Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1991, Blaðsíða 2
18 FÖSTUIlKOUR 4. OKTÓBER 1991. VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI A. Hansen Vesturgötu 4. Hf.. sími 651 693. American Style Skipholti 70. sími 686838. Argentína Barónsstígur 11 a. sími 19555. Asía Laugavegi 10. sími 626210 Askur Suöurlandsbraut 4, sími 38550 Suöurlandsbraut 14, sími 81344. Árberg Ármúla 21, sími 686022. Borgarvirkið Þingholtsstræti 2-4. sími 1 3737 Bravó Nýbýlavegi 22. sími 46085. Café Amsterdam Hafnarstræti 5. sími 13800. Café Garður Garðatorgi. sími 657676 Café Jensen Þönglabakka 6. sími 78060. Café Milanó Faxafeni 11. sími 678860. Duus hús v/Fischersund. sími 14446 Fimman Hafnarstræti 5. sími 11212. Fjörukráin Strandgötu 55. sími 651213. Fjörðurinn Strandgötu 30. sími 50249. Fógetinn, Aðalstræti 10. sími 16323. Furstinn Skipholti 37. sími 39570. Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22. sími 11 556. Gullni haninn Laugavegi 178. sími 679967 Hafmeyjan Laugavegi 34a. sími 1 3088. Hallargarðurinn, Húsi verslunarinnar, sími 678555. Hard Rock Café Kringlunni. sími 689888 Hjá Kim Ármúla 34. sími 31 381. Hornið Hafnarstræti 15. sími 13340. Hólmi Hólmaseli 4, sími 670650. Hótel Borg Pósthússtræti 1 1, sími 1 1440 Hótel Holt Bergstaöastræti 37. simi 25700. Hótel ísland v/Ármúla. sími 6871 11 Hótel Lind Rauðarárstig 18. sími 623350. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflugvelli. sími 22322. Hótel Óðinsvé v/Óöinstorg, sími 25224. Hótel Saga Grilliö, sími 25033, Súlnasalur, sími 20221. Skrúður. sími 29900. Hrói höttur Hringbraut 119, sími 629291 Ítalía Laugavegi 11. sími 24630. Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu 4 6. simi 15520 Kabarett, Matkrá Austurstræti 4. slmi 10292. Kaffivagninn Grandagarði. sími 15932. Kínahofið Nýbýlavegi 20. sími 45022 Kína-Húsið Lækjargötu 8. sími 11014. ^ Kringlukráin Kringlunni 4. sími 680878 L.A.-Café, Laugavegi 45. sími 626120. Lauga-ás, Suöurlandsbráut 2. simi 689509. Lækjarbrekka Bankastræti 2. sími 14430. Madonna Rauöarárstíg 27 29. sími 621988 Mamma Rósa Hamraborg 11. sími 42166 Marinós pizza Laugavegi 28. sími 625540. Mongolian Barbecue Grensásvegi 7. simi 688311 Naustið Vesturgötu 6 8. sími 177,59. Ópera Lækjargötu 2. sími 29499. Perlan Öskjuhlíð. sími 620200. Pétursklaustur Laugavegi 73, simi 23433. Pisa Austurstræti 22. sími 12400. Pizza Hut Hótel Esju. sími 680809 Pizzahúsið Grensásvegi 10. sími 39933. Pizzusmiðjan Smiðjuvegi 1 4 D. sími 72177 Potturinn og pannan Brautarholti 22. sími 11 690. Rauða Ijónið Eiöistorgi, sími 611414. Rauöi sófinn Laugavegi 126, simi 16566. 612Q95 Setrið Sigtúni 38, sími 689000. Sex baujan biðistorgi, sími 611414. Siam Skólavörðustíg 22. simi 28208. Singapore Reykjavíkurvegi 68. sími 54999. Sjanghæ Laugavegi 28. sími 16513. Staðið á öndinni Tryggvagötu 26. slmi 629995 Svarta pannan Hafnarstræti 17. sími 16480. Taj Mahal, Tandori Hverfisgötu 56. sími 21630 Torfan Amtmannsstíg 1. sími 13303. Trúbadorinn, Laugavegi 73. simi 622631. Tveir vinir og annar í fríi. Laugavegi 45. sími 21255. Veitingahúsiö 22 Laugavegi 22. sími 1 3628. Við Tjörnina Templarasundí 3. sími 18666. Hafmeyjan við Laugaveg er fremur skuggalegur staður með glerplötum á borðum i þröngum básum eins og í mötuneyti fyrir róna í París. Úr eldhúsinu kom óvenjulega vondur matur. DV-mynd GVA Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús: Bj artsýni á rangri hillu Þú vilt verða sjálfstæður. Þú ferð í bankann og slærð lán. Þú kaupir veitingaaðstöðu, sem er laus vegna flutnings eða eins af hinum tíðu gjaldþrotum í greininni. Þú lætur inn frystikistu og