Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Blaðsíða 3
■ ffiei IAM IS HUDAaUTRÖ'*!
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991.
19
Dans-
staðir
Ártún
Vagnhöfða 11, sími 685090
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar
ásamt Hjördísi Geirsdóttur söng-
konu leikur fóstudags- og laugar-
dagskvöld.
Bjórhöllin
Gerðubergi 1, sími 74420
Lifandi tónlist öll kvöld vikunn-
ar.
Blúsbarinn
Laugavegi 73
Lifandi tónlist öll kvöld.
Casablanca
Diskótek fóstudags- og laugar-
dagskvöld.
Dans-barinn
Grensásvegi 7, sími 688311
Dansleikur á fóstudags- og laug-
ardagskvöld.
Danshúsið Glæsibæ
Álfheimum, s. 686220
Hljómsveitin Smellir ásamt
Ragnari Bjarnasyni leikur á
föstudagskvöld.
Fjörðurinn
Strandgötu, Hafnarfirði
F.H.-skemmtun í kvöld. Hljóm-
sveitin Upplyfting leikur fyrir
dansi. Á laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Upplyfting fyrir
dansi.
Furstinn
Skipholti 37, sími 39570
Lifandi tónlist í kvöld, föstudags-
og laugardagskvöld.
Gikkurinn
Ármúla 7, simi 681661
Lifandi tónlist um helgina.
L.A. Café
Laugavegi 45, s. 626120
Diskótek föstudags- og laugar-
dagskvöld. Hátt aldurstakmark.
Lídó
Lækjargötu 2
Dansleikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Sportklúbburinn
Borgartúni 32, s. 29670
Opið fóstudags- og laugardags-
kvöld á Stönginni. Aðgangur
ókeypis.
Hótel Borg
Kántríklúbbur Aðalstöðvarinnar
og Hótel Borg halda kántríkvöld
í kvöld. Sérstakur heiðursgestur
verður Hallbjörn Hjartarson.
Dansleikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Hótel ísland
Ármúla 9, sími 687111
Stemning sjöunda áratugarins.
Hljómsveitin „The Rocking
Ghosts“ leikur fóstudags- og
laugardagskvöld. Rokkað á
himnunum verður síðan á laug-
ardagskvöld.
Moulin Rouge
Fegurðarkeppni á laugardags-
kvöld.
Naustkráin
Vesturgötu 6-8
Opið um helgina.
Nillabar
Strandgötu, Hafnarfirði
Klang og kompaní heldur uppi
stuði um helgina.
Tveir vinir og annar í fríi
Á föstudags- og laugardagskvöld
leikur gleðisveitin íslandsvinir.
Hún heldur upp á eins árs af-
mæli sitt um þessar mundir.
Hótel ísland:
The Rocking Ghosts í heimsókn
Danska hljómsveitin The Rocking Ghosts skemmtir á Hótel íslandi um helgina.
Um helgina, föstudags- og laugar-
dagskvöld, skemmtir hljómsveitin
The Rocking Ghosts á Hótel íslandi
en þessi hljómsveit gerði garðinn
frægan á sjöunda áratugnum. Hún
átti nokkur fræg lög á vinsældalist-
um og má nefna „Belinda" og „Oh,
What a Kiss“. The Rocking Ghosts,
sem er einhver frægasta hljómsveit
Danmerkur, hefur allt tíð ferðast
mjög mikið og verið á tónleikar-
ferðum með Rolling Stones, Her-
man Hermits, The Shadows og
fleirum. í dag er hljómsveitin hvað
vinsælust sem danshljómsveit og
spilar hressa og skemmtilega tón-
list.
Á föstudagskvöld verður boðið
upp á einstaka danssýningu en þar
koma fram okkar fremstu dansarar
á sviði „Ball Room“ og suður-
amerískra dansl. Þetta er fjöl-
skylda sem sópað hefur til sín verð-
launum í dansi og hveijum titlin-
um á fætur öðrum hérlendis. Þetta
eru hjónin Jón Stefánsson og Berg-
lind Freymóðsdóttir og dætur
þeirra tvær, Anna Björk og Jó-
hanna Ella, ásamt Ragnari Sverris-
syni og Davíð Arnari Einarssyni.
Nýr, íslensk-
ur djass á
Púlsinum
Annan í djasshátíð, mánudaginn
27. maí, leikur og syngur sjö manna
" hljómsveit nýja íslenska djasstón-
list eftir kontrabassaleikarann
Tómas R. Einarsson. Sveitina skipa
auk hans Eyþór Gunnarsson á
píanó, Sigurður Flosason á altó- og
baritónsaxófón, Einar Valur Sche-
ving trommur, Össur Geirsson á
básúnu og söngvarar verða tveir,
Ellen Kristjánsdóttir og James Óls-
en.
Efnisskráin samanstendur af níu
djasslögum sem flutt voru í Púlsin-
um í mars sl. og hljóðrituð skömmu
síðar í Stúdíó Sýrlandi. Þá lék Pétur
Östlund á tromur og Frank Lacy á
básúnu og flygilhorn, auk þess að
syngja þrjú lög. Tónleikarnir byrja
kl. 22.00.
Þeir sem koma nýir í Hljómsveit-
ina á Púlsinum á mánudagskvöldið
eru trommuleikarinn Einar Valur
Scheving, sem getur sér gott orð í
ýmusm tegundum tónhstar, Össur
Geirsson básúnuleikari, sem hefur
fjölþætta tónlistarreynslu, og síðan
en ekki síst færeyski söngvarinn
og trommuleikarinn James Ólsen
sem hefur verið við tónlistarnám
hérlendis síðastliðinn vetur.
Á annan í djasshátíð, á mánudag,
verða lög Tómasar R. leikin af full-
um krafti á Púlsinum.
