Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1992, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1992.
9
kokkum
Kokkar þjást oftar af lungna-
krabba en aðrir. Skýringin er sú
að þeir eru meira í snertingu við
krabbameinsvaldandi efni sem
flnnast í reykjarbrælu i eldhús-
um.
Þetta segja tveir danskir vís-
indamenn sem stunda rannsókn-
ir á vinnuumhverfi.
Limgnakrabbi er 2,5 sinnum
algengari bjá kokkum en öðrum.
Og úr því að kokkar reykja ekki
meíra en aörir hlýtur skýringar-
innar að vera að leita 1 vinnuum-
hverfinu.
Það er vel þekkt að krabba-
meinsvaldandi efni myndast þeg-
ar kjöt er steikt og myndast efni
þessi við 140 gráðu hita. Magn
þeirra eykst síðan þegar hitastig-
ið hækkar. Þá hefur fita einnig
áhrif á myndun þessara efna.
Væitdiskoitur
iokun skógarins
Vændiskonur í miðborg Parísar
eru ánægðar yflr því að lögreglan
skuli hafa lokað hluta Boulogne-
skógar fyrir bílaumferö til að
stemma stigu viö vændinu sem
fer fram á kvöldin.
„Þegar þeir viðskiptavinir sem
voru vanir að fara út í skóg koma
í bæinn stendur ekki á mér að
taka á móti þeim,“ sagði Lisa, ein
fjölda vændiskvenna sem stunda
iðju sína í hinni skuggalegu götu
Rue St Denis.
Lögreglan lokaði skóginum
vegna frétta um að vændiskonur
þar og -menn sýktu 40 viðskipta-
vini af eyðniveirunni á hverju
kvöldi. !
RokkiðskaS
víkja fyrir
klassíkinni
Breskir skólamenn deila nú
hart um nýja námsskrá í tónlist
þar sem meiri áhersla verður
lögð á sigilda vestræna tóniist á
kostnað rapps, reggeis og rokks.
Námsefnisnefhd ríkisins hefur
lagt þetta til og búist er við að
stjóm íhaldsmanna leggi blessun
sína yfir áformin.
Samkvæmt nýju námsskránni
á ellefu ára nemandi að geta sagt
álit sitt á fúgum eftir Bach. Kenn-
arar segja hins vegar að þetta sé
óréttlátt gagnvart innflytjendum
frá þriðja heiminum.
Handsprengja
drepur keppi-
nautaíástum
Táningur nokkur á Filippseyj-
um varð svo reiður við að sjá
kærustuná á bíó með öðrum
manni í gær að hann sprengdi
handsprengju meö þeim afleið-
ingum aö hann og keppinautur-
inn létu báöir lífið.
Sjö manns slösuðust alvarlega
við sprenginguna, þar á meðal
stúlkan. Fylgisveinn stúlkunnar
var að reyna að taka sprengjuna
frá þeim afbrýðisama þegar hún
sprakk.
Lögreglahand-
samar víneitrun-
armenn
Lögregla á Ítalíu geröi fjórar
milljónir lítra víns upptækar á
þriðjudag og handtók flóra menn
sem grunaðir eru um að hafa
komiö eiturefnum fyrir í því. Lög-
reglan rannsakar nú efnin í vín-
inu. TTogKeuter
Utlönd
Jeltsín svarar gagnrýni á stjóm sina:
Hendum ekki gömlum sokkum
Forseti rússneska þingsins, Ruslan
Khasbuiatov, veittist harkalega að
efnahagsumbótiun Borís Jeltsín for-
seta í gær, í annað sinn á tveimur
dögmn, en Jeltsín sagði að hann
mundi standa með ríkisstjórn sinni.
Khasbulatov fór enn á ný fram á
afsögn stjómarinnar og þykir það
benda tii þess að heitt verði í kolun-
um þegar þingið ræðir efnahagsað-
gerðimar á fundi í dag.
Jeltsín er á ferðalagi um landið til
að afla stefnu sinni stuðnings og þeg-
ar hann kom til borgarinnar Bry-
ansk í suðvesturhluta Rússlands í
gær sagði hann að ríkisstjómin væri
ekki eins og gamhr sokkar sem menn
hentu.
