Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1991, Síða 1
IQ9Í J'ÍÍ'IA 8 HUOAaUMÁM
ös
Ferðafélagið Útivist:
Holl útívist um ísland
Ferðafélagið Útivist hefur starfað
frá árinu 1975. Markmið þess er að
stuðla að útivist fólks í hollu og
óspilltu umhverfi. Að þessu mark-
miði er unnið með því að skipu-
leggja lengri og styttri ferðir um
ísland, efna til mynda- og fræðslu-
kvölda og gefa út ýmiss konar fróð-
leik um ferðir og það sem tengist
þeim.
Útivist gefur reglulega út frétta-
bréf og í ársbyrjun kemur út ferða-
áætlun ársins. Langar og stuttar
gönguferðir skipa stóran sess en
hjólreiðaferðir, skíðaganga og
íjallaklifur úti í heimi eru líka á
dagskrá. Meðal vinsælh ferða eru
svokallaöar raögöngur og á þessu
ári stendur yfir svokölluö Póst-
ganga. Aðrar eru Reykjavíkur-
gangan en í ár verða valdar leiðir
frá Þórsmörk til Reykjavíkur og
Heklugangan sem hófst 1. apríl.
Útivist skipuleggur dagsferðir og
helgarferðir allt árið og sumarleyf-
isferðirnar bætast við yfir sumar-
mánuðina. Fyrstu sumarleyfisferð-
irnar verða farnar síðustu vikuna
í júní. Þá eru tvær ferðir í boði,
önnur um Strandir en hin um Snæ-
fellsnesfjallgarð. Strandarferðirn-
ar eru alltaf vinsælar en göngu-
ferðin um Snæfellsnesfjallgarð er
nýjung hjá Útivist.
í júlímánuði skipuleggur Útivist
tólf sumarleyfisferðir og má nefna
þrjár ferðir um Hornstrandir, ferö-
ir um Hveravelli, Norðurland með
viðkomu í Grímsey, Kverkljöll og
Þjórsárdal. Þessir staðir eru sívin-
sælir og flölfarnir af göngufólki í
gegnum árin. Feröanýjung hjá Úti-
vist er gönguferð um eyðifirði
Austfjarða en þeir firðir þykja ekki
síður ósnortnir en Hornstrandir
fyrir vestan. Gengið verður frá
Noröfirði til Reyöarfjarðar með
viökomu í Viðfirði, Sandvík og
Vöðlavík. Önnur nýjung er hjól-
reiðaferð um Vesturland. Ferðin
hefst á Akranesi 6. júlí og lýkur í
Reykjavík 11. júlí. Farið er um
Norðurárdal í Búðardal, fyrir Gils-
Útivistarfólk vill kynnast landi sínu á nýjan og betri hátt.
íjörð og til Hólmavíkur, suður
Strandir að Borðeyri, Lundar-
reykjadal og Uxarhryggi, Þing\'öll
til Reykjavíkur. Gist verður í tjöld-
um.
í ágústmánuði eru níu sumar-
leyfisferðir í boði. Fyrir utan Horn-
strandir má benda á gönguferð um
Jökulsárgljúfur sem er níu daga
ferð. Annar athyglisverður kostur
er gönguferð um Tröllaskaga og
Tungnahryggsjökul.
Helgarferðir í sumar á vegum
Útivistar eru flölmargar og sama
er að segja um dagsferðir. Þórs-
mörk er einn vinsælasti áfanga-
staðurinn en þar á Útivist tvo gisti-
skála í svokölluöum Básum. Helg-
arferðir í Bása eru um hverja helgi
frá maí og fram í október. Dags-
feröir eru á sunnudögum yfir sum-
armánuðina en í júlí og ágúst eru
einnig dagsferðir á miðvikudögum.
Þessar stuttu ferðir eru ákjósanlegt
tækifæri fyrir þá sem hafa tak-
markaðan tíma til að kynnast töfr-
um Þórsmerkur.
Ferðir Útivistar eru opnar öllum
en félagar fá 30% afslátt af gistingu
í Básum og 10% afslátt af öllum
ferðum. Að auki skipuleggur Úti-
vist utanlanasferðir í samvinnu við
erlend ferðafélög en aðeins félags-
menn geta tekið þátt í þeim. Ein
slík verður farin í ágúst en það er
bakpokaferð um austurrísku Alp-
ana, erfið en spennandi ferð.
Allar upplýsingar fást á skrif-
stofu Útivistar í Grófinni 1, Reykja-
vík.
TRYGGÐU ÞÉR
ÞAÐ BESTA STRAX
PANTAÐU NÚNA
(m» *m
Ferðaskrifstofa • Hallveigarstíg 1 • Símar 28388-28580
Bestu hótelin
besta verðið
Royal gisting, 2 vikur
/
Brottfarardagar:
4. júní / 9. júlí / 3. september
Verðdæmi:
4 manna fjölskylda, 2 fullorðnir og 2 börn
2-11 ára kr. 145.500 eða kr. 36.375 á mann.
3 manna fjölskylda, 2 fullorðnir og 1 barn
2-11 ára kr. 131.400 eða kr. 43.800 á mann.
2 fullorðnir kr. 54.000 á mann.
Bjóddu þér og fjölskyldunni almennilegt hót-
el í sumarfríinu - á viðráðanlegu verði.
Sumarfrí á almennilegu hóteli er góð fjárfest-
ing - veldu Royaltur hótel hjá Atlantik.