Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1991, Qupperneq 5
20
FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1991.
FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1991.
21
Messur
Bergur Sigurbjörnsson.
Bústaðakirkja. Guösþjónusta kl. 11.
Organisti Guöni Þ. Guömundsson. Sr.
Pálmi Matthíasson.
Dómkirkjan. Messa kl. 11. Fermd verður
Kristín Sigmundsdóttir, Látrum í Mjóa-
firði. Altarisganga. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson. Messa kl. 14. Séra Ingólfur
Guðmundsson veröur settur inn í emb-
ætti héraðsprests í Reykjavíkurprófasts-
dæmum. Séra Ingólfur Guðmundsson
prédikar. Prófastamir í Reykjavíkur-
prófastsdæmum og sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson þjóna fyrir altari. Dómkór-
inn syngur. Organisti Marteinn H. Frið-
riksson.
Viðeyjarkirkja. Messa kl. 14. Prestur sr.
Hjalti Guðmundsson. Bátsferð úr Sunda-
höfn kl. 13.30. Dómkirkjan.
Grensáskirkja. Sunnudagur: Safnaðar-
ferð. Lagt af stað frá Grensáskirkju kl.
9.30. Farið verður upp á Akranes og tekið
þátt í messu í Akraneskirkju. Eftir messu
verður boröað í safnaðarheimilinu og sjá
kvenfélagskonur þar um veitingar. Áð
máltíð lokinni veröur minjasafniö að
Görðum skoðað. Síðan verður haldiö
heim og ekið sunnan Akraíjalls. Komiö
heim ekki síðar en kl. 17. Ferðin kostar
kr. 1.200, allt innifalið. Þriðjudagur kl. 14.
Biblíulestur. Sr. Halldór S. Gröndal. Síð-
degiskaffi og umræöur.
Hallgrímskirkja. Messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Þriðjudagur: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Landspítalinn. Messa kl. 10. Sr. Bragi
Skúlason.
Árbæjarkirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Þór Hauksson annast guðsþjónustuna.
Organleikari Violeta Smidova. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
Breiðholtskirkja. Útvarpsguðsþjónusta
kl. 11. Organisti Þorvaldur Bjömsson.
Gísli Jónasson.
Elliheimilið Grund. Guösþjónusta kl. 10.
Sr. Ólafur Jóhannsson.
Fella- og Hólakirkja. Guðsþjónusta kl.
20.30 (ath. breyttan messutíma). Prestur
sr. Hreinn Hjartarson. Sönghópurinn Án
skilyrða annast tónlist. Þriðjudagur: Fyr-
irbænir í Fella- og Hólakirkju kl. 14.
Fimmtudagur: Helgistund í Gerðubergi
kl. 10.
Hjallaprestakall. Messusalur Hjalla-
sóknar, Digranesskóla. Almenn guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Kristján Einar Þor-
varðarson.
Kársnesprestakall. Sumarferð safnað-
arins verður farin sunnudaginn 9. júní.
Brottför frá Kópavogskirkju kl. 10.
Kópavogskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
Seljaprestakall. Laugardagur: Messa í
Seljahlíð kl. 11. Sunnudagur: Kvöldguðs-
þjónusta kl. 20.30. Organisti Jón Stefáns-
son. Sóknarprestur.
Háteigskirkja. Messa kl. 11. Sr. Tómas
Sveinsson. Kvöldbænir og fyrirbænir eru
í kirigunni á miðvikudögum kl. 18.
Langholtskirkja. Kirkja Guðbrands
biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr.
Sigurður Haukur Guðjónsson. Organisti
Jón Stefánsson. Kór Langholtskirkju
syngur.
Laugarneskirkja. Laugardagur: Guðs-
þjónusta kl. 11 í Hátúni lOb. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson. Sunnudagur: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Bjarni Karlsson. Organisti
Ronald V. Turner. Heitt á könnunni eftir
guðsþjónustuna. Fimmtudagur: Kyrrð-
arstund kl. 12. Orgelleikur, altarisganga,
fyrirbænir.
Neskirkja. Guösþjónusta kl. 11. Organ-
isti Reynir Jónasson. Sr. Frank M. Hall-
dórsson. Miðvikudagur: Bænamessa kl.
18.20. Sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Messa kl. 11. Org-
anisti Gyða Halldórsdóttir. Prestur sr.
