Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1992, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1992, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992. Kvikmyndir HÁSKÓLABÍÓ Sími: 22140 Addams-fjölskyldan ★★'/2 Leikarar, umhverfi og tæknileg úrvinnsla eins og best verður á mkosið en söguþráður sundur- laus. -ÍS Tvöfalt líf Veróníku ★★★'/2 Tvær stúlkur, fæddar sama dag hvor í sínu landi, nákvæmlega eins í útliti og án þess að vita hvor af annarri. Þetta er við- fangsefni pólska leikstjórans Krzystof Piesiewicz í magnaðri kvikmynd. -HK Hvíti víkingurinn ★★ Það skortir nokkuð á að þær vonir sem þundnar voru við Hvíta víkingin rætist. Þrátt fyrir mörg ágæt atriði og góðan leik er sagan illa sögð og myndin fremuróspennandi. -HK The Commitments ★★★★ Tónlistarmynd Alans Parker er ógleymanleg skemmtun. Söguþráðurinn er stór- skemmtilegur og soul-tónlistin frábær. Ein af betri myndum Alans Parker. -ÍS LAUGARÁSBÍÓ Sími: 32075 Prakkarinn 2 ★★ Lítið vit en nokkuð gaman að tveimur pottormum í vígahug. Betri en sú fyrsta. • -GE Freddy er dauður ★ Þótt fyrr hefði verið. Síðasta myndin er ófyndin og brellurn- ar sparsamar. Jafnvel 3-V virð- istskorin við nögl. -GE Brot ★★ Söguþráðurinn er flókinn og uppgjörið í myndinni í lokin er of ótrúlegt til að hægt sé að sætta sig við málalok. -ÍS REGNBOGINN Sími: 19000 Ó, Carmela ★★★ Nýjasta kvikmynd Carlosar Saura er létt og skemmtileg og fjallar um þriðja flokks kabar- ettfólk og raunir þess í spænsku borgarastyrjöldinni. Enn ein skrautfjöðrin í hatt leik- konunnar frábæru, Carmenar Maura. -HK Ungir harðjaxlar ★★★ Góðum leikstjóra tekst vel að byggja upp spennu í þessari mynd. -ÍS Fuglastríðið í Lumbruskógi ★★ Hugljúf teiknimynd fyrir börn. Það sem gerir hana þó eftir- sóknarverða er íslensk talsetn- irrg sem hefur heppnast sérlega vel. -HK SAGA-BÍÓ Sími: 78900 Thelma & Louise ★★★ Davis og Sarandon eru framúr- skarandi útlagar í magnaðri „vega-mynd" sem líður aðeins fyrir of skrautlega leikstjórn Scotts. Benni og Birta í Ástralíu ★★ Góð teiknimynd frá Disney, líka fyrir fullorðna. Frábærlega teiknuð með skemmtilegum persónum. -GE STJÖRNUBÍÓ Sími: 16500 Bilun í beinni útsendingu ★★★'/2 Heilsteypt kvikmynd frá Mont- hy Python, leikstjóranum Terry Gilliam, raunsæ og gamsöm í senn og ekki spillir frábær leik- ur Jeff Bridges og Robin Will- iams. -HK Tortímandinn ★★★ Áhættuatriðin eru frábær og tæknibrellurnar ótrúlega góðar. Bara að sagan og persónurnar hefðu verið betur skrifaðar. -GE Börn náttúrunnar ★★★ Enginn ætti að verða fyrir von- brigðum með Börn náttúrunn- ar. Friðrik Þór hefur gert góða kvikmynd þar sem mikilfeng- legt landslag og góður leikur þlandast mannlegum sögu- þræði. -HK íþróttir Sund: Nýársmót hjá fötluðum Árlegt nýársmót fatlaðra barna- og unglinga í sundi verður haldið í Sundhöli Reykjavíkur á sunnudag- inn og hefst keppni klukk- an 14. Rétt til þátttöku eiga öll fötluð börn og unglingar fædd árið 1975 eða síðar, hvar á landinu sem þau búa. Keppt verð- ur í flokkum hreyfihaml- aðra, þroskaheftra, heyrn- arlausra og blindra og sjónskerta. Einstaklingar í ólympíu- iiði fatlaðra í sundi, sem nú æfa fyrir ólympíuleik- ana á Spáni 1992, keppa sem gestir á þessu móti. -GH Ferðafélag íslands: Létt gönguferð sunnan Straumsvíkur