Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Qupperneq 6
44
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991.
Bflar
Víöa um heim eru fyrirtæki sem
taka bílaframleiðslu heföbundinna
framleiöenda og umskapa hana aö
sínum eigin geðþótta. Þessir um-
skapendur létu sig ekki vanta í Tókíó
og margt af því sem þar var sýnt af
þessum sérsmíðaða toga var býsna
laglegt.
Blessuð bitaboxin eru hætt að sjást
í sýningarsölum bílaumboða á ís-
landi. Ekki er það þó af því að Japan-
ar séu hættir að framleiða þau - öðru
nær. Þeir hafa meira að segja víkkað
út umsvif þeirra, eins og sjá mátti á
Honda bitaboxi sem búið var að setja
upp á vegleg snjóbelti, fest á hjólaöxl-
ana. Suzuki sýndi hins vegar pallbíl
á bitaboxgrind (og þessi bíll var ekki
sérsmíðaður), með hliðarsturtum.
Varla er að efa að þessi bíll gæti kom-
ið ýmsum smáverktökum, garð-
yrkjubændum og fleiri þvílíkum að
góðu gagni, fengist hann hér.
Mikið af sérsmíðuöu
Isuzujeppum
ZIG Recreational Factory sýndi
umsmíðaðan Isuzujeppa, mjög fall-
egan. Starfsmenn ZIG á svæðinu
voru lítt mæltir á vestrænar tungur,
svo ekki fékkst úr því skorið hvaða
Isuzu undirvagn væri undir jeppan-
um, en yðar einlægum þótti líklegast
að það væri nýja útfærslan, sem
væntanleg er og sýnd var á sýning-
unni undir nafninu 960 Long eða
Short, eftir þvi hve margra hurða
hann var, og á að taka við af Troop-
er. Annar bílasmiður, Mu, sýndi
umskapaðan Isuzu Rodeo (sami und-
irvagn og skúffubílamir sem hér
fást) sem búið var að opna á ýmsa
vegu og gera mjög sportlegan. Sá -
þriðji, YMS, var með húsbíl (camper)
á Isuzu Rodeo, eitt meö þeim falleg-
ustu sem ég hef séð. Það var búið
ýmsum þægindum, svo sem duggun-
arlítilli Suzuki bensínrafstöð, þriggja
kílówatta. Smárellur af þessu tagi
má víða sjá í Japan, á götum og ann-
ars staðar, frá Suzuki og Honda,
undrasmáar og undrahljóðlátar, not-
aðar til ýmissa hluta þar sem annars
væri erfitt að ná í rafmagn.
Bílasýningin í Tokyo:
Sérsmíðaðir bílar
með sérstökum svip
^OANQ
Sérbúinn ZIG jeppi á Isuzu grind - laglegur bíll og tilbúinn I jeppaferðina
Suzuki pallbill á bitaboxgrind, pallurinn með veltisturtum.
0 SU2TUKI
Honda bitabox á snjóbeltum - stæðilegur snjóbíll og stöðugur að sjá.
Hér standa nýheiðraðir Heklumenn með verðlaunagripi sina og skjöl. Fyrlr framan þá lúta lágt Asgeir Þorsteins-
son þjónustustjóri, H. Noto, forstöðumaður þjónustudeildar Mitsubishi i Evrópu, Finnbogi Eyjólfsson fulltrúi og
Slgfús Sigfússon forstjóri. Ljósm. DV-bflar, RaSi
Heklumenn heiðraðir
fyrir góða þjónustu
Nú í vikunni voru 15 starfsmenn
Heklu hf. heiðraðir fyrir góða þjón-
ustu fyrir hönd Mitsubishi. Hver
starfsmaður fékk klukku ásamt
innrömmuðu viðurkenningarsKjali
og voru klukkumar með tvennu
móti, eftir því hvort starfsmaðurinn
hafði þjónustað Mitsubishi í 10 ár eða
15 - en sumir hinna síðamefndu áttu
gott betur en 15 ár að baki. - Það var
forstöðumaður þjónustudeildar
Mitsubishi í Evrópu, H. Noto, sem
kom hingað að afhenda verðlaunin.
Mazda 626:
Ekkert fikt við hraðamælinn
Nýi 626-bíllinn frá Mazda verður
þannig útbúinn að ekki verður hægt
að „fikta“ við hraðamælinn en marg-
ur bílasalinn úti í hinum stóra heimi
hefur fallið í þá freistni að „skrúfa
niður“ mælana í bílmn sem verið er
að selja þannig aö kílómetrateljarinn
sýni mun lægri tölu en í raun og
vem er búið að aka bílnum.
Þessi nýja gerö hraöamæla, sem
nú kemur í Mazda 626, á að koma í
veg fyrir að þetta sé hægt. í framtíð-
inni verða aliir bílar frá Mazda bún-
ir hraðamælum af sömu gerð.