Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1991, Page 4
20
FÖSTUDAGUR 8. MARS 1991.
Messur
Árbæjarkirkja: Barnaguösþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Þór Hauksson
guðfræðingur prédikar. Miðvikudagur:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 16.30.
Fimmtudagur: Föstumessa kl. 20. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. jónleikar Kirkju-
kórs Asprestakalls kl. 17. Flutt verða
kirkjuleg verk eftir tónsmiði sem störf-
uöu á Vestfjörðum. Flytjendur auk kórs-
ins Ásta Valdimarsdóttir, Kristín Sig-
tryggsdóttir, Ingvar Jónasson lágfiðlu-
leikari og Kristján Sigtryggsson er ann-
ast undirleik og kórstjórn. Miðvikudag-
ur: Föstumessa kl. 20.30. Árni Bergur
Sigurbjömsson.
Breiðholtskirkja: Barnaguösþjónusta
kl. 11. Messa kl. 14. Altarisganga. Organ-
isti Daníel Jónasson. Þriðjudagur: Bæna-
guðsþjónusta kl. 18.30. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkj a: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sr. Pálmi
Matthíasson. Guðsþjónusta kl. 14. Gide-
onfélagar kynna starf sitt. Eftir messu
býður Bræðrafélagiö öldruðum til sam-
sætis í safnaðarheimilinu. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi Matt-
híasson.
Digranesprestakall: Barnasamkoma í
safnaöarheimilinu við Bjarnhólastíg kl.
11. Guösþjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.
Sr. Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan: Kl. 11. Barnasamkoma í
safnaðarheimilinu. Kl. 14. Messa. Unnur
Halldórsdóttir djákni predikar. Inga
Bachmann syngur einsöng. Dómkórinn
syngur, organleikari Marteinn H. Frið-
riksson. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Eftir
messuna verður kaffisala kirkjunefndar-
kvenna (KKD) í safnaðarheimilinu. Þar
syngur Inga Bachmann nokkur lög. Kl.
17. Föstumessa með altarisgöngu. Prest-
ur sr. Ingólfur Guðmundsson. Miðviku-
dagur: Hádegisbænir í kirkjunni kl. 12.15.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.
Sr. Ólafur Jóhannsson. Miðvikudagur:
Föstuguðsþjónusta kl. 18.30. Sigríður
Guðmundsdóttir guðfræðinemi.
Fella- og Hólakirkja: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Umsjón Jóhanna Guöjóns-
dóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Organisti Guðný M.
Magnúsdóttir. Þriðjudagur: Fyrirbænir í
Fella- og Hólakirkju kl. 14. Miövikudag-
ur: Guðsþjónusta kl. 20.30. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Sönghópurinn Án
skilyrða annast tónlist, stjórnandi Þor-
valdur Halldórsson. Fimmtudagur:
Helgistund fyrir aldraða í Gerðubergi kl.
10 f.h. Sóknarprestur.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík:
Messa kl. 14.00. Þriðjudagur 12. mars kl.
20.30. Föstuguðsþjónusta. Orgelleikari
Violeta Smid. Kirkjan er opin 1 hádeginu
virkja daga. Cecil Haraldsson.
Grafarvogssókn: Messuheimili Grafar-
vogssóknar. Félagsmiðstöðinni Fjörgyn.
Barnamessa kl. 11. Skólabíllinn fer frá
Húsahverfi kl. 10.30 í Foldir og síöan í
Hamrahverfi. Guðsþjónusta kl. 14. Org-
anisti Sigríður Jónsdóttir. Sóknarprest-
ur.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 11.
Eldri börnin uppi í kirkjunni, yngri börn-
in niðri. Messa kl. 14. Organisti Ámi
Arinbjarnar. Þriðjudagur: Biblíulestur
kl. 14. Prestarnir.
Hallgrimskirkja: Laugardagur: Samvera
fermingarbarna kl. 10. Sunnudagur:
Messa og bamasamkoma kl. 11. Sr. Ragn-
ar Fjalar Lámsson. Matur eftir messu.
Kvöldmessa með altarisgöngu kl. 17. Sr.
Karl Sigurbjömsson. Þriðjudagur: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum. Miðvikudagur: Föstumessa kl.
20.30. Eftir messu talar dr. Sigurbjörn
Einarsson biskup um trú og trúarlíf.