Solveig Lára Guömundsdóttir. Miöviku-
dagur: Samkoma kl. 20.30. Sönghópurinn
Án skilyrða, stjómandi Þorvaldur Hall-
dórsson.
Fríkirkjan í Reykjavík. Helgihald fellur
niður þessa viku. Föstudagur 14. júní frá
kl. 9.00. Útimarkaður Kvenfélagsins við
kirkjuna. Kirkjan er opin í hádeginu
virka daga. Cecil Haraldsson.
Hafnarfjarðarkirkja. Helgistund á
sunnudagsmorgun kl. 11. Prestur sr.
Gunnþór Ingason. Mozarttónleikar Kórs
Hafnarfjarðarkirkju í Hafnarborg kl.
20.30. Kórinn flytur Krýningarmessu
W.A. Mozarts og 4 mótettur hans ásamt
hljómsveit og einsöngvurunum Sigríði
Gröndal, sópran, Guðnýju Árnadóttur,
mezzosópran, Þorgeiri Andréssyni, te-
nór, og Ragnari Davíðssyni, barítón.
Stjómandi: Helgi Bragason.
r
Petri Sakari er að Ijúka þriðja starfsári sínu sem aðalhljómsveitarstjóri Sinfónínuhljómsveitar íslands
Sinfóníuhljómsveit íslands á M-hátíð:
Tónleikar á Laugarvatni
Sinfóníuhljómsveit íslands veröur
með tónleika á Laugarvatni í kvöld
og hefjast þeir kl. 21.00. Þessir tón-
leikar eru liöur í M-hátíð á Suður-
landi og tengjast þeir reglulegu starfi
hljómsveitarinnar um tónleikahald
utan Reykjavíkursvæðisins.
Efnisskráin verður fjölbreytt:
Fyrst verður flutt Austurbotningar
eftir Leevi Madetoja og því næst
Norskir dansar eftir Edward Grieg.
Eftir hlé verður flutt Ave verum
corpus eftir Wolfgang Amadeus Moz-
art, Suðurland eftir Einar Sigurðs-
son, ísland eftir Sigfús Einarsson,
Finlandia eftir Jean Síbelíus og að
lokum Árnesþing eftir Sigurð
Ágústsson. Hljómsveitarstjóri er
Petri Sakari, aðalhljómsveitarstjóri
Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Petri Sakari er aö ljúka þriðja
starfsári sínu sem aðalhljómsveitar-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Hann er rúmlega þrítugur Finni, sem
lærði á fiðlu í heimabæ sínum, Tam-
pere í Finnlandi. Hann hélt síðar til
náms í hljómsveitarstjórn og fiðlu-
leik við Sibelíusarakademíuna í
Helsinki. Auk þess að stjórna sinfó-
níuhljómsveitinni stjórnar hann öðr-
um slíkum hljómsveitum á Norður-
löndum og Þýskalandi og leikur í
píanóatriði, sem er orðið þekkt innan
Norðurlanda.
í Eden í Hveragerði stendur nú yfir
málverkasýning Elínar Sigurðar-
dóttur. Sýndar eru myndir málaðar
með olíu á striga. Þetta er önnur
einkasýning Elínar en henni lýkur
17. júní.
Félag hjartasjúklinga á Reykjavík-
ursvæðinu boðar til félagsfundar og
sumarfagnaðar í Ársal Hótel Sögu í
kvöld kl. 20.
Bjarni Torfason hjartaskurðlæknir
mun fjalla um 5 ára afmæli hjarta-
skurðdeildar og 500 skurðaðgerðir
þar. Bergþóra Baldursdóttir sjúkra-
þjálfari kynnir niðurstöður þjálfun-
arrannsókna og Kristinn Þórhalls-
son gerir grein fyrir happdrætti til
kaupa á hjartaómskoðunartæki. Þá
verður einnig boðið upp á hljómlist
og gamanmál.
Nýir félagar og gestir eru velkomn-
ir á þennan sumarfagnað.
Sumarfagnaður hjartasjúklinga
Nýlistasafniö:
Nanna K. Skúladóttir
Á morgun kl. 16 opnar Nanna K.
Skúladóttir höggmyndasýningu í efri
sölum Nýlistasafnsins að Vatnsstíg
3b. Á sýningunni eru eingöngu högg-
myndir unnar í tré og eru flestar
þeirrar unnar á þessu ári.
