Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Blaðsíða 2
24 VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI A. Hansen Vesturgötu 4. Hf.. sími 651 693. American Style Skipholti 70, sími 686838. Argentina Barónsstígur 11 a. sími 19555. Asía Laugavegi 10; sími 626210 Askur Suðuriandsbraut 4, sími 38550 Suðurlandsbraut 1 4. sími 81 344. Árberg Ármúla 21. sími 686022. Borgarvirkið Þingholtsstræti 2-4. sími 1 3737 Bravó Nýbýlavegi 22. sími 46085. Café Amsterdam Hafnarstræti 5. sími 1 3800. Café Garður Garöatorgi. sími 657676 Café Jensen Þönglabakka 6. sími 78060. Café Milanó Faxafeni 11. sími 678860. Duus hÚS;//Fischersund, sími 14446. Fimman Hafnarstræti 5. sími 11212. Fjörukráin Strandgötu 55, sími 651213. Fjörðurinn Strandgötu 30. simi 50249. Fógetinn, Aðalstræti 10. sími 16323. Furstinn -Skipholti 37. sími 39570. Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22. sími 11 556. Gullni haninn -^Laugavegi 1.78. símí 679967. Hafmeyjan Laugavegi 34a. sími 13088. Hallargarðurinn, Húsi verslunarinnar. sími 678555. Hard Rock Café Kringlunni. sími 689888. Hjá Kim Ármúla 34. sími 31 381 . Hornið Hafnarstræti 1 5. sími 1 3340. Hólmi Hólmaseli 4, sími 670650. Hótel Borg Pósthússtræti 11. simi 11440. Hótel Hoit Bergstaðastræti 37. sími 25700. Hótel ísland v/Ármúla. sími 6871 11 Hótel Lind Rauöarárstíg 18. sími 623350. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflugvelli. sími 22322. Hótel Óðinsvé v/Oðinstorg. simi 25224. Hótel Saga Grillið, sími 25033, Súlnasalur. sími 20221. Skrúður. sími 29900. Ítalía Laugavegi 1 1. sími 24630. Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu 4 6. sími 15520 Kabarett, Matkrá Austurstræti 4, sími 10292. Kaffivagninn Grandagaröi. sími 1 5932. Kínahofið Nýbýlavegi 20. sími 45022. Kina-Húsið Lækjargötu 8. sími 11014. Kringlukráin Kringlunní 4. sími 680878. . L.A.-Café, Laugavegí 45. sími 6261 20. Lauga-ás, Suöurlandsbraut 2. sími 689509. Lækjarbrekka Bankastræti 2, sími 1 4430 Madonna Rauðarórstíg 27 29. sími 621988 Mamma Rósa Hamraborg 11. sími 42166 Mandaríninn Tryggvagötu 26, sími 23950 Marinós pizza Laugavegi 28. sími 625540. Njálsgötu 26. sími 22610. Mongolian Barbecue Grensásvegi 7. sími 688311 Naustið Vesturgötu 6 8, sími 17759. Ópera Lækjargötu 2. sími 29499. Perlan Öskjuhlíð. sími 620200 Pétursklaustur Laugavegi 73, sími 23433. Pisa Austurstræti 22. sími 12400. Pizza Hut Hótel Esju. sími 680809 Pizzahúsið Grensásvegi 10, sími 39933. Pizzarami Hringbraut 119. sími 21066. Pizzusmiðjan Smiðjuvegi 14 D. sími 72177 Potturinn og pannan Brautarholti 22, sími 11690. Rauða Ijónið Eiðistorgi. sími 611414 Rauði sófinn Laugavegi 126. sími 16566. 612095 Setrið Sigtúni 38. sími 689000. Siam Skólavörðustig 22. sími 28208. Singapore Reykjavíkurvegi 68. s.ími 54999'. Sjanghæ Laugavegi 28, sími 1 651 3. Svarta pannan Hafnarstræti 1 7. sími 1 6480. Taj Mahal, Tandori og Suhi bar. Hverfisgötu 56. sími 21 630 Torfan Ámtmannsstíg 1. sími 1 3303. Trúbadorinn, Laugavegi 73. sími 622631 Tveir vinir og annar í fríi. Laugavegi 45. sími 21255. Veitingahúsið 22 Laugavegi 22. simi 1 3628. Við Tjörnina Templarasundi 3, sími 18666. Viðeyjarstofa Viðey. sími 681045. Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 14. sími 23939. Mávurinn er satt að segja einn af beztu og traustustu matsölustöðum landsins. Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús: Mávurinn er einn af beztu matstöðunum Þótt Jónatan Livingstone Mávur sé dálítiö poppaður staður og rugl- ingslegur að yfirbragði, er einn þáttur hans þó staðfastur. Það er maturinn, sem alltaf hefur verið góður, þegar ég hef komiö þar, oft- ast mjög góður og stundum frábær. Mávurinn er satt að segja einn af beztu og traustustu matsölustöðum landsins, með sjálfa matreiðsluna í fyrirrúmi. Ofan á mjög góða matreiðslu bætist svo samhæfing tækni og Ust- ar í framsetningu réttanna á disk- unum. Hún er í róttækri útgáfu af nýfrönskum stíl. Meira að segja eru fersk sumarblóm notuð til að magna fagra liti réttanna. Þess vegna tíma gestir varla að byrja að borða og eyðileggja skreytinguna. Lauslega minnt á Suðurhafseyjar Þótt matreiðslan sé góð, hefur hún ekkert sérstakt meginþema. Að hluta til er Mávurinn fiskrétta- .staður, sem býður fisk dagsins í hádegi og að kvöldi, en leggur þó jafnmikla áherzlu á kjötrétti. Að hluta til er þar reynt að minna á Suðurhafseyjar, en það lýsir sér þó einna helzt í hanastélum staðarins og að nokkru leyti útliti hans, svo og í sumarblómum réttanna. Matreiðsla Mávsins er í hefð- bundnum og ópoppuðum megin- straumi nýfranskrar matreiðslu. Hún gæti alveg eins verið framin á fínu hóteli eða virðulegum við- skiptamatstað í nútímastíl. Verðið er líka í þeim kantinum á kvöldin. Þrír réttir með kaffi kosta um 3.255 krónur án víns. Samkvæmt flokkun minni í dýra, fremur dýra, fremur ódýra og ódýra staði er Mávurinn í fremur dýra flokknum. í hádeginu er í Mávinum sérstak- lega hagstætt tilboð, sem ekki er unnt að hafna. Þá er þríréttuð mál- tíö, með vali milli tveggja forrétta, fjögurra aðalrétta og tveggja eftir- rétta, seld á um 1.145 krónur, sem gerir 1.305 krónur með góðu kon- fektmolakaffi. Þetta hlýtur að telj- ast ódýrt. Hádegismatreiðslan gef- ur kvöldmatreiðslunni ekki eftir. Þá er þó lítillega sparað með því að nota ágætlega þykkar pappírs- þurrkur í stað tauþurrkna. Frumlegtog alþýðlegt Að útliti er Mávurinn frumlegur. Lítið er eftir af hinum stílhreinu innréttingum Sjávarsíðunnar, nema svart marmaraflí$agólfið. Hægra megin útidyra er um 40 sæta matsalur og vinstra megin er bar og kaffistofa með djúpum sóf- um. Einkennistákn staðarins eru lítil ljós, sem hanga í mjóum þráð- um, þar sem á eru festir páfagauk- ar úr plasti. Á miðju gólfi er röð pálmafíjáa og mikill pottagróður er úti við glugga. Á veggjum eru stór mál- verk, sem ekki eru við minn smekk, svo og fatasnagar, sem gefa staðnum alþýðlegan svip. Gömul kommóða og glasaskápur eru við innvegg, í mikilli andstöðu við grá- an og groddalegan þvottabala á barnum. Hinn alþýðlegi bragur kemur líka fram í; að borðdúkar eru hafðir undir glerplötum til að spara þvott. Poppið magnast svo í óþægilegum trektarstólum, er ekki nýtast fólki, sem er myndarlega vaxið aftur. Svo og í marglitum borðbúnaði, sem er einstakur í sinni röð hér á landi og bara nokkuð