örbylgjuofn og fyllir kistuna af alls konar fiski. Þú ferð á Hótel Holt og skrifar upp verð af matseðlinum. Þú setur Dóra trukk í eldhúsið og opnar staðinn. Enginn kemur. Þar sem enn er eft- ir hluti af bankaláninu, feröu í sumarfrí og biður Öddu frænku að passa sjoppuna á meöan. Þú kemur aftur. Enn kemur enginn. Þú gerist einn af möi gum fyrrverandi veit- ingamönnum. Auðveldara í pólitíkinni Syrpu af þessu tagi hef ég nokkr- um sinnum séð endurtekna í ýms- um tilbrigðum á undanförnum árum. Ég veit ekki, hvort Hafmeyj- an við Laugaveg fellur undir lýs- inguna að einhveiju leyti. En mér finnst ég kannast við vandamálið. Ég get ekki varist þeirri hugsun, að eigendurnir eigi frekar heima í pólitík, þar sem menn komast langt á bjartsýninni einni. Erfitt er að hugsa sér, að veitinga- hús þrífist á þessum stað, sem er orðinn einkar fátæklegur, síðan austurlenzka skrautið hvarf við brottflutning Taj Mahal niður á Hverfisgötu. Eftir er fremur skuggalegur staður með glerplöt- um á borðum í þröngum básum eins og í mötuneyti fyrir róna í París. Eins og er hefur staðurinn enga jákvæða ímynd. Svo mikil samkeppni er í veit- ingabransanum, að nýir staðir fá ekki staðizt, nema þeir hafi eitt- hvað fram að færa, sem getur dreg- ið að, annaðhvort innihald eða ímynd eða hvort tveggja. Nýir veit- ingastaöir þurfa annaðhvort að vera með sérstaklega góðan mat, sérstaklega ódýran mat eða byggja í þess stað á einhverri ímynd, það er að segja stælum eða rugli, sem gengur í pupulinn, svo sem að hann eldi sjálfur við borðið. Óvenjulega vondur matur Úr eldhúsinu kom óvenjulega vondur matur. Einkum á það við um sjávarréttina, sem sagðir eru vera sérgrein Hafmeyjarinnar. Helzta undantekningin fólst í létt- steiktum lambalundum, sem voru meyrar og fínar, bornar fram með bakaöri kartöflu. Auglýst voru ágæt tilboö úti á stétt, þar á meðal þetta lambakjöt, sem kostaði 1890 krónur með súpu á undan og kaffi á eftir. Hitt tilboð- ið var enn girnilegra, 12-15 humrar með súpu á undan og kaffi á eftir á einungis 1790 krónur. Þessu til- boði er ekki auðvelt að hafna. Þetta er frábært verð fyrir dýrt hráefni, þótt humarinn sé smár. Hann var borinn fram á haugi af rækjublönduðu hrásalati. Því mið- ur hefði kokkurinn mátt þiggja fag- lega leiðsögn um, að humar má ein- ungis snöggelda. Hann verður fljótt þurr og seigur, ef ekki er passað upp á sekúndurnar. Hafmeyjan bauð einnig upp á grafið og oregon-kryddað lamb með melónu og jarðarberjasultu í for- rétt. Ég skildi ekki hlutverk sult- unnar, en oregoniö gaf kjötinu skemmtilega ákveðið bragð. Súpur dagsins reyndust jafnan vera sama súpan, hversdagsleg spergilsúpa, þar sem hveiti hafði ekki verið sparað, borin fram með volgu brauði og smjöri. Fullunnin ýsa og fullunninn lax Ýsa dagsins, borin fram með blað- lauk og sveppum, var úr frysti og sennilega hituð í örbylgjuofni. Hún minnti lítið á ýsuflökin, sem Reyk- víkingar eru vanir að kaupa í fisk- búðum. Ég legg til, að áhugamenn um bann við útlutningi á ferskum fiski, sem þeir kalla „óunninn", séu látn- ir svæla í sig freðýsunni í Hafmeyj- unni, svo að þeir viti, hvernig er sú fullunna vara, sem þeir vilja, að hafi forgang í útlutningi, til millj- arðaskaða fyrir þjóðarbúið. Grillaður lax var borinn fram með hvítri mjólkursósu, sem hét hvítvínssósa. Hann var hinn versti, sem ég man eftir að hafa fengið um árabil, þurr og skorpinn, feiknar- lega mikið steiktur og kryddaður einhverju annarlegu kryddi. Lax minnir á humar að því leyti, að hann krefst nokkurrar nákvæmni í eldunartima. Ferskir ávaxtabitar í ísvöfílu- horni voru frambærilegir. ís var sæmilegur, borinn fram með staupi af Grand