Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1991, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1991.
17
íattleik. Booker hefur til þessa skorað 176
DV-mynd GS
Ingimundarson, Tindastóli, er iðnastur is-
iganna að koma boltanum í körfuna.
íþróttir
Guðmundur er í
Enskir
stúfar
góðu leikformi
- kemur til greina í landsliðið, segir Ásgeir Eliasson
„Guðmundur Torfason lék vel
með liöi sínu um helgina. Hann var
að mínu mati besti maður St. Mirr-
en í leiknum og eftir að hafa skoðaö
hann kemur hann vel til greina í
landsliðshópinn gegn Frökkum í
París 20. nóvember næstkomandi,“
sagði Ásgeir Elíasson, landsliðs-
þjálfari í knattspymu, í samtali við
DV í gærkvöldi. Ásgeir fór utan til
Skotlands og fylgdist með Guð-
mundi í leik í skosku úrvalsdeild-
inni.
„Guðmundur virðist vera í góðu
formi þó aöeins vanti upp á snerp-
una. Það er ósköp eðlilegt því ekki
era nema fimm vikur síðan hann
hóf að leika af fullum krafti með
liðínu eftir meiðsli. Hann vann vel
í leiknum og spil liðsins fór að
mestu í gegnum Guðmund. Mark-
ið, sem hann skoraði í leiknum, var
sérlega fallegt, skorað beint úr
aukaspymu. Ég ræddi við Guð-
mund eftir leikinn gegn Mother-
well og sagðist hann aðspurður
vera tilbúinn að leika gegn Prökk-
um ef til hans yrði leitað," sagði
Ásgeir Elíasson.
-JKS Guðmundur Torfason.
Gott gengi norskra liða
- á Evrópumótunum í handknattleik
Norska liðið Runar, sem sló ÍBV
út úr Evrópukeppni bikarhafa í
handknattleik, vann fyrri leik sinn
gegn svissneska félaginu RTV Basel
í 2. umferð, 20-18. Basel hafði eins
marks forskot í leikhléi, 8-9. Marka-
hæstir í liði Runar vom Are Ruud
og Bard Tonning, báðir með 4 mörk.
Leikurinn fór fram á heimavelli Run-
ar í Noregi.
Annað norskt lið, Sandeíjord, vann
fyrri leik sinn gegn Krasnodar, 24-20,
í IHF-keppninni en leikurinn fór
einng fram í Noregi. Sandeíjord hafði
eins marks forystu á sovéska liðið í
hálfleik, 12-11. Sergej Demidov skor-
aði 8 mörk fyrir norska liðið og John
Petter Sando skoraði 6. -GH
United mætir Oldham í 16-liða úrslitum
Dregið hefur verið í fjórðu umferð
ensku deildarbikarkeppninnar í
knattspyrnu. Þetta eru 16-liða úrslit
en nokkrir leikir em þó enn eftir í
3. umferð þar sem fyrri leikir enduðu
með jafntefli. Drátturinn í 4. umferð
lítur annars þannig út:
Norwich-West Ham
Nott.Forest-Sheff.Wed/Southampton
Peterborough-Liverpool/Port Vale
Middlesb.-Man.City/QPR
Coventry-Tottenham
Manchester United-Oldham
Swindon-Birmingham/C.Palace
Everton-Leeds
Leikirnir eiga að fara fram í fyrstu
viku desembermánaðar.
-GH
Gísli Guömundsson, DV, Engiandú
Úrslitaleikurinn á
heimsmeistaramótinu
í rugby á milli Eng-
lendinga og Ástrala,
sem endaði með sigri Ástrala,
12-6, varð þess valdandi að að-
sókn á knattspymuleiki helgar-
innar var mjög léleg. Til dæmis
mættu aðeins 43 þúsund áhorf-
endur á leik Manchester United
og Sheflield United á Old Trafford
en þetta er slakasta mæting á
heimaleik United á þessu keppn-
istímaþili.
