Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1991, Side 5
20
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991.
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991.
21
Messur
Árbæjarkirkja: Guösþjónusta kl. 11.
Barnaguösþjónusta á sama tíma. Kirkju-
bílinn fer um Árbæinn fyrir og eftir
bamaguðsþj ónustuna.
Miövikudagur: Fyrirbænaguðsþjónusta í
Árbæjarkirkju kl. 16.30. Prestar Árbæj-
arkirkju taka á móti fyrirbænaefnum. Sr.
Guömundur Þorsteinsson.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guösþjónusta kl. 14 meö þátttöku Arn-
firðingafélagsins í Reykjavík sem hefur
kirkjukaffi í safnaöarheimili Áskirkju
eftir messu. Ámi Bergur Sigurbjörnsson.
Fimmtudagur: Biblíulestur í safnaöar-
heimilinu kl. 20.30 og kvöldbænir í kirkj-
unni aö honum loknum.
Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guösþjónusta kl. 14. Organisti Jak-
ob Hallgrímsson. Aö lokinni guðsþjón-
ustu verður kaffisala kirkjukórsins.
Bænaguösþjónusta þriðjudag kl. 18.30.
Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11. Ama
og Gunnar. Guðsþjónusta kl. 14. Einsöng-
ur, Stefanía Valgeirsdóttir. Organisti
Guöni Þ. Guðmundsson. Sr. Ingólfur
Guðmundsson messar.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Dómkórinn
syngur. Organisti Marteinn H. Friðriks-
son. Sr. Hjalti Guðmundsson. Bamastarf
á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá
Bám Elíasdóttur. Bænaguðsþjónusta kl.
17. Organisti Marteinn H. Friðriksson.
Sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Miðvikudagur kl. 12.05. Hádegisbænir í
kirkjunni. Léttur málsverður á kirkju-
loftinu á eftir.
Miðvikudagur kl. 13.30-16.30. Samvera
aldraðra í safnaðarheimilinu. Tekiö í spil.
Kaffiborð, söngur. spjall og helgistund.
Digranesprestakall: Bamasamkoma í
safnaðarheimilinu viö Bjarnhólastíg kl.
11. Guðsþjónusta í KópavogsKirkju kl. 11.
Sr. Þorbergur Kristjánsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Eyrarbakkakirkja: Messa kl. 14. Kaffi
eftir messu.
í'ella- og Hólakirkja: Vináttumessa kl."
11.12 ára böm sýna samtalsþátt. Sunnu-
dagaskólaböm syngja og einnig kór aldr-
aðra úr Gerðubergi. Eftir messu býður
Æskulýðsfélagið upp á vöfflur og ijóma.
Guðsþjónusta miðvikudag kl. 20.30.
Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson.
Sönghópurinn „Án skilyrða" sér um
tónlist. Fyrirbænir í Fella- og Hólakirkju
mánudag kl. 18. Prestarnir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: Barnasam-
koma kl. 11. Einar Eyjólfsson.
Fríkirkjan i Reykjavík: Flautuskólinn
laugardag kl. 11.00. Violeta Smid. Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Miðvikudagur 27. nóv.
Morgunandakt kl. 7.30. Orgelleikari Pa-
vel Smid. Cecil Haraldsson.
Grafarvogssókn: Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11 í Félagsmiðstööinni
Fjörgyn. Umsjón: Valgerður, Katrín og
Hans Þormar. Skólabíllinn leggur af stað
frá Hamrahverfi kl. 10.30 og fer venjulega
skólaleið. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Sigurbjörg Helgadóttir. Aðalsafnaðar-
fundur eftir guðsþjónustuna. Venjuleg
aðalfundarstörf. Safnaðarkaffi. Vigfús
Þór Ámason.
Grensáskirkja: Bamasamkoma kl. 11. 6
ára böm og eldri og foreldrar þeirra uppi.
Yngri bömin niðri. Messa kl. 14. Prestur
sr. Halldór Gröndal. Organisti'Ámi Arin-
bjamarson. Fyrirbænir eftir messu og
molasopi.
Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12.00. Org-
elleikur í 10 mínútur. Fyrirbænir, altaris-
ganga og léttur hádegisverður.
Þriðjudagur kl. 14.00. Biblíulestur og
kirkjukaffi. Allir velkomnir. Prestamir.
Kvöldbænir og fyrirbænir em í kirkjunni
á miðvikudögum kl. 18.
Grindavíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl.
11. Messa kl. 14. Kvenfélagskonur lesa
úr ritningunni og kynna bæltaefni. Ein-
söngur, Margrét Sighvatsdóttir. Organ-
isti Siguróli Geirsson. Kór kirkjunnar
syngur. Sóknamefnd.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 10. Sr. Ragn-
ar Fjalar Lámsson.
