Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Síða 1
}Uj; ísafjörður: landsdal Skíöavika ísfiröinga verður haldin um páskana og eiga heimamenn von á mörgum gest- um. Útlit er gott fyrir vestan, nægur snjór og færið upp á það allra besta. Mikill snjór er á Selja- landsdal og ekkert grjót stendur upp úr. í tengslum við skíöavikuna verður ýmislegt til skemmtunar; páskaeggjamót, skiðaþrautir, hljómleikar, harmóníkuleikur og dansleikir í samkomuhúsum bæjarins. Á Seljalandsdal eru þrjár lyftur, sú lengsta 1200 metrar en hinar rúmir 700 metrar, Allt eru þetta togbrautir en auk þeirra er ein lítil barnatogbraut. Lyfturnar geta annað 3-400 manns með góðu móti. Göngubrautir verða troönar og verður lögð ein löng og erfið inn i dalinn fyrir vana skiðagöngugarpa. Rútuferðir verða upp á dal frá hótelinu og innan úr firði. Boðið verður upp á skíöakennslu og barna„pössun“ meö skíða- kennslu. í Skíðheimum verður opin veitingasala og þar er einnig skíðaleiga sem býður gott úrval. -JJ Skíðasvæðið í Bláfjöllum og Skálafelli: Útlit fyrir gott færi í Bláfjöilum verður opiö bænadaga og páska ef veður leyfir. Skíðafæri lítur mjög vel út en mikið hvassviðri getur sett strik í reikninginn. Skíða- svæðiö í Bláfjöllum getur tekið viö 4-5000 gestum með góðu móti. Ef gestir verða mikið fleiri lengjast bið- raðimar í lyfturnar mikið. Á öllu Bláfjallasvæðinu eru 10 lyft- ur, 2 stólalyftur, 2 barnatoglyftur og 6 toglyftur, og verða þær allar í gangi ef ekkert hindrar. Göngubrautir verða lagðar ef kostur er. Aðalskál- inn verður opinn meðan skíðasvæðið er opið. Þar verður skíöaleiga og kostar dagleiga á svigskíðum 1500 krónur en 800 kr. á gönguskíðum. Bamasvigskíði em leigð á 1250 krón- ur. Alla frídagana verður skíða- kennsla og hefst fyrsti tími kl. 10.30 á morgnana og stendur í 1 % klukku- stund. Að fyrsta tíma loknum hefst annar og síðan koll af kolli. Kennd verða undirstöðuatriði fyrir byrjend- ur. Skíðasvæðið í Skálafelli verður einnig opið komandi frídaga. Þar eru 3 lyftur í gangi, ein stólalyfta og tvær toglyftur. Skíðasvæðið í Skálafelli getur tekið við 2-3000 manns með góðu móti. Þar er þjónustumiðstöð með veitingasölu. Eldborgargil Hákollur | Kóngsgil Sólskinsbrekka Suöurgil SKIÐALEIÐIRIBLAFJÖLLUM A Skéli Fram J Topplyfta Ármanns (700) B Lyfta Fram (700)* K Gillyfta (700) C Beygjulyfta (900) L Sóiskinsbrekkulyfta (700) D Skóli ÍTR M Skóli Ármanns E Blófjailavegur N Bílastæbi F Aöalbílastæbi O Bamalyfta (700) H Stólalyfta (1100) Q Stólalyfta f Suburgill (1200) 1 Blófjallaskóli •> i P Göngubrautir* * Flutningsgeta á klukkustund. 3, 5 og 10 km. Skíðaleiðir O Léttleib 0 Nokkub brött leiö 0 Mjög brött leiö DVJRJ Ef veður helst skaplegt um bæna- daga og páska getaskíðamenn á höf- uðborgarsvæðinu átt góða daga framundan. Þeir sem enn hafa ekki fallið fyrir íþróttinni eiga möguleika á skíðaleigu og kennslu í Bláfjöllum sem upplagt er að notfæra sér í páskafríinu. -JJ sfáij Gönguhús@ ~J&*****m® Bllastæöi Tll Akureyrar Lótt lei& Q Meöalerílö leiö 0 Erfiö leiö DVJRJ Hlíðarfjall við Akureyri: Nægur snjór Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri: „Það er nægur snjór og við verðum með opið alla daga frá kl. 10 til 17 og lengur ef veður verður gott,“ segir ívar Sigmundsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli við Ak- ureyri um útlitið með skíðaiðkun þar í fjallinu um páskana. - og ýmislegt í boði „Við reynum að vera með sem minnst mótahald á þessum tíma því hingað kemur margt fólk og móta- hald truílar bara hinn almenna skíðamann. Þó verður hér vélsleða- mót utan skíðasvæðisins. Þá verður að öllum líkindum tveggja brauta mót bæði á skírdag og laugardag, og á páskadag setjum við upp okkar árlega páskatrimm sem er skíða- ganga fyrir almenning." Skíðamenn ættu aö geta haft það gott í Hlíðarfjalli um helgina. Þar er sem fyrr sagði talsverður snjór og allar lyftur opnar. Svo er bara að vona að veðrið verði gott og skíða- menn fjölmenni í brekkurnar í Hlíð- arfjalli um páskana. rrrcovtMc Ferðaskrifstofa ■ Hallveigarstíg 1 • Símar 28388-28580 TRYGGÐU ÞÉR ESTA STRAX PANTAÐU NÚNA Bestu hótelin besta verðið Royal gisting, 2 vikur Brottfarardagar: 4. júní / 9. júlí / 3. september Verðdæmi: 4 manna fjölskylda, 2 fullorðnir og 2 börn 2-11 ára kr. 145.500 eða kr. 36.375 á mann. 3 manna fjölskylda, 2 fullorðnir og 1 barn 2-11 ára kr. 131.400 eða kr. 43.800 á mann. 2 fullorðnir kr. 54.000 á mann. Bjóddu þér og fjölskyldunni almennilegt hót- el í sumarfríinu - á viðráðanlegu verði. Sumarfrí á almennilegu hóteli er góð fjárfest- ing - veldu Royaltur hótel hjá Atlantik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.