Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1992, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1992, Side 14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111,105 RVlK, SlMI (91 )27022-FAX: Auglýsingar: (91 )626684 - aðrar deildir: (91 )27079 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Pólitísk Þjóðhagsstofnun Forsætisráðherra hefur ráðið Ólaf Davíðsson hag- fræðing sem ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu. Þar hefur ráðherrann fengið góðan mann, einkum fyrir þá sök að Ólafur Davíðsson nýtur virðingar og áhts sem hleypidómalaus hagfræðingur, auk þess sem hann hefur starfað í atvinnulífmu og er ekki kontóristi í líkingu við marga aðra kohega sína, sem alast til metorða á opinber- um stofnunum. í stjómsýslunni hefur þróunin verið sú að efnahags- mál heyra að verulegu leyti undir forsætisráðherra. Þau mál hafa og lengstum verið helsta viðfangsefm forsætis- ráðherra hverju sinni sem og ríkisstjómarinnar í heild. Forsætisráðherra er í rauninni efnahagsmálaráðherra. Þess vegna er löngu tímabært að maður með þekkingu og reynslu Ólafs Davíðssonar sé við hhð forsætisráð- herra og að ráðherrann hafi aðgang að gögnum og upp- lýsingum undir handarjaðri sínum. Ráðning Ólafs Dav- íðssonar á að koma að þessum notum og þjóna hlutverk- inu. Það fylgir hins vegar sögunni að forsætisráðherra hyggist draga úr hlutverki Þjóðhagsstofnunar, ef ekki að færa hana að öhu leyti undir sína stjóm. Eins og nú háttar heyrir stofnunin undir forsætisráðherra en er engu að síður hlutlaus og óháð stofnun, sem forsætisráð- herra hefur engin bein afskipti af, nema þá að ráða yfir- mann hennar og hafa aðgang að trúnaðarupplýsingum. Þessi skipan mála var ákveðin á sínum tíma beinlínis í því skyni að koma á fót hagfræðistofnun, sem væri ekki fjarstýrð af stjórnmálamönnum og sem allir gætu borið traust th vegna óhlutdrægni. Sú lenska tíðkaðist hér lengst af að engu var treystandi þegar spáð var í efnahagsmál, vegna þess að ráðherrar, flokkar og ríkis- stjómir gátu pantað skýrslur og niðurstöður eftir því sem þeim hentaði hverju sinni. Stöðugar deilur um stað- reyndir í efnahagsmálum voru hvimleiðar og settu nei- kvæðan blett á stjórnmálaumræðuna. Skýrslur voru tortryggðar og jafnvel rengdar og því varð að ráði að skapa Þjóðhagsstofnun sjálfstæði, þannig að efnahags- legar forsendur, horfur og niðurstöður væru lagðar til grundvaUar í stað óskhyggju pólitíkusa. Með hliðsjón af þessari reynslu er það afturhvarf til fortíðar að leggja Þjóðhagsstofnun niður og gera hana að deUd í forsætisráðuneytinu. Þá mun hún ekki lengur njóta virðingar sem shk, heldur vera tæki í höndum ríkisstjómar tU að senda frá sér álitsgerðir, sem ekki verða marktækar í umræðunni, nema þá sem sú hhð sem snýr að ríkisstjóm hverju sinni. Stjómarandstaðan hefur varað við þessum hugmynd- um. Sjálfsagt er það í og með sett fram til að gera Dav- íð Oddssyni lífið leitt en rök stjórnarandstöðunnar em engu að síður málefnaleg. Talsmenn stjórnarandstöðu- flokkanna benda aUir á að skipulagsbreyting í þá átt, sem forsætisráðherra hyggst leggja tU, muni draga úr trausti á Þjóðhagsstofnun eða ígUdi hennar. Yfirleitt geta menn verið sammála því að efnahags- umræður séu að færast á mun vitrænna svið en hér hefur tíðkast. Hagsmunasamtök, aðilar vinnumarkað- arins og stjómmálamenn yfirleitt eru að mestu hættir að rífast um staðreyndir og flestir taka mark á hagfræði- legum lögmálum. Þar hefur hlutur Þjóðhagsstofnunar átt sinn þátt og sjálfstæði hennar. Forsætisráðherra á vissulega að efla ráðgjöf sína um efnahagsmál innan ráðuneytisins. En hann á ekki að gera það á kostnað Þjóðhagsstofnunar. EUert B. Schram MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1992. „Bankarnir verða fyrir tekjutapi á meðan beðið er eftir kaupendum," segir Stefán m.a. i greininni. Milljarðar tapast Aðferðum við að meta veð og greiðslutryggingar er áfátt hér á landi. Árlega tapa lánastofnanir milljörðum króna vegna þess að frumstæðar aðferðir eru notaðar við veðmat. Ófullkomin veðmöt valda hækkun skatta og auka vaxtakostnað. Opinberir lánasjóðir þurfa framlag úr ríkissjóði og bankar tapa lánsfé. Veð og tryggingar Lánastofnanir þurfa tryggingu fyrir því