Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1991, Blaðsíða 7
FÖSTtÍDÁ’dúk' 25: ÖKTÖÉÉk1 léði.
f þróttir helgarinnar:
HK - Víkingur er
stórleikurinn
HK-mennirnir Eyþór Guöjónsson og Róbert Haraldsson fagna en Valsmennirnir Brynjar Harðarson og Ingi
Rafn Jónsson eru daufir í dálkinn i leik liðanna á miðvikudagskvöidið. HK mætir Vikingi og Valur mætir Fram
á sunnudagskvöldið. DV-mynd Brynjar Gauti
Það eru handbolti og körfubolti
sem fyrst og fremst eru á dag-
skránni um helgina en heil umferð
verður leikin þar í efstu deildum,
bæði í karla- og kvennaflokki. Þá
er eitt sundmót um helgina og
væntanlega eitthvað leikið í blaki
en blakmenn hafa fyrir sið að til-
kynna um leiki helgarinnar seint á
föstudögum svo þeirra er ekki getið
hér.
Stórleikurinn er
HK og Víkingur
Stórleikur helgarinnar í 1. deild
karla í handknattleik er viðureign
nýliða HK og Reykjavíkurmeistara
Víkings sem fram fer í Digranesi
klukkan 20 á sunnudagskvöldið.
HK hefur komið liða mest á óvart
það sem af er tímabilinu og er með
fimm stig eftir þrjá leiki - sigraði
síðast íslandsmeistara Vals á úti-
velli á miðvikudagskvöldið. Vík-
ingar hafa unnið þrjá fyrstu leiki
sína og nú reynir verulega á bæöi
lið.
Þrír leikja f. deildar fara fram í
kvöld. Selfoss og Stjarnan leika á
Selfossi klukkan 20, á sama tíma
mætast ÍBV og FH í Vestmannaeyj-
um, og klukkan 20.30 hefst leikur
KA og Hauka í hinu nýja og glæsi-
lega húsi KA á Akureyri.
Á morgun klukkan 16.30 leika
neöstu hðin, Grótta og Breiðablik,
á Seltjarnarnesi, og að lokum eig-
ast viö Fram og Valur í Laugardals-
höllinni klukkan 20 á sunnudags-
kvöldið.
Fjórir leikir í 1. deild kvenna
í 1. deild kvenna eru fjórir leikir,
þar af þrír á morgun. Stjarnan og
Ármann leika í Garðabæ klukkan
13, Valur og Fram í Laugardalshöll-
inni klukkan 15 og ÍBV og Grótta
í Vestmannaeyjum klukkan 15.
Loks leika Haukar og Keflavík í
Hafnarfirði klukkan 16.15 á sunnu-
daginn.
í 2. deild karla er einnig heil
umferð. í kvöld klukkan 20 leika
HKN og ÍH í Keflavík og Völsungur
og Ármann á Húsavík. Á morgun
leika Þór og Ármann á Akureyri
klukkan 13.30 og Ögri og Aftureld-
ing mætast í Seljaskóla klukkan
15.30 á sunnudaginn.
Toppleikur í
Grindavík
Heil umferð er leikin í úrvals-
deildinni (Japisdeildinni) í körfu-
knattleik og nú er í fyrsta skipti í
vetur leikið á milli riðla. Haukar
og Tindastóll leika í Hcifnarfirði
klukkan 14 á morgun, en hinir leik-
irnir fara fram á sunnudaginn.
Klukkan 16 hefst leikur ÍBK og
Snæfells í Keflavík, og á sama tíma
leikur Skallagríms og Vals í Borg-
arnesi. Klukkan 20 leika Þór og KR
á Akureyri, og Grindavík mætir
Njarðvík í toppleik umferðarinnar
í Grindavík á sama tíma.
í 1. deild kvenna í körfuknattleik
er heil umferð á sunnudaginn. KR
og ÍS leika í Hagaskóla, ÍBK og
Haukar í Keílavík og Grindavík og
ÍR í Grindavík. Allir leikirnir heíj-
ast klukkan 18.
Tvö taplaus lið, ÍA og Breiðablik,
leika í 1. deild karla í körfuknatt-
leik í kvöld á Akranesi klukkan 20.
Á morgun leikur Víkverji við ÍR i
Hagaskóla klukkan 14 og á sunnu-
dag mætast Reynir og Keilufélag
Reykjavíkur í Sandgerði klukkan
17.
Sundmót
Eitt sundmót er um helgina, sam-
kvæmt mótaskrá Sundsambands
íslands. Það er Triumph-Sport mót
Ægis, sem fram fer í Sundhöll
Reykjavíkur á laugardag og sunnu-
dag.
-VS
Sýningar
Ásmundarsalur
Freyjugötu 41
Sigrún Olsen sýnir olíumálverk í Ás-
mundarsal. Verkin eru unnin í Banda-
ríkjunum undanfarin tvö ár. Sýningunni
lýkur sunnudaginn 27. október.
