Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Blaðsíða 2
36 Indíánamir Hvaö eru margir indíánar aö fela sig fyrir kúrekunum tveimur? Sendið svariö til: Barna-DV. Þessa mynd teiknaði Agnes Björk Guðmundsdóttir, Vallholti 17, Vopna- firði. Myndin er af Rögnu Lind, systur Agnesar Fannar Örn Hermannsson, 8 ára, Engihlíð 22, Ólafsvík, teiknaði þessa fallegu mynd. Elskuamma! tViö erum hérna tvær vinkonur sem eigum við tvö stór vandamál aó glíma. Allir strákamir í bekknum ganga með grasið í skónum á eftir annarri okkar. En hún vill ekki sjá þá frekar en köngulær! En aftur á móti er hún hrifm af strák sem er einu ári eldri en við. Hann er ekki með neinni stelpu og er ekki vitað til þessa að hann hafi nokkru sinni verið hrifinn. Þar af leiðandi lítur hann ekki við henni. Hvað getur hún gert? Á hún að segja honum að hún sé hrifm af honum? Og hvað á hún að segja við hina strákana án þess að særa þá? Jæja, nú víkjum við að hinu vandamálinu. Það er þannig að hin er mjög háð áfengi. Hún drekkur um hverja helgi og jafnvel stundum á virkum dögum. Hún býr þessa stundina hjá afa sínum og hann útvegar henni alltaf áfengi í laumi fyrir að gera heimilisstörfm. Þannig er að hún er ofbeldishneigð þegar hún er drukkin, en þegar hún er ódrukkin er hún mjög mótfallin ofbeldi. Hvað á hún að gera? Hún hefur reynt að hætta, en það tókst ekki. Ætti hún að reyna aftur? Segðu okkur, elsku amma, hvað við getum gert? í von um birtingu! Hipparnir. Kæru „Hippar“! Fyrra vandamáhð er alls ekki svo alvarlegt. í raun er það ekki vandamál! Stúlkan á bara að gleðjast yfir því hversu vinsæl hún er í sínum bekk. Hún þarf ekki að vera með nein- ar yfirlýsingar við piltana í bekknum hvort hún sé hrifm af þeim eða ekki. Eftir skrift- inni að dæma eruð þið ungar að árum, kannski svona um fermingu, og þeim aldri er eðlilegt að vera skotin í einum í dag og öðrum á morgun! Látið ykkur nægja það og talið um piltana hvor við aðra, en ég ráðlegg ykkur að vera ekki að segja strákunum hvort þið séuð hrifnar af þeim eða ekki! Verið bara vinir og kunningjar og þá er miklu skemmtilegra að lifa! Hitt vandamálið er miklu alvarlegra. Vinkona þín verður þegar í stað að leita sér hjálp- ar. Þið segið að hún geti ekki hætt að drekka án aðstoðar og því verðið þið að gera eitt- hvað strax áður en það er um seinan. Ef enginn úr flölskyldunni getur hjálpað, þá ráð- legg ég ykkur eindregið að hafa strax samband við Rauða krossinn sem hefur aðstoð við unglinga allan sólarhringinn. Síminn þar er 622266 Bestu kveðjur. Ykkar amma. Ég safna bréfsefnum, minnisblöðum, servíettum og öllu með Simpson Qölskyldunni, límmiðum, aðallega glans og loðnum og sjálflýsandi. í staðinn læt ég glansmyndir, úr- klippur og plaköt með frægu fólki, frímerki og margt, margt fleira. Birna Pálsdóttir, Brekkugötu 31, 470 Þingeyri. Ég safna límmiðum, bréfsefnum og vil gjarnan skipta við aðra safnara. Kolbrún ída Harðardóttir, 230 Keflavík. (Gleymdi að skrifa heimilisfang og verður því að skrifa aftur!) Golfkúlurnar Gummi er búinn að týna öllum golfkúlunum sínu! Hvað getur þú fundið margar golfkúlur á myndinni? Sendið svarið til: Barna-DV. Ljóð um Lukku-Láka Syngja vil ég um sveininn káta. Sá er ekki stór, sem við köllum Lukku-Láka létt er honum spor. Sendið alla byssubófa beina leið í Hel. Slunginn er sem sléttutófa og sleppur alltaf vel. Leikur hann sér með bandittana að beita hörðu og brytja þá í spað. Ferlegir og fýlulegir Qórir Daltónar. Ógeðslegir og ófrýnilegir erkirummungar. Skjóta, banka, brjóta og svalla, bölvað illþýðið. En það er Lukku-Láka að þakka að léttar öndum við. Táplega honum tókst að pakka þeim inn í tugthúsið. Ef þig draga lærdóm langar litli, vinurminn. Ljótir eru þeir lúsafangar líkstu aldrei þeim. Taktu þér fremur til fyrirmyndar framtakssaman hund. Með vitið meira en í kolli kindar kannski stund og stund. Valinkunnur að valinna dómi vökull í embætti. Vertu alltaf allra sómi eins og vattati! Helgi Valur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.