Nanna stundaði nám í Myndlista-
og handíðaskóla íslands og síðan í
A.K.I. Akademie voor Kunst en Ind-
ustrie í Hollandi og brautskráðist
þaðan árið 1988. Þetta er fyrsta einka-
sýning Nönnu en hún hefur áður
tekið þátt í nokkrum samsýningum
bæði hér heima og í Hollandi.
Á sýningunni eru eingöngu högg-
myndir, unnar í tré.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14-18 og stendur til 23. júní.
Kjarvalsstaðir:
Christo
Á morgun verður opnuð í vestur-
sal Kjarvalsstaða sýning á verkum
eftir Christo sem er bandarískur
myndhöggvari. Síðastliðin 30 ár hef-
ur hann m.a. unnið stórbrotin um-
hverfisverk þar sem hann pakkar
inn heilum byggingum og strengir
tjöld margra kílómetra leið yfir dali
ogfjöll. Sýningin stendur til 14. júlí.
í austursal er yfirlitssýning á verk-
um eftir fluxus-listamenn og stendur
sú sýning til 23. júní. Kjarvalsstaðir
eru opnir daglega frá kl. 11-18 og er
veitingabúðin opin á sama tíma.
Rúnar Þór
á ísafirði
Rúnar Þór spilar ásamt hljómsveit
í Sjallanum á ísafirði í kvöld, fóstu-
daginn 7. júní, og á morgun, laUgar-
daginn 8. júni. ísfirðingar ættu að
þekkja til Rúnars Þórs þar sem ísa-
fjörður er æskuslóðir hans. Sem fyrr
spilar Rúnar Þór lög af útkomnum
plötum sínum auk annarra þekktra
laga og óskalaga. Tónhstin er af öllu
tagi, allt frá píanóballöðum upp í
rokk. Með Rúnari Þór spila þeir Jón
Ólafsson á bassa og Jónas Björnsson
á trommur.
Rúnar Þór spilar í Sjallanum á
ísafirði um helgina.
Þórdís sýnir skúlptúra sem allir eru unnir á þessu ári.
Nýlistasafnið:
Þórdís Alda Sigurðardóttir
Á morgun kl. 16 opnar Þórdís Alda
Sigurðardóttir sýningu í Nýlistasafn-
inu að Vatnsstíg 3b. Á sýningunni
verða skúlptúrar sem allir eru unnir
á þessu ári.
Þetta er þriðja einkasýning Þórdís-
ar og önnur á þessu ári. Hún hefur
einnig tekið þátt í ýmsum samsýn-
ingum hérlendis og í Danmörku og
var í hópi þeirra listamanna sem
stóðu að rekstri gallerísins Gangskör
í Reykjavík.
'Sýningin er opin daglega kl. 14-18
en þess má geta að í Pennanum,
Hallarmúla 2, eru einnig til sýnis 4
skúlptúrar eftir Þórdísi.
Landsþing Kvenfélaga-
sambands íslands
Landsþing Kvenfélagasambands
íslands er haldið í Hafnarborg í Hafn-
arfirði um þessar mundir. Þingið
sækja um 100 konur hvaðanæva af
landinu og eru þær umbjóðendur
rúmlega 21 þúsund kvenna sem eru
í þessum stærstu kvennasamtökum
landsins. Aðalmál þingsins er at-
vinnumál kvenna og verða flutt
fimm framsöguerindi í þeim mála-
flokki.
Á sunnudag verða glæsikerrur fyrri tíma í sviðsljósinu á Árbæjarsafni.
Félagar úr Fornbilaklúbbi íslands munu sýna úrval bifreiða frá fyrri hluta
aldarinnar, bæði fólksbíla, vörubíla og jeppa. Einnig verður efnt til kappakst-
urs á kassabílum og er gert ráð fyrir að krakkarnir komi sjálfir með sína
kassabíla en þó verða fyrir hendi tveir bilar fyrir þá sem enga eiga. Auk
þess verður á safnsvæðinu ýmis önnur starfsemi.
Tilkyimingar
Taflfélag Kópavogs
Júní-hraðskákmót Taflfélags Kópavogs
verður haldið sunnudaginn 9. júní. Teflt
verður í sal Taflfélags Kópavogs að
Hamraborg 5, 3. hæð.
Landssamtök ITC á
íslandi
Farið verður í gróðursetningaferð í
Freyjulund í Heiðmörk á morgun, laug-
ardag, kl. 13. Upplýsingar veitir Ólöf í
síma 72715.