Marnier til hliðar. Súkku- laðibúðingur var mjög vondur, borinn fram með gamalþeyttum tjóma. Útvarp á fullu í hádeginu var útvarpið látið glymja með gauli og auglýsingum á fullu. Um kvöldið var mild músík á bandi. Mikið er um plastblóm milli bása. Þau eru arfur frá fyrra veitingahúsi staðarins, svo og jap- anskar lugtir yfir bamum. Þegar frá eru talin tilboð dagsins, sem skráð eru úti á stétt, og þrír aðalréttir á seðli dagsins, var stað- urinn fremur dýr. Miðjuverð þriggja rétta af fastaseðli að kaffi meðtöldu var 2.945 krónur. Hvergi í bænum hef ég keypt dýrari bolla af espresso-kaffi, 190 krónur takk. Aldrei sá ég neinn viðskiptavin á þessumeinkennilegastað. J.Kr. Viðeyjarstofa Viðey, sími 681045. Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 14. sími 23939. Ölkjallarinn Pósthússtræti 17, sími 13344. Ölver v/Álfheima. sími 686220. AKUREYRI: Bautinn Hafnarstræti 92, sími 21818. Fiðlarinn Skipagötu 14. sími 27100. Greifinn Glerárgötu 20. sími 26690. Hótel KEA Hafnarstræti 87 89. sími 22200. Hótel Stefania. Hafnarstræti 83-85. simi 26366 Landið - vertshús Geislagötu 7. sími 11617 Sjallinn Geislagötu 14. sími 22970. Smiðjan Kaupvangsstræti 3, sími 21818. Uppinn Ráðhústorgi 9. sími 24199 VESTMANNAEYJAR: Bjössabar Bárustíg 11. sími 1 2950. Muninn Vestmannabraut 28. sími 11 422 Höfðinn/Við félagarnir Heiðarvegi 1. sími 12577 Skútinn Kirkjuvegi 21. slmi 11420. KEFLAVÍK: Edenborg Hafnargötu 30. sími 1 2000. Flughótelið Hafnargötu 57. sími 1 5222 Glóðin Hafnargötu ,62. sími 11777. K-17 Vesturbraut 17. sími 14999 Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62. sím 1 4777 Ráin Hafnargata 19. sími 14601. Veitingahúsið við Bláa Lónið Svartsengi. sími 68283. SANDGERÐI: Veitingahúsið Vitinn, Hafnargötu 4. sími 37755. SUÐURLAND: Gjáin Austurvegi 2. Selfossi. sími 22555. Hótel Selfoss Eyravegi 2. Selfossi, sími 22500 Hótel Örk, Nóagrill Breiöumörk 1. Hverag.. s. 34700. Kam-Bar, Breiöamörk 2c. Hverag.. s. 34988 Veitingahúsið við Brúarsporðinn Eyrarvegi 1. Self., sími 22899. VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS Arnargrill Arnarbakka 2. sími 77540. Á næstu grösum Laugavegi 26. sími 28410 Blásteinn Hraunbæ 102. sími 673311. Bleiki pardusinn Hjallahrauni 1 3. sími 652525 Brauðstofan Gleymmérei Nóatúni 17. sími 15355. Chick King Suðurveri. Stigahlíð 45 47. s. 38890. Eikagrill Langholtsvegi 89. 39290. Eldsmiðjan Bragagötu 38 A. sími 14248. Fiskur og franskar Austurstræti 6. sími 626977. Gafl-inn Dalshrauni 1 3. sími 54424. Höfðakaffi Vagnhöföa 11, simi 686075. Ingólfsbrunnur Aðalstræti 9. sími 1 3620. Jón bakan Nýbýlavegi 14. simi 46614 Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 1 5. sími 50828. Lauga-ás Laugarásvegi 1. sími 31620. Lúxus kaffi Skipholti 50b. sími 813410. Mokka-Expresso-Kaffi Skólavörðustíg 3a. sími 21174 Múlakaffi v/Hallarmúla. sími 37737. Nespizza, Austurströnd 8, Austurströnd 8. simi 61 2030. Norræna húsið Hringbraut. sími 21522. Næturgrillið heimsendingarþj.. simi 77444. Óli prik Hamraborg 14, sími 40344, Pizzahúsið Öldugötu 29, sími 623833. Pítan Skipholti 50 C. simi 688150. Smáréttir Lækjargötu 2. sími 1 3480. Smiðjukaffi Smiðjuvegi 14d. sími 72177. Sprengisandur Bústaðavegi 1 53. sími 33679. Sundakaffi Sundahöfn. sími 36320. Tíu dropar Laugavegi 27. sími 19380. Höfðagrill Bíldshöföa 12. sími 672025. Vogakaffi Smiðjuvegi 50. slmi 38533. Veitinga- og vöruhús Nings Suðurlandsbraut 6. simi 679899. Western Fried, Mosfellssveit v/Vesturlandsveg. slmi 667373. Winny’s Laugavegi 116, sími 251 71 AKUREYRI: Crown Chicken Skipagötu 12. simi 21464.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.