að lántakendur endur- greiði lán sín með vöxtum og kostn- aði. Lánveitendur verða að full- vissa sig um að þeir sem lánin taka ráði við afborganir og vexti. Einnig þurfa þeir að endurheimta féð ef ekki er staðið í skilum. Lánastofn- anir reyna að meta afkomu lántak- enda og getu þeirra til að greiða af lánunum. Til dæmis er greiðslugeta íbúða- kaupenda almennt talin 20%-25% af launum. Lánastofnanir þurfa tryggingar ef lántakendur hætta að greiða af lánum. Algengast er að taka veð í fasteignum. Þegar fast- eignaveð þykja ótraust eða miklar fjárhæðir eru í húfi þekkist að kraf- ist sé bankaábyrgðar eða jafnvel ríkisábyrgðar. Veðtaka og ábyrgðir eru trygging lánastofnana ef ekki er staðið í skilum. Fasteignaveð og veðmat Algengustu tryggingar eru fast- eignaveð. í þvi felst að lánveitandi getur gengið að hinni veðsettu fast- eign til tryggingar láninu. Til þess að breyta veðinu í reiðufé verður að selja eignina. Öryggi lánveit- enda er háð því veröi sem fæst. Veðmat á að lýsa þessu verðmæti og öryggi lánveitenda er háð ná- kvæmni þess. Brunabótamat er enn almennt notað sem veðmat hérlendis eða annað mat á bygging- arkostnaði. Reynslan sýnir að það orkar tví- mælis því veðsettar eignir seljast oft ekki nema fyrir brot af bygging- arkostnaði og brunabótamati. Mat fasteignasala á markaðsverði eigna gefur betri niðurstöður en er þó ekki raunverulegt veðmat. Veðmat tekur tillit til markaðsverös, eðlis eigna, verðsveiflna og markaðsað- stæðna, hugsanlegrar nýtingar og tekjumöguleika og hversu seljan- legar eignir eru. KjaHarinn Stefán Ingólfsson verkfræðingur Vafasöm möt hækka skatta í nýbirtum skýrslum kemur fram að opinberir lánasjóðir verða að afskrifa milljarða af útlánum. Lán- takendur standa ekki í skilum og veð reynast ótrygg. Sjóðimir mátu rangt greiðslugetu lántakenda. Veð hafa einnig reynst ótrygg. Algengt er að verðmæti fasteigna nemi broti af áhvílandi veölánum. Út- lánatöp í opinberu sjóðunum lenda með einum eða öðrum hætti á skattgreiðendum. Sumir sjóðanna voru stofnaðir með framlagi úr rík- issjóði. Til þess að rétta þá við verður ríkið aö auka framlag sitt. Aðrir taka lán, oft gegn ríkisábyrgð, og endurlána. Þegar lántakendur standa ekki í skilum fellur kostnað- urinn á ríkissjóð. Árlega verður að skattleggja almenning um millj- arða króna til að mæta tapinu, Frumstætt veðmat hækkar vexti Veðmat banka og sparisjóða er litlu betra en opinberu sjóðanna. Mati á greiðslugetu lántakenda er ósjaldan áfátt. Bankarnir ganga árlega að mörgum veðsettum eign- um vegna vanskila. Þær verður oft að selja með tapi sökum þess að veðmat þeirra var of hátt. Algengt er að sá tími sé vanmetinn sem tek- ur að selja eignirnar. Bankarnir verða fyrir tekjutapi á meðan beðið er eftir kaupendum, einkum þegar um sérhæföar og dýrar eignir er að ræða. Ekki er ósennilegt að bankakerfið tapi ár- lega á annan milljarð af þessum sökum. Tap vegna glataðra útlána og kostnaðar vegna kaupa og sölu veðsettra eigna bætist við rekstrar- kostnað bankanna. Til að mæta því hækka þeir vexti og þjónustugjöld. Léleg veðtaka er einnig ein ástæðan fyrir lækkandi ávöxtun á sumum flokkum skulda- bréfa hjá verðbréfasjóðum. Sjóð- imir keyptu fasteignaskuldabréf með miklum afföllum og reiknuðu meö mikilli ávöxtun. Mati á greiðslugetu og veðhæfni var hins vegar áfátt og sjóðimir sátu uppi með eignir sem þeir töpuðu á. Húsnæðiskaupendur einna traustastir Húsnæðiskaupendur em einna traustustu lántakendumir. Fjöl- skyldufólk er almennt gætnara en fyrirtæki og býður tryggari veð. Þess vegna tapa sjóðir sem veita lán til íbúðakaupa minna en þær lána- stofnanir sem áður voru nefndar. Lífeyrissjóðirnir, sem em stærstu lánasjóðir á landinu, lán- uðu mikið til sjóðfélaga gegn veði í íbúðarhúsnæði. Þó þeir miði flest- ir við bmnabótamat við veðtöku hefur það ekki komið að sök á stærstu markaðssvæðum landsins. Sjóðimir tapa þó árlega talsverð- um fjárhæðum. Sama máli gegnir um hina opinberu byggingarsjóði. Tap þeirra er meira en menn viður- kenna. Stefán Ingólfsson „ÓfuUkomin veðmöt valda hækkun skatta og auka vaxtakostnað. Opinber- ir lánasjóðir þurfa framlag úr rikissjóði og bankar tapa lánsfé.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.