Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1991, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1991, Page 6
32" LAUOARÐÁGÍJR ’17'/ÁGÚST'1991; Bílar DV Innflutningur fólksbíla janúar til júlí: Mitsubishi heldur toppsætinu en Toyota fylgir rétt á eftir - Toyota leiðir hins vegar í heildarsölu Pað eru enn þeir sömu tveir sem slást á toppnum í fólksbílasölu og Mitsubishi hefur vinninginn yfir Toyota þótt munurinn sé bara 14 bíl- ar. Toyota seldi fimm bílum meira, eða 160 á móti 155 Mitsubishi hjá Heklu í júlí en niðurstöðutölurnar urðu 1114 fyrir Heklu en 1100 hjá Toyota. Nissan varð í þriðja sæti í júlí með 137 bíla en urðu í fimmta sæti í heildarsölu þar sem af er árinu með 561 bíl, Subaru kom þar á undan í þriðja sæti með 663 bíla. Það vekur athygli ef við skoðum röðina í fyrra þá var Toyota í efsta sæti, Mitsubishi í öðru, Subaru var þá í íjórða en Niss- an hefur nú laumast úr því sjöunda í það fjórða. Lada kemur líkt og í fyrra í fimmta sæti með 445 bíla og munar þar um 115 bíla selda í júlí einum. Daihatsu kemur í sjötta sæti með 307 bíla en voru í þriðja sæti á sama tíma í fyrra. í sjöunda sæti kemur Honda með 195 bíla, nánast jafnir Suzuki í átt- unda meö 193, og rétt á undan Mazda sem nú hafa náð sér á strik og eru komnir í níunda sæti með 191 bíl. Renault kemur loks í tíunda sæti með 188 bíla. Toyota leiðir í heildarsölu Ef heildarsalan er skoðuð kemur í ljós að Toyota leiðir hana með 1.323 bíla og 18,63% markaðshlutdeild á móti 1.237 hjá Mitsubishi sem er með 17,42%. Þar munar um sölu sendibíla hjá Toyota sem er nær helmingi meiri en hjá Heklu. í þriðja sæti kem- ur Subaru með 711 og 10,01%, í fjórða kemur Nissan með 659 og 9,28%, fimmta Lada 495 og 6,97%. í sjötta sæti er Daihatsu með 324 (4,56%) og Mazda í sjöunda með 227 (3,2%). Veruleg aukning Veruleg aukning er á milii áranna í bílasölu því í ár hafa selst 6164 nýi fólksbíla á móti 3.736 á sama tíma í fyrra. Notuðum fólksbílum hefur hka fjölgað eða úr 161 upp í 249. Nýir vörubílar eru nú 157 á móti 425 í fyrra en þar liggur munurinn í skúffubíl- um sem taldir eru með vörubílum. Hvað „venjulega" vörubíla, en þá er átt við vörubíla sem eru meira en 7.500 kíló að heildarþunga þá hefur Volvo vinninginn með 32 bíla og rúm 355 markaðshlutdeild, í öðru og þriðja sæti koma Benz og man með 18 og 17 bíla, Scania í fjórða með 13, DAF 9, og Ford og Iveco einn hvor. Fjölgun sendibíla Mikil aukning hefur orðið í sölu sendibíla en í þeim flokki seldust 1.001 á móti 460 í fyrra og til viðbótar Sala fólksbifreiða jan. - júl. 1991 Samtals 6102 bifreiðar TOYOTA 1100 18,03% MAZDA 191 3,13% DAIIIATSU 307 5,03% SUBARU 663 10,87% LADA 445 7,29% NISSAN 561 9,19% 1114 18,26% Sala fólksbifreiða í júlí 1991 Samtals 1014 bifreiðar Heildarsala jan. - júl. 1991 Samtals 7103 bifreiðar Heildarsala í júlí 1991 Samtals 1187 bifreiðar LADA 129 10,87% TOYOTA 196 16,51% MITSUBISin 174 14,66% MAZDA 44 3,71% DAIIIATSU 57 4,8% SUBARU 