Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1991, Blaðsíða 1
Sumartónleikar í Skálholtskirkju:
TVö hundruð ára
ártí ð Moz arts
í ár er haldin hátíðleg tvö hundr-
uð ára ártíð W.A. Mozarts (1756-
1791). Af því tilefni eru tvennir tón-
leikar þessarar helgar tileinkaðir
tónskáldinu. Dagskrá með tón-
verkum eftir W.A. Mozart er laug-
ardag og sunnudag klukkan 15.
Laugardagstónieikar, sem hefjast
klukkan 17, eru hins vegar helgaöir
Johann Sebastian Bach. Flytjendur
á tónleikunum eru Bach-sveitin í
Skálholti, einsöngvarar og kór.
Stjórnandi er Hilmar Öm Agnars-
son og konsertmeistari er sænski
fiðluleikarinn Ann Wallström. Að
venju er boðið upp á þrenna tón-
leika, laugardag 27. júií klukkan 15
og 17 og sunnudag 28. júlí klukkan
15.
Efnisskrá helgarinnar er tviþætt.
Á laugardags- og sunnudagstón-
leikum kl. 15 eru flutt verkin Litan-
iae Lauretanae K. 109, tvær kirkju-
sónötur K. 224 og K. 144, Sancta
Maria, Mater Dei fyrir kór, hijóm-
sveit og orgel og Missa brevis í G-
dúr, K. 140 eftir W.A. Mozart. Á
laugardagstónleikum kl. 17 eru
flutt verk eftir J.S. Bach. Meðal
verka era tvær kantötur: kantata
BWV 13 „Meine Seufzer, meine
Tránen" og kantata BWV 161
„Komm, du Sússe Todesstunde".
Flytjendur á tónleikum þessarar
helgar eru sem fyrr segir Bach-
sveitin í Skálholti undir hand-
leiðslu Ann Wallström, kór og ein-
söngvarar. Ann Wallström hefur
verið konsertmeistari Bach-sveit-
arinnar frá upphafi. Meðlimir
sveitarinnar leika á barokkhljóð-
færi í lágri stillingu. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis og öllum
heimill.
Athygli tónleikagesta skal vakin
á því að boðiö er upp á bamagæslu
meðan á tónleikum stendur. Ekki
er krafist gjalds fyrir þessa þjón-
ustu en forráöamönnum bama er
bent á að kaupa merki sumartón-
leikanna í Skálholtskirkju til að
umbuna fyrir gæsluna.
Messað er í Skálholtskirkju á
sunnudag kl. 17. Séra Guðmundur
Óli Ólafsson predikar en organisti
er Hilmar Örn Agnarsson. Flutt
verður kantata eftir J.S. Bach við
guðsþjónustuna.
Tvö hundruð ára ártíðar Mozarts verður minnst á sumartónleikum i
Skálholtskirkju um helgina.
Það verður margt um að vera í Árbæjarsafni á sunnudaginn, meðal annars geta gestir lært að heyja með gömlu
vinnubrögðunum.
Sláttudagur í
Árbæjarsafni
Það verður heyjað í Árbæjarsafni
á sunnudaginn frá klukkan 14-17.
Slegið verður með orfi og ljá og enn-
fremur verður rifjað, rakað, tekið
saman og bundið í bagga. Gestir em
hvattir til að taka þátt í heyskapnum
og læra þessi gömlu vinnubrögð sem
nú em óðum að hverfa.
Fleira er á dagskránni þennan dag.
Starfsfólk vinnur við skósmíði, vefn-
að, tóvinnu og hrosshársvinnu, auk
þess sem sýnt verður hvemig á að
knipla. Karl Jónatansson leikur á
harmóníku við Dillonshús og messa
verður í safnkirkjunni klukkan 14.
Prestur verður séra Kristinn Ágúst
Friðfmnsson.
Þeir sem vilja fræðast um fomleifa-
rannsóknir á vegum safnsins geta
einnig hlýtt á fyrirlestur Margrétar
Hailgrímsdóttur borgarminjavarðar
um uppgröftinn í Viðey klukkan 15.
Fjöruskoðun í Kollafirði
Náttúruverndarfélag Suðvestur-
lands stendur fyrir kynningu á íjöru-
skoðunarverkefninu Fjaran mín
sumarið 1991 í dag, föstudag, klukk-
an 17-19 og á morgun, laugardag, frá
klukkan 10-12. Kynningin verður í
Hafnarhúsinu að vestanverðu. Þar
verða afhent eyðublöð með korti yfir
alia strandlengju Kollafjarðar, það
er frá Gróttutöngum að Kjalames-
töngum. Ails eru þetta 150 reinar, 4
á Seltjarnarnesi, 76 í Reykjavik, 8 í
Mosfellsbæ og 51 á Kjalarnesi.
Þátttaka í fjöruskoðuninni er auð-
veld og skemmtileg. Tilvalið fyrir
fjölskylduna að taka sér eina eða
fleiri fjörureinar (ein fjörurein er um
500 metra langur fjörubútur). Skil-
yrði til fjöruskoðunar eru mjög góð
um þessa helgi. Háíjara er á milli
klukkan 13 og 14 báða dagana og
þátttökugjald er ekkert.
FÍM-salurinn:
Inga Rósa Lofts-
dóttir sýnir
Inga Rósa Loftsdóttir
opnar í FÍM-salnum
sína fyrstu einkasýn-
ingu á morgun, laugar-
daginn 27. júlí. Á sýn-
ingunni era olíumál-
verk, vatnslitamyndir,
grafíkmyndir og teikn-
ingar.
Inga Rósa lauk námi
úr málaradeild Mynd-
hsta- og handíðaskóla
íslands árið 1987. Vet-
urinn 1987-88 nam hún
málun og grafík í Aka-
demie voor beeldende
kunst, Rotterdam í
Hollandi, og 1988-1990
var hún í listaskólan-
um AKI, Enschede í
Hollandi.
Þetta er fyrsta einka-
sýning Ingu Rósu en
hún hefur áður tekið
þátt í nokkrum sam-
sýningum. Sýningin Inga Rósa Loftsdóttir opnar sina fyrstu einka-
stendur til 11. ágúst. sýningu I FÍM-salnum.