Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1990, Blaðsíða 8
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990.
Utboð
Ólafsvikurvegur um Mýrar 1990
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk. Lengd kafla 7,4 km, fyllingar 60.000
m3, skeringar 8.000 m3, burðarlag 43.000 m3 og
klæðing 45.000 fermetrar.
Verki skal lokið 15. ágúst 1992.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
í Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 13. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum
fyrir kl. 14.00 þann 26. nóvember 1990.
Vegamálastjóri
Hinhliðin
Styrkur til
handritarannsókna
í Kaupmannahöfn
í framhaldi af lyktum handritamálsins hafa dönsk
stjórnvöld ákveðið að veita íslenskum fræðimanni
styrk til handritarannsókna við Stofnun Árna Magn-
ússonar (Det arnamagnæanske Institut) í Kaup-
mannahöfn. Styrkurinn veitist til allt að tólf mánaða
dvalar og nemur nú um 15.500 dönskum krónum á
mánuði, auk ferðakostnaðar. Umsóknarfrestur er til
7. desember nk. Nánari upplýsingar um styrkinn og
tilhögun umsókna fást í menntamálaráðuneytinu,
Stofnun Árna Magnússonar á íslandi og skrifstofu
heimspekideildar Háskóla (slands.
Menntamálaráðuneytið,
8. nóvember 1990.
HOLZ-HER
Ótakmarkaðir möguleikar
HOLZ-HER 2356 -
handfræsarans með
stiglausa rofanum
Straumnotkun 850 W
Hulsustærð 8 mm
Lausagangssnúningur 8000-24000 /mín
Þyngd 2,7 kg
Fræsidýpt - fínstilling 0,5 mm
Strokksnúningur
4 metra gúmmíleiðsla
Land með fínstillingu
Fjölbreyttir fylgihlutir
HMIBÆBMTÖM H/F
MEIRIHÁTTAR MICHELIN MARKAÐUR
HUÓÐLÁT og
RÁSFÖST.
LAUSNARORÐID
S-200.
FLESTAR STÆRÐIR
FYRIRLIGGJANDI.
MERKID TRYGGIR GÆDIN.
MICHELIN.
LLANDI GRIPSKURÐIR.
MICHELIN
TVÚFÚLD ENDING.
STÓRKOSTLEGT GRIP FRÁBÆR ENDING
TOPPURINN Í DAG, MICHELIN.
MICHELIN
HMLBMBASTOBIJV H/F
SKEIFUNNI 5.SIMAR 687517 OG 689660
Jón Hjartarson leikari.
Alltaf að sjá
sætar stelpur
„Eg var beðinn að skrifa þessa
þætti sem áttu að vera stuttir og
skemmtilegir, eða notalegir, með
rólegri húmor en tíðkast hefur
undanfariö,“ segir Jón ifjartarson
Ieikari og höfundur nýrra, ís-
lenskra leikþátta, Líf í tuskunum,
sem hófu göngu sína hjá Sjón-
varpinu sl. laugardag. Jón skrifaði
þættina í sumar og segir að margir
gamalkunnir leikarar muni koma
við sögu í þeim. Sjónvarpið er nú
að leggja lokahönd á upptökur þátt-
anna. Margir hafa vafalaust tekiö
eftir umhverfi verslunarinnar en
ennþá finnast slíkar verslanir inn-
an um stórhallirnar. Og allt er eins
og þaö á vera; meira að segja nýt-
ísku sjóðvél í staðinn fyrir gamal-
dags peningakassa - enda á leikur-
inn aö gerast í dag. Það er Jón
Hjartarson sem sýnir hina hliðina
að þessu sinni.
Fullt nafix; Jón Jóhann Hjartarson.
Fæðingardagur og ár: 20. janúar
1942.
Maki: Ragnheiður Tryggvadóttir.
Börn: Þrjár stelpur og einn strákur
á aldrinum frá 2ja ára upp í 26 ára.
Bifreið: Lada, árg, ’87.
Starf: Leikari með meiru.
Laun: Fastakaupið er um 85 þús-
und á mánuði.
Áhugamál: Það er fyrst og fremst
leikhúsið en þar fyrir utan hestar
og menn.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Þrjár tölur en ég
gleymdi að sækja tvö hundruð kall-
inn sem ég vann vegna þess að ég
áttaði mig ekki á þessu fyrr en
löngu seinna.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Mér finnst skemmtilegast að
vinna með góðu fólki.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að gera ekki neitt.
Uppáhaldsmatur: Það er eiginlega
fiskur i hvaða formi sem er. Ég hef
gaman af að elda sjálfúr.
Uppáhaldsdrykkur: íslenska lind-
arvatnið,
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag að þínu mati? Tví-
mælalaust Geiri þegar hann var
nærri búinn aö sigra í skeiði á
Garpi Guðnýjar konu sinnar bæði
í Tungunum og austur á Skeiðum.
Uppáhaldstimarit: Erfitt að segja
til um það - ég les helst leikhús-
tímarit.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Ég er
alltaf að sjá sætar stelpur,
Ertu hlynntur eða andvigur rikis-
stjórninni? Bæði og. Mér finnst hún
hafa staðið sig mjög illa í menning-
armálum.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Það væri gaman að hitta fullt
af fólki. Ég hefði til dæmis mjög
gaman af aö hitta Dario Fo en ég
hef verið náiægt því tvisvar en allt-
af misst af honum.
Uppáhaldsleikari: Ætli ég svari því
ekki svo aö þaö sé leikhópur LR á
góðum degi.
Uppáhaldsleikkona: Sigríður Lá-
retta Jónsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Erlingur
frændi sem syngúr í óperunni í
Köln.
Uppáhaldsstjómmálamaður: Við
getum mikið lært af Jacques Lange,
menningarmálaráðherra Frakka.
Uppáhaidssjónvarpsefni: Það er nú
þetta litla sem framleitt er af ís-
lensku efni bæði góðu og vondu.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi?
Alltaf á móti. Meðan herinn er má
draga sjálfstæði okkar í efa.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Hlusta minna og minna á út-
varp eftir því sem rásunum fiölgar
og er eiginlega hættur þvi.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Mér
fannst alltíaf mjög notalegt að
hlusta á Jóhannes Arason lesa
fréttir en nú er hann hættur.
Hvort horftr þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið. Ég hef ekki
afruglara.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Eng-
inn sérstakur.
Uppáhaldsskemmtistaður: Nú er
maður hættur aö fara út aö
skemmta sér svo það er eiginlega
leikhúsið.
Uppáhaldsfélag í iþróttum? Ég gekk
ungur til liðs við UMF Reyni á
Helhssandi.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Hef enga fimm ára
áætlun né heldur fimm hundruð
daga en er alltaf í stellingum til að
takast á við það óvænta.
Hvað gerðir þú i sumarfríinu? Vann
við húsið mitt-sem ég lét flytja frá
Bergstaðastræti á Skerplugötu og
hef veriö að gera upp. Auk þess fór
sumarfríið í aö skrifa þættina fyrir
Sjónvarpið. -ELA