Hjallasókn: Messusalur Hjallasóknar,
Digranesskóla. Bamaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Einar Eyjólfsson,
safnaðarprestur Fríkirkjunnar í Hafnar-
firði, messar. Organisti Oddný Jóna Þor-
steinsdóttir. Kristján Einar Þorvarðar-
son.
Háteigskirkja: Morgimmessa kl. 10. Sr.
Arngrímur Jónsson. Barnaguðþjónusta
kl. 11. Kirkjubílinn fer frá Suðurhlíðum
um Hlíðamar fyrir bamaguðsþjón-
ustuna. Hámessa kl. 14. Sr. Tómas
Sveinsson.
Mánudagur: Biblíulestur kl. 21.00.
Kársnesprestakall: Bamastarf í safnað-
arheimilinu Borgum sunnudag kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Kl. 11. Óskastund bamanna.
Söngur, sögur, fræðsla. Sr. Flóki Krist-
insson og Jón Stefánsson organisti sjá
um stundina. Guðsþjónusta kl. 14. Prest-
ur sr. Flóki Kristinsson. Kór Langholts-
kirkju syngur stólvers. Organisti Jón
Stefánsson. Molasopi að guösþjónustu
lokinni.
Aftansöngur alla virka daga kl. 18 í
umsjá sr. Flóka Kristinssonar.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Bamastarf á sama tíma. Fermingarböm
aðstoða. Foreldrar fermingarbama em
sérstaklega hvattir til að koma. Organisti
Guðmundur Sigurðsson. Sr. Jón D. Hró-
Þórdís Rögnvaldsdóttir.
FÍM-salurinn:
Sýning
Þórdísar
Þórdís Rögnvaldsdóttir heldur um
þessar mundir málverkasýningu í
FÍM-salnum, Garðastræti 6.
Þórdís er fædd 1951 á Siglufirði.
Hún stundaði nám viö Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1968-72 og út-
skrifaöist úr kennaradeild, málara-
deild þess tíma. Hún innritaðist aftur
í málaradeild MHÍ 1988 og útskrifað-
ist þaðan 1990.
Þetta er önnur einkasýning Þórdís-
ar en hin fyrri var á Flateyri við
Önundarfjörð árið 1984 þar sem hún
var búsett í sjö ár. Myndirnar, sem
hún sýnir nú, eru unnar með olíu á
hördúk. Sýningunni lýkur á sunnu-
daginn. Er hún opin frá klukkan
14-18.
Nú fer að hða að lokum á sýning-
um á leikritinu Brú til betri tíðar sem
Leikfélag Selfoss sýnir. Þetta er ís-
lenskt leikrit eftir Jón Hjartarson
leikara og er hann jafnframt leik-
stjóri.
Leikritið er í kabarettformi og er
söngur og gleði ríkjandi og eru allir
söngvar eftir Flóamenn. Margar
Nýlistasafnið:
ErlingurPáll
sýnirolíumálverk
Nú stendur yfir myndlistarsýning
í Nýlistasafninu (efri sölum) þar sem
Erlingur Páll Ingvarsson sýnir.
Erlingur stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands og hef-
ur lokiö námi bæði við nýlistadeild
og auglýsingadeild skólans. Veturinn
1978-79 dvaldi hann í Amsterdam en
hélt síðan til Vestur-Þýskalands og
stundaði nám við myndlistarháskól-
ann í Dusseldorf hjá prófessor W.
Heerich.
Sýningin er fimmta einkasýning
Erlings en auk þess hefur hann tekið
þátt í nokkrum samsýningum hér
heima og erlendis.
Að þessu sinni sýnir Erlingur Páll
olíumálverk. Sýningin stendur til 1.
desember og er opin frá klukkan
14-18 daglega.
Erlingur Páll Ingvarsson sýnir olíu-
málverk i efri sölum Nýlistasafnsins.
þekktar persónur koma fram í sviðs-
ljósið, svo og aðrar skáldaðar. 26 leik-
arar fara með 85 hlutverk og hefur
leikritið fengið geysigóðar viðtökur.
Það verður sýning í kvöld klukkan
20.30, sunnudaginn 24. nóvember
klukkan 16.00, miðvikudaginn 27.
nóvember klukkan 20.30 og fostudag-
inn 29. nóvember klukkan 20.30.
dóttir sýnir dansverkið Abraxas í
Kramhúsinu á morgun, laugardag,
klukkan 20.30.
Dansverk í Kramhúsinu:
Abraxas
Abraxas heitir dansverk sem
spunadansarinn Anna Richardsdótt-
ir samdi og flytur í Kramhúsinu að
Bergstaðastræti á morgun, laugar-
dag, klukkan 20.30. Brynhildur Krist-
mannsdóttir myndlistarkona hann-
aði gólfmynd og skúlptúra fyrir verk-
ið og er allt unnið undir sama þem-
anu, bæði dans og myndverk.
