Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1991, Síða 2
18
Ef þú vilt út að borða
VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI
A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., sími 651693.
Opið 11.30-22.20 alla daga.
American Styie Skipholti 70, simi 686838.
Opið 11-22 alla daga.
Apríl Hafnarstræti 5, sími 11212. Opið 18-01 v.d.,
18-03 fd. og Id.
Argentína Barónsstígur 11 a, sími 19555. Opið
18-23.30 v.d., 18-03 um helgar
Asía Laugavegi 10, sími 626210. Opið 11.30-
22.30 v.d., 12.-22.30 sd„ 12-23.30 fd. og Id.
Askur Suðurlandsbraut 4, sími 38550. Opið
11-22 sd.-fimmtud., 11-23.30 fd. og Id.
Askur Suðurlandsbraut 14, sími 681344. Opið
11-22 alla daga.
Árberg Ármúla 21, sími 686022. Opið 07-18
sd.-fd„ 07-15 Id.
Borgarvirkið Þingholtsstræti 2-4, sími 13737
Opið 18-01 v.d„ 18-03 fd. og Id.
BravÓ Nýbýlavegi 22, sími 46085. Opið
11.30- 21.
Café Amsterdam Hafnarstræti 5, sími 13800.
Opið 18-01 v.d„ 18-03 fd. og Id.
Café Mílanó Faxafeni 11, sími 678860. Opið
9-19 v.d„ 9-18 ld„ 13-18 sd.
DUUS hÚS v/Fischersund, sími 14446.
Fjörukráin Strandgötu 55, sími 651213. Opið
18-22 md„ þd„ miðv.d., 12-14.30 og 18-22
fimmtud., 12-14.30 og 18-23. fd. og Id.
Fjörðurinn Strandgötu 30, sími 50249. Opið
11- 03 fd. og Id.
Fógetinn, Aðalstræti 10, sími 16323. Opið
18-24.30 v.d., 18-02.30 fd. og Id.
Furstinn Skipholti 37, sími 39570. Opið 17-01
v.d„ 12-15 og 17-01 Id. og sd.
Garðakráin Garðatorgi, sími 657676. Opið
20-01 miðv.d., fimmtud. og sd„ 20-03 fd. og Id.
Lokað á md. og þrd.
Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22, sími 11556.
Opið 11.30-14.30 og 18-01 v.d„ 11.30-14.30 og
18-03 fd. og Id. 18-03 sd.
Grillið Hafnarstræti 9, simi 620680. Opið
12- 23.30 v.d„ 12-24.30 fd. og Id.
Gullni haninn Laugavegi 178, sími 679967.
Opið 11.30-14.30 og 18-22 v.d„ 18-23 fd. og Id.
Hafmeyjan Laugav. 34a, s. 13088. Op. 18-22.
Hallargarðurinn, Húsi verslunarinnar, sími
678555. Opið 11.30-14.30 og 18-22 v.d„
18- 23.30 fd. og Id. Lokað á sd.
Hard Rock Café Kringlunni, sími 689888.
Opið 11.45-23.30 md.-ld„ 12-23.30 sd.
Hjá Kim Ármúla 34, sími 31381. Opið 11-21.30
v.d„ 12-22.30 ld„ 17-21.30 sd.
Hornið Hafnarstræti 15, sími 13340. Opið
11- 23.30 alla daga.
HÓtel Borg Pósthússtræti 11, sími 11440. Opið
08-17 alla daga.
HÓtel Holt Bergstaðastræti, sími 25700. Opið
12- 14.30 og 19-22.30 v.d„ 12-14.30 og 18-22 fd.
og Id.
HÓtel ísland v/Ármúla, sími 687111. Opið
20-03 fd„ 19-03 Id
Hótel Lind Rauðarárstíg 18, sími 623350. Opið
06.30-10.30 og 11.30-22 alla daga.
Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflugvelli, sími
22322. Opið í Lóninu 0-18, í Blómasal 18.30-22.
Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg, sími 25224. Opið
12-15 og 18-23 v.d„ 12-15 og 18-23.30 fd. og Id.
