Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1992, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1992.
25
Meiming
Hildur Þórðardóttir, Þórhildur
Halla Jónsdóttir og Edda Krist-
jánsdóttir.
Ungireinleikarar
leikameð
Sinfóníunni
Tónlistarskólinn í Reykjavík og
SinfóníuMjómsveit íslands halda
tónleika annað kvöld í Háskóla-
bíói. Eru tónleikar þessir fyrri
hluti einleikaraprófs flautuleik-
aranna Eddu Jónsdóttur og Hild-
ar Þórðardóttur og Þórhildar
Höllu Jónsdóttur sellóleikara.
Verkin, sem flutt verða, eru Kon-
sert fyrir flautu og hljómsveit í
h-moll op. 30 eftir Bernhard Rom-
berg og er Hildur Þórðardóttir
einleikari, Konsert fyrir selló og
hljómsveit í D-dúr op. 101, ein-
leikari Þórhildur Halla Jónsdótt-
ir, og Euridice fyrir þverflautu
og hljómsveit eftir Þorkel Sigur-
bjömsson, einleikari Edda Kristj-
ánsdóttir.
Bókaútaúgáfa
Menningarsjóðs
lögðniður
„Líkast til hættir útgáfan störf-
um um mitt ár. Við erum að setja
bækur á rýmingarsölu þessa dag-
ana, enda hggur fyrir mikið af
bókum eftir tæplega fimmtíu ára
útgáfustarfsemi. I fyrra gáfum
við út til að mynda þrettán titla.“
Þetta sagði Einar Laxness, fram-
kvæmdastjóri Bókaútgáfu Menn-
ingarsjóðs, en stjórnvöld hafa
ákveðið að leggja bókaútgáfuna
niður. Ástæðuna kvað Einar vera
að nokkru leyti þá að útgáfan
skuldaði á miUi 30 og 40 milljón-
ir. „Þetta eru aðallega fjármagns-
skuldir en bækur, sem gefnar
hafa verið út á vegum Menning-
arsjóðs, eru yfirleitt bækur sem
eru ætlaðar til langtímasölu og
oft mjög dýrar í útgáfu." Að-
spurður hvað yrði til dæmis um
framhald á úgáfu á íslenskri
leikhst, en 1. bindið kom út á veg-
um Menningarsjóðs fyrir jól,
kvaðst Einar ekki vita um fram-
haldið en hann reiknaði með að
höfundurinn leitaði til annarra
útgefenda um framhaldsútgáfu.
Einar sagði að lokum að þær
bækur, sem seldar væru núna,
væru á stórlækkuðu verði, aht
að 80-90% afsláttur.
Hrafnhildur
tilnefnd til
norrænna leik-
skáldaverðlauna
Norrænu leikskáldaverðlaunin
verða veitt í fyrsta sinn á Norr-
ænum leikUstardögum sem
haldnir verða í Reykjavík 4.-9.
júní næstkomandi. Af íslands
hálfu er HrafnhUdur Hagalin
Guðmundsdóttir tilnefnd tU verð-
launanna fyrir leikrit sitt Ég er
meistarinn og er hún jafnframt
yngsta leikskáldið í hópnum.
Aðrir sem fá tílnefningar eru:
Jess Ömsbo af hálfu Danmerkur,
fyrir leikrit sitt, De forkerte,
Björg Vik af hálfu Noregs, fyrir
leikrit sitt, Reisen tíl Venezia,
Barbro Smeds af hálfu Svíþjóðar,
fyrir leikrit sitt, Sol och vár, og
Juha SUtanen fyrir leikritið Fox-
trott. Þess má geta að HrafnhUd-
ur fékk menningarverðlaun DV í
fyrra fyrir Ég er meistarinn.
Verðlaunaupphæðin, sem sigur-
vegarinn fær, er um það bU hálf
miUjón íslenskra króna.
Menningarverðlaun DV1 flórtánda sinn:
Langlíf ust allra menningar*
verðlauna hér á landi
- áttatíu verðlaunagripir hafa verið afhentir
Afhending Menningarverðlauna Dagblaðsins og DV hefur ávallt farið fram
í hinum fallega veislusal á Hótei Holti, Þingholti, þar sem snæddur hefur
verið hádegisverður á undan verðlaunafhendingunni.
Menningarverðlaun DV verða af-
hent í fjórtánda sinn þann 27. febrúar
og fer aíhendingin fram í veislusaln-
um Þingholti á Hótel Holti að undan-
gengnum sérstökum málsverði þar
sem Ustakokkar hótelsins munu
matreiða fyrir verðlaunahafa og aðra
gesti ljúffenga sjávarrétti.
