Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1991, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1991, Page 6
22 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991. Bíóborgin: Zandalee í byrjun Zandalee kynnumst við hjónunum Zandalee og Thierry Martin. Hjónabandið er að fara í hundana, Thierry dregur sig inn í sjálfan sig og Zandalee finnur þörf hjá sér til prófa eitthvað nýtt. Þess- ari þörf hennar verður fullnægt og vel það þegar hún hittir gamlan elskhuga, Johnny Collins, og líf hennar gjörbreytist upp frá þeirri stundu. Það er óþekkt leikkona, Erika Anderson, sem leikur Zandalee en öllu þekktari leikarar leika eigin- mann hennar og elskhuga, Nichol- as Cage leikur Johnny sem er hæfi- leikamikill listamaður sem ein- göngu hugsar um sjálfan sig. Judge Reynolds leikur eiginmanninn, Thierry, ljóðskáld með brostnar vonir. Nicholas Cage og Judge Reynolds er óþarfi aö kynna, báðir hafa vak- ið athygli á undanförnum árum fyrir góðan leik í nokkrum úrvals- myndum. Erika Anderson er aftur á móti ný stærð og fær hér erfitt hlutverk sem frumraun sína í kvik- myndum. Anderson hefur áður aðeins komið fram í sjónvarps- myndum og lék meðal annars gestahlutverk í Tvídröngum. Leikstjórinn, Sam Pillisbury, er nýsjálenskur og hefur leikstýrt sjö nýsjálenskum kvikmyndum ásamt að leikstýra sjónvarpsþáttum. Hann vakti fyrst athygli í Banda- ríkjunum þegar kvikmynd hans frá 1984, The Quiet Earth, var sýnd þar við nokkrar vinsældir. Hann leik- stýrði síðan breskri sjónvarps- þáttaröð, Heart of the High Co- untry. Þekktasta kvikmynd hans er Starlight Hotel sem hann gerði 1987, hlaut sú mynd afbragðsdóma. Zandalee er fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrir í Bandaríkjunum. Meðal leikara í aukahlutverki er söngvarinn geðþekki með sérstöku röddina, Aaron Neville, og er þetta önnur kvikmyndin sem hann leik- ur í. -HK Nicholas Cage, Judge Reynolds og Erika Anderson leika aðalhlutverkin I Zandalee. Robbie Coltrane kominn í páfabúninginn og umkringdur fagnandi nunn- Milla Jovich og Brian Krause leika hina ungu strandaglópa í Aftur til bláa lónsins. Stjömubíó: Aftur til Bláa lónsins Brooke Shields varð heimsfræg þegar hún lék í Bláa lóninu fyrir rúmum tíu árum síðan en hefur ekki tekist að fylgja vinsældunum eftir. Nú er komin framhaldsmynd, þó ekki sé um beint framhald að ræða enda er Brooke Shields hvergi nærri. Aðalleikaranir í Aftur til bláa lónsins (Return to the Blue Lagoon) eru nú hin unga Milla Jovovich, sem sjónvarpsáhorfendur, eiga að kannast við úr þáttaröðinni um Parker Lewis og Biian Krause. Þau leika Lilli og Richard sem alast upp á óþekktri eyju í Suður-Kyrrahafi. Þau bíða þess stöðugt að þeim verði bjargað en þegar björgin loks berst er hún önnur en þau höföu reiknað með. Aftur til bláa lónsins er að mestu tekin upp á eyjunni Taveuni, einni af fjölmörgu FÍji-eyja. Leikstjóri er Wilham A. Graham sem á að baki fjölmargar sjónvarpsmyndir og kvikmyndir á löngum ferli í Holly- wood. Stjörnubíó mun frumsýna Aftur til bláa lónsins á morgun. -HK Regnboginn: Niður með páfann Breski gamanleikarinn Robbie Coltrane, sem leikur aðalhlutverk- ið í Niður með páfann (The Poe Must Die), er ekki þekktur leikari utan síns heimalands en þar hefur hann skemmt sjónvarpsáhorfend- um um nokkurra ára skeið við miklar vinsældir og oft einmitt ver- ið í prestsbúningi eins og hann klæðist í þessari mynd. Þá má geta að hann lék aðra nunnuna í Nunn- ur á flótta sem Régnboginn sýndi fyrr á þessu ári. í Niður með páfann leikur Colt- rane prest sem fyrir misgripum verður kosinn páfi og er ekkert allt of hrifm af þessari ákvörðun kardí- nálanna í Vatíkaninu