FÍM-salurinn
v/Garðastræti
Ákveðið hefur verið að framlengja
styrktarsýninguna sem verið hefur í
FIM-salnum til sunnudags 3. nóvember.
Á sýningunni eru olíu- og akrílmálverk,
vatnslitamyndir, grafík- og höggmyndir
eftir marga þekktustu listamenn lands-
ins. Þeir eru allir félagsmenn í FÍM og
gefa félaginu helming söluverðs verka
sinna. Opið er alla daga frá kl. 14-18.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
opiö alla daga vikunnar frá kl. 14-18.
Galleríeinn einn
Skólavörðustig 4,
Halldóra Emilsdóttir opnar í dag sýningu
á málverkum. Hún sýnir ofíumyndir
unnar á þessu ári. Hún lauk námi frá
MHÍ 1987 úr málaradeild. Sýningin er
opin alla daga kl. 14-18. Henni lýkur 7.
nóvember.
Gallerí List
Skipholti
Elín Magnúsdóttir myndlistarkona sýnir
málverk. Sýningin stendur til 3. nóvemb-
er og er opin daglega kl. 10.30-18. Mál-
verkin eru unnin í blandaö efni, öll á
þessu ári.
Gallerí G. 15
Skólavörðustíg 15,
Jón Axel Björnsson sýnir smámyndir í
hinu nýja Gallerí G. 15. Sýningin stendur
til 19. nóvember og er opin á virkum
dögum kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Sigurþórs
Víðimei 61
er opið alla daga frá kl. 13-18. Myndverk
eftir Sigurþór Jakobsson til sýnis og sölu.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
Kristín Arngrímsdóttir sýnir í Gallerí
Sævars Karls. Myndimar á sýningunni
eru unnar með bambuspenna og tússi.
Kristín hefur tekið þátt í samsýningum
og haldið einkasýningu í bókasafni Mos-
fellsbæjar. Sýningin stendur til 8. nóv-
ember og er opin á verslunartíma kl. 9-18
og 10-16 á laugardögum.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Elías Hjörleifsson hefur opnað sína
fyrstu einkasýningu á íslandi. Á sýning-
unni eru olíumálverk og myndir unnar
með olíustifti og olíukrít. Sýningin er
opin frá kl. 14-19 alla daga nema þriðju-
daga fram til 27. október. Þá opna þær
Kristín Björgvinsdóttir, ína Sóley Ragn-
arsdóttir, Kristín Arngrímsdóttir og
Rannveig Jónsdóttir sýningu á morgun í
Kaffístofu Hafnarborgar. Sýningin verð-
ur opin trá kl. 11-19 til mánaðamóta en
frá og með 1. nóvember breytist opnunar-
timi Hafnarborgar og verður þá opið í
kaffístofu frá kl. 11-18. Sýningin stendur
til 10. nóvember.
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er
opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku-
daga, fimmtudaga, fóstudaga og laugar-
daga.
Katel
Laugavegi 20b
(Klapparstigsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, grafík og leir-
munir.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Einar Hákonarson sýnir málverk í vest-
ursal. ’f vestur- og austurforsal sýnir
Hallsteinn Sigurðsson höggmyndir. í
austursal sýnir Harpa Bjömsdóttir mál-
verk og höggmyndir. Sýningamar standa
til sunnudagsins 27. október og em opnar
kl. 11-18. Veitingabúðin er opin á sama
tíma.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Listinn, gallerí - innrömmun
Síðumúla 32
Uppsetningar eftir þekkta íslenska mál-
ara: ofía, vatnslitir, pastel og grafík. Opið
virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18
og sunnudaga kl. 14-18.
Listasafn Háskóla Islands
í Odda
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega
kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Þar stendur yfir sýning á verkum eftir
Guðmund Thorsteinsson, Mugg og nefn-
ist sýningin „í fótspor Muggs“. Safnið er
opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18
og er aðgangur ókeypis. Veitingastofa
safnsins er opin á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Laugarnesi
Farandssýningin Sigurjón Ólafsson Dan-
mörk - ísland 1991 stendur yfir í lista-
safninu. Hér er um að ræða yfirlitssýn-
ingu á verkum Sigurjóns sem hefur veriö
sett upp á þremur söfnum í Danmörku í
sumar. Sýningin er opin um helgar kl.
14-17.
ListhúsiðSnegla,
Grettisgötu 7
Þar eru listmunir til sýnis og sölu, unnir
af 15 listakonum sem vinna í textíl,
keramik og skúlptúr. Opið mánudaga til
fóstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl.
10-14.
Mílanó,
Faxafeni 11,
Steinþór Marinó Gunnarsson sýnir í
kaffihúsinu Mílanó. Hann sýnir þar olíu-
málverk, pastelmyndir og myndir unnar
með blandaðri tækni. Sýningin er opin
alla virka daga kl. 9-19, laugardaga kl.
