Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1992, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1992, Blaðsíða 1
Þrettándagleði Fáks: Brenna, álfa- reið og púkar Hestamannafélagið Fákur, íþrótta- deildin og Lionsklúbburinn Týr verða með þrettándagleði að Víði- völlum í Víðidal sunnudaginn 5. jan- úar klukkan 16.30. Blysfor verður farin frá Reiðhöll- inni og þeir sem vilja taka þátt í henni mæta klukkan 16.00. í Reið- hölhnni verða seld blys gegn vægu verði og söngtextar afhentir. í blys- förinni verður álfareið með álfakóngi og álfadrottningu, álfum og púkum ásamt Grýlu og Leppalúða og þeirra hyski. Einnig verður álfabrenna við skeiðvöllinn, þar sem verður sungið og dansað og þar verður líka flug- eldasýning. Fólk getur safnast saman í brekkunum fyrir ofan skeiðvöllinn og horft á álfareiðina því búist er við að álfakóngur og drottning skeiðleggi hesta sína og geri fleiri kúnstir. Þeg- ar álfareiðin er komin að brennunni verður kveikt í brennunni og þá hefst almennur dans og söngur. Veitingar verða seldar í félags- heimilinu á meðan á fjörinu stendur og á eftir og það er kvennadeild Fáks sem sér um veitingamar. Ef veður verður ekki hagstætt verða einnig seldar veitingar í Reiðhöllinni fyrir blysfór. Ekkert þátttökugjald er í þrett- ándagleðinni nema hvað fólk þarf að borga fyrir blysin. Hin fræga þrettándagleði Hestamannafélagsins Fáks veröur haldin á sunnudaginn, 5. janúar, og hefst með blysför klukkan 16 frá Reiðhöllinni. Þaðan fer álfareið með kóngi, drottningu, púkum og ffeiri fyrirbærum sem tilheyra þrettándanum. DV-mynd GVA Mosfellsbær: Álfadans og brenna Nokkur félög í Mosfellsbæ gangast fyrir álfadansi og brennu á þrettánd- anum sem er á mánudaginn, 6. jan- úar. Álfakóngur og álfadrottning mæta ásamt hirð sinni og ýmsar uppákomur verða, svo sem söngur og glens. Blysfór verður farin frá bílastæði Nóatúns klukkan 20 og að brennunni sem verður niður af Alm- holti, vestan við svæði hestamanna. Allir eru hvattir til að koma hlýlega klæddir. Eins og tíðkast á þrettándagleði veröur mikið sungið og hér að neðan birtist einn af þeim textum sem sungnir verða: Máninn hátt á himni skín, hrímfolur og grár. Líf og tími hður, og hðiö er nú ár. Bregðum blysum á loft, bleika lýsum grund. Glottir tungl og hrín við hrönn, og hratt flýr stund. Kyndla vora hefjum hátt, horfið kveðjum ár. Dátt vér dansinn stígum. Dunar ísinn grár. Bregðum blysum á loft o.s.frv. Nú er veður næsta frítt, nóttin er svo bhð. Blaktir blys í vindi, blaktir líf í tíð. Bregðum blysum á loft o.s.frv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.