Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1991, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1991.
23
íþróttir helgarinnar:
Leik Víkings og
Avidesa ber hæst
- fer fram í nýja íþróttahúsi Víkings klukkan 15.30 á morgun
Stóri viðburðurinn í íþróttum
helgarinnar er leikur Víkins og
Alzira Avidesa í UEFA-keppninni í
handknattleik. Handboltinn er
annars fyrirferðarmikill í íþróttum
helgarinnar og mest um að vera í
þeirri íþrótt um helgina.
Tekst Víkingum að
slá Avidesa úr keppni?
Leikur Víkinga og Avi-
desa fer fram á laugar-
daginn í hinu nýja og
glæsilega íþróttahúsi
Víkings í Fossvogi og hefst hann
klukkan 15.30. Fyrri leik liðanna,
sem fram fór á Spáni, lauk meö
sigri Avidesa, 30-26, og því ætti
fiögurra marka munur að nægja
Víkingum til að slá spænska liðið
úr keppni þar sem svo mörg mörk
voru skoruð á Spáni. Því hefur oft
verið haldiö fram að íslenskir
áhorfendur á handboltakappleikj-
um sé þeir bestu i heimi og nú er
gott tækifæri til að sanna það. Með
þeirra hjálp á Víkingur góða mögu-
leika á að komast áfram í 8-liða
úrslit keppninnar.
Valsmenn leika gegn ísraelska
hðinu Hapoel á laugardaginn. Leik-
urinn fer fram í ísrael og hefst að
íslenskum tíma klukkan 18.30. Val-
ur fer með fimm marka mun í far-
teskinu og því eru góðir möguleik-
ar á að tvö íslensk liðið komist í
8-liða úrslit á Evrópumótunum.
Fjórir leikir
M.deild karla
íslandsmótinu í 1. deild karla í
handknattleik verður framhaldið
Það mun mikið mæða á Birgi Sigurðssyni línumanninum snjalla í Víkingsliðinu þegar Víkingar mæta Avidesa
i Evrópukeppninni í handknattleik á morgun. Birgir er hér í kunnuglegri stöðu i leik gegn KA fyrr í vetur.
DV-mynd GS
um helgina. í kvöld eru tveir leik-
ir. Selfoss og UBK leika á Selfossi
kiukkan 20 og í Vestmannaeyjum
tekur ÍBy á móti Haukum úr Hafn-
arfirði. Á laugardaginn eru tveir
leikir klukkan 16.30. HK og Stjarn-
an eigast við í Digranesi og Grótta
tekur á móti KA. Á sunnudaginn
leika Fram og FH í Laugardalshöll.
í 1. deUd kvenna eru tveir leikir
í kvöld. Klukkan 18.30 leiða Ár-
mann og Haukar saman hesta sína
í Höllinni. Strax á eftir leika Vík-
ingur og ÍBV. Á sunnudaginn
klukkan 15 leika í LaugardalshöU
KR og FH.
í 2. deild karla mætast Ármann
og Völsungur klukkan 21 í Laugar-
dalshöll. Á laugardag fara Völs-
ungar til Hafnarfjarðar og leika
gegn ÍH klukkan 20 í íþróttahúsinu
við Strandgötu. Á sunnudag er
hörkuleikur á dagskrá en þá leika
HKN og Afturelding klukkan 20 í
íþróttahúsinu í Keflavík.
Körfubolti
Ekkert er leikið í úrvals-
deildinni vegna keppnis-
ferðar landsliðsins til
Bandaríkjanna. í 1. deUd
karla er einn leikur í kvöld. UBK
og Höttur leika í Digranesi klukkan
20. Á laugardag mæta Hattarmenn
liði ÍR í Seljaskóla klukkan 14. Á
sunnudaginn leika í Sandgerði
klukkan 17 Reynir og UBK.
í 1. deUd kvenna er aðeins einn
leikur á dagskrá. Það er leikur ÍBK
og UMFG í Keflavík klukkan 18 á
sunnudaginn.
íslandsmót
íkarate
íslandsmótið í karate,
kumite, fer fram í
íþróttahúsi Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti á
laugardaginn og stendur keppnin
yfir frá klukkan 14-16. Undanúr-
slitin fara fram í kvöld í íþróttahús-
inu Ásgarði í Garðabæ klukkan
20-22. Keppnisgreinar verða: Kum-
ite karla -65 kg, -73 kg, -80 kg og
+ 80 kg og í tveimur opnum flokk-
um með mismunandi keppnisfyrir-
komulagi. Kumite kvenna, opinn
flokkur.
