Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Síða 1
. foo' jrfftM'jjpjrq ^ 'jr^Afirn
Sovéski þjálfarinn Valeri
Mutagarov, sem þjálfað hefur 1.
deildar lið Gróttu í handknatt-
leik, hefur sagt upp störfum að
eigin ósk. Viö taka til bráðabirgða
þeir Bjöm Pétursson og Stefán
Amarsson.
Stcfán Öm Stefánsson, fonnað-
ur meistaraflokksráðs og með-
stjórnandi handknattleiksdeildar
Gróttu, hefur í kjölfarið einnig
hætt störfum.
-SK
Ársþing KSÍ á Höfn:
Eggert var
endurkjörinn
Eggert Magnússon var endur-
kjörinn formaður Knattspyrnu-
sambands íslands á ársþingi sam-
bandsins sem fram fór á Höfn i
Homafirði um helgina. Nánar er
fjallaö um þingið á bls. 28.
Tvö efstu lið 2. deildar í frönsku
knattspymunni, Bordeaux og
Strasshorg, gerðu markalaust
jafhtefli um helgina. Bordeaux er
í efsta sætinu raeð 34 stig en
Strassborg er með 31 stig í öðru
sæti.
„Leikurinn var i járnum, bajði
liðin vom varkár og lítiö um
tækifærif sagði Amór Guð-
johnsen hjá Bordeaux í samtali
viðDV.
-JKS
Arsenal vann nágrannaslaginn
viö Guðna Bergsson og félaga í
Tottenham í ensku knattspyra- ;
unrii í gær. Lokatölur urðu 2 -0
og vora bæði mörkin skoruö í
síöari hálfleik.
lan Wright skoraði fyrra mark
Arsenal á 68. minútu og Kevin
Campbeli það síðara á 77. mínútu.
Arsenal hafði mikla yfirburði í
leiknum. Nánar er fjallað um
ensku knattspyrnuna á bls. 26.
Guðni lék með Tottenham og stóð
síg þokkalega.
-SK
Þær bandarísku
Bandaríkin eignuöust um helg-
ina í fjTsta skipti heimsmeistara
i knattspymu. Bandarísku stúlk-
umar sigraðu þá stöllur sínar í
norska liðinu í úrshtaleik með
tveimur mörkum gegn einu eftir
að staðan var jöfn í leikhiéi, 1-1.
Michelle Akers-Stahl skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Banda-
ríkin á 19. mínútu en Linda Meda-
len jaíiiaði fyrír leikhlé fyrir Nor-
eg. Michelle vai- síðan aftur á
ferðinni á 77. mínútu er hún skor-
aöi sigurmark ieiksins sem
meistaratitilinn. -SK
Hreiðar Hreiðarsson á heimili sinu i gær ásamt Sigurjom Hafsteinssym, formanm stuðnmgsmannaklubbs UMFN
DV-mynd Ægir Már Kárason
Fyrirliði íslandsmeistara UMFN í körfu mikið slasaður eftir bílslys:
Veit ekki hvort
ég spila framar
- segir Hreiðar Hreiðarsson sem leikur ekki meira með Njarðvikingum
„Mér líður nokkuð vel í dag en
ég var mjög heppinn. Læknar segja
mér aö ég nái mér aö fuflu og þessi
meiðsli eigi ekki eftir að há mér í
framtíðinni," sagði körfuknatt-
leiksmaöurinn Hreiðar Hreiðars-
son úr Njarðvík í samtali við DV í
gær en nú er ljóst að Hreiöar, sem
var fyrirhði íslandsmeistara
UMFN, mun ekki leika meira með
liði sínu á yfirstandandi íslands-
móti.
Hreiðar lenti í alvarlegu bílslysi
við Grindavíkurafleggjarann á
dögunum og hryggbrotnaði meðal
skólanum og á þar eftir að ljúka
einni önn. „Nemendur og kennarar
hafa heimsótt mig og vilja allt fyrir
mig gera. Ég vil nota þetta tæki-
færi til að þakka þeim fyrir og eins
til að votta fjölskyldu Jóns Halldórs
Bragasonar innilega samúö mína,“
sagði Hreiðar í gær.
Það er mikið áfall fyrir Uð Njarð-
víkinga að missa Hreiðar. Hann
var fyrirliði hðsins eins og fram
hefur komið og mikilvægur hlekk-
ur í liöi íslandsmeistaranna innan
vallar sem utan.
Samkvæmt heimildum DV slapp
Hreiðar mjög vel út úr bílslysinu
og mun gott líkamlegt ástand hans
hafa ráðið miklu þar um. Hreiðar
kom heim af sjúkrahúsi á laugar-
dag og það var hans fyrsta verk aö
mæta á leik UMFN_ og ÍBK sem
ffam fór á laugardaginn. Þar hylltu
áhorfendur Hreiðar lengi, risu úr
sætum og klöppuðu honum lof í
lófa. Þá var einnar mínútu þögn
fyrir leikinn til minningar um Jón
Halldór Bragason.
-SK/ÆMK
annars. Hann var á leiönni ffá
Reykjavík til Njarðvíkur í bíl ásamt
tveimur félögum sínum. Annar
þeirra er nú látinn.
„Ég veit ekki hvort ég spila körfu-
bolta framar og framtíðin verður
að skera úr um það. Það er þó al-
veg öraggt að ég spila ekki meira
meö félögum niínum á þessu
keppnistímabili. Ég mun hins veg-
ar reyna að vera ekki í mikilli íjar-
lægð frá strákunum og hjálpa þeim
eins og ég get,“ sagöi Hreiðar enn-
fremur.
Áfall fyrir UMFN
Hreiðar er nemandi í Stýrimanna-