Guðni fær góða dóma
Guðni Bergsson fékk mjög góða
dóma fyrir frammistööu sína með
Tottenham gegn Sheffield Wedn-
esday í ensku blöðunum á sunnu-
daginn. í Sunday Telegraph er
sagt að Graham Taylor, landsl-
iðsþjálfari Englendinga, hafi
komið til að líta á framherja hð-
anna, þá Gary Lineker og David
Hirst. Graham sá litið til þeirra,
enda hélt Guðni Hirst niðri og
Anderson, bakvörður Wed-
nesday, sá um Lineker. Leikur-
inn endaði með markalausu jafn-
tefli.
Leikmenn Leeds
sendir í frí
Howard Wilkinson, fram-
kvæmdastjóri Leeds United, var
ekki ánægður með leik sinna
manna gegn Wimbledon um helg-
ina. Leikmönnum liðsins var fyr-
irskipað að taka sér algjörlega frí
frá knattspyrnu í fimm daga.
Bilfy Bremner, fyrrum feikmað-
ur Leeds, er hins vegar búinn að
láta af störfum sem fram-
kvæmdastjóri Doncaster, enda er
liðið í neðsta sæti 4. deildar.
Fríðrik til ÍBV
- mun verja mark liðsins næsta sumar
Knattspyrna:
Hörður þjálfar
Skallagrim
Einar Pálsson, DV, Borgamesi:
Hörður Jóhannesson frá Akra-
nesi var í gær ráðinn þjálfari 3.
deildar liðs Skallagríms í knatt-
spyrnu fyrír næsta tímabil. Hann
tekur við af Sigurði Halldórssyni,
sem hefur þjálfað liðiö undanfar-
in þrjú ár. Hörður lék um árabil
með ÍA og var síðan aðstoðar-
þjálfarí liðsins um skeið. Hann
mun ekkí Jeika með Skallagrími
sjálfur.
Friðrik Friðriksson ákvað í gær-
kvöldi að ganga til liðs við 1. deildar-
lið Eyjamanna í knattspymu. Friðrik
hefur undanfarin tvö ár leikið með
Þór frá Akureyri og þar áður með
danska liðinu B-1909 og Fram.
Engum blöðum er um það að fletta
að Friðrik styrkir Eyjaliðið til muna
í 1. deildinni næsta sumar enda á
ferðinni mjög sterkur markvörður.
Friðrik hefur undanfarið verið vara-
markvörður íslenska landshðsins í
knattspymu.
Gengið verður frá félagaskiptunum
um næstu helgi.
„Það er alveg ljóst að koma Frið-
riks til félagsins kemur til með að
styrkja okkur mikið og við fógnum
henni,“ sagði Jóhannes Ólafsson,
formaður knattspyrnudeildar ÍBV, í
samtali við DV í gærkvöldi.
-JKS
Coppell fékk
uppreisn æru
Enginn var eins ánægður eftir
leik Liverpool og Crystal Palace
og Steve Coppell, framkvæmda-
stjóri Palace. Fyrir tveimur árum
kom Palace í heimsókn á Anfield
Road og tapaði, 9-0. Núna eru
breyttir tímar og 1-2 sigur Palace
var jafnframt fyrsta tap Liver-
pool á heimavelli sínum á þessu
keppnistímabili.
Gordon til Rangers
Glasgow Rangers hefur keypt
Dale Gordon, leikmann Norwich,
fyrir 1,2 milljónir punda. Gordon
er ætlað að fylla í skarðið sem
Trevor Steven skildi eftir þegar
hann fór til Marseifle í Frakk-
landi í byrjun tímabilsins.
Þrír leikir í 1. deild í kvöld
Þrír leikir fara fram í 1. deild karla
á íslandsmótinu í handknattleik í
kvöld. Stjarnan og ÍBV leika í
Garðabæ klukkan 20.30, í Kaplakrika
eigast við FH og HK klukkan 20 og á
sama tíma leika Valur og Grótta á
Hlíðarenda.
