Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1991, Síða 7
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991.
23
Evrópuleik Vals og Hapoel
ber hæst um þessa helgi
- annars frekar róleg helgi í íþróttunum hér innanlands. Pressuleikur í körfu
Helgin sem í hönd fer er óvenju-
róleg og viðburðasnauö. Aðeins
verður einn leikur í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik vegna Banda-
ríkjaferðar landsliðsins og ekki
verður heldur leikið í 1. deild karla
í handknattleik.
Um helgina ber hæst Evrópuleik
Vals og Hapoel frá ísrael í Evrópu-
keppni meistaraliða í handknatt-
leik en leikurinn fer fram á sunnu-
daginn og hefst í Laugardalshöll-
inni klukkan fimm.
Valsmenn renna nokkuð blint í
sjóinn og erfiðlega hefur gengið að
fá upplýsingar um ísraelska liðið.
Þó er vitað að með liðinu leika þrír
sovéskir leikmenn sem reyndar
eru orðnir ísraelskir ríkisborgarar
og Tékki að auki sem er vinstri-
handarskytta. Forráðamenn Hapo-
el virðast hafa styrkt lið sitt und-
anfarin ár en ef Valsmenn ná fram
eðlilegum leik ætti sigur að vinnast
þótt ekki sé það öruggt fyrirfram.
Fjórir bikarleikir
Bikarkeppni HSÍ heldur áfram um
helgina en á laugardag fara fram
fjórir leikir í bikarkeppni karla. Þá
leika b-hð Gróttu og HKN kl. 14.00,
b-lið Hauka og KA kl. 14.00, b-lið
ÍBV gegn Fram eða KR kl. 14.00 og
kl. 15.15 leika ÍH eða HK gegn FH.
Þrír leikir verða í 2. deild karla i
handknattleik um helgina. Á föstu-
dagskvöld kl. 20.00 leika ÍS og Völs-
ungur í Seljaskóla, Ögri og Völs-
ungur leika á sama stað kl. 14.00 á
laugardag og á sunnudag leika
HKN og Völsungur í Keflavík kl.
14.00.
Einn leikur er á dagskrá í 1. deild
kvenná um helgina. KR og Fram
Hreiðar Hreiðarsson, fyrirliöi Islandsmeistara Njarðvíkinga, sést hér skora í leik gegn Val. Hreiðar verður
leikbanni í kvöld er Njarðvik mætir Þór frá Akureyri á heimavelli sínum í eina úrvalsdeildarleik helgarinnar.
leika í Laugardalshöllinni kl. 21.15
á sunnudagskvöldiö.
Körfuknattleikur
Á laugardag fer fram pressuleikur
í körfuknattleik í Hafnarfirði og
hefst hann kl. 14.00. Þar leika lið
sem íþróttafréttamenn hafa valið
og landsliðið sem er á fórum til
Bandaríkjanna. í liði íþróttafrétta-
manna leika flestir þeirra erlendu
leikmanna sem leika á íslandi í
vetur og meðal þeirra er hinn nýi
leikmaður Þórs frá Akureyri.
Eins og áður sagði verður aðeins
einn leikur í úrvalsdeildinni vegna
Bandaríkjaferðar landshðsins. Um
er að ræða viðureign Njarðvíkinga
og Þórsara í Njarðvík á fostudags-
kvöldið í Njarðvík og hefst leikur
liðanna kl. 20.00.
Þrír leikir fara fram um helgina
í 1. deild karla í körfuknattleik. ÍA
og Reynir leika á Akranesi á fóstu-
dagskvöld kl. 20.00 og á sama tíma
leika í Digranesi Breiðablik og ÍR.
Þriðji leikur helgarinnar er viður-
eign Hattar og Víkverja á laugar-
dag kl. 14.00.
Á laugardag fara fram tveir leikir
í 1. deild kvenna í körfu. Þá mæt-
ast Grindavík og KR í Grindavík
kl. 15.30 og ÍR og Haukar leika í
Seljaskóla kl. 17.00.
Blak
Mótabók frá Blaksambandi íslands
hefur ekki enn litið dagsins ljós og
því erfitt að gera sér grein fyrir
blakleikjum helgarinnar. Þó hefur
það heyrst að ÍS og Þróttur Reykja-
vík eigi að leika á laugardag í 1.
deild karla og fer sá leikur væntan-
lega fram í Hagaskóla.
Sýningar
FÍM-salurinn
v/Garðastræti
Ákveðið hefur verið að framlengja
styrktarsýninguna sem veriö hefur í
FIM-salnum til sunnudags 3. nóvember.
