Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1991, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1991, Síða 8
24 MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 1991. íþróttir Islandsmótið 1 innanhússknattspymu: Fram meistari í f immta skipti - Valsstúlkur hömpuðu titlinum 1 kvennaflokki Fram varð í gærkvöldi íslands- meistari í innanhússknattspyrnu í fimmta skipti í sögu félagsins. Fram og ÍBV áttust við í úrslitaleik og sigr- aði Fram með þremur mörkum gegn tveimur en í hálfleik var staðan jöfn, 2-2. Þetta var í fimmta skipti sem Fram verður íslandsmeistari í inn- anhússknattspyrnu og annað áriö í röð. Eyjamenn hafa hins vegar aldrei náð jafnlangt á mótinu og þeir gerðu að þessu sinni. Liðunum var skipt í íjóra riðla í 1. deild og tryggöu Fram, Fylkir, KA, KR, Stjaman, ÍA, ÍK og ÍBV sér sæti í átta liða úrslitum. Úrslit leikjanna í átta liða úrslitum urðu þessi: Fylkir-KA..,.................2-1 KR-Stjarnan..................6-A Fram-ÍA......................4-2 ÍBV-ÍK.......................6-5 Báðir leikirnir í undanúrshtunum voru mjög jafnir og spennandi. Fylk- ir, sem varð Reykjavíkurmeistari á dögunum, beið lægri hlut fyrir Fram, 2-1. Eyjamenn, sem komu einn mest á óvart á mótinu, gerðu sér lítið fyrir og sigruðu KR í hinum undanúrslita- leiknum, 3-2. í riðlakeppninni urðu óvæntustu úrslitin þegar ÍK úr Kópa- vogi sigraði Fram, 3-2, og varð eini ósigur Fram í mótinu. Úrslitaleikur Fram og ÍBV var frekar tilþrifalítill, bæöi Uðin léku af öryggi og tóku enga óþaria áhættu. Samt brá fyrir nokkurri hörku en enginn bar þó skaða af. Kristinn R. Jónsson, Ríkharður Daöason og Pét- ur Arnþórsson skoruðu mörk Fram en Tómas Ingi Tómasson og Hlynur Stefánsson mörk Eyjamanna. „Alltaf gaman aö vinna íslandsmeistaratitil“ „Það er alltaf gaman að vinna ís- landsmeistaratitil. Mér fannst úr- slitaleikurinn samt ekki vel leikinn en það var samt fyrir öllu að vinna sigur. Persónulega Unnst mér hark- an vera orðin of mikil í innanhúss- knattspyrnunni og leikmenn eru hræddir við að verða fyrir meiðslum. Þaö verður greinilega að taka harðar á þessari hörku í framtíðinni," sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari nýbakaðra íslandsmeistara í innanhússknatt- spymu, eftir úrslitaleikinn í gær- kvöldi. Þór frá Akureyri, Víðir úr Garði, Breiðablik og ÍR féllu í 2. deild en sæti þeirra í 1. deild taka FH, Víking- ur, Grótta og Haukar. Valur meistari í kvennaftokki Valsstúlkur urðu íslandsmeistarar eftir úrshtaleik við Skagastúlkur, 3-1, eftir framlengdan leik. -JKS iBf |NR 'im. 1 ||lf T-v&v. * W "&'■ ■'*" • Islandsmeistarar Fram I innanhússknattspyrnu 1991. Asgeir Elíasson, þjálfari liðsins, er lengst til hægri í aft- ari röð. DV-mynd Brynjar Gauti • Islandsmeistarar Vals í kvennaflokki í innanhússknattspyrnu 1991. Sigurbergur Sigsteinsson, þjálfari liðsins, er lengst til vinstri f aftari röð. ......... ■ -JKS • Ragnheiður Víkingsdóttir, fyrirliði Isiandsmeistara Vals í innanhússknatt- spyrnu, hampar bikarnum en Vaiur sigraði Skagastúlkur i úrslitaleik, 3-1, eftir framlengdan leik. DV-mynd Brynjar Gauti Evrópukeppnin í handknattleik: Stórsigur hjá Byásen - sigruðu Framstúlkur, 34-16 íslandsmeistarar Fram í kvenna- flokki í handknattleik fengu skell gegn norska félaginu Byásen í Evr- ópukeppni meistaraliða í Þránd- heimi í gærkvöldi. Byásen sigraði í leiknum með 34 mörkum gegn 16 eftir að staðan í hálíleik var 17-8 fyrir norska félaginu. Þetta var fyrri leikur liðanna en síðari ieik- urinn verður í Reykjavík á sunnu- daginn kemur og fá þá íslenskir handknattleiksáhugamenn tæk- ifæri til sjá eitt sterkasta félagshð í heimi í kvennahandknattleik. Eins og lokatölur leiksins gefa glöggt til kynna var á brattann að sækja fyrir Framstúlkur allan leik- tímann. Byásen tók leikinn í sínar hendur strax í upphafi og átti Fram ekki viðreisnar von. Framliðið lék undir getu og eins var markvarslan ekki góð, enda var Kolbrún Jó- hannsdóttir ekki öfundsverð af sínu hlutverkl. „Ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað norskur kvennahandbolti er sterkur fyrr en eftir leikinn. Norsku stúlkumar eru gríðarlega sterkar hvaö líkamlegu hliðina snertir, þær htu út eins og karl- menn. Forráðamenn liðsins sögðu eftir leikinn að Byásen heföi átt toppleik, enda náðu þær oft að sýna frábæran handknattleik. Við lék- um þarna við eitt sterkasta félags- lið í heimi,“ sagði Heimir Karlsson, þjálfari Framhðsins, í samtali við DV í gærkvöldi. Guðríður Guðjónsdóttir var veik í gær og því ekki í stuði í gær- kvöldi. Hún var engu að síður markahæst, skoraði sjö mörk. Trine Haltvik var óstöðvandi hjá Byásen og skoraði 12 mörk. Áhorfendur á leiknum voru 1300. • Mörk Fram: Guöríður Guð- jónsdóttir 7, Sigrún Blomsterberg 4, Ósk Víðisdóttir 2, Ingunn Bemódusdóttir, Hafdís Guðjóns- dóttir og Inga Huld Pálsdóttir 1 hver. • Mörk Byásen: Trine Haltvik 12, Karin Pettersen 5, Mia Her- mansson 4, Gry Haltvik 4, Kari Knutsen 3, Mona Dale 2, Marit Jo- hnsen 2, Ann Eriksen og Kristin Karlsen 1 hvor. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.