9-18 og sunnudaga kl. 13-18.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg
Myndlistarmaðurinn G.R. Lúðvíksson
sýnir á Mokkakaffi. Á sýningunni eru
þrívíð verk, ljósmyndir og £1.
Nýhöfn
Helgi Þorgils Friðjónsson opnar sýningu
á teikningum og vatnslitamyndum í Ný-
höfn á morgun kl. 14-16. Verkin á sýning-
unni eru unnin á tveimur til þremur
árum. Þess má geta að sama dag verður
opnuð í New York sýning á málverkum
hans í Gallery Bess Cutler. Sýningin, sem
er sölusýning, er opin virka daga kl. 10-18
og frá kl. 14-18 um helgar. Lokað á mánu-
dögum. Henni lýkur 13. nóvember.
Norræna húsið
Sýningin „Grænlensk myndlist" stendur
yfir í sýningarsal. Listaverkin eru úr
safni Astri Heilman. Opið daglega ki.
14- 19. í anddyri er fræðslusýning um
Grænland, land og þjóð, og í bókasafni
eru til sýnis grænlenskar bækur frá
Landsbókasafninu í Grænlandi og Det
Gronlandske forlag.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3B,
Á morgun kl. 16 opnar Halldór Ásgeirs-
son myndlistarsýningu í öllum sölum
safnsins. Halldór mun sýna skúlptúra
unna í rekavið. Sýningin er opin alla
daga milli kl. 14 og 18 og stendur til 10.
nóvember.
Sýning í Gerðubergi
Verkið „Mynd“, skúlptúr eftir Sigurð
Guömundsson, er nýuppsett á Torginu
við Gerðuberg. Einnig er sýning á grafík-
myndum eftir hann og fjöldi annarra
myndverka í eigu Reykjavikurborgar. Þá
stendur þar yfir sýningin „Gagn og gam-
an“, verk efíir böm tmnin í listasmiðju
Gagns og gaman í Gerðubergi.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfírði, sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15- 18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu
Þar eru til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og fostudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir
sýningin „Stóra-Borg - fomleifarann-
sókn 1978-1990“. Þar er sögð saga fom-
leifarannsókna á Stóm-Borg undir Eyja-
fjöllum, Rangárvallasýslu, og sýndir
gripir sem þar fimdust. Safnið er opið
alla daga nema mánudaga kl. 11-16.
Myndlistarsýning í
menntamálaráðuneytinu
Myndlistarsýning sunnlenskra lista-
manna stendur yfir í menntamálaráðu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4. Sýningin er opin
alla virka daga kl. 8.45-17 fram til 4. des-
ember.
Menningarstofnun
Bandaríkjanna
Laugavegi 26,
Þar stendur yfir sýning á bandarískum
bókum og tímaritum um umhverfismál.
Á sýningunni era um 380 titlar frá um
80 útgefendum. Viðfangsefni þessara rita,
sem flest em gefin út á árunum 1989-91,
er umhverfismál, séð frá öllum sjónar-
hornum. Sýningin er opin á opnunartíma
Ameríska bókasafnsins kl. 11.30-18 alla
virka daga til 31. október.
Myndlistarsýning
Landssamtakanna
Þroskahjálpar
Landssamtökin Þroskahjálp sýna grafík-
myndir 1 húsnæði sínu að Suðurlands-
braut 22, Reykjavík. Sýningin er haldin
í tilefni af útkomu happdrættisalmanaks
Þroskahjálpar og em myndimar á sýn-
ingunni þær sem prýða almanakið 1992.
Þekktasti listamaður sýningarinnar er
hinn heimsfrægi listamaður Erró sem
hefur gefiö samtökunum þrjár grafík-
myndir á þessu ári. Aðrar myndir á sýn-
ingunni eru eftir vel þekkta íslenska
listamenn. Allar myndimar á sýning-
unni em til sölu. Sýningin er opin dag-
lega til áramóta kl. 15-17.
Eden
Hveragerði
Ásta Guðrún Eyvindsdóttir sýnir grafík-
myndir í Eden.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, simi 24162
Opið daglega kl. 11-17. Þar stendur yfir
sýning á mannamyndum Hallgríms Ein-
arssonar ljósmyndara. Möppúr með ljós-
myndum liggja frammi og einnig em til
sýnis munir og áhöld af ljósmyndastofu
Hallgrims.
Slunkaríki
fsafírði
Á morgun kl. 16 opnar Jan Homan sýn-
ingu á pastelmyndum. Á sýningunni
verða 10 pastelmyndir, allar gerðar síðan
hann kom til Ísafjarðar í byijun árs 1987.
Sýningin er opin fimmtudaga til sunnu-
daga kl. 16-18 til sunnudagsins 24. nóv-
ember.