HÓtel Saga Grillið, sími 25033, Súlnasalur, sím
20221. Skrúður, sími 29900. Opið í Grillinu
19- 22.30 alla daga, í Súlnasal 19-03 ld„ í Skrúð
12-14 og 18-22 alla daga.
Hrói höttur Hringbraut 119, sími 629291 Opið
11- 23 alla daga.
Ítalía Laugavegi 11, sími 24630. Opið 11.30-
23.30 alla daga.
Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu f
4-6, sími 15520 Opið 12-14 og 17.30-23 v.d„
17.30- 23.30 fd. og Id.
Kabarett, Matkrá Austurstræti 4, sími 10292.
Opið 11-22 alla daga.
Kínahofið Nýbýlavegi 20, sími 45022. Opið
17- 21.45 v.d„ 17-22.45 fd„ Id. og sd.
Kína-Húsiö Lækjargötu 8, sími 11014. Opið
11.30- 14 og 17.30-22 v.d„ 17.30-23 fd„ 15-23
ld„ 17-22 sd.
Kringlukráin Kringlunni 4, sími 680878. Opið
12- 01 v.d„ 12-03 fd. og Id.
L.A.-Café, Laugavegi 45, sími 626120. Opið
18- 01 v.d„ 18-03 fd. og Id.
Lauga-ás, Suðurlandsbraut 2, sími 689509.
Opið 11-22 alla daga.
Lækjarbrekka Bankastræti 2, sími 14430. Opið
11.30- 14.30 og 18-23 alla daga.
Madonna Rauðarárstíg 27-29, sími 621988
Opið 11.30-23.30 alla daga.
Mamma Rósa Hamiaborg 11, sími 42166
Opið 11-14 og 17-22, md - fimmtud. 11-23.30
fd„ 12-23.30 ld„ 12-22 sd.
Marinós pizza Laugavegi 28, sími 625540.
Opið 11-23.30 md.-fimmtud„ 11-01.30 fd. og ld„
13- 23.30 sd.
Mongolian Barbecue Grensásv 7, s 688311
Opið 11.30-14 og 18-22 v.d„ 18-24 fd. og Id.
Naustið Vesturgötu 6-8, sími 17759. Opið 12-14
og 18-01 v.d , 12-14 og 18-03 fd. og Id
Ópera Lækjargötu 2, sími 29499. Opið 18-23.30
v.d„ 18-24.30 fd. og Id.
Perlan Öskjuhlíð, sími 620200. Opið 19-24.30.
Pétursklaustur Laugavegi 73, sími 23433.
Opið 18-23.30 alla daga.
Pisa Austurstræti 22, sími 12400. Opið 11.30—
23.30 v.d„ 11.30-01 fd„ 18-01 ld„ 18-23.30 sd.
Pizza Hut Hótel Esju, sími 680809 Opið
11.30- 22 v.d„ 11.30-23. fd. og Id.
Pizzahúsið Grensásvegi 10, sími 39933. Opið
11.30- 23.30 v.d„ 11.30-03 fd. og Id.
Pizzusmiöjan Smiðjuvegi 14 D, sími 72177
Opið 18-04 vd„ 12-05 fd. og Id.
Potturinn og pannan Brautarhoiti 22, sími
11690. Opið 11.30-22 alla daga.
Rauða Ijónið Eiðistorgi, sími 611414. Opið
18-01 vd„ 12-15 og 18-03 fd. og Id.
Rauði sófinn Laugav. 126, sími 16566,612095.
Opið 11.30-14 og 18-24 v.d„ 18-24 Id. og sd.
Seljakráin Hólmaseli 4, sími 670650. Opið
18-23.30 v.d„ 18-01 fd. og Id.
Setrið Sigtúni 38, sími 689000. Opið 19-22.30.
Sex baujan Eiðistorgi, sími 611414. Opið 18-22
v.d„ 18-23. fd. og Id.
Siam Skólavörðustíg 22, sími 28208. Opið 18-22
vd„ 18-22.30 fd. og Id. Lokaö á md.
