Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1991, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1991, Side 1
Það verður hart barist t DV bílkrossinu næsta laugardag og ef marka má viðbrögðin verður enn meiri fjöldi biia skráður til keppni nú en i fyrri keppnunum tveimur. DV bílkross um næstu helgi Síðasta stóra keppnin í bílkrossi verður haldin á keppnisbrautinni í Kaphelluhrauni sunnan Hafnar- fjarðar næsta laugardag, eftir viku. Að þessu sinn er það DV sem er styrktaraöili keppninnar sem að heitir að sjálfsögðu DV bílkross. í síðustu keppni var tvöfóldun keppenda frá fyrstu keppninni en síðast fór fjöldi skráðra keppenda í 53. Miðað við undirtektir má búast viö á milli 50 og hundrað bílum til keppninnar næsta laugardag. Aðstandendur keppnisbrautarinn- ar hafa lagt mikla vinnu í endurbæt- ur á brautinni, í vikunni var verið að steypa vegrið í malbiksbeygjunni, en það verk átti að vera búið en tafð- ist vegna þess að einhverjir skemmd- arvargar höfðu lagt leið sína á braut- ina um síðustu helgi og spólað hana alla upp og skemmt uppsláttinn fyrir steypuna. Er hart til þess að vita að til séu ökumenn sem ekki geta virt jafngott áhugastarf og þeir sem aö byggingu brautarinnar stóðu hafa sýnt. Keppnin sjálf, næsta laugardag, hefst klukkan 14, en undanrásir eru um morguninn, þannig að bestu bíl- amir og ökumennirnir verða eftir í slaginn og er ekki að efa að hart verð- ur barist til sigurs í öllum flokkum. Rétt er að ítreka að að þessu sinni er keppnin á laugardegi í stað sunnu- dags eins og fyrri keppnirnar tvær. -JR Of mikil og of lítil ljós Ljósanotkun allan sólarhringinn leggur þá skyldu á herðar sérhvers ökumanns að hafa gott eftirlit með ástandi ljósabúnaðar bílsins. Það vill hins vegar brenna við að marg- ir hyggja einungis að ljósabúnaðin- um þá fáu klukkutíma sem tekur að fara með bílinn í skoðun. Undanfarið höfum við hér á DV Bílum orðið varir viö það að bilum með gallaðan ljósabúnað hefur fjölgað mikið í umferðinni. Ein- eygðir bílar eru allt of margir og ótrúlegt hve margir geta ekið um án þess að taka eftir því að aðeins logi á öðru ljósinu. Nú fer að ganga í garð erfiðasti tíminn í umferðinni þegar haust- myrkrið læðist að og skapar þar með aukna hættu, að ekki sé talað um haustrigningarnar þar til við- bótar. Of mikil Ijós En það er ekki bara ofjítil ljósa- notkun sem skapar hættu í umferð- inni því of mikil ljós geta einnig verið hættuleg. Þar er um að ræða notkun háu ljósanna í umferðinni á daginn. Margir bílar eru með mjög góð halogen framljós, en shk ljós eru alltof sterk til að nota þeg- ar umferð kemur á móti. Vissulega er erfltt að sjá bláu viðvörunarljós- in í mælaborðinu á mörgum bílum en ökumenn sem sýna aðgæslu ættu að sjá þessi ljós og bæta þar úr snarlega. Undirritaður ók aust- ur fyrir fjall um síðustu helgi og af um það bil 50 bílum voru átta sem voru með háu ljósin og það sterk að þau blinduðu þá sem á móti komu. Sama var á bakaleiö- inni nema þá voru það bílarnir sem á eftir komu sem voru óspart með háa geislann á. Önnur ljósanotkun, sem einnig má flokka undir ofnotkun ljósa, er næsta hvimleið. það er ótímabær notkun rauðu þokuljósanna aftan á bílum sem prýða alla nýja bíla í dag. Þessi ljós eru til nota í þoku og slæmu skyggni vegna rigningar eða skafrennings en alls ekki á björtum degi. Á mörgum bílum eru þessi ljós svo sterk að þau deyfa athygli þeirra sem á eftir koma á hemlaljósunum og skapa þar með aukna hættu í umferðinni. Nota stefnuljósin! Ein ljósanotkun virðist hafa orðið útundan hjá mörgum í umferðinni, en það er notkun stefnuljósa. Alltof margir ökumenn nota þau of htið og meðal þeirra má nefna atvinnu- bílstjóra sem ættu aö vita betur um það öryggi sem rétt notkun þeirra skapar. Þá virðast sumir ökumenn líta á stefnuljósanotkun sem sagnfræði frekar en til leiðbeiningar og upp- lýsingar fyrir aðra i umferðinni. Það kemur oft fyrir að ökumenn setja stefnuljósin á þegar þeir eru að ljúka beygjunni og eru með því að segja frá því sem þeir voru aö gera í stað þess að stefnuljósin eiga að segja frá því sem við ætlum að gera. Þetta er nokkuð sem allir eiga að geta bætt úr án mikillar fyrir- hafnar, aðeins með því að sýna að þeir hafi fulla hugsuna á því sem þeir eru að gera í umferðinni. -JR SUMIR ERU EINFALDLEGA BETRIEN AÐRIR notuðu bílarnir hjá Bílaþingi eru til marks MMC Spac« Wagon '90, 5 g„ 5 d., hvílur, «k. 11,000. V. 1.530.000. MMC Lancer GLXi 4x4 1800 '90, 5 g., S d„ blár, ek. 10.000. V. 1.250.000. um það OPIÐ í DAG, LAUGARDAG, KL. 10-14 VW Goll Clty 1600 ’90, 5 g., 3Ja d., rauður, ek. 32.000. V. 730.000 stgr., vsk-bíll. Honda Clvlc 16 v. 1400 '88, slállsk., 3ja d„ blár, ek. 28.000. V. 770.000. BMW 520J '65, S g„ 4ra d., grár.ek. 97.000. V, 690.000. MMC Galant GLSi 2000 ’89, 5 g„ 4ra d„ sltfurl., ek. 44.000. V. 1.130.000. MMC Lancer EXE 1500 '88, 5 g., 4ra d., grábrúnn, ek. 24.000. V. 720.000. Hekluhúsinu, Laugavegi 174 Símar 69-56-60 og 69-55-00 Audi 80 ð 1,8« 1800 ’88, sjáHsk., 4ra d„ grár, ek. 51.000. V. 1.3004)00. Toyota Corolla XL 1300 '88, siáitsk., 5 d„ blár, ek. 45.000. V. 820.000. MMC Pajero SW 3000 ’90, sjáHsk., blár, ek. 27.000. V. 2.400.000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.