skemmtilegur. Niðursoðin tónlist er fremur hefð- bundin og þægileg. Hún drukknar sem betur fer í samræðum matar- gesta. Þjónusta er afar þægileg í Mávin- um, en misjafnlega kunnáttusam- leg. Þjónustustúlkur ganga allar um í bláum suðurhafseyjablússum og sumar hverjar í Bermúdabux- um, væntanlega til að minna á suðrið. Góð vín seld í glasatali Hanastél staðarins eru mörg, sum hver suðræn og jafnvel áfeng- islaus, þar á meðal nokkrar útgáfur þekktra hanastéla. Vínlisti er misjafn, betri í rauð- víni en hvítvíni. Boðið er meðal annars upp á Cabernet Sauvignon frá Ástralíu, Chateau Barthez de Luze frá Frakklandi, Chianti Ris- erva Ducale og Barolo frá Ítalíu. Álitleg hvítvín eru helzt Chateau Cléray og Sancerre frá Frakklandi. Flest vín staðarins, þar á meðal hin dýrari, er hægt að fá í glasa- tali. Dýrasta vínið, Chateau Bart- hez de Luze, kostar 690 krónur glas- iö. í hádegi hef ég prófað sérstaklega góða rækjusúpu með rjómatoppi; og frábært síldarsalat með brúnu brauði og rauðrófum. Að kvöldi reyndi ég laxarós, sem var nokkuð góður lax taðreyktur, með spínatsósu, gráðosti og rjóma. Ennfremur gott nauta- og laxatart- ar rifið saman í buff, dálítið sér- stæða blöndu. Einnig meyra og góða snigla, ristaða í hvítlauk og fersku grænmeti, borna fram með léttu salati og glæsilegri fersk- blómaskreytingu. Svo og heitt sjáv- arréttasalat með rækju, humri, hörpufiski, fiski, jöklasalati, sinn- epssósu og graskersfræjum, nokk- uð góðan mat. Hæst forréttanna bar lúðu- og rækjusalat, sem fól í sér lúðubita og rækjur, legnar í hvítvínsediki og sítrónusafa, með salati og blað- laukssósu, afar falleg blanda og fin- leg í bragði. Minnst varið fannst mér í reyksoðinn lunda, heitreykt- an með rauðvíns- og rifsberjasósu, því að hann minnti of mikið á reyktan fisk og kjötið var ekki nógu meyrt. Tindabikkjaí Tjarnarflokki Sem aðalrétt fékk ég í hádegi ofn- bakaðan steinbít, alveg mátulega skammt eldaðan, með rjóma- spínatsósu, sem var sérstaklega ljúffeng. Þetta var einn bezti réttur staðarins. Ennfremur einhverja þá beztu lasagna, sem ég hef bragðað, með ostasósu og hvítlauksbrauði. í sama hádegi var á boðstólum tort- ellini og tacos. Að kvöldi prófaði ég ljómandi góðan fiskrétt dagsins, sem var mildilega grillaður koli í grænni spínatsósu, borinn fram á mjög skrautlegan hátt. Enn betri var mátulega elduð tindabikkja, sem hér nefndist skötuvængir, ekki síðri en í toppveitingahúsi landsins við Tjörnina, borin fram með vín- berjasmjörsósu. Athyglisverðastir voru humarhalarnir, greinilega ófrosnir á vertíðinni, með hinum beztu sem ég hef fengið á ævinni. Af kjötréttum prófaði ég grillað og meyrt, frambærilegt nautakjöt á ' gulum fleti, það er að segja með béarnaise-sósu. Einnigjurtakrydd- uð og ofnsteikt lambarif, fituskorin rifmegin, borin fram með mildri grænpiparsósu, ekki sérlega merkilegan rétt. Matreiðsla þess- ara rétta náði ekki staðli fiskrétta- matreiðslunnar. Af eftirréttum hef ég prófað fína súkkulaðihnetutertu, fulla af hita- einingum. Ennfremur heitt blá- berjapæ með þeyttum rjóma, afar gott. Og loks listilega fram borna ávexti ferska. Jónatan Livingstone Mávur er orðinn einn af