Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991.
Dans-
staðir
Ártún
Vagnhöfða 11, sími 685090
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar
ásamt Hjördísi Geirsdóttur söng-
konu leikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Blúsbarinn
Laugavegi 73
Lifandi tónlist öll kvöld.
Casablanca
Diskótek föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Dans-barinn
Grensásvegi 7, sími 688311
Dansleikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Danshúsið Glæsibæ
Álfheimum, s. 686220
Hljómsveitin Smellir ásamt
Ragnari Bjarnasyni leikur á
föstudagskvöld.
Fjörðurinn
Strandgötu, Hafnarfirði
Gömlu brýnin skemmta föstudags-
og laugardagskvöld.
Furstinn
Skipholti 37, sími 39570
Lifandi tónlist föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Gikkurinn
Ármúla 7, sími 681661
Dansleikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
L.A. Café
Laugavegi 45, s. 626120
Diskótek föstudags- og laugar-
dagskvöld. Hátt aldurstakmark.
Sportklúbburinn
Borgartúni 32, s. 29670
Opið fóstudags- og laugardags-
kvöld á Stönginni. Aðgangur
ókeypis.
Hótel ísland
Ármúla 9, sími 687111
Sýning á skemmtidagskránni „í
hjartastað - Love Me Tender" í kvöld.
Ball laugardagskvöld.
Hótel Saga
Ellý Vilhjálms, Ragnar Bjamason og
hljómsveitin Smellir leika í Súlnasal
á laugardagskvöld.
Moulin Rouge
Diskótek á föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Naustkráin
Vesturgötu 6-8
Opið um helgina.
Nillabar
Strandgötu, Hafnarfirði
Klang og kompaný skemmta fostu-
dags- og laugardagskvöld.
Tveir vinir og annar í fríi
í kvöld skemmtir Sálin hans Jóns
míns og á laugardagskvöld hljóm-
sveitin GCD með þá Bubba Morthens
og Rúnar Júl. í fararbroddi.
Ölkjallarinn
Pósthússtræti 17
BB bandið leikur fóstudags- og laug-
ardagskvöld. Trúbadorinn Einar
Jónsson kemur fram á sunnudags-
og mánudagskvöld.
ÞURRKUBLÖBIN VERÐfl
AB VERA ÚSKEMMB
og þau þarf að hreinsa reglulega.
Slitin þurrkuþlöð margfalda áhættu
í umferðinni.
ilæ
IFERÐAR
1
19
Reyðarfjörður:
Bryggjuhátíó
Bryggjuhátíð verður haldin á
Reyðarfirði í kvöld og á morgun.
Hátíðin byrjar á dansleik, með
lækkuðu aldurstakmarki, í kvöld
kl. 20.30 og verður síðan fram hald-
ið á laugardag kl. 14.
Af skemmtikröftum sem fram
koma má nefna Bellu, Eddu Björg-
vinsdóttur (í eigin persónu), Gísla
Rúnar, félaga í harmóníkufélagi
Fljótsdalshéraðs, kvintett Guð-
mundar Steingrímssonar og hljóm-
sveitina Bleika flla. Árni Elvar
listamaður verður á svæðinu og
teiknar fyrir þá sem þess óska.
Kaffihlaðborð verður í hinu
margfræga Gistihúsi KHB auk þess
sem grillað verður á svæðinu og
seldar rjómavöfllur. Annað sem
boðiö verður upp á til skemmtunar
er tívolí, sæsleðar, sjóskíði, kara-
mellurigning, sigling og sýning á
torfærubílum svo eitthvað sé nefnt.
Hljómsveitin Rokkbandið leikur á
dansleiknum annað kvöld.
Tjaldstæði með góðri aðstöðu er
rétt við bæjarmörkin og sundlaug-
in verður opin alla helgina. Að
hátíðinni standa þijú félög á Reyð-
arfirði, Ungmennafélagið Valur,
Bella mætir galvösk á bryggjuhá-
tíðina.
Kvenfélagið og Lionsklúbbur
Reyðarfjarðar.
Hljómsveitin Glott.
Púlsinn:
Júpitershljómsveitin er þekkt fyrir fjörmikla framkomu á sviði.
Sumarhátíð rás-
ar 2 og Júpiters
í kvöld gefst Reykvíkingum og
nærsveitungum fágætt tækifæri til
að hlusta á og upplifa Júpiters-
hljómsveitina á tónleikum þegar
óvenjuleg hátíð verður haldin á
Hótel Borg.