Markaður kvenfélaga-
sambands Kópavogs
verður haldinn að Hamraborg 14-18
föstudaginn 7. júní kl. 11-17. Seldar verða
kökur, stofublóm, garðblóm og runnar.
Laugardagsganga
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú verð-
ur á morgun. Lagt af stað frá Fannborg
4 kl. 10. Samvera, súrefni og hreyfmg eru
kjörorð göngunnar. Mætið upp úr hálftíu
í Fannborginni og takið þátt í skemmti-
legu rabbi og rölti. Gangan er fyrir alla
unga og aldna. Nýlagað molakaffi.
Vörubílstjórafélagið
Þróttur 60 ára
Á þessu ári eru liðin 60 ár frá stofnun
félagsins. Það var stofnað 9. apríl 1931.
Frá upphafi hefur félagið rekið Vörubíla-
stöðina Þrótt sem fyrst var til húsa í
gamla Zimsenhúsinu, þar sem seinna var
Ferðaskrifstofa ríkisins. 1946 flutti félagið
starfsemi sína á lóð á homi Rauðarár-
stígs og Hverfisgötu en 1961 var hafin
bygging núverandi húss félagsins aö
Borgartúni 33 þar sem það er enn til
húsa í dag. Vörubílastöðin Þróttur er eina
vörubílastöðin í Reykjavík og þjónar hún
Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi,
Mosfellsbæ, Kjalamesi og Kjós. í dag em
150 félagar starfandi meö vörubíla af öll-
um gerðum. Formaður félagsins er Bragi
Siguijónsson. í tilefni af afmælinu verður
opið hús í Borgartúni 33, sunnudaginn
9. júní frá kl. 13.30-18. Á svæðinu verða
til sýnis gamlir vörubílar og einnig það
nýjasta og fullkomnasta í vörubílafram-
leiðslu í dag. Kaffiveitingar verða fyrir
gesti og góðgæti fyrir yngri kynslóðina
verður í húsi félagsins. Allir velkomnir.
Skoöið gamla og nýja tíma í vörubílaþjón-
ustu.
Söngferð Árnesingakórsins
Árnesingakórinn í Reykjavík er á söng-
ferð fyrir noröan þessa dagana. í kvöld
kl. 21 verður sungið í Dalvíkurkirkju og
laugardaginn 8. júní kl. 21 að Ýdölum.
Fjölbreytt söngdagskrá. Söngstjóri er
Sigurður Bragason og undirleikari
Bjarni Jónatansson.
Ferðalög
Útivistum heigina
Helgin 7.-9. júní
Eyjafjallajökull - Seljavallalaug.
Skemmtileg ganga upp úr Þórsmörk eftir
Hátindaleið yfir Eyjajökul niður að Selja-
völlum þar sem farið verður í sund áður
en haldið verður til baka í Bása þar sem
hópurinn gistir.
Básar á Goðalandi
Um hveija helgi út október. Skipulagðar
verða miserfiðar gönguferðir um Goða-
land og Þórsmörk. Góð gistiaðstaða í Úti-
vistarskálunum. í tengslum við ferðina
núna um helgina gefst kostur á að ganga
yfir Fimmvörðuháls.
Sunnudagur 9. júní
Kl. 10.30 Heklugangan, 6. áfangi.
Ferðin hefst í Skálholti og veröur gengið
upp með Tungufljóti að Faxa, öðru nafni
Vatnsleysufossi. Leiöin liggur ýmist um
ásana vestan fljótsins eða eftir bökkum
þess. Brottför frá BSÍ - bensínsölu. Hægt
er að koma i rútuna á leiðinni.
Ferðafélag íslands
Föstudagskvöld kl. 20 verður helgarferð
til Þórsmerkur. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal. Skipulagöar gönpíferðir
um Mörkina og einnig er fyrirhuguð
gönguferð yfir Eyjatjallajökul á laugar-
deginum og komið niður hjá Seljavalla-
laug. Dagsferðir um helgina verða þess-
ar: Laugardaginn kl. 9 verður lagt upp í
ökuferö um söguslóðir Njálu. Leiðsögu-
maður verþur Árni Björnsson, Sunnu-
daginn 9. júní verður gönguferð kl. 9 á
Skarösheiði-Heiðarhorn og kl. 13 verður
Fjölskyldudagur í Heiðmörk. Allir eru
velkomnir, Jélagar og aörir, í Heiðmörk
á sunnudaginn, þar verður létt gönguferð
um skógarreit Ferðafélagsins, að lokinni
göngu verður safnast saman og sungið
og farið í leiki. Fólk getur einnig komið
á eigin farartækjum og tekið þátt í fjöl-
skyldudeginum í Heiðmörk. Þriðjudag-
inn 11. júní kl. 20 verður kvöldferð til
Viðeyjar og miðvikudaginn 12. júní verð-
ur skógræktarferð í Heiðmörk, reit
Ferðafélagsins.