Þá vísaði hann í landlægan vöm-
skort í landinu og bætti við: „Það
hendir heldur ekki nokkur maður
gömlum sokkum um þessar mund-
ir.“
Líklegt er talið að Jeltsín hafi meiri
áhyggjur af því sem hann heyrir
meðal almennings en í þinginu. Leið-
togi kolanámumanna í Kuzbass,
stærstu námum í samveldinu, sagði
að hann óttaðist verkfoll og mót-
mælaaðgerðir gegn Jeltsín. Verka-
menn í einni námunni efndu til
nokkurra klukkustunda skyndi-
verkfalls á sunnudag.
„Við viljum gera eitthvað fyrir
námumennina en við viljum ekki
grafa undan stjórn Jeltsíns," sagði
leiðtoginn.
Hann sagði að sendinefnd námu-
manna færi til Moskvu í dag til við-
ræðna við stjórnvöld.
Khasbulatov sakaði stjórnina um
að eyðileggja iðnað Rússlands með
háum sköttum sem hafa verið lagðir
á hann til að reyna að ná stjóm á
sívaxandi fjárlagahalla ríkisins.
Reuter
Alsír:
Fimm manna
forsætisráð
tekur völdin
Fimm manna forsætisráð hefur
tekið við völdum af Chandli
Benjadid, fyrrum forseta Alsírs. í
reynd hefur herinn öll völd í landinu
þótt nýja ráðið fari formleg með for-
setavaldið.
Það kemur í hlut mannanna í for-
sætisráðinu að ákveð hvort og hve-
nær gengið verður til síðari umferð-
ar þingkosninganna þar sem allar
líkur vom á að flokkur strangtrú-
aðra íslama færi með sigur af hólmi.
Ekki er gert ráð fyrir forsætisráði
af þessari gerð í stjómarskrá lands-
ins en það er nú réttlætt með því að
vísa til neyðarástandsins eftir að rétt
kjörinn forseti sagði af sér.
Nýja ráðinu er ætlað að sitja að
völdum allt til ársloka árið 1993. Sú
ákvöðrun ber með sér að herinn ætl-
ar ekki að hætta á að efna til forseta-
kosninga í bráð enda líklegast að
frambjóðandi strangtrúarmanna
yrði þá kjörinn.
Vestrænir sendimenn í Alsír segja
að forsætisráðið sé ekki líklegt til
stórræða. Andstæðingar fyrri stjórn-
ar em þó í ráðinu og er skipun þeirra
greinilega ætlað að koma í veg fyrir
deilur um þessa nýskipan mála.
í forsætisráðinu er einnig fulltrúi
hersins og vilja margir líta svo á að
hann sé hinn raunverulegi forseti.
Þessi maður er Khaled Nezzar varn-
armálaráðherra. Reuter
Morðið á Kennedy:
forsetann?
Ekkert lát virðist vera á getgátum
manna í Bandaríkjunum um hver
hafi drepið Kennedy forseta. Nú hef-
ur nýr maður komið fram á sjónar-
sviðið í því máli, verkalýðsleiðtoginn
Jimmy Hoffa sem á sínum tíma var
mikill andstæðingur forsetans.
Rannsóknarblaðamaðurinn Jack
Newfield við blaðið New York Post,
sem þekktur er fyrir að íletta ofan
af hneykslismálum í stjórnkerfl
borgarinnar, skýrði frá því að hann
hefði fundið mann sem heldur því
fram að hann hafi verið meðalgöngu-
maður milh Hoffa og tveggja mafíu-
foringja í ráðabruggi um morðið.
Maðurinn er lögfræðingur Hoffa,
Frank Ragano. Hann ákvað eftir
mikið hugarvíl að segja frá því að
Hoffa hefði fyrirskipað sér að segja
mafíuforingjunum að hann vildi að
Kennedy yrði drepinn.
Ragano segir að Hoffa hafi viljað
drepa Kennedy til að stöðva herferð
Roberts bróður hans á hendur skipu-
lagðri glæpastarfsemi. Hoffano og
mafían hafa lengi legið undir grun
um að tengjast morðinu.
Ragano segir að útlægir Kúbu-
menn hafi myrt forsetann og að ann-
ar mafíuforinginn hafi síðan látið
drepa þá. Annar mafíósinn er látinn
en hinn er á níræðisaldri og þjáist
af alsheimer. Jimmy Hoffa hvarf árið
1975. Reuter
VILTUFRIÐ?... FáðuþérHLIÐ!
Óviðkomandi bílaumferð er úr sögunni með sjálf-
virku hliði frá ASTRA Austurströnd 8 Sími 61-22-44 FAX 61-10-90
mottu og teppa
M» «ntÚU6A 6Ó* KM"* - K®*®
" w kwhib ykku* úwaub