Afhending verðlaunanna hefur
farið fram í Þingholti frá því stofnað
var tU þeirra fyrir íjórtán árum og
eru þessi menningarverðlaun orðin
þau langlífustu hér á landi. í fyrra
var metið jafnað við silfurlampann
en það voru verðlaun sem leikUstar-
gagnrýnendur aíhentu þeim ein-
staklingi sem þeim þótti skara fram
úr á leikUstarsviðinu. Silfurlampinn
var afhentur þrettán sinnum. Þeirri
verðlaunaafhendingu var hætt þegar
síðasti verðlaunahafinn neitaði að
taka við þeim. Önnur menningar-
verðlaun hafa átt sér styttri lífdaga.
Menningarverðlaun Dagblaðsins,
eins og þau hétu áður en Dagblaðið
og Vísir sameinuðust, voru fyrst af-
hent árið 1979 og þá fyrir fimm Ust-
greinar: bókmenntir, byggingarhst,
leikhst, myndhst og tónUst. Tveimur
árum seinna var kvikmyndalist bætt
inn í og 1988 voru fyrst afhent verð-
laun fyrir Usthönnun. Það eru því í
dag afhent verðlaun fyrir sjö Ust-
greinar.
Frá upphafi hefur Aðalsteinn Ing-
ólfsson Ustfræðingur séð um menn-
ingarverðlaunin fyrir hönd DV og
mun hann einnig gera það í þetta
sinn. Sagði hann að í fyrstu hefði
verið reynt að fá gagnrýnendur af
öðrum blöðum reglulega meö í
nefndimar en Morgunblaðið hefði á
sínum tíma bannað sínum gagnrýn-
endum að vera í þeim. Aðalsteinn
sagði aö hugmyndin að menningar-
verðlaununum hefði komið frá rit-
sjóra Dagblaðsins, Jónasi Kristjáns-
syni, en sér sem umsjónarmanni
menningarmála á blaðinu hefði verið
faUð að vinna úr hugmyndinni og
hefði ákveðið hvaða Ustgreinar
skyldi verðlauna og séð um fram-
kvæmd.
AUt frá upphafi hafa þriggja manna
nefndir í hverri Ustgrein fyrir sig séð
um að velja verðlaimahafann og hafa
þessar nefhdir verið skipaðar gagn-
rýnendum á DV í umræddum Ust-
greinum, fuUtrúum Ustamanna svo
og áhugafólki um Ustir. Á næstunni
verða dómnefndirnar í ár kynntar.
Menningarverðlaunin sjálf eru í
formi sérsmíðaðra skúlptúra eða Ust-
muna sem margir helstu listamenn
og Usthönnuðir landsins hafa gert
fyrir DV.
í þetta sinn er smíði verðlaunagrip-
anna í höndum Þorbergs HaUdórs-
sonar guUsmiðs sem hefur vakið
mikla athygU og fengið verðlaun fyr-
ir Ustsmíð sína. Innan skamms verð-
ur sagt nánar frá gripunum sem Þor-
bergur er með í smíðum og rætt við
Ustamanninn. DV mun síðan leyfa
lesendum að fylgjast með störfum
dómnefnda, meðal annars með því
að birta tUnefningar nefndanna til
verðlaunanna í ár.
Áttatíu verðlaunagripum hefur
verið úthlutað, oftast tll einstaklinga
en stundum tíl hóps fólks eða stofn-
ana. Hér á eftir er birtur listi yfir
aUa þá sem fengið hafa Menningar-
verðlaun Dagblaðsins og DV:
Leiklist
1979: Stefán Baldursson.
1980: Kjartan Ragnarsson.
1981: Oddur Bjömsson.
1982: Hjalti Rögnvaldsson.
1983: Bríet Héðinsdóttir.
1984: Stúdentaleikhúsið.
1985: Alþýðuleikhúsið.
1986: Guðrún Gísladóttir
1987: Islenski dansflokkurinn.
1988: Arnar Jónsson.
1989: Róbert Amflnnsson.
1990: Grétar Reynisson.
1991: Hrafnlúldur Hagalín
Guðmundsdóttir.
Tónlist
1979: Þorgérður Ingólfsdóttir.
1980: Helga Ingólfsdóttir og
Manuela Wiesler.
1981: Jón Ásgeirsson.
1982: Árni Kristjánsson.
1983: Guðmundur Jónsson.
1984: Jón Nordal.
1985: Einar Jóhannesson.
1986: Hafliði Hallgrímsson.
1987: Sinfóníuhljómsveit æskunnar.
1988: Paul Zukofsky.
1989: Rut Ingólfsdóttir.
1990: Hörður Áskelsson.
1991: Guðný Guðmundsdóttir.