Vinnuferð í Þórsmörk - landgræðsluá-
tak. Eflum félagsstarfið meö þátttöku í
sjálfboöavinnu á vegum Ferðafélagsins.
Ýmis viöhaldsverkefni, landgræðsla og
fl. Uppl. og skráning á skrifstofunni. Tak-
markað pláss.
Tónleikar
Tónleikar í Nýlistasafninu
Tónleikar verða í Nýlistasafninu, Vatns-
stíg 3b, sunnudaginn 9. júní kl. 20. Tvö
tónverk eftir sænska tónskáldið Christer
Persson verða flutt viö texta eftir mynd-
listarmanninn Bengt Adlers. Verkin eru:
1. Elementary, 2. From the Corners of
my I. Christer Persson leikur á gitar. í
dag, 7. júní mun Bengt Adlers setja upp
sýningu sína í Gallerí Ganginum.
Sýriingar
Art-Hún
Stangarhyl 7
Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk,
grafík og myndir, unnar í kol, pastel og
olíu, í sýningarsal sínum að'Stangarhyl
7. Opið virka daga kl. 12-18. Aðrir tímar
eftir samkomulagi.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í safni Ásgríms Jónssonar eru nú sýnd
26 verk. Mörg verkanna, sem bæði eru
unnin í olíu og með vatnslitum, eru frá
árunum 1905-1930 og eru þau einkum frá
Suöurlandi.
Ásmundarsafn
Sigtúni
Þar stendur yfir sýning sem ber yfir-
skriftina Bókmenntirnar í list Ásmundar
Sveinssonar. Jafnframt hefur verið tekin
í notkun ný viöbygging við Ásmundar-
safn. Safnið er opiö frá kl. 10-16 alla daga.
FÍM-salurinn
Garðastræti
Þar stendur yfir sýning á verkum sænska
•listamannsins Ingvars Staffans. Á sýn-
ingunni eru málverk gerð með blandaðri
tækni. Sýningin er opin daglega kl. 14-18.
Henni lýkur sunnudaginn 9. júní.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Opið virka daga kl. 10-18 og um helgar
kl,- 14-18.
Gallerí List
Skipholti
Þar stendur yfir sýning á gler- og
keramiklistmunum eftir Ingu Elínu. Sýn-
inguna kailar hún Ljósbrot enda gegnir
ljósiö mikilvægu hlutverki í verkunum
því ýmist er um aö ræða lampaskúlptúra
og loftljós eða glermyndir í glugga.
Opiö virka daga kl. 10.30 18 en laugar-
daga og sunnudaga kl. 14 18.
Þegar Sunny nálgast það
markmið að finna Aiex
Markoff kemur í Ijós að
hún kallar sjálf yfir sig
hættu.
Leikurinn berst vítt um
heim - San Fransiskó,
England, Noregur,
Kanada.
í leit sinni að Alex
Markoff er hún
kötturinn sem leitar
músarinnar; gagnvart
óljósum ofsækjendum
er hún músin á
flótta undan
köttunum. Þetta
er leikur upp á
líf og dauða -
úrvals spennusaga.
Sunny Sinclair
hefur ekki séð
Alex Markoff
síðan heimsstyrj-
öidinni síðari lauk.
Þá voru þau bseði
starfandi njósnarar
og um skeið
Þvi er nú löngu lokið.
En mörgum áratugum
síðar rifjast þetta
gamla, eldheita ævintýri
upp með óvæntum
hætti.
Hún verður að finna
þennan gamla elskhuga
sem raunar hefur lengi
verið talinn af.
En nú kemur hrollkaldur
veruleikinn æ skýrar í Ijós
með hverju skrefi sem hún
tekur - hann er ekki bara IH-
andi heidur er hann sennilega
líka í miklum háska staddur.
Hæjgt er að panta
Urvalsbækur
í síma 62-60-10