Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 1
light Nights
Sýningar Ferðaleikhússins á
Light Nights eru nú hafnar á ný.
Sýningarnar eru haldnar í Tjarn-
arbíói, bak við ráðhúsbygginguna,
fimmtudaga til sunndaga kl. 21.
Sami sýningartími er öll kvöldin
og lýkur ílutningnum kl. 23.
Light Nights sýningamar eru
sérstaklega færðar upp til skemmt-
unar og fróðleiks enskumælandi
ferðamönnum. Efnið er allt ís-
lenskt en flutt á ensku að undan-
skildum þjóðlagatextum og kveðn-
um lausavísum. Meðal efnis má
nefna þjóðsögur af huldufólki,
tröllum og draugum, gamlar gam-
anfrásagnir og einnig er atriði úr
Egilssögu sviösett.
Þetta er tuttugasta og fyrsta sýn-
ingarárið á Light Nights en 25 ár
eru liðin frá stofnun Feröaleik-
hússins sem starfar einnig undir
nafninu The Summer Theatre.
Light Nights sýningarnar eru sérstaklega færðar upp til skemmtunar
og fróðleiks enskumælandi ferðamönnum.
í Ölkjallaranum við Austurvöll stendur nú yfir sýning Guðmundar Helga
Gústafssonar á vatnslita- og tússmyndum. Sýnd eru 23 verk, öll unnin
á sl. fimm árum. Sýningunni lýkur 15. júli.
' : v :
DV-mynd GVA
Nordia91 í
Laugardalshöll
- stærsta frímerkjasýning á íslandi
Stærsta frímerkjasýiúng, sem
haldin hefur verið á íslandi, var opn-
uð í Laugardalshöll í gær. Sýningin
ber nafnið Nordia 91 en um 1000 sýn-
ingarrammar verða í Laugardals-
höll, auk þess sem bækur um frí-
merkjasöfnun verða kynntar og
söluaðilar bjóða varning tengdan frí-
merkjum.
Áætlað hefur veriö að heildarverð-
mæti sýningargripa nemi 3 milljörð-
um króna. Verðmætasti einstaki
gripurinn er svokallað sambrotið
bréf til landfógetans á Islandi. Þetta
er þjónustubréf með þjónustufrí-
merkjum sem aðeins opinberir aðilar
máttu nota. Bréfið var sent frá skrif-
stofu Strandasýslu áriö 1873 sem
fylgibréf með sendingu á 283 ríkisdöl-
um og 13 skildingum, sem var
greiðsla í Jarðabókarsjóð. Verðmæti
þess nú er áætlað 40 milljónir króna
en það er í eigu íslenska ríkisins. Á
sýningunni er einnig að finna verð-
mætasta einkasafn íslenskra frí-
merkja en þaö er í eigu Bandaríkja-
mannsins Gene Scott. Safn hans er
metið á 180 milljónir króna.
Nordia-sýningin er haldin á Norð-
urlöndunum til skiptis og hefur verið
hér einu sinni áður, árið 1984. Að
sýningunni hér standa Landssam-
band íslenskra frímerkjasafnara í
samvinnu við Póst og síma og lands-
sambönd annars staðar á Norður-
löndum. Nordia 91 er opin í dag til
kl. 19 og um helgina frá kl. 10-18.
Aðgangur er ókeypis.
Fjórðungsmót á
Gaddstaðaílötum
Fjórðungsmót sunnlenskra hesta-
manna stendur nú yflr á Gadd-
staðaflötum við Hellu. Að mótinu
standa 16 hestamannafélög frá svæð-
inu í Hvalfirði að mörkum Austur-
og Vestur-Skaftafellssýslu.
Fjöldi hrossa er mættur til leiks að
venju og má búast við að nálægt
fimm hundruð verði á sýningum og
í keppni. í gæðingakeppni eru um 130
hestar, 45 í kappreiðum og kynbóta-
hross eru yfir 100. Keppendur í tölti
eru 35 og í unglingaflokki eru skráð-
ir keppendur um 60.
Mótinu lýkur um kl. 17 á sunnudag
með mótsshtum.
-
/• -
DV-mynd GVA
Menningarstofnun Bandaríkjanna:
Guðjón Bjamason
I dag kl. 17 opnar Guðjón Bjama-
son myndhstarsýningu í nýlegum
salarkynnum Menningarstofnunar
Bandaríkjanna að Laugavegi 26 en
aðalinngangur er frá Grettisgötu. Á
sýningunni eru 36 málaðir gripir
unnir með blandaðri tækni á ó-
strekktan striga auk tylftar
þrívíddarverka úr járni með arki-
tektónísku inntaki.
Guðjón hefur lokið meistaragráð-
um í myndhst, skúlptúr og bygg-
ingarhst frá School of Visual Arts
og Columbia háskólanum í New
York og er þetta áttunda einkasýn-
ing hans en hstamaðurinn á að
baki fjölmargar einka- og samsýn-
ingar í Frakklandi, Bandaríkjun-
um og á íslandi.
í tilefni sýningarinnar verður
gerð vegleg sýningarskrá og hefur
Aðalsteinn Ingólfsson hstfræðing-
ur ritað inngangsorð. Sýningin er
opin daglega á opnunartíma Amer-
íska bókasafnsins frá kl. 11.30-17.45
og stendur til 15. ágúst.