Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1991, Blaðsíða 4
30
MÁNUDAGUR 11. MARS 1991.
Ferðir i>v
—r- .——•
Costa del Sol í apríl - vinningur í áskriftargetraun DV:
Suðræn sumarbyrjun
- tíminn sem allur gróður stendur í mestum blóma
Enda þótt baðstrandarlifið og sólbaðið sé það sem flestir sækjast eftir á Costa del Sol, þá er svo ótalmargt ann-
að hægt að gera sér til skemmtunar þar syðra.
Þótt rétt sé fariö aö örla á vori um
miöjan apríl hjá okkur á ísiandi, ef
vel árar, þá er komiö sumar á þeim
fræga feröamannastað Costa del Sol
á Spáni. Samkvæmt okkar mæli-
kvarða er vorveður alian veturinn
þar syðra. En heimamenn segja aö
vorið komi í mars og sumarbyrjun í
apríl.
Vegna þess hve lítil úrkoma er í
Andalúcíu er aUur gróður tekinn að
sölna strax í júní nema þeir blettir
og akrar sem vökvaðir eru reglulega.
Einu mánuðirnir sem einhver úr-
koma er að ráði á Costa del Sol eru
desember, janúar og fram í febrúar.
Gróðurinn er því fegurstur frá því í
mars og fram í byijun júní. Það má
fullyrða að hann stendur í mestum
blóma í apríl. Og fyrir þá sem vilja
gera eitthvað meira en liggja í sól-
baði er stutt að fara út í sveitina og
skoða hið undurfagra landslag Suð-
ur-Spánar í sínum fegursta skrúða.
En að sjálfsögðu er kominn sól-
baðstími strax í febrúar og í apríl er
hitastigið 22 til 28 gráður að jafnaði
í venjulegu árferði. Fyrir okkur ís-
lendinga, sem þolum flestir ekki vel
mikinn hita, eru mánuðirnir apríl,
maí og júní hvað heppilegastir til
dvalar þarna syðra.
Costa del Sol
Ég er ekki viss um að sá stóri hóp-
ur Islendinga sem komið hefur til
Costa del Sol geri sér grein fyrir hve
löng sú fræga sólarströnd er. Hún
nær frá Gíbraltarsundi og upp til
Almeria og þaö eru hvorki meira né
minna en 450 kílómetrar.
Sá hluti strandarinnar, sem íslend-
ingar þekkja best, nær frá Torremol-
ínos og vestur til Fuengerola, um 20
kílómetra vegalengd. Allmargir hafa
að vísu ekið þjóðveginn meðfram
ströndinni frá Torremolínos og vest-
ur að Gíbraltarsundi en það er innan
við 150 kílómetra löng leið. Það er
því ekki lítill hluti strandarinnar
sem hægt er að skoða ef farið er í
austurátt frá Málagaborg. Og þar er
sannarlega margt fróðlegt að sjá.
Einn athyglisverðasti staðurinn á
þeirri leið er bærinn Nerja og hinir
frægu dropasteinshellar sem við
hann eru kenndir. Margt annað at-
hyglisvert er að skoða á leiðinni til
Almería og sú borg er meira en þess
virði að skoða hana.
„Matjurta-
garður Málaga"
Þegar ekið er frá Torremolínos til
Málagaborgar og komið er aðeins
lengra en að flugvellinum blasir við
víðfeðmur dalur á vinstri hönd. Þetta
er frjósamasti staöur Málagahéraðs
og oft nefndur „Matjurtagarður
Málaga.“ Ég vil hvetja alla sem tök
hafa á að taka sér bOaleigubíl og aka
upp í þennan dal. Þar eru margir litl-
ir bæir sem gaman er að stoppa í og
skoða mannlífið til sveita á Spáni.
Bæirnir Alhurin el grande og Coin
eru stærstu bæirnir í dalnum. En
þegar litið er yfir dalinn blasa akr-
arnir við. Á þessum árstíma stendur
yfir uppskera á sítrónum og appels-
ínum. Mikið af glóaldintrjám eru í
þessum dal.
Þar er að auki ræktað allt það fjöl-
breytta grænmeti sem ræktað er að
vísu aOt árið um kring á Suður-
Spáni. Vegurinn liggur meðfram ökr-
unum og víða við vegkantinn eru lít-
0 sveitaveitingahús sem bæði fróð-
legt og skemmtilegt er að heimsækja.