Á sýningunni eru olíu- og akrílmálverk,
vatnslitamyndir, graflk- og höggmyndir
eftir marga þekktustu listamenn lands-
ins. Þeir eru allir félagsmenn í FÍM og
gefa félaginu helming söluverðs verka
sinna. Opið er alla daga frá kl. 14-18.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
opið alla daga vikunnar frá kl. 14-18.
Galleríeinn einn
Skólavörðustíg 4,
Halldóra Emilsdóttir sýnir olíumyndir,
unnar á þessu ári. Hún lauk námi frá
MHÍ 1987 úr málaradeild. Sýningin er
opin alla daga kl. 14-18. Henni lýkur 7.
nóvember.
Gallerí List
Skipholti
Elín Magnúsdóttir myndlistarkona sýnir
málverk. Sýningin stendur til 3. nóvemb-
er og er opin daglega kl. 10.30-18. Mál-
verkin eru unnin í blandað efni, öll á
þessu ári.
Gallerí G. 15
Skólavörðustíg 15,
Jón Axel Bjömsson sýnir smámyndir í
hinu nýja Gallerí Gv15. Sýningin stendur
til 19. nóvember og er opin á virkum
dögum kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Sigurþórs
Víöimel 61
er opið alla daga frá kl. 13-18. Myndverk
eftir Sigurþór Jakobsson til sýnis og sölu.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
Kristín Arngrímsdóttir sýnir í Gallerí
Sævars Karls. Myndimar á sýningunni
em unnar með bambuspenna og tússi.
Kristín hefur tekið þátt í samsýningum
og haldið einkasýningu í bókasafni Mos-
fellsbæjar. Sýningin stendur til 8. nóv-
ember og er opin á verslunartíma kl. 9-18
og 10-16 á laugardögum.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Á morgun kl. 14 opnar Katrín H. Ágústs-
dóttir málverkasýningu. Á sýningunni
verða 40 olíumálverk og er myndefnið
sótt í íslenska náttúru. Sýningin verður
opin frá kl. 12-18 alla daga vikunnar
nema þriðjudaga fram til 17. nóvember.
í kaffistofu Hafnarborgar sýna þær Krist-
ín Björgvinsdóttir, ína Sóley Ragnars-
dóttir, Kristín Arngrímsdóttir og Rann-
veig Jónsdóttb-. Sýningin í kafflstofunni
er opin frá kl. 11-18 og stendur hún til
10. nóvember.
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafniö er
opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku-
daga, funmtudaga, fóstudaga og laugar-
daga!
Katel
Laugavegi 20b
(Klapparstígsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, graíík og leir-
munir.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Laugardaginn 2. nóvember verður opnuð
í vestursal sýning á höggmyndum eftir
ívar Valgarðsson. í austursal opnar
Gunnar Örn sýningu á málverkum og í
austurforsal verður opnuð sýning á ljóð-
um-eftir Jón úr Vör. Kjarvalsstaðir eru
opnir daglega kl. 10-18 og er veitingabúð-
in opin á sama tíma.
Listasafn Einars Jónssonar
Opiö laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Listinn, gallerí - innrömmun
Síðumúla 32
Uppsetningar eftir þekkta íslenska mál-
ara: olía, vatnslitir, pastel og grafik. Opið
virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18
og sunnudaga kl. 14-18.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er dagíega
kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Þar stendur yfir sýning á verkum eftir
Guðmund Thorsteinsson, Mugg, og nefn-
ist sýningin „í fótspor Muggs“. Safnið er
opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18
og er aðgangur ókeypis. Veitingastofa
safnsins er opin á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Laugarnesi
Farandssýningin Sigurjón Ólafsson Dan-
mörk - ísland 1991 stendur yfir í Usta-
safninu. Hér er um að ræða yfirlitssýn-
ingu á verkum Sigurjóns sem hefur verið
sett upp á þremur söfnum í Danmörku í
sumar. Sýningin er opin um helgar kl.
14-17.
Listhúsið Snegla,
Grettisgötu 7
Þar eru Ustmunir til sýnis og sölu, unnir
af 15 Ustakonum sem vinna í textíl,
keramik og skúlptúr. Opið mánudaga til
fóstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl.
10-14.
Mílanó,
Faxafeni 11,
Stemþór Marinó Gunnarsson sýnir 1
kaffihúsinu Mílanó. Hann sýnir þar oUu-
málverk, pastelmyndir og myndir unnar
með blandaðri tækni. Sýningin er opin
aUa virka daga kl. 9-19, laugardaga kl.
