Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1991, Blaðsíða 5
FÖSTUÐAGUR 2. IÁGOSTJD99!L>.! 31 ;rður á Púlsinum um helgina, verður Ijúfsára og angurværa blús. inahelgi ;inum sveitarinnar að taka opnum örmum blúshundum sem þurfa að létta á hjarta sínu. Blúsmannahelgin hefur sams konar markmið. Tregasveitina skipa Pétur Tyrf- ingsson, gítar og söngur, Guðmund- ur Pétursson, gítar og söngur, Sig- urður Sigurðsson, munnharpa og söngur, Björn Þórarinsson, bassi, og Guðni Flosason, trommur. Blús- mannahelgina ætlar Tregasveitin að nota innspírasjónina sem hún gefur til að fullvinna upptökur sem hafa verið í vinnslu og koma væntanlega út með haustinu. Fullvinnslan fer hins vegar fram í hljóðverinu Stöð- inni sem er í sama húsi og Púlsinn. Meðan á blúsmannahelginni stend- ur verður „happy hour“ á hverju kvöldi á Púisinum, milli klukkan 22.30 og 23.30. Ef blúsmannahelgin heppnast vel verður stefnt að því að gera hana að árvissum tónlistarvið- burði um verslunarmannahelgina þar sem erlendir gestir munu koma við sögu. að Söndum í Dýraflrði: innamót keppni.“ Standa hestamenn á Þingeyri í stórræðum þessa dagana við undir- búning mótsins og er það í umsjá Hestamannafélagsins Storms á Vest- fjörðum. Hestamannafélög á Vestur- landi og Strandasýslu taka þátt, auk Vestfirðinga. Um 100 hross hafa verið skráð til þátttöku. Andrés sagði í viðtali við DV að ékki væri eingöngu um að ræða mót hestamanna heldur væri reynt að gera sem ílestum til hæfis. Strax á mánudag voru gestir farnir að koma til Dýrafjarðar þegar Strandamenn komu yflr Glámuheiði með 60 hross undir fararstjórn Gísla Hjartarsonar. Sumartónleikar í Sk .holtskirkju: Sex tónleikar um helgina Sumartónleikar Skálholtskirkju fagna komu verslunarmannahelgar með fjölbreyttri dagskrá. Laugardag 3. ágúst og sunnudag 4. ágúst klukk- an 15 verða fluttir Brandenborgar- konsertar nr. 3, 4 og 5 eftir Johann Sebastian Bach. Á seinni laugardags- tónleikunum klukkan 17 og á mánu- dagstónleikum klukkan 15 leikur Rose Kirn orgeltónlist frá 18. öld. Sérstök athygli er vakin á þeirri nýj- ung að kvöldtónleikar verða á laug- ardag og sunnudag klukkan 21 þar sem fluttar verða Rósakranssónötur H.I.F. Bibers. Aðgangur að tónleik- unum er ókeypis og öllum heimill. Hægt verður að fá barnagæslu meðan á tónleikunum stendur og ekki er krafist gjalds fyrir þá þjón- ustu. Forráðamönnum barna er hins vegar bent á að kaupa merki sumar- Listasafn ASÍ: Messótintur Á morgun, laugardaginn 3. ágúst klukkan 16, verður opnuð sýning á messótintuverkum pólsku listakon- unnar Malgorzata Zurakowska í Listasafni ASÍ að Grensásvegi 16A. Malgorzata er þekkt listakona sem sýnt hefur verk sín víða um lönd. í umfjollun Aðalsteins Ingólfssonar í sýningarskrá segir meðal annars: „Það gefur auga leið að messótintu nota bestu listamenn ekki til að fanga hughrif augnabliksins eða snerta kviku líðandi stundar. Messótinta er fyrir vitsmunaverur, fyrir þá sem eru óhræddir við að spyrja stærstu spurninga, um sköpunina, um mörk- in milli veru og óveru, um stöðuga návist dauða, ótta og óreiðu, ringul- reiðarinnar (kaos).“ Sýningin verður opin daglega frá klukkan 14-19 og síðasti sýningar- dagur er sunnudaginn 18. ágúst næstkomandi. Nýlistasafnið: Landslag Aðalsteins Aðalsteinn Svanur Sigfússon opn- ar í dag, fóstudaginn 2. ágúst, klukk- an 20 málverkasýningu í Nýlista- safninu við Vatnsstíg. Aðalsteinn sýnir þar olíumálverk sem hann hefur gert á undanförnum árum. Aðalsteinn lauk námi frá mál- unardeild MHÍ 1986 og hefur síðan tekið þátt í nokkrum samsýningum og haldið einkasýningar af og til. Viðfangsefnið í flestum málverk- unum á þessari sýningu er landslag, einkum myndir einstakra staða sem hafa með tímanum öðlast sjálfstæða merkingu, orðið að táknum sem hvarvetna blasa við augum og reynir málarinn að sýna þær í nýju ljósi. Sýningin verður opin daglega frá klukkan 14-18 og stendur til 18. ágúst. Bachsveitin og Rose Kirn verða í aðalhlutverkum í sumartónleikum Skálholtskirkju um helgina. tónleikanna í