„Fuglinn brýst úr egginu. Eggið er
heimurinn. Sá sem vill fæðast verður
að eyðileggja veröld. Fuglinn flýgur
til guðs. Guðinn heitir Abraxas...
Við getum hugsað okkur að nafnið
tákni guð sem hefur það hlutverk að
sameina hið guðlega og hið djöful-
lega.“
Hermann Hesse: „Detnian", 1925.
Verkið verður aðeins flutt í þetta eina
sinn. Aðgangseyrir er 400 krónur.
Leikfélag Selfoss:
Síðustu sýningar á
Brú til betri tíðar
SPRON við Álfabakka:
Níu myndlistarkonur sýna
í útibúi SPRON við Álfabakka
verður opnuð sýning á sunnudaginn
þar sem níu myndlistarkonur sýna
verk sín. Þessar konur eiga það sam-
eiginlegt að reka ásamt 6 öðrum hst-
hús í miðborg Reykjavíkur, að Grett-
isgötu 7, og nefnist það Listhús
Snegla.
Þær níu konur sem sýna verk sín
eru allar útskrifaðar frá Myndhsta-
og handíðaskóla íslands, ílestar á
árunum 1985-86, og þær hafa flestar
haldið einkasýningar á verkum sín-
um og tekið þátt í samsýningum hér
heima og erlendis.
Listsköpun þeirra er margvísleg.
Þær þrykkja á léreft og shki, móta
leir, vefa, mála á striga, pappír og
silki.
Á þessari sýningu gefur að líta ör-
lítið af verkum „sneglanna". Þær
sem sýna eru Arnfríður Lára Guðna-
dóttir, Elísabet Þorsteinsdóttir, Erna
Guðmarsdóttir, Guðrún Kolbeins,
Herdís Tómasdóttir, Ingunn E. Stef-
ánsdóttir, Jóna S. Jónsdóttir, Vilborg
Guðjónsdóttir og Þuríður Dan Jóns-
dóttir.
Sýningin mun standa til 18. janúar
1992 og verður opin frá klukkan
9.15-16.00 virka daga.
Haskólabíó:
Rokk í Reykjavík
endursýnd
I dag, fóstudag, a morgun og á
sunnudaginn verða endursýningar í
Háskólabíói á myndinni Rokk í
Reykjavík. Það er kvikmyndagerðar-
maðurinn Friðrik Þór Friðriksson
sem á heiðurinn að gerð þessarar
myndar. Það eru Rokkskógar og
Háskólabíó sem standa að þessum
sýningum og allur ágóði af sýningun-
um rennur til skógræktarmála.
Nú eru liðin 10 ár frá því tökur
hófust á Rokki í Reykjavík. Myndin
fjallar um þá miklu grósku sem var
í íslenskri rokktónhst um og upp úr
1980. Þá var hljómsveit í hverjum
bílskúr, þá voru villtar vonir og þrár.
Rokkið lagðist eins og engisprettu-
faraidur yfir Reykjavík.
í myndinni má sjá marga af okkar
fremstu tónlistarmönnum í dag stíga
sín fyrstu og sumir segja djörfustu
spor á ferlinum. Má þar nefna Bubba
Morthens, Bjarna pönk, Björk Guð-
mundsdóttur, Pálma Gunnarsson,
Sigtrygg Baldursson, Eyþór Amalds,
Valgarð Guðjónsson, Sveinbjörn
Beinteinsson, Einar Örn og fleiri.
Þetta er því kjörið tækifæri fyrir
þá sem upplifðu þessa tíma til að rifja
upp minningarnar og einnig fyrir
hina að kynnast þessu tímabili sem
gjarnan er kennt við pönkið.
Myndin er bönnuð börnum innan
14 ára aldurs því þarna er hið
óklippta eintak á ferðum.
Rokkskógar hvetja konur og menn
til að „gefa landinu gjöf‘ og fara í
bíó. Miðaverð er 500 krónur.
Kj arvalsstaðir:
Ljóðasýning
Þórarins
Eldjáms
Á morgun, laugardaginn 23. nóv-
ember, klukkan 17.00 verður opnuð
sýning á ljóðum eftir Þórarin Eld-
jám. Höfundur mun lesa úr verkum
sínum og verður opnunarathöfninni
útvarpað beint í þættinum Leslamp-
anum á rás 1.
Þórarinn yrkir jöfnum höndum í
hefðbundnu og óbundnu formi. Stíll
hans einkennist af íroníu, óvæntri
kímni, stundum með ádeilubroddi.
Hann er orðhagur og beitir oft frum-
legum brögðum í orðasmíð og rím-
leikjum. Ljóðabækur hans eru orðn-
ar sjö að tölu, auk skáldsagna og
smásagna. Meðal kvæðabókanna eru
Disneyrímur þar sem hann notar
þetta þjóðlega, epíska bragform til
að varpa nýju ljósi á eina tegund af-
þreyingariðnaðarins.