Það er hægt að fara athyglisverðan
hring frá Torremolínos, upp dalinn
og tO Coin. Þaðan svo til hins fagra
og fræga þorps Mijas í hlíðinni fyrir
ofan Fuengerola og svo áfram tíl
Torremolínos. Einnig er hægt að fara
fjallaveg og koma þá niður í Mar-
bella, frægan bæ um 50 kílómetra frá
Torremolínos. Það er sama hvorn
hringinn fólk fer, þetta er svona
fimm til sex stunda ferð ef hægt er
farið yfir, borðað og það markverð-
asta skoðað á leiðinni.
Sögustaðirnir frægu
Hér hefur aðeins verið minnst á
næsta nágrenni Torremolínos. Auð-
vitaö ætti enginn sem þangað er
kominn að sleppa því að skoða sögu-
frægustu borgir Spánar, Granada,
Sevilla og Cordoba. Allar ferðaskrif-
stofur bjóða farþegum sínum ferðir
tO þessara borga. Annað hvort í ferð-
um sem íslensku ferðaskrifstofurnar
eru með sjálfar eða þá með spönsk-
um feröaskrifstofum, þar sem farar-
stjórinn talar í það minnsta þrjú
tungumál fyrir utan spönsku.
Því miður hefur mér fundist sem
íslendingar hafi litið á Spán í gegnum
árin sem ódýrt sólarstrandarland.
Þar eigi við að drekka vín og liggja
í sólbaði. Alltof fáir virðast gera sér
grein fyrir því að Spánn er eitt mesta
menningarland veraldar. Spánverjar
hafa átt marga af frægustu lista-
mönnum allra tíma, bæði listmálara,
tónlistarmenn og rithöfunda. Og
vegna þess að íslendingar miða gæði
rithöfunda við nobelsverðlaun má
geta þess að þrír spánskir rithöfund-
ar hafa fengið nobelsverðlaun.
Ég hef líka rekið mig á að margir
halda að tveir af þremur frægustu
tenórsöngvurum sem nú eru uppi,
Jose Carreras og Placido Domingo,
séu ítalir vegna þess að allir frægir
tenórar eiga að koma frá Ítalíu. En
þessir tveir heiðursmenn eru báðir
Spánverjar.
Og svona í lokin: Fyrir alla muni
gleymiö ekki að fara og horfa á
nautaat, listgrein allra listgreina,
fyrst þið eruð á annað borð komin
til Spánar, e.t.v sem vinningshafar í
áskriftargetraun DV.
Eins og fram hefur komið er fyrsti
ferðavinningur í áskriftargetraun
DV ferð með Ferðamiðstöðin'ni Ver-
öld til Costa del Sol 19. apríl. í kjölfar-
ið fylgja síðan fimm glæsilegir ferða-
vinningar í maí, júní og júlí.
-S.dór
PÁSKAÆVINTÝRI í edinborc
Verð frá kr.
Frábœrar stuttar skemmtiferðir til menningar- oggleðiborgarinn-
ar Edinborgar í Skotlandi. íslenskur fararstjóri. Hvíld og
hressing, veislumáltíðir, pöbbar, kynnisferðir, góðar verslanir og
golf. Tilvaldar ferðir fyrir hópa.
Gist á King James Thistle sem er gott 4ra stjömu hótel í
miðborginni.
Fyrir golfarana: Marine Hotel í North Rerwick.
Hafðu það gott utn páskana hjá gestrisnum og alúðlegum
nágrönnum okkar, Skotum. Skelltu þér til Edinborgar.
* Verð tniðast við staðgreiðslu og gistingu í tvílrjli n/eð /norgunverði. Forfallagjald, f/ugvallarskattur og
kynnisferðir eru ekki innifaldar í verði.
Ferð: Verð á mann:
23.-26. mars 4 dagar/3 nœtur 27.900 kr.*
26.-30. mars 5 dagar/4 nætur 29 900 kr.*
30. mars-2. apríl 4 dagar/3 nætur 28.900 kr.*
4 4
ÚTSÝN
'farkort | FÍF
.. .aldrei lœgra verð
í Mjódd: sími 60 30 60
við Austurvötl: sími 2 69 00
í Hafnarfirbi: sími 65 23 66
við Ráðhústorg á Akureyri: sími 2 50 00
og hjá umboðsmönnum um allt land.