Umræður og kaffi. Kvöldbænir með lestri
passíusálma mánudag, þriðjudag, .
fimmtudag og föstudag kl. 18.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Karl Sig-
urbjömsson.
Háteigskirja: Kl. 10. Morgunmessa, sr.
Tómas Sveinsson. Kl. 11. Barnaguðs-
þjónusta. Kirkjubíllinn fer um Suður-
hlíðar og Hlíðar fyrir og eftir guðsþjón-
ustuna. Kl. 14. Hámessa, sr. Arngrímur
Jónsson. Kvöldbænir og fyrirbænir em
í kirkjunni á miövikudögum kl. 18. Sókn-
arnefndin.
Hjallaprestakall: Messusalur Hjalla-
sóknar, Digranesskóla. Barnamessur kl.
11. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Sóknar-
nefndin.
Kársnesprestakall: Fjölskylduguðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11. Kirkjukór-
inn syngur ásamt bömum úr skólakór
Kársness. Börn úr Tónlistarskóla Kópa-
vogs leika á hljóðfæri. Organisti Guð-
mundur Gilsson. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Óskastund bamanna, söngur,
sögur leikir. Þór Hauksson guðfræðingur
og Jón Stefánsson annast stundina.
Guösþjónusta kl. 14. Prestur sr. Sigurður
Haukur Guðjónsson. Organisti Jón Stef-
Dönsk bókakynning
Á morgun, laugardaginn 9. mars,
kl. 16.00 verður dönsk bókakynning
í Norræna húsinu. Kirstin Didriksen,
sendikennari í dönsku við Háskóla
íslands, ijallar um bækur sem komu
út í Danmörku á síðastliðnu ári.
Gestur á bókakynningunni er danski
rithöfundurinn Maria Helleberg.
Maria hefur gefiö út fjórar skáld-
sögur sem allar eru byggðar á um-
fangsmiklum rannsóknum, og skrif-
aðar á ofsafenginn, hrífandi hátt.
„Maria vinnur aðallega með and-
stæður: ást og hatur, stríð og frið,
völd og vanmátt, og þar sem þessi
gagnstæðu öfl mætast myndast ofsi,
losti, ofbeldi, villtar ástir, auðsveipni
og reiði,“ segir í fréttatilkynningu frá
Norræna húsinu.
TOTEM: ný verk
teikn í ljósmynd
Á morgun verður opnuö í Gallerí
einn einn, Skólavörðustíg 4a, sýning
bandaríska listamannsins og kenn-
arans John Hopkins. Hann vinnur
mikið með ljósmyndatækni en notar
hann á mjög óhefðbundinn hátt hvað
varðar form og uppbyggingu.
Verkin, sem hann skapar, endur-
spegla hugleiðingar um ljós, líf,
minni, drauma og sýnir. Við opnun
sýningarinnar kl. 16.00 mun Elías
Davíðsson flytja Steinaspil, tónlist
leikna af fingrum fram á íslenskt
grjót. En áhrifm af þessu sérstæða
tónverki munu vera mjög í samræmi
við verkin á sjálfri sýningunni.
Fleiri uppákomur verða á sýning-
unni í næstu viku. Sýningin verður
opin daglega kl. 14-18 og stendur hun
til 21. þessa mánaðar.
Eitt verka Johns Hopkin á sýningunni.
Bak við tjöldin
í kvöld kl. 20.00 opnar Kristján
Kristjánsson sýningu á nokkrum
eldri verka sinna í gallerí B12, Bald-
ursgötu 12 (Nönnugötumegin). Sýn-
ingin ber nafnið Bak við tjöldin og
spannar tíu ára hugleiðingar og leit
listamannsins um lönd dulhyggjunn-
ar.
A þessari leið sinni um krókótta
vegi draums og veruleika hefur hann
meðal annars rekið sig á að tíminn
sem eigind sé ekki til heldur lifi hann
sem mynd í hugarheimi 'okkar.
Sýningin stendur til 24. mars og er
opin alla virka daga frá kl. 12-16 og
um helgar kl. 14-18.
Sýningu Eddu Jónsdóttur, sem ber heitið „Þagnarmál", lýkur um helgina.
Norræna húsið:
Þagnan
Sýningu Eddu Jónsdóttur í Nor-
ræna húsinu lýkur nú um helgina.