Sýningin stendur til 8. desember.
Páll Eyjólfsson gítarleikari heldur
tónleika á þremur stöðum á Norður-
landi um helgina ásamt Laufeyju
Sigurðardóttur fiðluleikara.
Tónleikar á
Norðurlandi
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari
og Páll Eyjólfsson gítarleikari halda
tónleika á Norðurlandi um helgina.
Fyrstu tónleikarnir verða í kirkj-
unni á Dalvík. Þeir verða í kvöld,
föstudagskvöld, klukkan 20.30.
Næstu tónleikar iverða á morgun,
laugardag, í kirkjunni í Hrísey
klukkan 14.30 og þeir síðustu verða
í kirkjunni á Kópaskeri á sunnudag
klukkan 15.00.
Á efnisskrá eru verk eftir Corelh,
Paganini, Kreisler, Villa Lobos, Sara-
sate og fleiri.
Karólína Lárusdóttir sýnir þrjátíu
olíumálverk í Gallerí Borg. Við-
fangsefni hennar er fólks við leik og
störf. Þessi mynd heitir Straukonan
á Laugarvatni.
Gallerí Borg:
Fólkvið
leik og störf
Karóhna Lárusdóttir opnaði í gær
sýningu á rúmlega þrjátíu nýjum
olíumálverkum í Gallerí Borg við
AusturvöU.
Karóhna, sem búsett er á Eng-
landi, er fædd og uppalin í Reykja-
vík. Hún stundaði myndlistarnám
m.a. í Ruskin School of Art í Oxford
og Barking College of Art. Karólína
hefur haldið margar einkasýningar
hér á landi og erlendis og tekið þátt
í fjölmörgum samsýningum víða, svo
sem á Englandi og Italíu. Henni hefur
hlotnast margs konar heiður erlend-
is, meðal annars hefur hún verið
útnefndur félagi í Royal Society of
Painters/Printmakers og hlotið verð-
laun fyrir hst sína, bæði á Englandi
og ítahu.
Þetta er fjórða einkasýning Karó-
línu hérlendis og viðfangsefni henn-
ar nú er fólks við leik og störf. Sýn-
ingin stendur til 3. desember og er
opin daglega frá klukkan 14-18.
Friðríkur sýnir:
Úr hinu
óræöa djúpi
Nú stendur yfir í Menningarstofn-
un Bandaríkjanna málverkasýning
Friðríks.
Friðríkur er íslendingur í aðra ætt-
ina og Bandaríkjamaður í hina og er
hann búsettur um þessar mundir á
íslandi. Hann hefur áður sýnt í
Menningarstofnun Bandaríkjanna
og auk þess hefur hann haldið einka-
sýningar í Kaupmannahöfn, Ham -
borg og Reykjavík.
Sýningin stendur til 1. desember
og er opin alla virka daga frá klukk-
an 11.30-17.45 og um helgar frá
klukkan 14.00-17.00.
Skagaleikflokkurinn:
Leikurinn um
snillingana
vonlausu
Margir kannast við skáldsöguna
Glötuðu snilhngana eftir skáldið og
sagnameistarann William Heinesen.
Á morgun, laugardaginn 23. nóvemb-
er, klukkan 20.30 mun Skagaleik-
ílokkurinn frumsýna leikgerð Casp-
ars Koch á þessari sögu í Bíóhöllinni
á Akranesi. Þorgeir Þorgeirsson rit-
höfundur þýddi og Leifur Þórarins-
son samdi tónlist við verkið.
Leikurinn gerist í upphafi þessarar
aldar. Hann er fjölskrúðugur hópur-
inn sem birtist á sviðinu og persónu-
safnið spannar færeyskt samfélag,
allt frá hinum lægstu til hins hæsta.
Meginþráðurinn er spunninn í
kringum ævi og örlög fjögurra af
snillingunum vonlausu, syni og son-
arson veðrahörpusnillingsins Korn-
elíusar ísaksen.
Leikurinn um snillingana von-
lausu er viðamikið verkefni og tví-
mælalaust eitt það metnaðarfyllsta
sem Skagaleikflokkurinn hefur ráð-
ist í. Á milli 40 og 50 manns taka þátt
í uppfærslunrti, 11 manna hljómsveit
þar á meðal og leikarar eru 25. Það
er Inga Bjarnason sem leikstýrir.
Ásgeir Lárusson opnar á morgun,
laugardag, málverkasýningu í Gall-
erí einn einn.
Gallerí einn einn:
Ásgeir Lárus-
son sýnir
Ásgeir Lárusson opnar á morgun,
laugardaginn 23. nóvember, sýningu
á nokkrum myndverkum í Gaherí
einn einn að Skólavörðustíg 4.