Singapore Reykjavíkurvegi 68, sími 54999.
Opið 18-22 þd.-fimmtud„ 18-23. fd.-sd.
Sjanghæ Laugavegi 28, sími 16513. Opið
11.30-23.30 alla daga.
Staðið á Öndinni Tryggvagötu 26, sími 629995
Opið 11.30-01 v.d„ 16-01 sd„ 11.30-03 fd. og Id.
Svarta pannan Hafnarstræti 17, sími 16480.
Opið 11-23.30 alla daga.
Taj Mahal, Tandori Hverfisgötu 56, sími
21630 Opiö 18-22.30 þd.-fimmtud. og sd„
18-23.30 fd. og Id. Lokað á md
Torfan Amtmannsstíg 1, sími 13303. Opið
11.15-14.30 og 18-23 v.d„ 11.15-14.30 og
18-23.30 Id. og sd.
Trúbadorinn, Laugavegi 73, sími 622631. Opiö
11.30-23.30 alla daga.
------------------------------------------------------------------------------!
Margt er gott um Lækjarbrekku, einkum umhverfi og andrúmsloft staðarins, sem haldizt hefur óbreytt frá því
ég man fyrst eftir honum.
Jónas Kristjánsson sío'ifar um veitingahús:
Gamaldags
matseld í nota-
legu umhverfi
Lækjarbrekka er einn dýrasti
veitingastaður landsins, töluvert
dýrari en Holt, svo að þekkt dæmi
sé tekið til viömiðunar. Miðjuverö
þriggja rétta máltíðar er 3.300-3.400
krónur, hvort sem valið er af seðli
dagsins eða fastaseðli hússins.
Undantekningin er súpa og réttur
dagsins í hádeginu á 990 krónur,
sem þýðir 1.685 krónur á þrjá rétti
og kaffi. Þetta tilboð er þó lakara
en hliðstæð boð annarra staða af
þessu tagi, af því að ekkert val er
milli rétta, eins og er til dæmis í
Holti.
Innpakkaó
flugvélasmjör
Mér finnst einkennilegt, að svona
dýr staður skuli hafa þann mötu-
neytisbrag, að bæði í hádegi og að
kvöldi er smjörið með brauðinu
borið gestum í flugvélapakkningu.
Þetta atriði hefur árum saman
skorið mér í augu. Mér finnst, að
næsta skref muni vera, að matur-
inn komi í álpakkningu á plast-
bakka og hnífapörin í plastpoka
með salti, pipar og tannstöngli.
Matreiðslan í Lækjarbrekku hef-
ur líka valdið mér heilabrotum.
Hún er fremur gamaldags og virð-
ist hafa það beinlínis að stefnu. Til
dæmis hafa súpur löngum verið
afar þykkar og ógeðfelldar hveiti-
súpur. Ennfremur hefur eldunar-
tími yfirleitt verið lengri en þykir
hæfa hjá þeim, sem fara eftir regl-
um nýfrönsku matargerðarlistar-
innar. Kannski hæfir gamaldags
matseld gamaldags húsakynnum.
Ég hitti stundum kunningja mína
í Lækjarbrekku, ekki af því að mér
líki maturinn, heldur af því að
kunningjar mínir hafa vafasaman
matarsmekk. Þótt ég hafi þannig
kynnzt staðnum betur en mörgum
veitingahúsum, sem ég hef skrifað
um, hef ég ósjálfrátt frestað því
nokkuð lengi að skrifa um hann,
sennilega til að ýta vandamáli fram
í tímann.
Sennilega er ég orðinn of gamall
og jákvæður til að vera alvöru
krítíker.
Gestum líður
yfirleittvel
Margt er gott um Lækjarbrekku,
einkum umhverfi og andrúmsloft
staðarins, sem haldizt hefur
óbreytt frá því ég man fyrst eftir
honum. Stofan í Bankastrætisenda
hússins er einn notalegasti veit-
ingasalur landsins.
Aldur hússins og smágerð hlut-
fóll stuðla að þessu, svo og þægileg-
ir stólar og skemmtileg húsgögn á
borð við Borgundarhólmsklukku
og gamalt skatthol.
