Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1991, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1991, Page 2
20 Þar sem nóttin endar á fiskmarkaði ekki bara verslanir undir einu þaki heldur einnig veitingastaðir þar sem hægt er að tylla sér niður og fá sér kaffibolla, bjórglas, eða þá humar og freyðivín, svo eitthvað sé nefnt. Verðlag er mjög mismunandi í borginni. Hægt er að kaupa góðar og ódýrar vörur, ef vill, en einnig rán- dýrar ef sá gállinn er á einhverjum. Eitt er víst, úrvalið er geysimikið. Veitingastaðir eru fjöldamargir í borginni. Það sem vakti þó kannski mesta kæti íslendings í útlegð var að þarna var hægt að fá æta fiskrétti - og rúmlega það. í kringum höfnina eru nefnilega íjöldamargir staðir sem bjóöa upp á alls konar fiskrétti, al- genga og sjaldgæfa. Lögð er áhersla á nýtt hráefni og þess vegna eru þess- ir staðir hreint gósenland fyrir fisk- kera. « Annars er það um veitingastaðina í borginni að segja að þeir eru yfir- leitt smáir en heldur góðir miðað við það sem þekkist. Hvort heldur menn vilja kjöt, fisk, hrísgrjón eöa fugl er þetta allt þarna i margvíslegri mat- reiðslu. Vilji einhver músík með matnum er best að heimsækja hverfi sem heitir Grossnemarkt. Þar er lögð mikil áhersla á lifandi hljómlist og mikið um dýrðir í þeim efnum. Þegar vora tekur eru stólar og borð færð út á gangstétt og er þá oft þröngt setinn bekkurinn því fólk fer gjarnan til þess að rabba saman yfir glasi af góðu víni og hlýða á tónlistina. Á kránum, sem eru á hverju götu- horni, sýna listamenn gjaman verk sín og þangað fara þeir sem hlýða vilja á klassíska hljómlist eða þá djass. Mikið menningarlíf Hamborgarbúar segja að borgin sé Mekka menningarlífs í Norður- Evrópu. Hvort sem hún stendur und- ir sliku nafni eða ekki er það víst að þar er hlúð býsna vel að þessu sviði mannlífs. Nú standa yfir sýningar á tveimur frægum söngleikjum, Cats og The Panthom of the Opera. Sérstök höll var byggð yfir þann síðarnefnda. Hún tekur 2000 í sæti og er allaf upp- selt langt fram í tímann. Óhætt er að fullyrða aö þetta verk verður hverjum einum ógleymanlegt sem það sér - svo frábær er hljómlistin, flutningurinn og sviðsmyndin. Listasafn Hamborgar, Kunsthalle, er þekkt meðal þeirra sem fróðir eru um slíka hluti. Þar er að finna yfirlit I Síðustu sætin um páskana Kanaríeyjar 27. mars - uppselt Costa del Sol 27. mars 12 dagar - aðeins 5 vinnudagar Gisl á Principito Sol eða Aquamarina sem standa alveg við ströndina og örstutt frá miðbænum oghelstu verslunargötunni, veitingahúsum og skemmtistöðum. Verð frá kr. 35.900,- 4 i íbúð (hjón með 2 börn, 2-11 ára), kr. 49.700,- 2 í ibúð Pantið tímanlega áðuren allt selst upp! Suður-Ameríka m/lngólfi Guðbrandssyni 22. mars Santiago de Chile - Buenos A ires - ^ Iguazu - V'í Rio de Janeiro Giæsiiegasta páskaferðin í ár - veisla fyrir skilningarvitin Ennþá hægt að útvega sæti í þessa ævintýraferð! FEIIAMIlSllllN Austurstræti 17, sími 62 22 00 Umboðsmenn um allt land MÁNUD AGUR 11. MARS 1991. Ferðir itt hinna fjölmorgu sikja sem setja svip sinn á Hamborg yfir það helsta í málaralist frá gotn- eska tímabilinu allt til dagsins í dag, höggmyndir frá 19. og 20. öld og svo mætti lengi telja. Sýningarsvæðið, sem skipt er í einingar, er um 6000 fermetrar að stærð. Margir frægustu söngkraftar heims hafa hafið feril sinn í ríkis- óperunni í Hamborg. Einn hinna síð- ari er Placido Domingo. Þama er ballettinn einnig til húsa og er há- punktur hvers leiktímabils svo- nefndir „ballettdagar í Hamborg“. Seinni partinn í apríl verður einnig haldin mikil balletthátíð sem stendur yfir í níu daga. Um það leyti, nánar tiltekið þann 25. apríl, munu Flug- leiðir hefja reglulegt flug til borgar- innar og verður þaö tvisvar í viku. Leikhúsin, sem eru 40 talsins, eru að sjálfsögðu starfrækt af kappi yfir vetrartímann. Sum þeirra eru einnig opin yfir sumartímann, einkum í júlí og ágúst, til þess að feröamönnum gefist kostur á því að kynna sér eitt- hvað þeirrar leiklistar sem í gangi er. Annars má segja að á tímabilinu maí-september séu hátíðahöld á hverjum degi. Þá eru í gangi fjöl- margar sýningar, götuleikhús, kvik- mynda- og bókmenntahátíðir, svo og tónlistarviðburðir. Vínhátíðir og kaupstefnur verða í gangi öðru hverju í allt sumar. Veðreiðar verða haldnar í byrjun júlí og keppt verður í fjölmörgum íþróttagreinum, svo sem tennis Og júdó. En hvað sem kann að verða fyrir valinu af því sem getið hefur verið hér að ofan -þá byrjar aðalgamanið eiginlega ekki fyrr en klukkan fimm við festar í innri höfninni. Þaðan fer það ekki langt því það er ekki leng- ur notað til siglinga heldur sem fljót- andi sjóminjasafn og veitingastaður. á sunnudagsmorgun. Þá er haldinn svokallaður fiskmarkaður í borg- inni. Þar er ekki bara seldur nýr fisk- ur heldur allt milli himins og jarðar sem ekki er naglfast, eins og segir einhvers staðar. Þarna flykkjast nátthrafnarnir að, fá sér snarl á ein- hverju hinna fjölmörgu veitinga- húsa, hlýða á lifandi hljómlist og taka þátt í markaðinum af lífi og sál. Gleð- in stendur til klukkan tíu þessa til- teknu morgna og þá er einmitt kom- inn tími til að fá sér morgunverð eft- ir atburðaríka nótt. Nú er sem óðast að færast fjör í leikinn á götunum, enda fer brátt að vora i Hamborg. Þessa þrjá herramenn rákumst við á þar sem þeir léku eld- fjöruga tónlist fyrir vegfarendur við vægu eða engu gjaldi - allt eftir örlæti þeirra sem fram hjá fóru. FERÐAGETRAUN og Flugleiða Má bjóða þér til Amsterdam? Það eina sem þú þarft að gera til að eiga möguleika á að vinna farseðla fyrir tvo til Amsterdam og heim aftur og þar að auki gistingu í tveggja manna herbergi á góðu hóteli í fjórar nætur er að svara spurningum sem birtust 18. og 25. febrúar og 4. mars. Skilafrestur er til 15. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.