Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1991, Blaðsíða 11
29
mÍÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBÉR 1991.
Tíska
Hártískan í vetur:
Lokkaflóð
og skarpir
litir
Hártískan í vetur er persónulegri
en oft áður, það er að segja að greiðsl-
an fer eftir stíl hverrar konu. Litir
eru í tón við hinn eðlilega háralit og
mikið um platínuljóst fyrir þær ljósu
og koparrautt ogkastaníubrúnt fyrir
þær dökku.
Töluvert ber á greiðslum þar sem
rúllur eru notaðar til að forma hárið,
stutt eða sítt. Ekki er greitt úr lokk-
unum nema lítils háttar og þeir látn-
ir njóta sín frjálslega um höfuöið.
Permanent nýtur vinsælda aftur og
þá frekar létt og meira til að greiðsl-
an haldist betur í formi. Hárið á að
vera hluti af lífsstíl og fatastíl. Hér
spilar litgreining, rétt förðun og
litaval á fötum inn í.
Hárlitun er margbreyttari nú en
áður og oft notaðir þrír litir saman
í stað þess að heillita með einum lit,
hvort sem hárið er ljóst eða dökkt.
Strípulitanir eru frekar á undan-
haldi.
Kvöldgreiðslan er sótt til tíma
Hollywoodísanna á árunum fyrir og
eftir stríð. Mjúkar bylgjur og gamal-
dags stíll einkennir hárgreiðsluna oft
með fallegum hnútum í hnakkanum
hjá þeim sem hafa sítt hár. Eins eru
íburðarmiklar og rómantískar
lokkagreiðslur áberandi.
Daggreiðslan á fyrst og fremst að
vera þægileg og auðveld í meðförum.
Rúllur eru notaðar til að lyfta og
forma en annars er hárið blásið slétt.
Myndirnar hér á síðunni eru tekn-
ar á sýningu Intercoiffure á íslandi
sem haldin var í Borgarleikhúsinu á
mánudagskvöld. Þær sýna þó aðeins
Hér er koparlitur allsráðandi. Rúllur eru settar í allt hárið og það síðan formað án þess að greitt sé úr lokkunum.
lítið brot af þeim íjölbreytileika sem
þar kom fram því í dag er nánast allt
í tísku og hver finnur þann stíl sem
henni hentar best. Allar fyrirsæturn-
ar eru frá Módelsamtökunum.
-JJ
* Slæður
* Treflar
* Hanskar
* Skartgripir
* Ilmvötn
* Snyrtivöruúrval
Q‘brwrtilman
Fjarðarkaupum
Sími 652770
Þessar eru báðar með litað hár. Stutta hárið er sett mikið upp að aftan en Miklir lokkar eru ráðandi i kvöld-
er fremur slétt að framan. Síða hárið er greitt aftur og hnúturinn lagaður greiðslunni.
til með tilliti til skrautsins. Hér er tekið mið af andlitsfalli viðkomandi.
Auðvelt en glæsilegt. Greiðslur fyrir þær sem þurfa að
vera vel til hafðar dags daglega.
DV-myndir GVA
Fyrir þær sem vilja hafa hárið fremur látlaust en þó
sparilegt. Síða hárið er blásið og innrúllað. Tvær spang-
ir eru til skrauts. Rúllur eru settar allan hringinn á stutta
hárinu en annars er það látið vera slétt.
Charmel
Töfrandi og glœsileg
UNDIRFÖT
Fást aðeins í:
BORGARKRINGLUm], 2. HÆÐ, SIMI 677488
PURli + .VJ7rR.IL
liinw frii
'IzLLEX BETRIX
er ofnitmispráfiid,
ilmefnnltim 0°
med rétt
pH sfrmtio.
Eillllig er i
benni rörn g’j’ii
skú/ilegiim iitanadkoiihmdi
tibrifuiii.
PURE + XATURAL
krei/iin frá
E'LLEX BETRIX, '
ré/tn krewin
Ijrir nllti
se/l/ iiiliit er
nw biid sintj.
i
ELLEN
BETRIX
CGSMETICS
& SKIN CARE
GÆÐAVÖRUR
Á GÓÐU VERÐI
i