Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Page 6
22 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1991. Bíóhöllin: Kónguló, kónguló Læknirinn Ross Jennings, sem Jeff Daniels leikur, er nýfluttur ásamt fjölskyldu sinni á friðsælan stað í Kalfforníu. Allt viröist vera eins og best verður á kosið, sveita- sælan nálæg og stóborgarysinn í órafjarlægð. En Jennings uppgöt- var sér til hrellingar að þau eru ekki einu nýju íbúar hverfisins og í hlöðu þeirra er heljarinnar kónguló. Fyrir mann eins og Jenn- ings, sem þjáist af sjúklegri kóngu- lóarhræðslu (fóbíu), er slíkur ná- granni ekkert annað en ógnvekj- andi óvinur. Friðurinn er úti og skömmu síðar er bærinn allur á iði í orðsins fyllstu merkingu. Kóngulærnar á hvíta tjaldinu eru engar gervikóngulær. Gerð var sérstök leit að heppilegum „leikur- um“ og sú sem hreppti. hnossið er svokölluö delena kónguló sem á heimkynni sín á Nýja-Sjálandi. Kvikmyndagerðarmennirnir telja þessa tegund' einstaklega hæfi- leikaríka því hún getur gert allt. „Stjarna" myndarinnar er svo tar- antúla af ógeðslegustu gerð, af- brigði sem finnst í Venesúela og nærist á skordýrum og músum. í aukahlutverkum eru svo slatti af minni tarantúllum sem ekki eru eins ógnvekjandi. Jeff Daniels á hér í höggi við kóngulóna ógurlegu. Marcello Mastroianni leikur aðalhlutverkið i myndinni Allt í besta lagi. Háskólabíó: Allt í besta lagi Háskólabíó hefur tekið til sýn- inga kvikmyndina Allt í besta lagi eða Stanno tutti bene. Leikstjóri er Guiseppe Tornatore en hann gerði einnig Paradísarbíóið sem sýnd hefur verið hérlendis í tæpt ár. Margir leikarar koma hér við sögu en þekktastir eru Marcello Mastro- ianni og Michele Morgan sem fer með lítið en áhrffamikið hlutverk. Ungi strákurinn Salvatore (Toto) Cascio sem lék í Paradísarbíóinu fer einnig með lítið hlutverk. Aðrir leikarar hafa mest komið fram á sviði í ítölskum leikhúsum og fæst- ir leikið áður í kvikmynd. Myndin gerist á ítaliu samtímans og sjáum við land og þjóð með aug- um Matteo Scurro sem Mastro- ianni leikur. Tökur stóðu í þrettán vikur og ferðalagið var gífurlegt því sjötíu og fimm staðir voru not- aðir til að taka 78 atriði. Tornatore er aðeins 35 ára en á að baki marg- ar kvikmyndir, stuttar og langar. Þetta er þriðja kvikmynd hans í fullri lengd. Paradísarbíóið var númer tvö en hin fyrsta hét II Ca- morrista með Ben Gazarra í aðal- hlutverki. Tökuliðið er nánast það sama og vann með Tornatore að gerð Para- dísarbíósins. Hann segir þessa mynd vera töluvert öðruvísi en fyrri myndir og þar með talið Para- dísarbíóið. Þetta er nokkurs konar nútímafrásögn af því hvað Ítalía er með öllum sínum erfiðleikum og ringulreið. Myndin er líka óður til þjóðarinnar og þess fallega lands sem Ítalía er. BÍÓBORGIN Uns sekt er sönnuð Athyglisverðar persónur í flóknum þriller þar sem gátan er óleyst fram á síðustu stundu. Harrison Ford er frábær. -HK Þrír menn og Iltil dama **É Létt, skemmtileg og hæfilega væm- in Iðnaðarkómedía. Taisvert betri en forverinn. Einnig sýnd í BíóhöU- inni. -GE Góðir gæjar **** Mjög vel leikin og spennandi maf- íumynd, hrottafengin en um leið raunsæ. Besta mynd Martins Scor- sese frá því hann