Skálholtskirkju til að verður upp á tjaldstæði á Skálholts- umbuna fyrir gæsluna. Ef aðstæður stað. leyfa verður blóma- og ávaxtamark- Messað veröur í Skálholtskirkju á aður í Skálholti um helgina en boðið sunnudag klukkan 17. Séra Guð- mundur Óli Ólafsson predikar en organisti er Hilmar Örn Agnarsson. lega staifað við kennslu auk tónleika- halds. Þeir félagar hafa starfað saman síðan haustið 1989 og leikið á nokkrum samtónleikum. Bjartmar og Björgvin skemmta á Snæfelisnesi um helgina. Um verslunarmannahelgina mun Bjartmar Guðlaugson ásamt Björgvin Gíslasyni skemmta gestum Amarbæjar á Arnarstapa. Þeir félagar munu leika ný lög af væntanlegri plötu Bjartmars sem er í vinnslu um þessar mundir. Þá munu gömlu góðu lögin heyrast öll kvöld og á fjölskylduskemmtun sem verður á laugardeginum. Tjaldstæði eru við Am- arbæ og öll aðstaða til fyrirmyndar, s.s. böö og heitur pottur. Uppl. gefur Harpa í Amarbæ í síma 93-56769. Allir velkomn- ir. Ferðafélag íslands Dagsferðir um verslunarmannahelg- ina. Þórsmörk sunnudaginn 4. ágúst kl. 08. Dagsferð kr. 2.30 (hálft gjald fyrir 7-15 ára) Munið sumardvöl í Þórsmörkinni. Gistiaðstaða í Skagfjörðsskála er mjög góð. Seljadalur-Helgufoss. Skemmtileg gönguleið austan Grímmannsfells. Verð kr. 1.000, farið kl. 13. Flúðir - Brúar- hlöð - Gullfoss - Geysir. Ágæt öku- og skoðunarferð um uppsveitir Suðurlands. Ýmsir merkisstaðir skoðaðir. verð kr. 2.000. Lagt af stað kl. 10. ’ Kvöldganga út í bláinn á miðvikudags- kvöld kl. 20. Brottför frá BSÍ austanmeg- Félag eldri borgara Dansað þriðjudag frá kl. 20.30-23.00. Spaugstofan á fleygiferð Spaugstofan leggur af stað út á land 6. ágúst nk. og mun fara um landið dagana 6.-31. ágúst. Ýmsir þekktir og óþekktir kunningjar þeirra félaga munu reka inn nefið. Spaugstofan hefur fengið góðfús- legt leyfi KGB og sovéskra yfirvalda til að fá til sín skautaparið rússneska, þau Boris Beljakoff og Svellönu Bossanófu, sem reyndar hefur dvalist um hríð í Bras- ilíu við kaffibaunatínslu. Þau munu m.a. sýna suðurameríska dansa. Margt fleira er á dagskránni sem er tveggja tíma löng og hefst kl 21 hverju sinni. Áætiun Spaugstofunnar næstu viku er: Leikskálar, Vík í Mýrdal 6. ágúst, Sindra- bær, Höfn, 7. ág. Valhöll, Eskifirði, 8. ág. Herðubreið, Seyðisfirði, 9. ág. og Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum, þann 10. ágúst. rval tímaritfyrir alla - góður ferðafélagi V \ í! >, I.; Kr. 425 Skop ......................................... 2 Hvernig finna á sanna ást.......................5 ,,Erþérsamaþóttéggefiþérkrabbamein?“ .......... 9 Hvers vegna gránar hárið?..................... 15 Hvernig verður maður hrifandi? ............... 19 Isdrottníngin Olin hítar upp ................. 24 Kókaín: djöfull í Ieynum ..................... 27 Lesíð á millí linanna ........................ 38 Hugsuníorðum ................................. 44 Hundrað dollara draumar ...................... 46 Símagliman ................................... 51 Þrumulostin .................................. 57 Börnum kennt að fara með penínga.............. 62 Litli drengurinn sem gat ekki grátið.......... 67 Sagajeppans í 50 ár .......................... 74 50 atriði sem konur ættu að vita um karla .... 94 Samskipti á vinnustað ........................103 Fiðraðurvinur.................................109 Hver þarfhjálm?...............................114 Þessí helgi reitur............................119 Hvernig verja á röddína ......................124 Lausn á krosstölugátu ........................126 Fatlaðar konur ...............................127 Stjörnuspeki tíl hjálpar gæludýrauppeldi......132 Dior: Nýttútlit...............................135 Fósturlát ....................................141 Hvernig verður fólk heppið?.................148 Sonur rakarans ...............................154 Krosstölugátan................................160 4. HEFTI - 50. AR - JULI - ÁGÚST 1991 næsta sölustað eða í áskrift í síma 62-60-10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.