fáum úrvalsmat- stöðum landsins. J.Kr. FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991. ölkjallarinn Pósthússtræti 17. sími 13344. ölver v/Álfheima. sími 686220. AKUREYRI: Bautinn Hafnarstræti 92, sími 21 81 8. Fiðlarinn Skipagötu 14. simi 27100. Greifinn Glerárgötu 20. sími 26690. Hlóðir Geislagötu 7. sími 22504 og 22600 Hótel KEA Hafnarstræti 87 89. sími 22200. Hótel Stefanía. Hafnarstræti 83-85. sími 26366 Sjallinn Geislagötu 14. sími 22970. Smiðjan Kaupvangsstræti 3. sími 21818. Uppinn Ráðhústorgi 9, sími 241 99 VESTMANNAEYJAR: Bjössabar Bárustíg 11. sími 12950. Hallarlundur Vestmannabraut 21, simi 12960. Muninn Vestmannabraut 28. sími 11422 Höfðinn/Við félagarnir Heiðarvegi 1, sími 1 2577. Skútinn Kirkjuvegi 21. sími 11420. KEFLAVÍK: Edenborg Hafnargötu 30. sími 1 2000. K-17 Vesturbraut 17. sími 14999. Glóðin Hafnargötu 62. sími 11777. Flughótelið Hafnargötu 57. sími 1 5222. Ráin Hafnargata 19, sími 14601 Veitingahúsið við Bláa Lónið Svartsengi. sími 68283. SANDGERÐI: Veitingahúsið Vitinn, Hafnargötu 4, sími 37755. SUÐURLAND: Gjáin Áusturvegi 2. Selfossi. sími 22555. Hótel Selfoss Eyravegi 2. Selfossi. sími 22500 Hótel Örk, Nóagrill Breiðumörk 1. Hverag.. s. 34700 Kam-Bar, Breiðamörk 2c. Hverag.. s. 34988. Veitingahúsið við Brúarsporðinn Eyrarvegi 1. Self . sími 22899. VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS Arnargrill Arnarbakka 2, sími 77540 Á næstu grösum Laugavegi 26. sími 28410. Bigga-bar - pizza Tryggvagötu 18. sími 28060. Blásteinn Hraunbæ 102. sími 673311 Bleiki pardusinn Hjallahrauni 13, sími 652525. Brauðstofan Gleymmérei Nóatúni 17. sími 15355. Chick King Suðurveri. Stigahlíð 45 47. s. 38890. Eikagrill Langholtsvegi 89. 39290. Eldsmiðjan Bragagötu 38 A. sími 14248. Fiskur og franskar Austurstræti 6. sími 626977. Gafl-inn Dalshrauni 13. simi 54424. Höfðakaffi Vagnhöfða 11. simi 686075. Ingólfsbrunnur Aðalstræti 9. simi 1 3620. Jón bakan Nýbýlavegi 14. sími 46614 Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 1 5. sími 50828. Lauga-ás Laugarásvegi 1, sími 31 620. Lúxus kaffi Skipholti 50b. sími 83410. Mokka-Expresso-Kaffi Skólavörðustíg 3a. sími 21174 Múlakaffi v/Hallarmúla. sími 37737. Nespizza, Austurströnd 8, Austurströnd 8. sími 61 2030 Norræna húsið Hringbraut. sími 21522. Næturgrillið heimsendingarpj . sími 77444. Óli prik Hamraborg 14. sími 40344. Pizzahúsið Öldugötu 29. sími 623833. Pizza snögg-sneið Skólavörðustíg 2, sími 1 3320 v Pitan Skipholti 50 C. sími 6881 50. Selbitinn Eiðistorgi 13 15, sími 611070. Smáréttir Lækja-götu 2, sími 1 3480. Smiðjukaffi Smiðjuvegi 1 4d. simi 72177. . Sprengisandur Bústaðavegi 1 53. sími 33679. Sundakaffi Sundahöfn, sími 36320. Tíu dropar Laugavegi 27. — sími 19380. Toppurinn Bildshöfða 12. sími 672025. Vogakaffi ■ Smiðjuvegi 50, sími 38533. Veitinga- og vöruhús Nings Suðurlandsbraut 6. sími 679899. Western Fried, Mosfelissveit v/Vesturlandsveg, sími 667373. Winny’s Laugavegi 116. sími 25171. AKUREYRI: Crown Chicken Skipagötu 12, sími 21464. Keflavík: Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62, sími 14777

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.