Ásgeir hefur haldið fjölda einka-
sýninga, meðal annars í Gallerí SÚM,
Suðurgötu 7, Gallerí einn einn og í
Ásmundarsal. Hann hefur einnig
tekið þátt í fjölda samsýninga.
Sýning Ásgeirs í Gallerí einn einn
stendur til 5. desember og verður
opin daglega frá klukkan 14-18.
Sýning nokkurra hafnfirskra Rúna (Sigrún Guðjónsdóttir), Sig-
myndlistarmanna veröur opnuð á ríður Ágústsdóttir, Sigriður Erla
morgun, laugardag, í Sverrissal og og SveiTir Ólafsson.
kaífistofu Hafnarborgar. Sýningin verður opin frá klukk-
Hópurinn nefnir sig Hinir 12 og an 12-18 alla daga nema þriðju-
hann skipa listamenn úr ýmsum daga.
greinum myndlista, bæði högg- Þá stendur yfir í Hafnarborg
myndalist, texíl, grafik, málun og málverkasýning Katrínar H. Ág-
leirlist, Að þessu sinni eru þrír ústsdóttur. Á sýningunni eru 40
listamannanna í sýningarleyfi en olíumálverk og er myndefnið sótt
hinir níu eru Aðalheiður Skarp- í Sslenska náttúru. Þetta er síðasta
héðinsdóttir, Elín Guðmundsdótt- sýningarhelgi en sýningunni lýkur
ir, Gestur Þorgrímsson, Janor sunnudaginn 24. nóvember.
Probstner, Jóna Guðvarðardóttir,
bjartsson. Heitt á könnunni eftir guðs-
þjónustuna.
Fimmtudagur: Kyrrðarstund kl. 12. Org-
elleikur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu aö
stundinni lokinni.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Sr.
Frank M. Halldórsson. Guðsþjónusta kl.
14. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson.
Guðmimdur Óskar Ólafsson. Munið
kirkjubílinn.
Miðvikudagur: Bænamessa kl. 18.20.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Messa kl. 11.
Prestur Jóna Kristín Þorvaldsdóttir. Org-
anisti Gróa Hreinsdóttir. Kór kirkjunnar
syngur. Bamastarf á sama tíma í umsjón
Gróu og Sigfriðar.
Innri-Njarðvíkurkirkja: Sunnudaga-
skóli kl. 11 í safnaðarheimilinu í umsjón
Helgu og Láru.
Óháði söfnuðurinn: Guðsþjónusta kl. 14.
Gideonfélagar koma í heimsókn og segja
frá starfinu. Sigurbjörn Þorkelsson, for-
seti Gideonfélagsins, prédikar. Safnaðar-
prestur.
Seljakirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Krakkar úr 12 ára
bekkjum Seljaskóla og Ölduselsskóla
flytja dagskrár um vináttuna. Krakkar
úr 10 ára bekkkjum beggja skólanna og
KFUK sýna myndir og fjalla um vinátt-
una. Organisti Kjartan Siguijónsson.
Molasopi eftir guðsþjónustuna. Kirlgan
opin og nýbyggingarnar verða til sýnis
til kl. 17. Heitt á könnunni. Sóknarprest-
ur.
Seltj arnarneskirkj a: P/jölskylduguös-
þjónusta kl. 11. Bamastarf á sama tíma
í umsjá Eimýjar, Bám og Erlu. Organ-
isti Þóra Guðmundsdóttir. Prestur sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Miðvikudagur: Kyrrðarstund kl. 12.
Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur
hádegisverðm- í safnaðarheimilinu.
Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.
Fyrirlestrar
Fyrirlestraröð
Þjóðminjasafnsins
Sunnudaginn 24. nóvember verður þriöji
og síöasti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð
Þjóðminjasafnsins í tengslum við sýning-
una Stóra-Borg Fomleifarannsókn 1978-
1990. Þá flytur Elsa E. Guðjónsson, deild-
arstjóri Textíl- og búningadeildar safns-
ins, erindi sem hún nefnir: „Fágæti úr
fylgsnum jarðar". Mun hún ræða þar um
fornleifar í þágu textílmannsókna. Fyrir-
lesturinn verður haldinn í Þjóðminja-
safninu við Suðurgötu og hefst hann kl.
16.15. Að honum loknum gefst tækifæri
á að skoða sýninguna í Bogasalnum.
Fundir
Zion, vinir ísraels
Fundur verður í félaginu Zion, vinir ísra-
els á morgun, laugardag kl. 15 í safnaðar-
heimih Laugameskirkju. Dagskrá: Er-
etz-ísrael, Eiður Einarsson. Tal og mynd-
ir frá Laufskálahátíðinni 1991. Nýtt
fréttabréf kynnt. Fréttir úr starfi. Kaffi-
veitingar. Umræöur - samræður. Alhr
velkomnir. Takið með ykkur gesti.