Sýningin, sem ber heitið „Þagnar-
mál“, er opin daglega frá kl. 14-19,
en síðasti sýningardagur er 10. mars.
Hingað til hefur sýningin verið
mjög vel sótt, en hún samanstendur
af 47 vatnslitaverkum, þar af þremur
á gólfi sem bera heitið „Dagbók", eða
„Dagbókarblöð".
ánsson. Aðalsafnaðarfundur eftir messu
kl. 15. Sóknarneíndín.
Laugarneskirkja: Bamastarf kl. 11.
Samkirkjuleg bænavika hefst með guðs-
þjónustu í Laugarneskirkju kl. 11. Hafliði
Kristinsson, formaður Hvítasunnusafn-
aðarins, prédikar. Sr. Heimir Steinsson,
formaður samstarfsnefndar kristinna
trúfélaga, þjónar fyrir altari. Ritningar-
lestra annast sr. Hubert Oremus, aðstoð-
arprestur Dómkirkju Krists konungs í
Landakoti, m^jor Daniel Óskarsson, leið-
togi Hjálpræðishersins á íslandi, og sr.
Jón Hjörleifur Jónsson, prestur aðvent-
ista. Heitt á könnunni eftir guðsþjón-
ustuna. Fimmtudagur: Kyrrðarstund í
hádeginu. Orgelleikur, fyrirbænir, altar-
isganga. Sóknarprestur.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Um-
sjón Sigríður Ólafsdóttir. Sr. Frank M.
Halldórsson. Guösþjónusta kl. 14. Orgel-
og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Föstuguðsþjón-
usta kl. 20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son. Fimmtudagur: Biblíuleshópur kl. 18.
Seljakirkja: Barnaguösþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sönghópur úr Kven-
félagi Seljasóknar syngur við guðsþjón-
ustuna. Organisti Kjartan Sigutjónsson.
Molasopi eftir guðsþjónustuna. Sóknar-
prestur.
Eyrarbakkakirkja: Messa kl. 14. Altaris-
ganga. Kaffi eftir messuna. Sóknarprest-
ur.
Seltjarnarneskirkja: Fjölskyldumessa
kl. 11. Sigrún Gestsdóttir syngur einsöng,
lög eftir Ölöfu J. Jónsdóttur og Ingibjörgu
Þorbergs. Organisti Gyða Halldórsdóttir.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdótt-
ir. Bamastarf á sama tíma í umsjón
Kristínar Þómnnar Tómasdóttur og
Eymýjar Ásgeirsdóttur.
Fríkirkjan Hafnarfirði: Bamasamkoma
kl. 11. Einar Eyjólfsson.
Grindavíkurkirkja: Sunnudagaskólinn
verður ekki kl. 11 en öllum börnum í
Grindavík er boöið í barnastund í Út-
skálakirkju kl. 14. Rúta leggur af staö frá
Grindavíkurkirkju kl. 13.20. Vænst er
þátttöku sem flestra bama. Sóknarprest-
ur.
Keflavíkurkirkja: Sunnudagskólinn fer
í heimsókn í Útskálakirkju. Sunnudaga-
skólabörn em beðin um að koma í kirkj-
una kl. 10.30. Munið skólabílinn. Guðs-
þjónusta kl. 14. Ræðuefni: Er hið illa
veruleiki? Kór Keflavíkurkirkju syngur.
Organisti Steinar Guðmundsson. Sókn-
arprestur.
Kirkjuvogskirkja: Kirkjuskóli laugar-
dag kl. 13 í umsjón Sigurðar Lúthers og
Hrafnhildar. Messa kl. 14. Egill Hall-
grimsson guðfræðingur predikar. Organ-
isti Siguróli Geirsson. Kór Grindavíkur-
kirkju syngur. Kaffisala til ágóða fyrir
ferðasjóö fermingarbarna eftir messu.
Sóknarprestur.
Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.
vinnu viö Kiwanisklúbbinn Eldey og TK
verður haldið laugardaginn 9. mars kl.
14 í félagsheimili Eldeyjar að Smiðjuvegi
12a. Teflt verður í þremur flokkum, 9 ára
og yngri, 12-13 ára og 13-16 ára. Glæsileg
verðlaun í boði. Veitingar í boði Eldeyjar.