Stjörnumenn eru í 3. sæti með 7
stig en bikarmeistarar ÍBV hafa að-
eins 1 stig en eiga tvo frestaða leiki
til góða. Þetta verður án efa hörku-
leikur. Bæði lið eru þekkt fyrir að
leika léttan og skemmtilegan hand-
knattleik og víst er að Eyjamenn
koma í Garðabæinn til þess að vinna
sinn fyrsta leik á þessu Islandsmóti.
FH-ingar eru í efsta sæti og hafa
unnið alla 5 leiki sína til þessa. Liðið
er geysflega sterkt og leikreynt og
þeir eru margir sem spá liðinu sigri
á mótinu. HK-strákarnir hafa komið
á óvart. Lið þeirra kom upp úr 2.
deild og eftir 4 leiki er liðið með 5
stig.
Valsmenn taka á móti Gróttu-
mönnum á Hlíðarenda. Valsmönnum
hefur ekki vegnað vel á íslandsmót-
inu, hafa þrjú stig og eru í áttunda
sæti að loknum fjórum leikjum.
Grótta hefur sama stigaíjölda í
níunda sætinu en hefur leikið fimm
leiki. í 1. deild kvenna leika ÍBV og
Valur og fer leikurinn fram í Vest-
manneyjum og hefst klukkan 20.
-GH/JKS
Robson hættur
með landsliðinu
Bryan Robson, leikmaður Manc-
hester United, tilkynnti í gær að
hann væri endanlega hættur að
leika með enska landsliðinu.
Hann skýrði frá þessu eftir að
ljóst var að Graham Taylor haíði
ekki valið hann í hópinn fyrir
Evrópuleikinn þýðingarmikla
gegn Pólverjum í næstu viku.
Taylor valdi heldur ekki Chris
Waddle, en þeir Robson og
Waddle voru báðir í liðinu sem
vann Tyrki, 1-0, á dögunum.
Fjórir nýliðar era í hópnum,
Andy Gray og Tony Daley frá
Aston Vifla, Keith Curle frá
Manchester City og Andy Sinton
frá QPR.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir: Chris Woods, Dave
Seaman. Varnarmenn: Lee Dix-
on, Stuart Pearce, Tony Dorigo,
Paul Parker, Gary Mabbutt, Gary
Pallister, Keith Curle, Des Walk-
er. Miðjumenn: Dave Batty, Geoff
Thomas, Andy Gray, Paifl Stew-
art, David Platt, David Hirst.
Framherjar: Alan Smith, Peter
Beardsley, Ian Wright, Tony Da-
ley, Gary Lineker, Paul Merson,
Andy Sinton.
Nýttmet í ítalska boltanur n
- atta leikmenn reknir af leikvelli um helsana
Nýtt met var sett í ítölsku 1. velli. í sjónvarpsupptöku frá leikn- skrekkinn. Aimar frægur knatt-
deildinni í knattspyrnu á sunnu- um sást að línuvörðurinn fór spyrnumaöur fékk að lítí rauða
daginn. Alls vora 8 leikmenn rekn- mannaviflt en dómari leiksins fór spjaldiö. Það var Enzo Schi fo, leik- inn rei- viljandi
il dl VclU X UcXiClliXlXl. Hollendingurinn Marco Van vllu aDvHvUIlgU IXðllS. ”0.1 SíifeUl IHUUUx 1 UlillO, u^ IvivK IXc hann Basten hafa slegið til eins supassann fyrir að sparka
Basten frá AC Milan var einn leikmanns Roma en hið rétta er að í höfuð markvarðar Inter Milano
þeirra og á þeim bæ eru menn allt það var Aldo Serena, sem kom ínn og á hann yilr höföi sér h< ikkurra
annað en ánægöir með þá ákvörð- un dómarans að vísa honum af á sem varamaöur í liöi Milan, sem leikja bann fyrir þetta ljót, gerði það og hann slapp því meö i brot. -GH