Ennfremur er þjónusta mjög góð,
fagleg og eftirtektarsöm. Það er
fyrst og fremst eldhúsið, sem ég er
að sumu leyti ósáttur við. Um-
hverfi og þjónusta valda því, að
gestum líður yfirleitt vel, enda er
Lækjarbrekka fremur vel sótt.
Ein súpa hússins er betri en aðr-
ar. Það er franska lauksúpan.
Kunningjar mínir eru líka ánægðir
með sjávarréttasúpuna, en ég ráð-
legg lesendum að láta rjómabættar
súpur dagsins eiga sig, þar á meðal
blaölaukssúpur.
Léttreykt lambakjöt var nokkuð
góður forréttur, borið fram með
piparrótarrjóma og melónubitum.
Hörpufiskur með hvítlaukssósu
var fremur góður, en hafði farið
örlítið fram yfir þann eldunartíma,
sem gefur vöðvanum mesta mýkt.
Rækjur voru góðar, en yfirgnæfðar
af avocado og blaðlaukssósu, sem
var að mestu með avocado-bragði.
Aðalréttirnir
mikið eldaðir
Fiskréttir staðarins eru undan-
tekningarlítið nokkuð mikið eldað-
ir og gjarna kaffærðir í osti eða
sósum. Ánægjuleg undantekning
var smjörsteikt ýsa með skrúfu-
pasta, sem ég fékk sem ódýran rétt
dagsins í hádeginu. Hún var ná-
kvæmlega rétt elduö og sérstak’lega
ljúffeng.
Steiktur karfi með hnetum og
sesam í sinnepssósu var meira í
stíl hússins, mikið eldaður og með
yfirgnæfandi bragði af möndluflög-
um og sesamfræjum. Þetta var svo
sem nógu frumlegt, en fiskurinn
hvarf alveg í skugga þess, sem með
honum fylgdi.
Kjötréttir eru aö meöaltali
nokkru betri en fiskréttir, þótt þeir
séu fremur lengi eldaðir. Ef maður
biður um þá hrásteikta, koma þeir
miðlungi steiktir. í eldhúsinu vita
menn einfaldlega betur en þú,
hvernig matur hentar þér. Ofan af
þessu fara þeir alls ekki.
Smjörsteikt gæsabringa var rúm-
lega miðlungssteikt og þess vegna
byrjað að verða of þurrt. Að öðru
leyti var hún góð, borin fram í mik-
illi rauðvínssósu hússins og stöðl-
uðu meðlæti kvöldsins, kartöflum,
brokkáli og blómkáli.
Hreindýraorður voru líka mikið
eldaðar, en samt ennþá alveg meyr-
ar og bragðgóðar, bornar fram með
blábeijasósu og stöðluðu meðlæti
kvöldsins.
Ferskur ananas með rjóma var
góður, borinn fram með passionsá-
vexti og passionsís. Skemmtilegur
var Hattur Betu ömmu, sem fólst í
blönduðum ávöxtum ferskum og ís
undir kexhatti með súkkulaði-
skreytingu, góður eftirréttur.
-J.Kr.
FÖSTÖDAGUR'25. OKTÓBER 1991.
Tveir vinir og annar í fríi. Laugavegi 45,
sími 21255. Opið 12-15 og 18-01 v.d„ 12-15 og
18-03 fd. og Id.
Veitingahúsið 22 Laugavegi 22, sími 13628.
Opið 12-01 v.d„ 12-03 fd. og Id.
Við Tjörnina Templarasundi 3, sími 18666.
Opið 12-14 og 18-22.30 md.-fd„ 18-23 Id. og sd.
Viðeyjarstofa Viðey, sími 681045. Einungis
opið f. hópa í vetur.
Þrír Frakkar hjá Úlfari Baidursgötu 14, sími
23939. Opið 11 -14.30 og 18-23.30 v.d„ 18-23.30
Id. og sd.
Ölkjallarinn Pósthússtræti 17, sími 13344.