en lætur sig hafa það að stjórna kaþólikkum. Hann verður fljótt áskynja að ekki er allt eins og það á að vera í Vatik- aninu og tekur til hendinni þótt ekki sé það beint vel séð af kardí- nálunum sem eru af misjöfnu sauð- arhúsi, meðal annars er fyrrver- andi glæpamaður frá Chicago sem klæðist kardínálaskikkju og hefur sá hugsað sér að taka öll völd í Vatikaninu... Leikstjóri myndarinnar er Peter Richardson og skrifar hann einnig handritið og leikur í myndinni þann sem skipuleggur ferðir páf- ans. Richardson hefur leikstýrt tveimur gamanmyndum áður, Supergrass og Eat the Rich, en er einnig þekktur fyrir stjórn sína á vinsælu sjónvarpsefni í Englandi sem kallast The Comic Strip. Margir þekktir leikarar eru í aukahlutverkum í Niður með páf- ann. Má nefna Beverly D’Angelo, Herbert Lom, Alex Rocco, Paul Bartell og Robert Stephens. -HK Háskólabíó: Hvíti víkingurinn Regnboginn: Án vægöar Frumtitill á Án vægðar, Kickbox- er II: The Road Back, bendir til að myndin sé nokkurs konar fram- haldsmynd. Kickbox er íþrótt sem er blanda af boxi og slagsmálum. Keppendur eru meö boxhanska en nota einnig fætuma í gríð og erg. Án vægðar fjallar um kappa í þess- ari íþrótt og eins og vera í slíkum myndum eru sumir góðir og aðrir vondir. Sakamál og rómantík blandast svo inn í atburðarásina sem nær hápunkti í mikilli Kickboxkeppni þar sem barist er upp á líf og dauða. Aðalhlutverkið leikur Sasha Mitchell sem Dallasáhorfendur ættu að kannast við en hann lék í mörgum þáttum gestahlutverk. Hann hefur að öðru leyti leikið nokkur aukahlutverk í kvikmynd- um. Má þar nefna Death before Dishonor og Spike of Bensonhurst. Auk hans leikur hinn þekkti leik- ari, Peter Boyle, stórt hlutverk í myndinni. _HK Hér er einn boxarinn sem Michael Qissi leikur og er hann vígalegur að sjá. Heimsfrumsýning á kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hvíta vík- ingnum, verður í Háskólabíói í dag, 1. nóvember, klukkan 18. Hvíti vík- ingurinn er mesta stórvirki ís- lenskrar kvikmyndagerðar og stærsta samstarfsverkefni Norður- landanna á þessu sviði. Höfundur sögu og leiktexta og leikstjóri er Hrafn Gunnlaugsson og sjónvarpshandrit vann höfund- ur í samvinnu við Jonathan Rum- bold. Undirbúningur myndarinnar hófst fyrir þremur árum þegar leik- listarstjórar norrænu sjónvarps- stöðvanna ákváðu að fela Hrafni Gunnlaugssyni að skrifa handrit að þáttaröð sem byggöist á íslensk- um sögum um kristnitökuna á Norðurlöndum. Heildarkostnaður við Hvita víkinginn er um 420 mUlj- ónir og er verkiö að hluta til fjár- magnað af einkafyrirtækjum og sjónvarpsstöðvum utan Norður- landa en einnig fjármagnaði Norr- æni sjónvarpssjóöurinn og sjón- varpsstöðvarnar fimm verkið. Hvíti víkingurinn segir frá ungu fólki á tímum mikilla þjóðfélags- breytinga. Hin ævaforna Ásatrú feðranna er á undanhaldi og ný trúarbrögð að ryðja sér til rúms, hinn hvíti siður. Leikurinn hefst í Noregi á dögum Ólafs konungs Tryggvasonar og berst síðan til Is- lands og víða um Norðurlönd. Hvíti víkingurinn er ekki sagnfræðilegt verk eða tilraun til heimildasmíði heldur skáldverk um einstaklinga og örlög þeirra í ölduróti timans. í bakgrunni gerast atburðir sem breyttu framvindu sögunnar. Hvíti víkingurinn er leikinn á ís- lensku. Upptökur fóru fram sumar- ið og haustið 1990. Það sem gerist á Norðurlöndum var tekið upp á vesturströnd Noregs og öll inniat- riði í myndveri í Noregi en myndin var að öðru leyti tekin á íslandi. Alls var kvikmyndað í um 90 daga og í stærstu atriðum voru um 600 þátttakendur. Kvikmyndin er unn- in á 35 mm filmu og hljóðupptaka er í stereo. -ns ■héíMBhíH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.