Rás 2 og Júpiter slá saman kröft-
um sínum og halda sumarhátíö í
anda þeirrar rómantísku endur-
reisnar sem hljómsveitin hefur
boðað og verða tónleikarnir sendir
beint út.
Júpitershljómsveitina skipa
þrettán úrvals hljóðfæraleikarar
og er sveitin þekkt fyrir fjörmikla
framkomu á sviði auk óvenju f]öl-
breytilegrar danstónlistar. Leikiö
er á fjóra saxófóna, tvo trompeta,
eina básúnu, orgel, klarínett, tvo
gítara, bassa og trommur.
Sumarhátíðin hefst kl. 22.30 og
stendur fram eftir nóttu. Bein út-
sending verður á rás 2 frá kl. 23 til 1.
Hljómsveitin Þjófar spilar á Fimmunni í Hafnarstræti í kvöld og annað
kvöld. Sveitin leikur kraftmikið rokk og ról og hefst leikurinn kl. 23.30
Deep Jimi and the
Zepp Creams og Glott
Stórrokkhljómsveitin Deep Jimi
and the Zepp Creams leikur á Púls-
inum í kvöld og annað kvöld. Sveit-
in klæðist samkvæmt ríkjandi
tísku þess tímabils er hún kennir
sig við og tónlistin lifir sem klassík
rokksins. Meðlimir eru Júlíus
Freyr Guðmundsson, Baldur Þórir
Guðmundsson, Þór Sigurðsson,
Björn Árnason og Sigurður Ey-
berg.
Á sunnudag kemur fram á Púls-
inum í fyrsta skipti ný hljómsveit
sem ber nafnið Glott. Á efnisskrá
hljómsveitarinnar eru milli 20 og
30 frumsamin lög eftir meðlimi
sveitarinnar, auk þess eitthvað af
eldra efni. Glott skipa eftirtaldir
menn: Valgarður Guðjónsson, Stef-
án Guðjónsson, Kristinn Stein-
grímsson, Ellert Ellertsson og Karl
Guðbjörnsson.
Eitt laga Galíleó er væntanlegt á safnplötu næstu daga.
Galíleó í Ýdölum
Hljómsveitin Galíleó leikur í Ýd-
ölum annað kvöld. Sveitina skipa
Rafn Jónsson, trommur, Sævar
Sverrisson, söngur, Baldvin Sig-
urðsson, bassi, Órn Hjálmarsson,
gítar, og Jósep Sigurðsson, hljóm-
borð.
Lag hljómsveitarinnar „Syngjum
okkur hás“ hefur notið mikilla vin-
sælda að undanfömu og nú er að
koma nýtt lag frá sveitinni sem
heitir „Það ert þú“ og er eftir Bubba
Morthens og Sævar Sverrisson.
Síðamefnda lagið kemur út næstu
daga áBandalögum 4 og er viðbúið
að gestir i Ýdölum heyri það lag í
flutningi ásamt öðrum lögum Galíl-
eós.
Hljómsveitin GCD með þá Bubba Morthens og Rúnar Júlíusson í farar-
broddi skemmtir á Tveim vinum á laugardagskvöld. í kvöld mun Sálin
hans Jóns míns troða upp á sama stað. DV-mynd RaSi
Hverfishátíð á Óðinstorgi
Á morgun verður haldin hverfis-
hátíð á Oðinstorgi fyrir íbúa í ná-
grenni torgsins. Torginu verður
lokað fyrir aUri umferð og komið
fyrir litlu leiksviði, leiktækjum,
stólum og borðum fyrir þá sem
vilja tylla sér niður. Förðunar-
meistarar munu farða fólk í öllum
regnbqgans litum, blásarahljóm-
sveit spilar fyrir dansi, félagar úr
Mótettukórnum syngja nokkur létt
lög og harmóníkuleikari sér um að
halda uppi stemningunni og leiða
skrúðgöngu um hverfið.
Hátíðin hefst kl. 17 og stendur
fram til kl. 23.
Hljómsveitin Stjórnin heldur áfram för sinni um landið um helgina. i
kvöld leikur sveitin að Hlöðum, Hvalfjarðarstönd, og er það í fyrsta
skipti sem Stjórnin kemur þar fram. Á morgun leikur hljómsveitin í
Miðgarði í Skagafirði.