Landssamband aðstand-
enda geösjúkra
heldur fund sunnudaginn 24. nóvember
kl. 15 að Öldugötu 15.
Tilkynningar
Kynbótahrossanámið
kynnt á Hólum
Á sunnudaginn verður kynnt nám á
hrossaræktarbraut í Hólaskóla. Kennar-
amir: Eyjólfur ísólfsson, Þórir Magnús
Lámsson og Egill Þórarinsson hafa
skipulagt sýningu nemenda og kynningu
sem verður í reiðhöllinni á Hólum, svo
og skólanum sjálfum. Sýningin hefst
klukkan 13.30 á sunnudeginum og stend-
ur í rúman klukkutíma. Að þeirri sýn-
ingu lokinni geta áhugamenn um námið
kynnst öllum þáttum þessa viðamikla
náms semifram fer á hrossaræktarbraut-
inni. Einungis veröur haldin þessi eina
sýning.
Jólabasar í Kattaholti
Jólabasar í Kattholti, Stangarhyl 2, Árt-
únsholti, verður haldinn sunnudaginn
24. nóvember kl. 14-17. Margt góðra
muna. Ahur ágóði rennur til heimihs-
lausu dýranna í Kattholti.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúð,
Skeifunni 17. Paravist. Allir velkomnir.
Kvikmyndasýning
fyrir unglinga
í Norræna húsinu
Sunnudaginn 24. nóvember kl. 14 verður
dönsk unglingamynd sýnd í fundarsal
Norræna hússins. Myndin heitir „Lars
Ole 5 C“ og segir frá nemendum í 5 C.
Þeir skiptast í tvo hópa og fyrirliðarinir
Lars Ole og Hanse, keppa um hylli sömu
stúlkunnar og bekkjarfélaganna. Leik-
stjóri er Niels Malmros. Myndin er gerð
1977 og sýningartíminn er 82 minútur.
Myndin er ótextuð. Aðgangur er ókeypis
og allir eru velkomnir.
Breiðfirðingafélagið
Árshátið félagsins verður laugardaginn
23. nóvember. Húsið opnað kl. 19. Borð-
hald hefst kl. 20. Hljómsveit Stefáns P.
leikin fyrir dansi.
Skaftfellingafélagið
félagsvist á sunnudag kl. 14 að Laugavegi
178. Ahir velkomnir.
Félag áhugamanna um
bókmenntir
Laugardaginn 23. nóvember kl. 13-15.45
verður rætt um leikhús og íslenskar leik-
bókmenntir í Norræna húsinu. Meðal
þess sem rætt verður, er: Hvert fóru
kassastykkin? eða íslensk leikritun í
skrúfustykkinu? Frummælendur verða:
Páll Baldvin Baldvinsson, Ámi Ibsen,
Martin Regal og Silja Aðalsteinsdóttir.
Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið koma í
heimsókn og leika.
„Lexía lífsins“sýnd
í bíósal MÍR
Nk. sunnudag 24. nóvember kl. 16 verður
sovésk kvikmynd frá árinu 1955, „Lejda
Iífsins“ (Úrok shizní) sýnd í bíósal MÍR,
Vatnsstig 10. Leikstjórinn, Júh Raizman,
var í hópi frægustu brautryðjenda í sov-
éskri kvikmyndagerð, starfaði m.a. með
Púdovkin og Protazanov á dögum þöglu
myndanna, en leikstýrði síðar - frá árinu
1927 - einn og með öðrum fjölmörgum
kvikmyndum á 50 ára starfsferh sínum.
Höfundur tökurits „Lexíu lífsins“ var
Jevgeni Gabrilovitsj, gamah skólabróðir
Raizmans og náinn samstarfsmaður um
áratugaskeið. Kvikmyndatökumaður var
Sergeij Úrúsevskij og hlaut hann viður-
kenningu fyrir verk sitt á sínum tima. í
aðalhlutverkum: V. Kalinina og I.
Perevezev. Enskar skýringar eru meö
myndinni. Aögangur ókeypis og öllum
heimih.
Jólabasar Sólheima
í Grímsnesi
Foreldra- og vinafélag Sólheima verður
með árlegan jólabasar í Templarahöll-
inni við Eiríksgötu 5, Reykjavík kl. 14
sunnudaginn 24. nóvember. Á heimilinu
eru starfræktar vinnustofur þar sem
heimihsfólk vinnur við búskap, skóg-
rækt, garðyrkju, vefnað, smiðar og kerta-
gerð. Basarinn er árleg sala á fram-
leiðsluvörum heimihsins. Foreldra- og
vinafélagið verður jafnframt með hefö-
bundinn kökubasar og fatasölu auk kaffi-
veitinga, en basarinn er og hefur verið
helsta tekjulind félagsins. Ahur ágóði ag
sölunni fer til uppbyggingar á starfsemi
Sólheima.
