Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1991, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1991, Blaðsíða 1
AV. v:?M: -'ivrc ('liríti Tónleikar f slensku hlj ómsveitarinnar - frumflutningur áEratoeftir AtlaHeimi Á sunnudaginn, 10. mars, frum- flytur íslenska hljómsveitin nýtt verk eftir Atla Heimi Sveinsson. Verkið kallar Atli Erato en það er grískt orð skylt ást. Á tónleikunum verður einnig fluttur Oktett eftir Hróðmar I. Sigurbjörnsson. Auk þessara íslensku verka verða ílutt fjögur erlend og sígild tuttugustu aldar tónverk eíur þá Pierre Bo- ulez, Edgar Varese og Hans Abra- hamsen. Þar mun flautuleikarinn Martial Nardeau leika einleik á flautu í Density eftir Varese. Erato eftir Atla Heimi er skrifað fyrir tíu hljóöfæraleikara, viö ljóð eftir Sigfús Daðason. Verkið vinnur Ath Heimir upp úr gömlum skets- um sem hann kallaði Kliö. Verkið hefur sterka framrás í hrynjandi og er árásargjarnt á köflum, að sögn höfundar. Oktett Hróðmars var unninn sem lokaverkefni í tónsmíðanámi hjá Atla Heimi árið 1984. Verkið var því eins konar sveinsstykki hans áður en hann fór til Hollands að semja meistarastykki eins og Ljóðasinfóníuna sem flutt vár á Myrkum músíkdögum af Sinfóníu- hljómsveit íslands nú á dögunum. Erlendu verkin, sem flutt verða, eru Otandre fyrir átta hjóðfæri og Density. Þessi verk eru eftir Edgar Varese en hann hætti að skrifa tón- list upp úr miðjum aldri og sneri sér að öðrum lífsins gæðum eins og skákinni til dæmis. Verk hans Verkin á tónleikum íslensku hljómsveitarinnar að þessu sinni eiga það sameiginlegt að vera tiltölulega stutt, áheyrileg og auðmelt þrátt fyrir að vera mjög alvarlega skrifaðar tónsmiðar. DV-mynd GVA hafa haft geysimikil áhrif á þær kynslóðir sem á eftir honum komu nú á öldinni. Einkennist tónlist hans af vélrænum stórborgaráhrif- um sem hann vinnur með á fínleg- an og lífrænan hátt. Þá verða einnig flutt verkin Derive eftir franska tónskáldið Pi- erre Boulez, sem hefur löngum ver- ið harðlínumaður stærðfræðigeira tónlistar tuttugustu aldar, og Wint- ernacht eftir Danann Hans Abra- hamsen. Hann hefur gjarnan verið nefndur boðberi stefnu sem kölluð er Nýr einfaldleiki en það er tónlist sem hljómar að mörgu leyti eins og hugleiöslutónlist til streituslök- unar, skrifuð af listrænum metn- aði. Tónleikarnir verða í Langholts- kirkju kl. 17 sunnudaginn 10. mars og stjórnandi er Hákon Leifsson Sykurmolarnir eru á leið til útlanda og gæti því orðið nokkur bið á að það heyrist í þeim á tónleikum hérlendis á ný. Síðustu Sykur- molatónleikamir - íbili Síðustu tónleikar Sykurmolanna um hríð verða á Púlsinum í kvöld og annað kvöld. En eins og fléstum aðdáendum hljómsveitarinnar er kunnugt þá eru þeir á leið utan til tónleikahalds og gæti orðið nokkur bið á að aftur gefist tækifæri til að hlusta á þessa víöþekktustu hljóm- sveit okkar íslendinga. Sykurmolarnir hafa undanfarið verið við strangar æfingar og hljóð- ritanir á nýju efni fyrir væntanlega LP-plötu. Verður því fróðlegt aö vita hvaða eyrnakonfekti þeir luma á fyr- ir heimsbyggðina að þessu sinni. Heflmikil dagskrá á vegum Smekk- leysu verður í gangi áður en Sykur- molarnir stíga á svið og hefja tónlist- arflutning sinn. Þar má búast við mörgu nýstárlegu eins og Smekk- leysu er von og vísa. Fjölskylduskemmtanir Fáks - margvísleg skemmtiatriði fyrir alla aldurshópa Nú um helgina stendur hesta- mannafélagið Eákur fyrir fjölskyldu- skemmtunum í Reiðhöllinni. Verða haldnar fiórar skemmtanir sem byrja klukkan 15 og 21 laugardag og sunnudag, 9. og 10. mars. Hver skemmtun stendur í um þaö bil tvær klukkustundir. Boðið verður upp á margvísleg skemmtiatriði sem höfða eiga til allra aldurshópa. Félagar í Fáki munu sýna ótemjureið þar sem knapar sýna leikni í að halda sér á hrossum sem láta öllum illum látum. Vélhjóla- kappar munu sýna stökk og fleiri kúnstir á hjólum sínum og mun þetta vera í fyrsta sinn sem slíkt er gert innandyra hérlendis, svo að vitað sé. Kraftajötunninn Jón Páll kemur á staðinn. Þá verður hundasýning þar sem meðal annarra verða Santos og Unn Krogen með atriði í hundafimi. Þau eru margfaldir Norðurlanda- meistarar í sinni grein. Kaffl og ýmsar veitingar verða seldar í hléi. Skemmtanir þessar eru haldnar til styrktar hestamannafé- laginu og eru þær opnar öllum og fyrir alla fiölskylduna. Að sögn Fáks- manna er búist við fiölmenni en ör- stutt er í Reiðhöllina frá endastöð strætisvagns númer 10. Aðgangseyr- ir er 800 kr. fyrir fullorðna, 300 kr. fyrir börn, 5-12 ara, og ókeypis fyrir þau yngstu. Á meðal skemmtiatriða verða útreiðar á ótemjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.