Opið 12-15 og 18-01 v.d„ 12-15 og 18-03 fd.
og ld.
Ölver v/Álfheima, sími 686220. Opið 11.30-
14.30 og 18-01 v.d., 18-03 fd. og Id.
AKUREYRI:
Bautinn Hafnarstræti 92, sími 21818. Opið
09-22.
Fiðlarinn Skipagötu 14, sími 27100. Opið
11.30- 14 og 18-21.30 v.d„ 18-22 fd. og Id.
Greifinn Glerárgötu 20, sími 26690. Opið
11.30- 22.30 v.d., 12-02 fd. og Id.
HÓtel KEA Hafnarstræti 87-89, sími 22200.
Opið 07.30-10.30 og 12-14 og 18-23.30 v.d.,
nema ld- til 03.
HÓtel Stefanía. Hafnarstræti 83-85, sími
11400. Opið 18-22 alla daga.
Landið - vertshús Geislagötu 7, sími 11617
Opið 18-21.30 alla daga, bar til 23.30.
Sjallinn Geislagötu 14, sími 22970. Opið 19 -03
fd. og ld„ kjallari 18-01 v.d„ 12-15 og 18-03 fd.
og ld.
Smiðjan Kaupvangsstræti 3, sími 21818. Opið
12-13 og 18.30-21.30 alla daga.
Uppinn Ráðhústorgi 9, sími 24199 Opið
12-23.30 v.d„ 12-02.30 fd. og Id.
VESTMANNAEYJAR:
Bjössabar Bárustíg 11, sími 12950. Opið
11.30- 14 og 18-21 md.-fd„ 11.30-21 Id. og sd.
Muninn Vestmannabraut 28, sími 11422 Opið
11.-14 og 18-21 v.d„ 18-22.30 fd. og Id.
Höfðinn/Við félagarnir Heiðarv 1, s. .12577,
Opið 10-14 og 18-23.30 md.-miðv.d„ 10-14 og
•18-01 fimmtud., 10-03 fd. og ld„ 10-01 sd.
Skútinn Kirkjuvegi 21, simi 11420. Opið 10-22.
KEFLAVÍK:
Edenborg Hafnargötu 30, sími 12000.
Flughótelið Hafnargötu 57, sími 15222. Opið
11.30- 14 og 18-21.30 v.d„ 18-22 fd. og Id.
Glóðin Hafnargötu 62, sími 11777. Opið
11.30- 21 v.d, 11.30-22.30 fd. og Id.
K-17 Vesturbraut 17, sími 14999. Opið 22.03 fd.
og Id. 19-03 sýningarkvöld.
Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62, sím
14777 Opið 11-22 alla daga.
Ráin Hafnargata 19, sími 14601. Opið 12-15 og
18-23.30 md.-miðv.d„ 12-15 og 18-01 fimmtud.
og sd„ 12-15 og 18-03 fd. og Id.
Veitingahúsið við Bláa Lónið Svartsengi,
sími 68283.
SANDGERÐI:
Veitingahúsið Vitinn, Hafnargötu 4, sími
37755. Opið 0.30-23.30 v.d„ 08.30-03 fd. og Id.
SUÐURLAND:
Gjáin Austurvegi 2, Selfossi, sími 22555. Opið
18-01 miðv.d., fimmtud. og sd„ 18-03 fd. og Id.
Lokað á md. og þd.
HÓtel Selfoss Eyravegi 2, Selfossi, sími 22500
Opið 12-14.30 og 18-22 alla daga.
Hótel Örk, Nóagrill Breiðumörk 1, Hverag.,
s. 34700. Opið 11.30-14 og 18-22 alla daga.
Kam-Bar, Breiðamörk 2c, Hverag., s. 34988.
Veitingahúsið við Brúarsporðinn Eyrar-
vegi 1, Self., sími 22899. Opið 11.30-13.30 og
18-22 v.d„ 11.30-13.30 og 18-23 fd. og Id.
VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS
Arnargrill Arnarbakka 2, sími 77540. Opið
12-23.30 alla daga.
Á næstu grösum Laugavegi 26, sími 28410.
