Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1990, Síða 5
LAUG MIDAG.Wa3v NÓyW.BER
35
Bílar
Trabbinn
kom á óvart
Slasaður að vísu, en ekki lífshættulega. Takið eftir hve heillegt far-
þegahólf Trabantsins er. Hurðirnar mátti auðveldlega opna - og loka
aftur.
í samhengi við þá öryggisprófun
auto motor und sport, sem sagt er
frá annars staðar í DV Bílum, er
gaman að segja frá því að annað
þýskt blaö, Auto Bild, tók austur-
þýska plasteign á hjólum, Trabant,
og öryggisprófaði með líkum hætti.
Blaðið dregur ekki íjöður yfir það
aö þar var tilgangurinn sá að
, jarða“ bílinn í eitt skipti fyrir öll,
með því að sýna fram á hvílíkur
háskagripur hann væri. Ef til vill
segir millifyrirsögn úr blaðinu
mest um niðurstöðumar: „Die Ex-
perten werden úberrascht" - sér-
fræðingarnir urðu hlessa.
Og er nú best að vitna orðrétt í
blaðið: „„Ótrúlegt hvað farþega-
hólfið hefur haldið sér vel.“ - „Sjá-
iði bara, bensíntankurinn strá-
heill!” Schmidt verfkfræðingur
opnaði ökumannsdyrnar. „Ekkert
að.“ Og satt var það, báðar dyr
opnuðust og lokuðust með sann-
færandi hljóði. Sætisfestingar og
bílbelti héldu tryggilega. Dr. Heus-
er var varfærinn: „Ég segi ekkert
fyrr en ég sé niðurstöður mæling-
anna.“
Aðrir líta margir
verr út
Trabantinn brosti skökku brosi á
Trabantinn brosti skökku brosi...
Framhlutinn á bílnum er i rauninni
með ólíkindum heill eftir þennan
árekstur - og eins og sjá má er
ekkert að bensingeyminum.
móti okkur. Húddið er brotið eins
og hnetuskurn. Beittar brúnirnar
skaga út í loftið. Stýrisstöngin er
gengin upp, stýrishjólið brotið. Það
er ekkert óvanalegt eftir árekstur.
Aðrir smábílar líta margir verr
út.“ Menn gáðu aftur að því hvort
bensíntankurinn væri örugglega
heill, svo mjög sem staðhæft hafði
verið að aðalhættan í Trabantinum
væri eldhætta af því hann væri
með tankinn frammi í. Það var
ekkert að tanknum og ekkert að
bensínlokinu.
Síðan komu niðurstöður mæling-
anna. HIC gildi höfuðáverka var
ekki nema 727 (athugið að hér er
miðað við lægri HIC skala en í átta
bíla prófuninni: hér er HIC 1000
sama og dauði, en hættumörk hefj-
ast við HIC 1000 í hinni prófun-
inni). Það þýddi að ökumaðurinn
var að vísu með höfuðáverka, en
ekki í lífshættu. Ástæðan? Hann
lenti ekki á stýrismiðju meö höfuð-
ið, heldur á fjaðrandi stýrishjólinu
ofanverðu.
Vangaveltur um ann-
arskonarhögg
'FÍamsætisfarþeginn kom enn
betur út, með HIC 438. Aðrir hlutar
líkamans sluppu tiltölulega jafnvel
enn betur - og nú þurftu sérfræð-
ingarnir aö fara að hugsa upp á
nýtt. Var Trabant kannski, þegar
öllu var á botninn hvolft, öruggari
bíll en Panda, Fiesta eða Polo?
Samkvæmt þessu prófi virðist
svo vera. En menn eru ekki búnir
að hefia Trabant á stall fyrir því.
Hetði höggið verið látiö koma á
hann hægra megin, en ekki vinstra
megin, segir blaðið, þeim megin
sem bensíngeymirinn er, hefði út-
koman orðið önnur og verri. Eða
ef keyrt hefði verið á hann á hlið -
eða aftan frá.
Sem breytir ekki því að miðað við
þetta staðlaða próf stóö Trabant sig
ákaflega vel. Því er líka alveg
ósvarað í þessum prófunum hvern-
ig aðrir bílar standa sig gegn
árekstri á hægra horn, á hliðar eða
aftan á. Mergurinn málsins er sá
að Trabant stóð sig ákaflega vel á
þessu prófi.
Samantekt: S.H.H.
ÍITLA
L'/nAulcUV.
Skeifunni 11 B
Faxafensmegin, s. 679610
Ford Econollne 1979 bonsin, or-
iginal 4x4, 12 manna, v.
1.250.000.
GMC Slerra 1500 ’B8, 8 cyl. 305, | v. 1.650.000.
i jlfcg
Ford Bronco II ’87, v 6 EFi, ek. 80.000, v. 1.190.000.
Vantar allar gerðir bíla á
skrá og á staðinn.
Lofum góðri sölu.
ÍITLA
L'/siAaJuu