-GH
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7
Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk,
grafík og myndir, unnar í kol, pastel og
olíu, í sýningarsal sínum að Stangarhyl
7. Opið virka daga kl. 12-18. Aðrir timar
eftir samkomulagi.
Árbæjarsafn
Opið eftir samkomulagi. Upplýsingar í
síma 84412.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í safni Ásgríms Jónssonar eru nú sýnd
26 verk. Mörg verkanna, sem bæði eru
unnin í olíu og með vatnslitum, eru frá
árunum 1905-1930 og eru þau einkum frá
Suðurlandi. Safnið er opið daglega nema
mánudaga kl. 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Sigtúni
Þar stendur yfir sýning sem ber yfir-
skriftina Bókmenntirnar í list Ásmundar
Sveinssonar. Jafnframt hefur verið tekin
í notkun ný viðbygging viö Ásmundar-
safn. Safhið er opið frá kl. 10-16 alla daga.
FÍM-salurinn
v/Garðastræti
Þórdís Rögnvaldsdóttir opnar málverka-
sýningu á morgun kl. 14. Myndirnar eru
unnar með olíu á hördúk og eru allar
utan ein málaðar á þessu ári. Sýningin
stendur til 24. nóv. og er opið frá kl. 14-18.
Fold, listmunasala,
Austurstræti 3
Nú stendur yfir kynning á verkum Kjart-
ans Guðjónssonar. Á kynningunni eru
liðlega tuttugu myndir. Einnig hanga
uppi oliu-, vatnslita-, pastel- og grafík-
myndir eftir þekkta íslenska listamenn.
Fold er opið á laugardag kl. 10-18 og
sunnudag kl. 14-18.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Opiö alla daga vikunnar frá kl. 14-18.
Gallerí einn einn
Skólavörðustíg 4,
Á morgun kl. 15 opnar Sigríður Ásgeirs-
dóttir sýningu á lágmyndum unnum í
gler. Sýningin ber heitið „Án orða“. Sýn-
ingin stendur til 21. nóvember og er opin
alla daga kl. 14-18.
Gailerí List
Skipholti
Opiö daglega kl. 10.30-18.
GalleríG. 15
Skólavörðustíg 15,
Jón Axel Bjömsson sýnir smámyndir í
hinu nýja Gallerí G. 15. Sýningin stendur
til 19. nóvember og er opin á virkum
dögumkl. 10-18 oglaugardagakl. 11-14.
Gallerí Sigurþórs
Víðimel 61
er opið alla daga frá kl. 13-18. Myndverk
eftir Sigurþór Jakobsson til sýnis og sölu.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Katrín H. Ágústsdóttir sýnir 40 olíumál-
verk og er myndefnið sótt í íslenska nátt-
úru. Sýningin er opin frá kl. 12-18 alla
daga vikunnar nema þriöjudaga fram til
17. nóvember. í kaffistofu Hafnarborgar
sýna þær Kristín Björgvinsdóttir, Ina
Sóley Ragnarsdóttir, Kristin Arngríms-
dóttir og Rannveig Jónsdóttir. Sýningin
í kaffistofunni er opin frá kl. 11-18 og
stendur hún til 10. nóvember.
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er
opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku-
daga, fimmtudaga, fóstudaga og laugar-
daga.
Katel
Laugavegi 20b
(Klapparstigsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, grafik og leir-
munir.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
í vestursal stendur yfir sýning á högg-
myndum eftir ívarV cdgarðsson. í austur-
sal sýnir Gunnar Öm málverk og í aust-
urforsal stendur yfir sýning á ljóðum eft-
ir Jón úr Vör. Kjarvalsstaðir eru opnir
daglega kl. 10-18 og er veitingabúðin opin
á sama tíma.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Listinn, gallerí - innrömmun
Síðumúla 32
Uppsetningar eftir þekkta íslenska mál-
ara: olía, vatnslitir, pastel og grafík. Opið
virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18
og sunnudaga kl. 14-18.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega
kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Sunnudaginn 10. nóvember lýkur sýn-
ingunni „Úr myndaheinú Muggs“ sem
veriö hefur í Listasafni íslands undan-
fama tvo mánuði. Sýningunni átti að
ljúka 3. nóvember en var framlengd til
nk. sunnudags vegna gífurlegrar aðsókn-
ar og fjölda óska. Þá stendur einnig yfir
sýning á ljósmyndaverkum eftir Sigurð
Guðmundsson en henni lýkur 17. nóv-
ember. Listasafnið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 12-18 og er aðgangur
ókeypis. Kaffistofan er opin á sama tíma.