Kynning á hrossaræktarbraut
Bændaskólans á Hólum
Undanfarin ár hefur kennsla í alhhða
hrossabúskap, hrossarkt og reið-
mennsku verið stóraukin við Bændaskól-
ann á Hólum. Mjög góð aðstaða er á Hól-
mn th að stunda þessa kennslu. Nám við
Bændaskólann tekur tvö ár og er hluti
þess verknám hjá bændum/tamninga-
mönnum eða þrír mánuðir. Nokkuð hef-
ur skort á að stárfsemin hafi hlotið þá
kynningu sem eðhlegt er þegar mildl
breyting vérður. TU að gera þar nokkra
bót á hafa nemendur hrossaræktarbraut-
ar, í samráði við skólayfirvöld, ákveðið
að hafa opið hús (kannski frekar „opið
hesthús"), sunnudaginn 24. nóvember
nk. Húsið verður opnað kl. 1 og verður
opið th kl. 16. Dagskrá verður nokkuð
ijölbreytt en meginthgangur er að kynna
uppbyggingu námsins og sýna í verki
þær aðferðir sem beitt er við kennsluna.
Að lokinni sýningu og kynningu býður
Bændaskólinn upp á kaffi í mötuneyti
skólans.
Æskyulýðssamband
kirkjunnar
með vináttusamveru
Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykja-
víkurprófastsdæmum, sem eru samtök
æskulýðsfélaga safnaðanna í borginni,
gengst fyrir vináttusamveru laugardag-
inn 23. nóvember. Samveran verður í
Hahgrímskirkju og byrjar kl. 13.30 og
lýkur með vináttumessu kl. 21. Unglingar
frá 13 ára aldri munu þennan dag ræða
saman um vináttuna og tengsl mihi fólks.
Þeir ætla að fara í heimsóknir á sjúkra-
stofnanir og öldrunarheimih, syngja
nokkur lög flytja stutta dagskrá. Vináttu-
messan er öhum opin og eru ungir sem
eldri hvattir th að taka þátt í henni.
Nýtt gallerí á Bernhöftstorfu
Laugardaginn 23. nóvember kl. 14 verður
nýtt gaherí opnað á Bemhöftstorfunni,
Amtmannsstíg 1, sem áður hefur hýst
myndhst í björtum og hlýjum vistarver-
imi sínum. Áð gaheríinu standa leirhst-
arkonumar Bryndís Jónsdóttir og Guðný
Magnúsdóttir og munu verk þeirra vera
þar th sýnis og sölu. Auk þess munu í
galleríinu verða sýningar á Verkum ann-
arra hstamanna. Bryndís og Guðný hafa
báðar starfað að hst sinni um árabh frá
því að þær útskrifuðust frá Myndhsta-
og handíðaskóla íslands og tekið þátt í
sýningum hér og erlendis. Gaherí Úmbra
verður opið þriðjudaga th fóstudaga kl.
12-18 og laugardaga kl. 12-14. Lokað er á
sunnudögum og mánudögum nema þegar
sérstakar sýrúngar eða kynningar standa
yfir. Gallerí Úmbra verður opið lengur í
desember um helgar í samræmi við af-
greiðslutíma verslana.
Grikkland ár og síð
Laugardagimi 23. nóvember kl. 16 heldur
Grikklandvinafélagiö Hellas kynningar-
fund í Norræna húsinu í tUefni af útkomu
tveggja bóka sem varða Grikkland. Þar
munu leikaramir Helgi Skúlason og Erl-
ingur Gíslason flytja fræga kappræðu
Þrasýmakkosar og Sókratesar um rétt-
lætið úr Ríkinu effir Platon. Þá verður
kynnt bókin Grikkland ár og síð sem er
nýkomin út hjá Hinu íslenska bók-
menntafélagi og hefur að geyma 25 grein-
ar eftir núlifandi íslendinga um ýmsa
þætti griskrar menningar, sögu og þjóð-
lífs að fomu og nýju, og er hún helguö
minningu Sveinbjamar EgUssonar á
tveggja ára aldarafmæli hans. Kristján
Ámason verður kynnir á samkomunni
og er hún öllum opin.
Hafnarfjarðarsókn - Fræðslu-
fundir um safnaðarstarf
Laugardagsmorguninn 23. nóvember
mun séra Óm Bárður Jónsson, verkefna-
stjóri um safnaðaruppbyggingu í þjóð-
kirkjunni, heimsækja söfnuð Hafnar-
fjarðarkirkju og heíja röð fræðslufunda
um hlutverk kirkjunnar í nánustu fram-
tið, mótun og uppbyggingu fjölbreytts
safnaðarlífs. Fundir þessir sem ánægju-
legt væri að sem flestir tækju þátt í mimu
fara fram í safnaðaraðstöðu Hafnarfjarð-
arsóknar í Dvergi, gengið inn frá Brekku-
götu, laugardagana 23. og 30. nóvember
og svo 7. desember. Þeir hefjast kl. 11 og
standa fram aö hádegi en þá verður þátt-
takendum boðið upp á spjah og léttan
hádegisverð.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Fannborg 4 kl. 10. í dimmasta skamm-
deginu er ekkert betra en að hefja helgina
með nýlöguðu molakaffi, almæltum tíð-
indum og skemmtilegum félagsskap.