gerði Raging Bull. -HK BÍÓHÖLLIN Rocky 5 *★ Óþarft en vel meint framhald sem er mun skárra en síðustu þrenn slagsmál. Stallone er skammlaus. -GE Ameríska flugfélagið * Langdregnar flugæfingar sem eru litiö spennandi. Ekki heil brú í handritinu. -PÁ Aleinn heima **'/» Gamanmynd um ráðagóöan strák sem kann svo sannarlega að taka á móti innbrotsþjófum. Mjög fynd- in í bestu atriðunum. MacCaulay Culkin er stjarna framtíðarinnar. Einnig sýnd í Bíóborginni. -HK Stórkostleg stúlka **'/ Létt og skemmtileg mynd þrátt fyr- ir ófrumlegt handrit. Juiia Roberts vinnurhugoghjörtuallra. -HK HÁSKÓLABÍÓ Hálendingurinn II * Misheppnað framhald. Vantar flest það sem prýtt getur góða kvik- mynd. -PÁ Kokkurinn, þjófurinn, konan hans og elskhugi hennar *** Áreitið og hrottafengið listaverk um ást, kynlif og mat. Ekki viö allra hæfi. -PÁ. Úrvalssveitin **'/ Dýrðaróður til hermennsku, hug- prýði og karlmennsku. Ágæt af- þreying. -PÁ Nikita *** Sterkt myndmál er aðal Lucs Bes- son nú sem fyrr. Hnökrar í per- sónusköpun koma ekki f veg fyrir góðaskemmtun. -HK Hinrik V. ★** 'h Margir kvikmyndagerðarmenn hafa glímt við Shakespeare með misjöfnum árangri. Hinn ungi Kenneth Brannagh sýnir ogsannar að það er hægt að koma snilldar- leikhústexta tO skila í góðri kvik- raynd. -HK Skjaidbökurnar **'/> Snilldarlega útbúnar tánings- skjaldbökur og fjörug saga gera þetta að hinni bestu skemmtun fyr- irbreiðanaldurshóp. -GE Tryllt ást *** Lynch gengur of langt í furðuleg- heitunum en aö öðru leyti sterkt ogsérstaktverk. -GE Draugar *★* Mjög frumleg og sérstök meðhöndl- un á hinu yfirnáttúrlega. Demi og Swayze eru góð en Whoopi og Gold- wynfrábær. -GE Paradísarbíöið ***I4 Það líður öllum vel eftir að hafa séð þessa einlægu og skemmtilegu mynd. -HK LAUGARÁSBÍÓ LeikskóJalöggan ** Einfeldnisleg saga, byijar ágætlega en fer yfir væmnismörk í lokin. Schwarzenegger stendur sigfurðu- vel. -GE. Skuggi ** 'A Dúndurkeyrsla og hraði en upp- bygginguna vantar. Neeson er góð- ur og stendur af sér gallana í sög- unni. -GE Skólabylgjan **'/j Skemmtileg tilraun til aö gera ann- að og meira en „týpfska" unglinga- mynd. , -GE Henry & June ** Misheppnuð, mjúk og í meðallagi djörf, Því miður er Kaufman á villi- götum. -PÁ REGNBOGINN Úlfadans *** Löng og falleg kvikmynd um nátt- úruvernd og útrýmingu indíáná. GlæsOeg frumraun Kevins Costn- ers.Örugguróskar. -PÁ Samskipti *★ Christopher WaOten á góða spretti í forvitnilegri kvikmynd sem spyr margra spurninga en veitir fá svör. -HK. Löggan og dvergurinn -k'A Óþörf löggufélagaviöbót, athyglis- verö aðeins á tæknilega sviðinu. -GE. Aftökuheimild * Van Damme er ekki vandinn held- ur einstaklega ófrumlegur og óspennandi söguþráður. -GE Ryð ***'/ Sterkt drama. Öll vinna mjög vönd- uð og fagmannleg. -PÁ Skúrkar **'/ Háðskt og meinfyndið löggugrin frá Fransmönnum. -GE STJÖRNUBÍÓ Flugnahöfðinginn ★* Endurgerð klassískrar sögu upp á nútímann en hún er kraftlaus og aldrei meira en forvitnileg. -GE. Á mörkum lffs og dauða ** Góð hugmynd en klúðurslega unn- in og ekki alltaf sjálfri sér sam- kvæm. Myndræna hliöin er of- keyrö í von um að auka áhrifin. -GE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.