfið í Honda Legend gekk svo mikið upp að brúðan náðist ekki út öðru
vísi en skórnir yrðu eftir.
höfuðáverkans er svo hátt sem raun
ber vitni. Hugsanleg skýring gæti
verið sú hvar á höfuðáverkinn kom
og það geri að verkum að hann sé
ekki hættulegur þó hann sé alvarleg-
ur.
Fróðlegt hefði verið að sjá íleiri
bíla prófaða með sama hætti. Þar
má nefna SAAB 9000, Citroen AX,
Peugeot 605 og vitaskuld nýju, finu
japönsku bílana eins og Toyota Lex-
us og Mitsubishi Sigma. En það verð-
ur trúlega aö bíða betri tíma.
Samantekt: S.H.H.
anski bíllinn sem keppir við vest-
ræna bíla í flokki stórra og fínna
fólksbíla. Hins vegar verður að segj-
ast sem er að hún kom ekki vel út
úr þessu prófi auto motor und sport.
Höggið náöi af fullum krafti inn í
Áverki á brjósti eftir að hendast á
stýrishjólið i Honda Legend.