Tórúeikar
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af staö
frá Digranesvegi 12 kl. 10. Enn skín vor-
sóhn og náttúran vaknar af vetrardval-
anum. Við hittumst í skemmtilegum fé-
lagsskap á Digranesvegi 12 upp úr hálftíu
og munu nýir eigendur hússins taka á
móti okkur en laugardagsgangan fær af-
not afkaffikönnu og nýjum og rúmgóðum
sal hússins.
Kver um teikniforrit
Nýlega kom út kver sem fjallar um teikn-
ingiforritin Autocad og Autosketch og
notkun þeirra. Þetta eru forrit sem fjalla
um alls konar teiknun en eru þó senni-
lega mest notuð í sambandi viö tækni.
Forritin má annars nota á ýmsan hátt,
t.d. til hönnunar. Kver þetta fæst í helstu
bóka- og tölvuverslunum.
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfar hittast á morgun, laugar-
dag, kl. 10 í Risinu. Opið hús í Risinu í
dag, föstudag, kl. 13-17. Skrifstofa félags-
ins verður lokuð frá kl. 15 í dag.
Kaffitónleikar
Árnesingakórsins
Árnesingakórinn i Reykjavík hefur kaffi-
tónleika í Sóknarsalnum, Skipholti 50,
sunnudaginn 10. mars kl. 15. Söngstjóri
er Sigurður Bragason og undirleikari
Þóra Fríða Sæmundsdóttir. Kórinn hefur
starfaö af miklum krafti í vetur og hélt
m.a. jólatónleika í Reykjavík og Hvera-
geröi. Einnig kom á markaðinn í haust
ný hljómplata með kórnum og ber hún
nafnið Glerbrot. Verður hljómplatan til
sölu á kaffitónleikunum.
Félag Arneshreppsbúa
í Reykjavík
heldur árshátíð að Borgartúni 6 laugar-
daginn 9. mars. Húsiö opnaö kl. 19. Matur
frá kl. 20-21.30. Hljómsveitin Sambandið
sér um fjörið til kl. 03.
Tilkyimingar
Taflfélag Kópavogs
Skákþing grunnskóla Kópavogs í sam-
Málverkauppboð Gallerí
Borgar
32. uppboð Gallerí Borgar verður á
sunnudagskvöld kl. 20.30 í Súlnasal Hótel
Sögu. Myndirnar verða sýndar í Gallerí
Borg við Austurvöll í dag kl. 10-18 og á
laugardag kl. 14-18 og á sama tíma upp-
boðsdaginn. Hægt er að gera forboð í
myndirnar sjái fólk sér ekki fært að
mæta á uppboðið sjálft. Einnig er hægt
að bjóða í myndirnar í gegnum síma. Sím-
ar á uppboðsstað verða 985-28173 og 985-
28174. Meðal verka eru tvö olíumálverk
eftir Guðmund Thorsteinsson - Mugg -
blýants- og vatnslitamynd eftir hann.
Auk þessara þriggja verka Muggs verða
boðin upp á milli 60 og 70 verk.
Gjöf til Krýsuvíkur-
samtakanna
Krísuvikursamtökin hafa undanfariö
vistað í Krýsuvík unga fikniefnaneytend-
ur sem hafa átt í erfiðleikum með að ná
tökum á lífi sínum eftir hefðbundnum
leiðum. Þar hafa þessi ungmenni verið í
meðferð, skóla og vinnu. Samtökin fengu
á Qárlögum styrk til að gre’iða fyrir því
að þessi rekstur gæti haldið áfram í svip-
uðu formi og verið hefur en mikið starf
er enn óunnið við að koma skólahúsinu
í gott ástand. Einstaklingar og félagasam-
tök hafa sýnt þessari viðleitni mikinn
skilning og styrkt samtökin á undanförn-
um árum, bæöi með vinnu og peningum,
og hefur hvort tveggja skilað starfinu
áfram hröðum skrefum. Á myndinni má
sjá hvar Daníel G. Bjömsson, formaður
Lionsklúbbsins Munins í Kópavogi, af-
hendir Krýsuvíkursamtökunum kr.
75.000 að gjöf til uppbyggingar skólans.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardag kl. 14 i Húnabúð,
Skeifunni 17. 3 daga keppni aö hefjast.
Allir velkomnir. Góufagnaður félagsins
verður í kvöld, fóstudagskvöld, kl. 22 í
Húnabúð.