Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Blaðsíða 1
 listasafnASÍ: íslensk grafíklist íslensk myndlist á ferð um Norð- urlönd er yfirskrift sýningar graf- íklistamanna sem verður opnuð í Listasafni ASÍ á laugardag kl. 15.00. Á sýningunni eru nýjar myndir eftir 13 kunna listamenn. Inntak mynda á sýningunni er: íslenskur veruleiki, landið sjálft og/eða það sem gerir land og þjóð sérstæða. Að lokinni opnun í Listasafni ASÍ fer sýningin sem List um landið. Jafnframt sýningunni hér heima fer grafíksýningin ásamt mál- verkasýningu um Norðurlönd und- ir heitinu íslensk myndhst á ferð um Norðurlönd. Sýningin var opn- uð í Örebro í Svíþjóð 2. febrúar síð- astliðinn. Næstu sýningarstaðir eru Karlstad, Vasterás, Eskilstuna og Nörrköping. AUs er áætlað að sýningin íslensk myndlist á ferð um Norðurlönd fari til 15 staða á Norðurlöndum. GrafíkUstamennimir, sem eiga myndir á sýningunni, eru eftirfar- andi: Karólína Lárusdóttir, Ingi- berg Magnússon, Ragnheiður Jónsdóttir, Sigrid Valtingojer, Guð- mundur Ármann Sigurjónsson, Edda Jónsdótir, Daði Guðbjörns- son, Ingunn Eydal, Þórður Hall, Valgerður Bergsdóttir, Þorlákur Kristinsson (Tolli), Valgerður Hauksdóttir og Hafdís Ólafsdóttir. ÖU hafa þau haldið fjölda einka- sýningu og tekið þátt í samsýning- um víða um heim. Á sýningunni erlendis eru einnig málverk eftir listmálarana Helga Þorgils Frið- jónsson, Hring Jóhannesson og Tryggva Ólafsson. Sýningin í Listasafni ASÍ stendur til sunnudagsins 10. mars og er opin daglega frá kl. 14.00 til 19.00. Gyifi KristjánBson, DV, Akareyri: „Friður fyrir botni Sjallans" er nafh skemmtidagskrár sem frum- sýnd verður í Sjallanum á Akur- eyri annað kvöld. í sýningunni taka þátt tónlistarmenn og dansar- ar sem ætla að lifa sig inn í anda hippatímabilsins og er sú upplifun i mótsögn viö stöðuga umfjöliun um stríðið sem stendur yfir fyrir botni Persaflóa. Höfundur texta og leikstjóri er Bjami Hafþór Helgason en hljóm- sveitin Rokkbandiö og söngvararn- ir Berglind Björk Jónasdóttir, Guð- rún Gunnarsdóttir, Ingvar Grét- arsson og Pétur Hallgrímsson hafa veg og vanda af vali og meðferð á tónlistinni sem flutt verður. Þar er um að ræða dægurlög effir heims- kunna flytjendur. Sýningar vöröa aðeins fjórar, sú fyrsta annaö kvöld, sem fyrr sagði, en hinar 2., 8. og 9 mars. Þær keppa um titilinn ungfrú Norðurland um helgina. Akureyri: Ungfrú Norðurland kjörin í Sjallanum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Ungfrú Norðurland árið 1991 verður kjörin í Sjallanum á Akur- eyri í kvöld en alls keppa 10 stúlkur um titilinn að þessu sinni. Stúlkurnar koma allar frá Akur- eyri nema ein sem er Dalvíkingur. Þær koma fyrst fram á baðfótum og síðan á kvöldkjólum áður en kjörinu verður lýst. Sjallinn verður opnaður matar- gestum kl. 19 í kvöld og tekið á móti þeim með fordrykk. Tónlist verður flutt meðan borðhald fer fram, síðan verður tískusýning og tónhst úr sýningu Sjallans, „Friður fyrir botni Sjallans“, verður flutt. í dómnefnd keppninnar eru Ólaf- ur Laufdal veitingamaður, Sig- tryggur Sigtryggsson fréttastjóri, Svava Johansen verslunarmaður, Steinunn Guðmundsdóttir versl- unarmaður og Ragnar Sverrisson verslunarmaður. Kammermúsíkklúbburinn: Tríó Reykjavíkur og gestir Tríó Reykjavíkur, sem i eru Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran og Halldór Haraldsson, leikur ásamt Einari Jóhannessyni og Joseph Ognibene á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins á sunnudag. Kammermúsíkklúbburinn heldur sína fiórðu tónleika á starfsárinu á sunnudag klukkan 20.30 í Bústaða- kirkju. Flytjendur eru Tríó Reykja- víkur með Guðnýju Guðmundsdótt- ur fiðluleikara, Gunnari Kvaran á knéfiðlu og Halldóri Haraldssyni á píanó. Með þeim leika Einar Jóhann- esson á klarínettu og Joseh Ognibene á horn. Á efnisskrá er Tríó fyrir horn, fiðlu og píanó í Es-dúr, op. 40 eftir Johann- es Brahms. Eftir hlé verður leikinn kvartett „Um endalok tímans" fyrir fiðlu, knéfiðlu, klarínettu og píanó eftir Olivier Messiaen. Ohvier Messiaen samdi kvartett- inn „Um endalok tímans" í fanga- búðum Þjóðverja í Görhtz og þar var hann frumfluttur 15. janúar 1941. Hljóðfæraskipanin réðist af því hvaða hljóðfæraleikarar voru meðal samfanga hans. Heiti verksins skýrir höfundurinn með tilvitnun í Opin- berunarbók Jóhannesar, 10. 5-7.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.