Á laugardagskvöldið verður svo
næstsíðasta sýningin á Rokkað á
Samtökin Átak gegn áfengi halda
fjölskylduskemmtun í Vinabee (áð-
tir Tónabíó) laugardaginn 29. maí
milli klukkan 14.00 og 17.00. Þetta
er tilraun aðstandenda Átaksins til
að draga úr kynslóðabilinu og gefa
öllum meðlimum fjölskyldunnar
kost á að skemmta sér saman.
Það verður Bjartmar Guðlaugs-
son sem leiðir skemmtunina og
tekur lagið með gestum. Nemendur
úr fimleikadeild Ármanns sýna
listir sínar, sigurvegarar úr Free
style keppninni sýna dans, galdra-
karl kemur og galdrar og Tóti trúð-
ur kemur í heimsókn.
Þarna verður söngur, gaman,
glens og grín og verða yngstu gest-
irnir leystir út með gjöfum. Enginn
aðgangseyrir verður innheimtur
Afmæli á
Tveimurvinum
Um helgina ætlar hljómsveitin
íslandsvinir að halda upp á ársaf-
mæli sitt á Tveimur vinum og ætlar
að skemmta gestum föstudags- og
laugardagskvöld. í boðinu verða
tveir fyrrverandi gítarleikarar
hljómsveitarinnar, þeir Einar Þor-
valdsson og Ari Einarsson. Auk
þess stendur til að hinn aldni
kántrísöngvari, Hjalti Guðgeirs-
son, sem gerðist frægur síðasthðið
ár þegar hann söng Gamalt og gott,
stígi á svið.
Kántríkvöld á
Hótel Borg
Végna fjölda áskorana verður
kántríball Aðalstöðvarinnar og
Hótel Borgar endurtekið í kvöld.
Skemmtunin hefst með þríréttaðri
kúrekamáltíð klukkan 20.00 en
strax að henni lokinni koma
skemmtikraftarnir fram. Sérstak-
ur heiðursgestur verður Hallbjörn
Hjartarson, sem syngur nokkur
lög, en einnig tekur kánrítríóið
Afdalagærurnar nokkur lög.
Hljómsveit kvöldsins er svo Sveitin
milli sanda. Borðapantanir eru á
Hótel Borg í síma 11440.
himnum en þessi sýning hefur no-
tið mikilla vinsælda. Alls eru sýn-
Bjartmar Guðlaugsson stjórnar
fjölskylduskemmtun í Vinabæ.
og eru allar veitingar fríar en
skemmtunin er styrkt af Ábyrgð
og Mjólkursamsölunni.
Stjórnin verður á Dalvik og
Blönduósi um helgina.
Stjómin á
Blönduósi
og Dalvík
Um helgina verður Stjórnin fyrir
norðan og leikur í félagsheimiUnu
á Blönduósi á fóstudag og er það í
fyrsta sinn sem hljómsveitin leikur
þar í bæ.
Á laugardag verður haldið til
Dalvíkur og leikið í félagsheimilinu
Víkurröst um kvöldið. Fimmtudag-
inn 30. maí sendir Stjórnin frá sér
hljómplötu og verða útgáfutónleik-
arnir á ÖmmuLú sama kvöld.
ingar frá upphafi um fjörutíu og
lítið lát á aðsókninni.
Safnaradag-
ur í Kola-
portinu
Kolaportið efnir til sérstaks safn-
aradags í samvinnu viö hin ýmsu
safnárafélög og einstaka sáfnara á
sunnudag. Þarna geta saínarar á
öllum sviöum kömið saman og
sýnt, selt, keypt og skipst á hinum
íjölbreyttustu hlutum. Tilgangur-
inn með safnaradeginum er að gefa
almenningi kost á að kynnast
ýmiss konar söfnun og að vera vett-
vangur fyrir safnara landsins til
að bera saman bækur sínar.
Félög myntsafnara og frímerkja-
safnara hafa stærstan hóp félags-
manna og skipta þeir þúsundum.
Söfnun póstkorta og spila er algeng
en á safnaraskrá, sem gefin hefur
verið út, má finna fólk sem safnar
hinum skemmtilegustu hlutum og
má nefna eldspýtustokka, merkta
penna, merkt glös, servíettur,
lyklakippur, höfuðföt, nafnspjöld,
golfkúlur, teskeiðar, barmmerki,
kaffikönnur, glansmyndir, vísur
um hunda, bjöllur, endur, rauð
emeleruð eldhúsáhöld, blekbyttur
og rjómakönnur.
Moulin Rouge:
íslenskur
þokki
í kvöld verða í fyrsta sinn kynnt-
ir þátttakendur í fegurðarsam-
keppninni íslenskur þokki ’9l.
Keppendur eru alls sex og verða
þeir kynntir í tvennu lagi, fyrri
hópurinn í kvöld en hinn síðari 31.
maí. Úrslitakvöldiö verður svo
haldið á Moulin Rouge þann 8. júní.
Keppt er um titlana þokkadís ís-
lands, þokkaleg ljósmyndafyrir-
sæta og vinsælasta þokkadísin. All-
ir keppendur koma fram á kynn-
ingarkvöldunum í hversdagsfótum
á kynningarkvöldinu og þar sýna
þeir hæfileika á einhverju sviði.
Úrslitakvöldið sjálft verður síðan
haldið með pompi og pragt. Þokka-
dísirnar koma fram í samkvæmis-
klæðnaði, bíóklæðnaði og kynæs-
andi undirfatnaði. Auk þess verða
fjölbreytt skemmtiatriði og kynnir
er Rúnar Guðbrandsson snyrtip-
inni.
Átak gegn áfengi:
Fjölskyldu-
skemmtun í Vinabæ