Á sunnudaginn kl. 15 verður leiðsögn um
sýningu Muggs í fylgd sérfræðings.
Listasafn Sigurjóns
Laugarnesi
Farandssýningin Sigurjón Ólafsson Dan-
mörk - ísland 1991 stendur yfir í lista-
safninu. Hér er um að ræða yfirlitssýn-
ingu á verkum Sigurjóns sem hefur verið
sett upp á þremur söfnum í Danmörku í
sumar. Sýningin er opin um helgar kl.
14 17.
Listhúsið Snegla
Grettisgötu 7
Þar em listmunir til sýnis og sölu, unnir
af 15 listakonum sem vinna í textíl,
keramik og skúlptúr. Opið mánudaga til
fóstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl.
10-14.
Mílanó,
Faxafeni 11,
Steinþór Marinó Gunnarsson sýnir í
kaffihúsinu Mílanó. Hann sýnir þar olíu-
málverk, pastelmyndir og myndir unnar
með blandaðri tækni. Sýningin er opin
alla virka daga kl. 9-19, laugardaga kl.
9-18 og sunnudaga kl. 13-18.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg
Myndhstarmaðiuinn G.R. Lúðvíksson
sýnir á Mokkakaffi. Á sýningunni em
þrívlð verk, ljósmyndir og fl.
Nýhöfn
Helgi Þorgils Friðjónsson sýnir teikning-
ar og vatnslitamyndir í Nýhöfn. Verkin
á sýningunni em unnin á tveimur til
þremur árum. Þess má geta að í New
York hefur einnig verið opnuð sýning á
málverkum hans í Gallery Bess Cutler.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga kl. 10-18 og frá kl. 14-18 um
helgar. Lokað á mánudögum. Henni lýk-
ur 13. nóvember.
Norræna húsið
í dag kl. 18 verður opnuð sýning í and-
dyri hússins á grafíkverkum eftir Mattias
Fagerholm. Sýningin verður opin dag-
lega kl. 9-19, nema sunnudaga kl. 12-19.
Henni lýkur 24. nóvember. Á morgun kl.
15 verður opnuð sýning í sýningarsölum
á málverkum og teikningum eftir sænska
myndlistarmanninn Carl Fredrik Hill.
Sýningin verður opin daglega kl. 14-19
og stendur til 8. desember.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3B,
Halldór Ásgeirsson sýnir skúlptúra,
unna í rekavið, í öllum sölum safiisins.
Sýningin er opin alla daga milli kl. 14 og
18 og stendur til 10. nóvember.
Sýning í Gerðubergi
Verkið „Mynd“, skúlptúr eftir Sigurð
Guðmundsson, er nýuppsett á Torginu
við Gerðuberg. Einnig er sýning á grafík-
myndum eftir hann og fjölda annarra
myndverka í eigu Reykjavíkurborgar. Þá
stendur þar yfir sýningin Gagn og gam-
an, verk eftir böm, unnin í listasmiðju
Gagns og gamans í Gerðubergi.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði, sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu
Þar eru til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir
sýningin „Stóra-Borg - fomleifarann-
sókn 1978-1990“. Þar er sögð saga fom-
leifarannsókna á Stóm-Borg undir Eyja-
fjöllum, Rangárvallasýslu, og sýndir
gripir sem þar fundust. Safnið er opið
alla daga nema mánudaga kl. 11-16.
Myndlistarsýning í
menntamálaráðuneytinu
Myndlistarsýning sunnlenskra lista-
manna stendur yfir í menntamálaráöu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4. Sýningin er opin
alla virka daga kl. 8.45-17 fram til 4. des-
ember.
Slunkaríki
Isafirði
Jan Homan sýnir 10 pastelmyndir, allar
gerðar síðan hann kom til Isaijarðar í
byijun árs 1987. Sýningin er opin fimmtu-
daga til sunnudaga kl. 16-18 til sunnu-
dagsins 24. nóvember.