Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1991, Qupperneq 1
Litlir krakkar
Óli, Bettý, Doddi og Siggi eru systkini. Þau eru alltaf aö rífast. Bettý og
Siggi eru að rífast um þaö hver eigi flottasta bílinn. Óli og Doddi eru aö
rífast um þaö hver eigi allar bökurnar. Mamma og pabbi ráða ekkert viö
þau. Þaö er búið aö líða þúsund sinnum yfir mömmu þeirra!
Kolbeinn Friðriksson,
Böggvisbraut 9, 620 Dalvík.
Sagan af henni Gunnu
Það var einu sinni kona og hún hét Gunna. Hún átti heima í venjulegri
borg í einbýlishúsi. Gunna átti mjög fallegan garö. í honum voru rólur, tré
og kartöflugarður.
Einn daginn vildi Gunna fá læk og gosbrunn í garðinn. Svo komu barna-
börnin hennar Gunnu í heimsókn með mömmu sinni og pabba. Krakkarn-
ir fóru út í rólurnar en mamma þeirra og pabbi fóru inn og fengu kaffi.
Síðan fóru þau heim til sín.
Unnur Ósk Einarsdóttir,
Selvogsgötu 20, 220 Hafnarfirði.
Yið tjömina
Einu sinni var tjörn sem hét Tjarnarbakki. Það var fullt af blómum við
tjörnina og þar voru margar endur. Við fórum oft að gefa þeim brauð á
sunnudögum. Það fannst okkur mjög gaman.
Sandra Þóroddsdóttir, 8 ára,
Raufarseli 13, 109 Reykjavík.
Mamma og Magga
Einu sinni var pabbi hennar Möggu ekki heima um nótt. Þá fékk Magga
'að sofa inni hjá mömmu. Það fannst henni gaman. Magga var með bangs-
ann sinn sem hét Bangsímon. Um morguninn vaknaði Magga löngu á und-
an mömmu sinni!
Eygló Traustadóttir, 8 ára,
Rauðhólum, 690 Vopnafirði.
Karen Ösp á sjúkrahúsi
Það var einu sinni stelpa sem var 10 ára og hún hét Karen Ösp. Hún var
á sjúkrahúsi því hún var með hettusótt. Hún var ein á stofu númer 11. Það
fannst henni leiðinlegt. Svo kom hjúkrunarkonan inn og sagði við hana:
„Það er að koma stelpa. Hún er 9 ára og heitir líka Karen eins og þú!“
Nú glaðnaði yfir Karenu Ösp því nú var hún ekki ein lengur. Það var kom-
ið með hina Karenu en hún var enn sofandi eftir skurðaðgerð. Loks vakn-
aði hún og spurði hvað hin stelpan héti. Hjúkrunarkonan sagði: „Hún heit-
ir Karen Ösp og er 10 ára!“
Svo fóru þær að tala saman lengi, lengi þangað til hjúkrunarkonan kom
og sagði þeim að fara að sofa. Næst þegar hjúkrunarkona leit inn til þeirra
voru þær báðar steinsofandi!
Heiðdís Dröfn Bjarkadóttir,
Þórunnarstræti 133, 600 Akureyri.
ÓUUtU
Einu sinni var strákur sem hét Óli. Hann fór oft út að tjörn og gaf öndun-
um brauð. Hundurinn hans fór alltaf með honum. Einn daginn sá Óli frosk.
Froskurinn var mjög fallegur. Hann stökk svo fallega og synti svo fallega.
Óli heimsótti froskinn eiginlega á hverjum degi.
Einn daginn var froskurinn dáinn. Óli kallaði þá á pabba sinn og sagði
honum allt um froskinn. Þá sagði pabbi Óla að jarða froskinn og muna
síðan alltaf eftir honum.
Sunna Ólafsdóttir, 8 ára,
Stekkjartröð 11B, 700 Egilsstöðum.
Lísa litla
Einu sinni var stelpa sem hét Lísa. Hún var góð stelpa. Einn daginn sagði
mamma: „Þú færð að fara til ömmu og afa 1 Reykjavík.“ En daginn eftir
var Lísa orðin mikið veik og fór til læknis. Þá sagði læknirinn: „Þú verður
að fara á sjúkrahús“.
Þá fór mamma heim og sótti bangsa og fleira dót fyrir Lísu. En Lísa beið
á meðan í hvítu rúmi. Svo kom mamma með bangsann en síðan fór hún
heim. Lísa varð ein eftir. En í rúminu við hliðina á Lísu var átta ára telpa
sem hét Rósa. Hún spurði hvað Lísa héti og hvað hún væri gömul og hvar
hún ætti heima. Lísa svaraði og sagðist heita Lísa Þorsteinsdóttir og vera
fjögurra ára að verða fimm. Hún ætti heima á Garðarshóli 17 á ísafirði.
„Ég heiti Rósa og er átta ára og á heima að Seljalandsvegi 73 á ísafirði,“
sagði Rósa.
Nú leið heil vika og þá áttu þær báðar að fá að fara heim til sín.
Köttur úti í mýri
setti upp á sér stýri
og úti er ævintýri!
Sigríður G. Guðjónsdóttir,
Seljalandsvegi 67, 400 ísafirði.
Skrifið sögu um þessa mynd.
Sagan birtist síðan í 36. tbl. og
getur að sjálfsögðu hreppt verðlaun.
/
/
/
/
/
e,
/
/
/
/
/
/
/
//0\V
/