Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1990, Síða 1
21
Jóladagskrá Sjónvarpsins verð-
ur að ýmsu leyti með hefðbundnum
hætti þetta árið. Dagskráin er sem
fyrr lengri og íburðarmeiri en
venjulega og verður hér aðeins
stiklað á stóru.
Útsending á aðfangadag byrjar
um eittleytið og þá á barnaefni, sem
renna mun stanslaust á skjánum
fram til rúmlega hálífimm til að
stytta yngstu kynslóðinni biðina. í
þessum pakka er síðasta myndin
úr jóladagatalinu á Baðkari til
Betlehem.
Hlé verður gert á dagskránni til
kl. 21.40 en þá hefst Jólavaka í
umsjón Sveins Einarssonar en þar
munu leikararnir Jóhann Sigurð-
arson og Þórunn Magnea Magnús-
dóttir og hljóðfæraleikararnir
Anna Guðný Guðmundsdóttir og
Sigurður I. Snorrason flytja jóla-
dagskrá.
Eins og venja er mun aftansöngur
jóla verða klukkan 22.00 en þá
messar biskupinn yfir íslandi, 01-
afur Skúlason, messu í Langholts-
kirkju. Því næst verður sýnd dag-
skrá frá Prag og þar munu koma
fram stórsöngvararnir Ileana Co-
trubas og Placido Domingo. Kynnir
á þessari dagskrá er Sally Magnus-
son, dóttir sjónvarpsmannsins
Magnúsar Magnússonar.
Þrettándakvöld
og Jólastundin
Dagskráin á jóladag hefst með
sýningu á leikriti Shakespeares,
Þrettándakvöldi, sem hér er í flutn-
ingi víðkunnra breskra leikara.
Stóri-Kláus og Litli-Kláus mæta svo
á skjáinn og boða komu eins vin-
sælasta efnis í Sjónvarpinu: Jóla-
stundarinnar. Að venju kemur
jólasveinn í heimsókn og margt
fleira verður til skemmtunar.
Nýr ítalskur myndaflokkur fyrir
alla fjölskylduna hefst á jóladag og
fjallar hann um krakka sem neydd
eru til að starfa fyrir glæpahring
í Sjónvarpinu
- kvikmyndir, messa og menning
Hátiðleikinn verður allsráðandi á aðfangadag. Þessi mynd er úr Jólavök- José Carreras syngur lög eftir Andrew Lloyd Webber á öðrum degi jóla.
unni.
nokkurn.
í kjölfarið fylgir ný mynd eftir
Viðar Víkingsson sem fjallar um
Guðmund biskup hinn góða. Við
gerð þessarar myndar var beitt
nýrri tækni sem gerir kleift að
blanda saman leiknum atriðum og
myndum frá miðöldum.
Jólakvöldi í Sjónvarpi lýkur með
sýningu óskarsverðlaunamyndar-
innar Pelle sigurvegara en fyrr um
daginn verður sýnt viötal við leik-
stjórann Billie August.
íslenskar
þjóðsögur og Carreras
Dagskrá annars dags jóla hefst
með bandarísku stórmyndinni
Hrun rómaveldis en hún var gerð
árið 1964. í aöalhlutverkum eru
Sophia Loren, Alec Guinnes, James
Mason og Omar Sharif.
' Þá byrjar sýning á Pappírs-Pésa
og verður fyrsti hluti sýndur kl.
18.10. Tónlistin gleymist ekki og í
klukkustund mun spænski stór-
söngvarinn José Carreras syngja
lög eftir Andrew Lloyd Webber.
Sjónvarpið fékk þrjá atvinnuleik-
hópa til að velja sér íslenskar þjóð-
sögur og spinna út frá þeim sjón-
varpsmyndir. Hin fyrsta verður
sýnd að kvöldi annars dags jóla en
þá mun leiksmiðjan Kaþarsis flytja
Orm umrenning.
Dagskrá Sjónvarpsins þetta
kvöld mun ljúka á sýningu mynd-
arinnar Fiðlarinn á þakinu með
Topol í hlutverki Fiðlarans.
Nánar verður greint frá dagskrá
sjónvarps- og útvarpsstöðva í sér-
stökum kálfi sem út kemur laugar-
daginn 22. desember en ekki á
fimmtudegi eins og venj ulega. -JJ
Óskarsverðlaunamyndin Pelle sigurvegari verður á dagskrá Sjónvarps-
ins um jólin.
Strákurinn Jack fer ekki hefðbundnar leiðir.
Stöð 2 á sunnudagsmorgni:
í Frændgarði
í Frændgarði heitir þ'áttaröð sem
Stöð 2 tekur til sýninga og er hún
byggð á sögu eftir D.H. Lawrence og
Mollie Skinner. Á sunnudagsmorg-
uninn klukkan 11.10 verður fyrsti
hlutinn af fjórum sýndur.
Hér segir frá Jack sem er rekinn
úr skóla fyrir prakkarastrik átján
ára gamall. Hann er sendur á
bóndabæ í Ástralíu til að vinna fyrir
sér. Þarna tekst honum að ávinna sér
sess í þjóðfélaginu en strákur fer
sjaldan hefðbundnar leiðir.
Annar hluti verður sýndur á Þor-
láksmessumorgni á sama tíma.
Kvikmyndir um
helgina á Stöð 2
Nokkrar kvikmyndir verða
frumsýndar um helgina á Stöð 2. Á
fóstudagskvöldið kl. 23.40 verður
sýnd myndin Samsæri frá árinu
1988. Söguþráðurinn er í stuttu
máli sá að Reymond West, einn
mesti yfirgangsseggur bæjarins, er
óvænt látinn laus úr fangelsi. Hann
tekur strax til við að hóta bæjarbú-
um og kúga þá en gætir þess vand-
lega aö brjóta aldrei lögin. Þegar
hann finnst myrtur fimm dögum
síðar á lögreglan í miklum erfið-
leikum með að handtaka morðingj-
ann því bæjarbúar þegja allir sem
einn. Með aðalhlutverk fara Bruce
Boxleitner og David Graf.
Skömmu eftir miðnætti á laugar-
dag verður sýnd myndin Ofsinn við
hvítu línuna. Hér segir frá uppgjafa
flugmanni sem hyggst vinna fyrir
sér sem trukkabílstjóri. Hann flyt-
ur með konu sinni tfi Arizona í leit
að vinnu og fær starf hjá gömlum
vini sínum sem er ekki allur þar
sem hann er séður.
Með aðalhlutverk fara Jan-
Michael Vincent, Kay Lenz, Slim
Pickens og Don Porter. Þessi mynd
er stranglega bönnuð börnum.
Eina endursýningu er vert að
benda á fyrir þá sem vaka nógu
lengi. A aðfaranótt sunnudags
verður endursýnd myndin Von og
vegsemd eða Hope and Glory á
frummálinu. Myndin fiallar um
dreng sem upplifir stríðið á annan
hátt en gengur og gerist. Þegar
sprengjum rignir sér hann fyrir sér
hverja áramótabrennuna á fætur
annarri. En þaö kemur að því að
hans eigið heimili verður fyrir
sprengju.
Margir góðkunnir leikarar leika
í myndinni og má nefna Söru Mil-
es, David Hayman og Derrick O’-
Connor.
-JJ