Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1991, Síða 1
Listahátíó í Hafnarfírói:
í dag kl. 18 munu listamenn
vígja höggmyndagarö á Víði-
staöatúni á táknrænan hátt. At-
burðurinn er í tengslum viö
Listahátíð Ilafnarfjaröar en
verkin eru smíöuö í alþjóðlegri
skúlptúrvinnustofu i Listamíð-
stöðinni í Straumi.
Fyrir eru hér á landi þrír högg-
myndagarðar en þeir eru allir í
tengslum viö listamannasöfn og
i hverjum garði eru aðeins verk
eitir einn listamann. Högg-
myndagarðurinn í Hafnarfirðí
verður frábrugðinn þeim aö því
leyjj að þar verða nútímalista-
verk eftir marga listamenn. Hann
gæti því stækkað í framtíðinni og
möguleiki verður að sjá þar það
nýjasta í höggmyndalistinni.
Kvöldganga Náttúruvemdarfé-
lags Suðvesturlands hefst í kvöld
kl. 20. Gengið verður fyrst um
sýningu nemenda í Bamaskóla
Bessastaðahrepps um náttúm- og
umhverfisvemd. Að því loknu
verður bryddað upp á þeirri nýj-
ung að þátttakendur ganga án
fararsijóra á milli fræðslustöðva
sem settar verða upp á nokkmm
stöðum.
Á sólstööumínútunni kl. 21.19
verður stutt athöfn á Breiðabóls-
staðaeyri á Álftanesi en Sólstöðu-
göngimni 1991 lýkur í Öskjuhlíð
á síöustu fræðslustöðinni kl. 12 á
miðnætti.
Markmiðið með hlaupinu er að leggja áhersiu á iþróttaiðkun kvenna.
DV-mynd Brynjar Gauti
Kvennahlaup
Á morgun kl. 14 verður kvenna-
hlaup í Garðabæ. Safnast verður
saman við Flataskóla þar sem léttar
upphitunaræfingar hefjast um hálf-
tíma áður en ræst verður í hlaupið.
Hægt er að velja um tvær vegalengd-
ir, 2 og 5 km, en þátttakendur ráða
hvort þeir hlaupa, skokka eða ganga.
Þetta er í annað skipti sem kvenna-
hlaupið fer fram en í fyrra tóku 2400
konur þátt í hlaupinu. Markmiöið
með hlaupinu er að leggja áherslu á
íþróttaiðkun kvenna og holla lífs-
hætti sem konur fá gegnum þátttöku
í íþróttum.
Þátttökugjald er 300 kr. en innifalið
er bolur og viðurkenning að afloknu
hlaupinu. Skráning fer fram í Ás-
garði í Garðabæ og í flestum íþrótta-
húsum, sundlaugum og heilsurækt-
arstöðvum.
Seltj amameskirkj a:
Ungir tónlistarmenn
Á sunnudag kl. 20.30 mun hópur
ungra tónlistarmanna halda tónleika
í Seltjarnarneskirkju. Fluttir verða
valdir þættir úr eftirtöldum verkum:
Haydn strengjakvartett op. 1. nr. 1,
Beethoven strengjakvartett nr. 6,
Beethoven Serenada fyrir flautu og
strengi, Mozart flautukvartett og
klarinettukvintett, Vivaldi konsert
fyrir fjórar fiðlur og duo eftir Ravel
og Jón Nordal.
Flytjendur eru: Guðrún Árnadótt-
ir, Sif Tulinius, Gyða Stephensen,
Hlín Erlendsdóttir, Sigurbjörn Bern-
harðsson, íma Þöll Jónsdóttir, Olga.
Björk Ólafsdóttir, Pálína Ámadóttir
á fiðlur og lágfiðlur, Sigurgeir Agn-
arsson, Stefán Örn Arnarson, Þór-
hildur Halla Jónsdóttir á selló, Sigur-
jón Halldórsson á klarinett og Stefán
Ragnar Höskuldsson á þverflautu.
Nokkrir tónlistarmannanna hafa
þegar lokið námi hér heima og eru á
forum til framhaldsnáms erlendis.
Tónleikarnir eru lokapunktur
tveggja vikna námskeiðs í kammer-
tónlist sem farið hefur fram í Tónlist-
arskóla Seltjarnarness undir leiö-
sögn Guðnýjar Guðmundsdóttur og
Gunnars Kvaran.
Tónleikarnir eru lokapunktur tveggja vikna námskeiðs i kammertónlist.
DV-mynd Brynjar Gauti
Utsýnis; og veitingastaðurinn
Perlan á Öskjuhlíðinni gengst fyrir
fjölskyldudegi á laugardag og
sunnudag. Dagskrá verður báða
dagana frá kl. 14-17. Hægt veröur
að skoða húsið, kaupa veitingar
gegn vægu gjaldi auk þess sem
ýmsar uppákomur verða í gangi.
Norræna húsið og norrænu vinafélögin gangast fyrir Jónsmessuhátíð.
Norræna húsið:
Jónsmessuhátíð
Á morgun verður Jónsmessan
haldin hátíðleg við og í Norræná
húsinu. Dagskráin hefst kl. 20 og
verður þá blómum skrýdd maí-
stöng reist á flötinni við húsið og
dansað kringum stöngina að
sænskum sið. Farið verður í ýmsa
leiki með yngri kynslóðinni og
kveikt verður í bálkesti kl. 22.
Grettir Björnsson leikur á har-
móníku og félagar úr Þjóðdansafé-
laginu taka sporið en auk þess
verður almennur söngur og vænst
er virkrar þátttöku allra við-
staddra í dansi og söng. Vísnavinir
verða einnig á staðnum og
skemmta með norrænum vísum.
Að hátíðinni standa norrænu
vinafélögin og Norræna húsið og
er aðgangur ókeypis.