Tónleikar
Kammermúsikklúbburinn
heldur tónleika simnudaginn 24. nóv-
ember kl. 20.30 í Bústaðakirkju.
Vísnatónleikar í
Norræna húsinu
í kvöld, 22. nóvember kl. 20.30 halda
vísnaparið Jens og Dorthe vísnatónleika
öðru sinni í boði Norræna húsinu. Jens
og Dorthe koma frá Danmörku og hafa
þau sungið saman í nokkur ár bæði í
Danmörku og víðar á Norðurlöndum. Á
efnisskránni eru norrænar visur af ýmsu
tagi og þau leggja áherslu á að ná góðu
sambandi við áheyrendur meö léttum og
skemmtilegum flutningi. Aðgangur er
ókeypis aö tónleikunum.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Sunnudagsferðir 24. nóv. kl. 13
Búrfellsgjá-Húsafell-Valaból. Gengið
um Búrfellsgjá yfir á Húsafellið og til
baka um Valaból í Kaldársel. Verð 800
kr. frítt f. börn m. fullorðnum. Fjölbreytt
gönguland viö ahra hæfi. Brottfor frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Fé-
lagsvist Ferðafélagsins verður mið-
vikudagskvöldið 27. nóv. kl. 20 (F.í. 64
ára). Spilað veröur í Borgartúni 6 (Rúg-
brauðsgerðinni). Allir velkomnir, félagar
sem aörir. Aðventuferð i Þórsmörk 30.
nóv-1. des. Laugardaginn 30. nóv. verður
gönguferð um Elliðaárdalinn og opiö hús
og kynning á félagsheimih Ferðafélags-
ins að Mörkinni 6 kl. 15-16.
Námskeið
Frítt helgarnámskeið í
yoga og hugleiðslu
Þessa helgi mun Sri Chinmoy setrið
halda námskeiö í yoga og hugleiðslu. Á
námskeiðinu verða kenndar margs kon-
ar slökunar- og einbeitingaræfingar jafn-
framt þvi sem hugleiðsla er kynnt sem
áhrifamikil aðferð th meiri og betri ár-
angurs í starfi og aukinnar fullnægju í
daglegu lifi. Komið verður inn á sam-
hengi andlegrar iðkunar og sköpunar,
farið í hlutverk íþrótta i andlegri þjálfun
og sýnd kvikmynd í því sambandi. Nám-
skeiðið verður haldið í Ámagarði, það
er ókeypis og öllum opið. Það er í sex
hlutum og byrjar fyrsti hlutinn í kvöld
kl. 20. Frekari upplýsingar má fá í síma
25676.
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7
Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk,
grafik og myndir, unnar í kol, pastel og
olíu, í sýningarsal sínum að Stangarhyl
7. Opið virka daga kl. 12-18. Aörir tímar
eftir samkomulagi.
Árbæjarsafn
Opið eftir samkomulagi. Upplýsingar í
síma 84412.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í safni Ásgríms Jónssonar eru nú sýnd
26 verk. Mörg verkanna, sem bæði eru
unnin í ohu og með vatnslitum, eru frá
ánmum 1905-1930 og eru þau einkum frá
Suðurlandi. Safnið er opið daglega nema
mánudaga kl. 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Sigtúni
Þar stendur yfir sýning sem ber yfir-
skriftina Bókmenntirnar í hst Ásmundar
Sveinssonar. Jafnframt hefur verið tekin
í notkun ný viðbygging við Ásmundar-
safn. Safnið er opið frá kl. 10-16 aha daga.
FÍM-salurinn
v/Garðastræti
Þórdis Rögnvaldsdóttir sýnir málverk.
Myndimar eru unnar með ohu á hördúk
og eru ahar, utan ein, málaðar á þessu
ári. Sýningin stendur th 24. nóv. og er
opin kl. 14-18.
Fold, listmunasala,
Austurstræti 3
Nú stendur yfir kynning á verkum Daða
Guöbjömssonar. Á kynningunni em
vatnshta-, pastel og grafikmyndir. Einnig
hanga uppi olíu-, vatnshta-, pastel- og
grafíkmyndir eftir þekkta íslenska hsta-
menn. Fold er opin á laugardag kl. 10-18
og sunnudag kl. 14-18.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Karólína Lámsdóttir sýnir nýjar olíu-
myndir. Sýningin stendur th 3. desember
og er opin daglega kl. 14-18.