Opið 11.30-14 og 18-20 v.d. Lokað um helgar.
Blásteinn Hraunbæ 102, s. 673311. Op. 10-22.
Brauðstofan Gleymmérei Nóatúni I7,sími
15355. Opið 09-18 v.d„ 09-16 Id. Lokað á sd.
Chick King Suðurveri, Stigahlíð 45-47, s.
38890. Opið 11-23.30 alla daga.
Eikagrill Langholtsvegi 89, 39290. Opið
11.30- 22 alla daga.
Eldsmiðjan Bragagötu 38 A, sími 14248. Opið
11.30- 23.30 alla daga.
Fiskur og franskar Austurstræti 6, sími
626977. Opið 11-20 alla daga. Lokað á sd.
Gafl-inn Dalshrauni 13, sími 54424. Opið 08-21.
Hrói höttur Hjallahrauni 13, sími 652525. Opið
11-23 alla daga.
Höfðakaffi Vagnhöfða 11, sími 686075_0pið
07.30-17 alla daga. Lokað á Id.
Höfðagrill Bíldshöfða 12, sími 672025. Opið
07-17 v.d„ 10-16 Id. Lokað á sd.
Ingólfsbrunnur Aðaistræti 9, simi 13620. Opið
09-18 md.-fd. Lokað um helgar.
Jarlinn Bústaðavegi 153, sími 688088 Opið
11-23 alla daga, nætursala til 03.
JÓn bakan Nýbýlavegi 14, sími 642820 Opið
11.30- 23.30 v.d„ 11.30-02 fd. og Id.
Kaffivagninn Grandagarði, sími 15932. Opið
04-23.30 alla daga, ekki matur á kvöldin.
Kentucky Fried Chicken Hjaiiahrauni 15,
sími 50828. Opið 11-22 alla daga.
Lauga-ás Laugarásv. 1, s. 31620. Opið 11-22.
LÚXUS kaffi Skipholti 50b, sími 813410. Opið
08-18 v.d„ 11-18 Id. Lokað á sd.
Mokka-Expresso-Kaffi Skóiavörðust 3a, s.
21174 Opið 09.30-23.30 md.-ld„ 14-23.30 sd.
Múlakaffi v/Hallarmúla, sími 37737. Opið
07-23.30 v.d„ 08-23.30 sd.
Nespizza, Austurströnd 8, Austurströnd
8, sími 612030. Opið 11.30-14 og 17-22 v.d„
11.30- 23 fd. og Id.
Norræna húsið Hringbraut, sími 21522. Opið
09-17 v.d„ 09-19 ld„ 12-19 sd.
Næturgrillið heimsendingarþj., sími 77444.
Opið 22-03 v.d„ 22-07 fd. og Id.
Óli prik Hamraborg 14, sími 40344. Opið 11-22.
Pizzahúsið Öldugötu 29, sími 623833. Opið
17-23 v.d„ 12-24 Id. og sd.
Pítan Skipholti 50 C, sími 688150. Opið
11.30- 22.
Smáréttir Lækjargötu 2, sími 13480.
Smiðjukaffi Smiðjuvegi 14d, sími 72177. Opið
08-16.30 alla daga.
Sundakaffi Sundahöfn, sími 36320. Opið
07-20.30 v.d„ 07-17 Id. Lokað á sd.
TÍU dropar Laugavegi 27, - sími 19380. Opið
08-18 v.d„ 10-16 Id. Lokaö á sd.
Vogakaffi Smiðjuvegi 50, sími 38533. Opið
08-18 v.d. Lokað á Id. og sd.
Veitinga- og vöruhús Nings Suðuriands-
braut 6, sími 679899. Opið 11-14 og 17.30-20.30.
Western Fried, Mosfellssveit v/Vestur-
landsveg, sími 667373. Opið 10.30-22 alla daga.
Winny’s Laugavegi 116, sími 25171. Opið
11-20.30 alla daga.
AKUREYRI:
Crown Chicken Skipagötu 12, sími 21464,
Opið 11-21.30 alla daga.