Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1992, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1992.
5
Fréttir
Rekstrarvandi Einars Guðfinnssonar í Bolungarvík:
Bærinn lánar 100 milljónir
fyrirtækið hefur ekki enn fullnægt skilyrðum fyrir síðari hluta lánsins
„Ef Einar Guöfinnsson heíöi orðið
gjaldþrota hefði bæjarfélagið tapað
bæði beinum og óbeinum tekjum.
Auk þess ætlumst við til að fyrirtæk-
ið endurgreiði þau lán sem það fær
hjá bænum," segir Ólafur Kristjáns-
son, bæjarstjóri í Bolungarvík.
Bæjarstjóm hefur enn ekki afgreitt
50 milljóna króna lán fil Einars Guð-
finnssonar hf., en lánið fær bæjar-
sjóður hjá Landsbankanum.
Á gamlársdag lánaði bæjarsjóður
Bolungarvíkur EG 50 milljónir króna
sem hann hafði fengið lánaðar hjá
Byggðastofnun til atvinnuuppbygg-
ingar á staðnum. Lánið var veitt með
þeim skilyrðum að gerðar yrðu upp
skuldir EG við bæjar- og hafnarsjóð
svo og skuldir vegna vangoldins
skyldusparnaðar.
Veð sjóðanna á undan
Lánið er tryggt með veðum í skip-
um og kvóta EG. Bæjarsjóður er þó
ekki á fyrsta veðrétti heldur eru al-
mennir sjóðir svo sem Atvinnutrygg-
ingasjóður, Fiskveiðasjóður,
Byggðastofnun og fleiri með veð á
undan bæjarsjóði.
Ólafur segist ekki trúa því að þess-
ir sjóðir gangi af byggðarlaginu
dauðu ef í óefni stefni.
„Við verðum að vonast til að albr
aðilar hjálpist að við að halda skip-
unum og kvóta í bænum,“ segir bæj-
arstjórinn.
í þessum mánuði á svo EG að fá
aðrar 50 milljónir að láni hjá bæjar-
sjóði en lánið hefur enn ekki verið
afgreitt þar sem fyrirtækið hefur
ekki fullnægt þeim skilyrðum sem
bæjarstjóm setur fyrir láninu. Að
sögn bæjarráðsmanns, sem ekki vill
láta nafns síns getið, vill bæjarstjóm
sjá meö hvaða hætti Atvinnutrygg-
ingasjóður, Fiskveiðasjóður, Lands-
bankinn og Byggðastofnun koma fyr-
irtækinu til aðstoðar auk þess sem
bæjarstjórn hefur óskað eftir að
henni verði gerð grein fyrir væntan-
legum skipulagsbreytingum innan
fyrirtækisins. Þegar þessi atriði
verði ljós verði lánið afgreitt, fyrr
ekki.
Of stórt dæmi fyrir bæjarfé-
lagið
Margir bæjarbúar efast um aö bæj-
arsjóður rísi undir því að lána EG
þessar 100 milljónir króna. Það komi
einnig til að bæjarsjóður hafi fyrr í
vetur keypt, ásamt Verkalýðs- og sjó-
mannafélaginu á staðnum, hlutafé
fyrir 43 milljónir króna í fiskvinnslu-
fyrirtækinu Graeði hf. sem gerir út
togarann Flosa ÍS.
Ólafur segir hins vegar að það verði
að taka stór skref ef bæjarfélagið eigi
ekki að drukkna.
„Það vita það allir að EG dæmið
er allt of stórt tölulega séð fyrir bæj-
arfélagið en við verðum því miöur
að horfa fram hjá því og gera það sem
við getum til að tryggja atvinnuör-
yggið í bænum. Ef atvinnuöryggið
minnkar hrynur fasteignaverð og
fólk flytur burt í tugatali. Við erum
þvi að vona að með þessum aðgerð-
um og með þátttöku Byggðastofnun-
ar, Fiskveiðasjóðs, Atvinnutrygging-
arsjóös og Landsbankans sé fundin
leið til að leysa rekstrarvanda Einars
Guðfinnssonar hf. til lengri tíma. Ég
hef trú á að það muni gerast," segir
bæjarstjórinn.
-J.Mar
Á morgun, fimmtudag 16. jan. kl. 12 á hád. gerist nokkuð skemmtilegt!
STÓRA BÓKAVEISLA FJÖLVAf
ovnar i rúmeóðu verslunarhúsnœðí Grensásveei 12.
450 númer af allskonar lagkökum, tertum, stökum bókum og pökkum.
50-80 % verblækkun yflr alla línuna á merkilegustu bókaútsölunni.
ALLT Á AÐ SELJAST! Opið virka daga 12-6, laugard. 10-4, sunnud. 12-4«
Verðlaanagetraan! flllir fá varðlaan!
p — ””””"” — — -"””"- — --”-1 — — — — — Þab er itteiri ösin á Stóru Bókaveislu Fjölva. Skobib vandlega
I Tii Fjoiva/Vasa, Njörvasundi 15 a, 104 Reykjavík. | teikninguna meb ótal persónum úr bókum Fjölva og takib
I Nafn. I þótt i verblaunagetraun. Allir fá verblaun. dýrar bókasend-
J •••'•.................................I ingar af öllum tegundum ab gjöf meb póstinum. Þúsund
! Kennítaia: | verblaun. Merkib krossa X vib fimm veislugesti:
I.......................................I 1) Dolla Dropa úti í horni, 2) Kaftein ísland svífandi meb
I Heimiii: | bókatertu, 3) H.C.Andersen œvintýravin meb stromphatt,
|...............*..................... |4) Betty ún dóttur minnar í svörtum serkog 5) Indíánann
iPóstnúmen.......................... í v‘n^ * hári ab gefa galdramebal. Klippib alla auglýsinguna út
L------1'-11-1.M 1*l'J 1/21! 11-l.*J (ekki ljósrit) skrifíb nafh ykkar og sendib til Fjölva/Vasa.