9-18 og sunnudaga kl. 13-18.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustig
MyndUstarmaðurinn G.R. Lúövíksson
sýnir á Mokkakaffi. Á sýningunni eru
þrívíð verk, ljósmyndir og fl.
Nýhöfn
Helgi ÞorgUs Friðjónsson sýnhr teikning-
ar og vatnsUtamyndir í Nýhöfn. Verkin
á sýningunni eru unnin á tveimur til
þremur árum. Þess má geta að í New
York hefur einnig verið opnuö sýning á
málverkum hans í GaUery Bess Cutler.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga kl. 10-18 og frá kl. 14-18 um
helgar. Lokað á mánudögum. Henni lýk-
ur 13. nóvember.
Norræna húsið
Sýningin „Grænlensk myndlist" stendur
yfir í sýningarsal. Listaverkin eru úr
safni Astri Heilman. Opið daglega kl.
14- 19. í anddyri er fræöslusýning um
Grænland, land og þjóð, og í bókasafni
eru tíl sýnis grærdenskar bækur frá
Landsbókasafninu í Grænlandi og Det
Gronlandske forlag.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3B,
HaUdór Asgeirsson sýnir skúlptúra unna
í rekavið í öllum sölum safnsins. Sýning-
in er opin aUa daga miUi kl. 14 og 18 og
stendur tíl 10. nóvember.
Sýning í Gerðubergi
Verkið „Mynd“, skúlptúr eftir Sigurð
Guðmundsson, er nýuppsett á Torginu
við Geröuberg. Einnig er sýning á grafík-
myndum eftir hann og fjölda annarra
myndverka í eigu Reykjavíkurborgar. Þá
stendur þar yfir sýningin Gagn og gam-
an, verk eftir böm, unnin í Ustasmiðju
Gagns og gamans í Gerðubergi.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði, sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15- 18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu
Þar eru til sýnis og sölu postuiinslág-
myndir, málverk og ýmsir Utlir hlutir.
Opið er á verslunartima þriöjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
í Bogasal Þjóðminjasafnsms stendur yfir
sýningin „Stóra-Borg - fomleifarann-
sókn 1978-1990“. Þar er sögð saga forn-
leifarannsókna á Stóm-Borg undir Eyja-
fjöUum, RangárvaUasýslu, og sýndir
gripir sem þar fundust. Safnið er opiö
aUa daga nema mánudaga ki. 11-16.
Myndlistarsýning í
menntamálaráðuneytinu
MyndUstarsýning sunnlenskra Usta-
manna stendur yfir í menntamálaráðu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4. Sýningin er opin
aUa virka daga kl. 8.45-17 fram til 4. des- *
ember.
Myndlistarsýning
Landssamtakanna
Þroskahjálpar
Landssamtökin Þroskahjálp sýna grafik-
myndir í húsnæði sínu að Suðurlands-
braut 22, Reykjavik. Sýningin er haldin
í tilefni af útkomu happdrættisalmanaks
Þroskahjálpar og em myndirnar á sýn-
ingunni þær sem prýða almanakiö 1992.
Þekktasti Ustamaður sýningarinnar er
hinn heimsfrægi listamaður Erró sem
hefur gefið samtökunum þrjár grafik-
myndir á þessu ári. Aðrar myndir á sýn-
ingunni eru eftir vel þekkta íslenska
Ustamenn. AUar myndimar á sýning-
unni em tU sölu. Sýningin er opin dag-
lega tU áramóta kl. 15-17.
Kynning á Ljósmyndaranum
Jóhannesi Long
Þessa dagana stendur yfir í Kringlunni
kynning á Ljósmyndaranum - Jóhannesi
Long. Sýndar em 15 stórar ljósmyndir
sem em sýnishorn af því sem fram fer á
Ljósmyndastofunni. Hér er um aö ræða
bæði Ut- og svarthvítar myndir með
margs konar frágangi. Tilgangurinn með
þessari kynningu er aö sýna að ljósmynd
getur verið stofustáss. Kynningin stend-
ur yfir í eina viku.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162
Opið daglega kl. 11-17. Þar stendur yfir
sýning á mannamyndum HaUgríms Em-
arssonar ljósmyndara. Möppur með Ijós-
myndum Uggja frammi og einnig em tíl
sýnis munir og áhöld af ljósmyndastofu
HaUgríms.
Slunkaríki
ísafirði
Jan Homan sýnir 10 pastelmyndir, allar •
gerðar síðan hann kom tíl Isafjarðar í
byijun árs 1987. Sýningin er opin fimmtu-
daga til sunnudaga kl. 16-18 til sunnu-
dagsins 24. nóvember.