f þróttir helgarinnar: Sunnudaginn 5. janúar efnir Ferða- félagið til fyrstu dagsferðar á nýbyrj- uðu ári. Þetta er létt gönguferð sunn- an Straumsvíkur um Óttarsstaði og Lónakot og einnig verður komið við í kapellunni í Kapelluhrauni. Kapellan er friðlýst og stendur á lágum hól sem blasir við vegfarend- um gegnt byggingum íslenska álfé- lagsins á leiöinni suöur með sjó. Á þessum hól er rúst af litlu húsi, vegg- ir hlaðnir úr grjóti, ekkert þak, en inni í tóttinni er líkneski af heilagri Barböru - stækkuð eftirmynd af ör- smárri styttu sem þarna fannst við uppgröft 1950. Kristján Eldjám lýsir svæðinu þannig: „Þetta eru einstæð- ar þjóðminjar. Okkur finnst staður- inn afskekktur. En fjölmenni og umsvif vom eitt sinn meiri í Straumsvík en í Reykjavík á sama tíma. Því var þarna bænahús þar sem menn gátu nálgast guð í ein- rúmi, þar á meðal þeir sem kvíðnir htu ógreiðfæran vegslóða þar sem nú liggur rammgerð breiðgata til Keflavíkurílugvallar sem tengir okk- ur hinum stóra heimi handan hafs. - Engin leið er að sjá hvernig um- horfs var meðan kapellan var enn guðshús. Álverksmiðjuhúsin um- fangsmiklu norðan vegar og rudda svæðið umhverfis hóhnn sunnan megin hafa þurrkað út upphaflegt landslag. Því stendur kapehurústin átakanlega umkomuiaus í mengaðri auðn.“ Hraunspildan mihi Kapehuhrauns og Afstapahrauns kahast Almenn- ingur. Nafnið mun dregið af því að þar var sameiginlegt sauðfjárbeiti- land Hraunabæja. Athygh vekur af- Fjórir leikir fara fram í Japis-dehd- inni í körfuknattleik um helgina. í kvöld taka íslandsmeistarar Njarð- víkinga á móti Skallagrími og hefst viðureign liðanna klukkan 20. Njarö- víkingar eru efstir í A-riðli og eru fyrirfram taldir sigurstranglegir gegn Borgnesingum sem eru í neðsta sæti í A-riðli. Á sunnudagskvöldið klukkan 20 eru þrír leikir. KR-ingar taka á móti Tindastóli á Seltjarnarnesi. KR er í 2. sæti í B-riðh en Tindastóll í því þriðja. Sauðkrækingar unnu KR- inga á Sauðárkróki ekki alls fyrir löngu og ætla sérærugglega að end- urtaka leikinn. Grindavík tekur á móti Þór. Grind- víkingar þurfa á stigum að halda til að eiga möguleika á að komast í úr- slitakeppnina og það sama má segja um Þórsara sem eru í neðsta sæti í B-riðh og í fahbaráttu. Loks leika Valur og Haukar að Hlíðarenda. Þessi lið ásamt Grinda- vík eru að berjast um 2. sætið í B- riðli sem gefur sæti í úrshtakeppn- inni og því er hörkuleikur þarna á ferðinni. í 1. deild kvenna eru tveir leikir. Klukkan 14 á laúgardag leika KR og UMFG í Hagaskóla og klukkan 18 á sunnudaginn leika Keflavík og ÍS í Keflavík. -GH Páll Kolbeinsson og félagar hans í KR taka á móti Tindastól í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á sunnudagskvöldið. Fyrsta dagsferð ársins á vegum Ferðafélags íslands verður um Óttarsstaði og Lónakot sunnan Straumsvikur. leggjari niður aö fjárhúsum. Nær ströndinni eru myndarlegar vöröur við gamla troðninginn að vestustu og kunnustu bæjum í Hraunum, Ótt- arsstöðum og Lónakoti, en um þenn- an troðning liggur leiðin í gönguferð- inni á sunnudaginn. Brottfor er klukkan 11.00. Á þrettándanum, 6. janúar, verður farin kvöldferð - blysfór - og er brotj- fór klukkan 20.00 frá Umferðarmið- stöðinni. Japis-deildinni Fjórir leikir í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.