81 6,82% 225 notaðir á móti 76 í fyrra. Toyota á langstærsta skammtinn af sendibílum eða 223 og 22,3% mark- aðshlutdeild, Hekla í öðru sæti með Mitsubishi (123 bíla) og Volkswagen í fimmta sæti (87 bíla) eiga dágóðan skammt en Ford er í þriðja.sæti með 101 bíl og Nissan í íjórða með 98. Enn er ekki að marka allar sölutöl- ur vegna þess hve sum bílaumboðin hafa þurft að bíða eftir afgreiðslu nýrra bíla frá verksmiðjunum. Dæmi eru um að búið sé þegar að panta framleiðslu ákveðinna bílategunda fram í mars á næsta ári. Tölurnar geta enn breyst áður en árið er úti, en ef fer fram sem horfir þá stefnir í rúmlega þá tölu sem talið er að ár- leg endurnýjun bíla þurfi að vera til að halda í horfinu. -JR Nýr Bentley sem kostar um fimmtán milljónir króna - fyrir utan söluskatt og sölulaun Bandaríkjamenn, sem geta séð af fjórðungi milljónar dollara eða rúmlega 15 milljónum íslenskra króna, eiga nú völ á nýjum bíl á bílamarkaði þar vestra eftir að Rolls Royce setti nýjan Bentley á markaðinn. Verðmiðinn: 249.800 dollarar. Bentley Motors, sem er eins og fyrr sagði í eigu Rolls Royce, og hefur framleitt lúxusbíla í Bret- landi um áratugaskeið kynnti þennan nýja bíl í Bandaríkjunum á mánudaginn. Þetta er fyrsti bíll- inn í meira en 40 ár sem ekki hefur verið smíðaður á grunni sömu yfir- byggingar og notuð er í Rollsinn. Nýi bíllinn, Continental R, er rennilegur tveggja hurða með for- þjöppu og verðið, 249.800 dollarar eða 15,2 milljónir króna er án sölu- skatts eða þóknunar söluaðilans. Véhn er 6,75 htra V-8 og kemur hún bílnum frá kyrrstöðu í hundr- að kílómetra hraða á innan við sjö sekúndum. „Gleðispillar" hjá verk- smiðjunum hafa sett í bílin raf- eindastýrða vörn gegn því að hægt sé að koma bílnum á meiri hraða en 233 kílómetra á klukkustund, eflaust væri annars hægt að koma honum á miklu meiri hraða. Líkt og í öðrum bílum frá Rolls Royce er vélarorkan ekki gefin upp. Innbyggður fjarsími sem þjónar bæði fram- og aftursæti er að sjálf- sögðu í bílnum, upphituð sæti og hljómtækin „gefa svipaða tilfinn- ingu og að vera í hljómleikasal" með geislaspilara og tíu hátölurum. Loftkæling er að sjálfsögðu staðal- búnaður. Að sögn Howard Mosher, stjórn- anda Rolls Royce Motors Inc., er þessi bíll „eðhlegt framahald fyrri áætlunum um að þróa sérstaka Bentley-línu og á þann breikka kaupendahóp Rolls Royce með því að aðgreina þessi tvö merki“. Rolls Royce keypti Bentley-verk- smiðjurnar árið 1931 en frá árun- um eftir 1950 hafa þesar tvær geriðr verið mismunandi útfærslur byggðar á sama grunni. Mosher sagði aðeins minn en eitt Rundrað Bentley Continental R koma á Bandaríkjmarkað á næsta ári frá og með febrúarmánuði og þegar væri búið að panta flesta þeirra. Reuter Bentley Continental R - nýr tveggja hurða kjörgripur sem kostar meira en gott einbýlishús eða um fimmtán milljónir króna á Bandaríkjamarkaði og það án söluskatts eða sölulauna. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.