Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1991, Side 1
Getraunir: 111-1x2 — 111 -xxx
Lottó: 13 -14 - 24 -25 - 31 (36)
Gífurlegur fjöldi lesenda DV valdi íþróttamann ársins 1990:
Bjami Fríðriksson
íþróttamaður ársins
- Pétur Guðmundsson kúluvarpari í 2. sæti. 148 íþróttamenn fengu atkvæði
„Þetta er mikill heiður fyrir mig og ég er mjög
ánægður með þennan mikla velvilja lesenda
DV,“ sagði Bjami Friðriksson júdókappi er það
var ljóst að lesendur DV höfðu kosið hann
íþróttamann ársins 1990. Bjarni sigraði í kjörinu
en 12. sæti varð Pétur Guðmundsson kúluvarp-
ari.
Bjarni náði frábærum árangri á árinu 1990.
Hann varð í 6. sæti á Evrópumeistaramótinu
og vann gullverðlaun á opna skandinavíska
meistaramótinu og opna norska meistaramót-
inu svo eitthvað sé nefnt. Þá var Bjami í þeim
sérflokki hér á landi á síðasta keppnistímabili
sem hann hefur verið mörg undanfarin ár.
Bjarni fékk að launum glæsileg bókaverðlaun
frá DV; Reykjavík, sögustaður við Sund í fjórum
bindum og íslandshandbókina í tveimur bind-
um. Örn og Örlygur gefa bækurnar út.
Samhliða talningu atkvæða í kjörinu var dreg-
ið út nafn eins heppins lesanda DV sem sendi
inn atkvæðaseðil. Sá heppni heitir Kristján H.
Guðmundsson og er 11 ára gamall. Gífurleg þátt-
taka var í kjörinu að þessu sinni og fengu sam-
tals 148 íþróttamenn atkvæði. Listi yfir nöfn 10
hæstu íþróttamannanna og nöfn allra annarra
sem fengu atkvæði í kjörinu eru birt á blaðsíðu
17. -SK
• Bjarni Friðriksson júdókappi tekur við verðlaunum sínum úr hendi Ellerts B. Schram, ritstjóra DV, eftir að hafa verið útnefndur íþróttamaður ársins 1990
af lesendum DV. Bjarni vann með nokkrum yfirburðum. Hann náði frábærum árangri á síðasta ári og er vel að heiðrinum kominn. Alls fengu 148
íþróttamenn atkvæði eins og fram kemur á bls. 17.
DV-mynd Brynjar Gauti
Kristján
meiddist
Kristján Arason handknattleiks-
maður meiddist aftur á öxl í leik
með liði sínu, Teka, á handknatt-
leiksmóti í Þýskalandi á dögunum.
í fyrstu var haldið að liðbönd
hefðu slitnað í öxlinni og að allt
hefði tekið sig upp að nýju en bet-
ur fór en á horfðist.
-SK/GH
Guðmunduræfir
hjáTottenham
Guðmundur Benediktsson,
knattspyrnumaður úr Þór, heldur
innan skamms til Englands og
mun verða við æfingar hjá hinu
þekkta liði Tottenham.
Guðmundur hefur gert nokkuð
víöreist í vetur og kynnt sér að-
stæður hjá nokkrum liðuni í Evr-
ópu sem hafa sýnt áhuga á að fá
hann í sínar raðir. Guöni Bergs-
son, leikmaður Tottenham, haföi
samband við Guðmund á dögun-
um og Guömundur bíður nú eftir
hringingu frá þjálfara félagsins
varðandi það hvenær hann á að
mæta til æfinga hjá félaginu.
-GK/Akureyri
AHreð samdi við KA
- allar líkur á að Gunnar Gíslason leiki einnig með KA í handboltanum næsta vetur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyii:.
Alfreð Gíslason hand-
knattleiksmaður hefur
skrifað undir þriggja ára
samning viðKAog mun
taka við þjálfun liösins næsta sum-
ar og einnig mun hann leika með
liðinu.
Alfreð sagði í samtah við DV í
gær að samningur hans viö Bida-
soa á Spáni tynni út í júní á næsta
ári, og eftir það kæmi hann heim
og tæki til starfa hjá KA.
Alfreö er gamall KA-maður og lék
síðast með liðinu árið 1979. Það
þarf ekki aðijölyrða um þaö hversu
mikill hvalrekl koma hans til KA
er fyrir félagið sem á fremur erfitt
uppdráttar í 1. deildinni um þessar
mundir.
Gunnar líka til KA?
En KA gæti fengið meiri liðsauka.
Gunhar Gíslason, bróðir Alfreðs,
er einnig á heimleið frá Svíþjóð þar
sem hann leikur knattspymu og
eru allar likur á að hann haldi til
Akureyrar og gangi til liðs við KA,
Þótt Gunnar hafi ekki leikiö hand-
knattleik undanfarin ár er hann
geysisterkur leikmaður og var
landsUðsmaður á sínum tíma.