Bókmenntir
1979: Ása Sólveig.
1980: Sigurður A. Magnússon.
1981: Þorsteinn frá Hamii.
1982: Vilborg Dagbjartsdóttir.
1983: Guðbergur Bergsson.
1984: Thor Vilhjálmsson.
1985: Álfrún Gunnlaugsdóttir.
1986: Einar Kárason.
1987: Thor Vilhjálmsson.
1988: Ingibjörg Haraldsdóttir.
1989: Björn Th. Björnsson.
1990: Vigdís Grímsdóttir.
1991: Fríða Á Sigurðardóttir.
Myndlist
1979: Gallerí Suðurgata 7.
1980: Ríkarður Waltingojer.
1981: Siguijón Ólafsson.
1982: Ásgerður Búadóttir.
1983: Helgi Þorgils Friðjónsson.
1984: Jóhann Briem.
1985: Jón Gunnar Árnason.
1986: Magnús Kjartansson.
1987: Gunnar Örn Gunnarsson.
1988: Georg Guðni Hansson.
1989: Sigurður Örlygsson.
1990: Kristján Guðmundsson.
1991: Kristinn Hrafnsson.
Byggingarlist
1979: Gunnar Hansson.
1980: Manfreð Vilhjálmsson og
Þorvaldur S. Þorvaldsson.
1981: Gunnar Guðnason og
Hákon Hertervig.
1982: Birna Bjömsdóttir.
1983: Pétur Ingólfsson.
1984: Valdimar Harðarson.
1985: Stefán Örn Stefánsson,
Grétar Markússon og
Einar Sæmundsson.
1986: Finnur Birgisson og
Hjörleifur Stefánsson.
1987: Hróbjartur Hróbjartsson og
Sigurður Björgúlfsson.
1988: Manfreð Vilhjálmsson.
1989: Leifur Blumenstein og
Þorsteinn Gunnarsson.
1990: Ingimundur Sveinsson.
1991: Guðmundur Jónsson.
Kvikmyndir
1981: Sigurður Sverrir Pálsson.
1982: Útlaginn.
1983: Erlendur Sveinsson.
1984: Egill Eövarðsson.
1985: Hrafn Gunnlaugsson.
1986: Karl Óskarsson.
1987: Óskar Gíslason.
1988: Friðrik Þór Friðriksson.
1989: Viðar Víkingsson.
1990: Þráinn Bertelsson.
1991: Láms Ýmir Óskarsson.
Listhönnun
1988: Sigrún Einarsdóttir og
Sören Larsen.
1989: Valgerður Torfadóttir.
1990: Kristín ísleifsdóttir.
1991: Guðrún Gunnarsdóttir.
Það er mikill og fríður hópur leikhússfólks sem stendur að sýningunni á
íslandsklukkunni.
Leikfélag Akureyrar sýnir íslandsklukkuna:
Tvöföld
afmæHssýning
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Leikfélag Akureyrar hefur hafið
æfingar á íslandsklukkunni eftir
Halldór Laxness en frumsýning
verður í næsta mánuði. Segja má að
hér sé um „tvöfalda“ afmæhssýn-
ingu að ræða, Leikfélagið verður 75
ára í apríl og þá verður sérstök hátíð-
arsýning. Þá verður höfundurinn,
Halldór Laxness, níræður í þeim
mánuði.
Sunna Borg hefur gert nýja leik-
gerð við íslandsklukkuna og Sunna
er jafnframt leikstjóri. Jón Hlöðver
Áskelsson hefur samið tónlist við
verkið, Siguijón Jóhannsson hannar
leikmynd, búningahönnuður er
Freygerður Magnúsdóttir og um lýs-
ingu sér Ingvar Bjömsson.
Helstu hlutverk leikritsins em í
höndum Elvu Óskar Ólafsdóttur,
sem leikur Snæfríði íslandssól,
Hallmars Sigurðssonar, sem leikur
Arnas Amæus, og Þráins Karlsson-
ar, sem leikur Jón Hreggviðsson. Sig-
urður Hallmarsson leikur Eydalín
lögmann, föður Snæfríðar, og Jón
Þeófílusson, og Herdís Birgisdóttir
leikur móður Jóns Hreggviðssonar.
Þau Sigurður og Herdís eru foreldrar
Hallmars sem leikur Arnas Arnæus.
í öðmm helstu hlutverkum em
Felix Bergsson, Valgeir Skagfjörð,
Jón Stefán Kristjánsson, Gestur Ein-
ar Jónasson, Sigurveig Jónsdóttir,
Guðlaug Hermannsdóttir, Árni Val-
ur Viggósson, Þórdís Ámadóttir,
Aðalsteinn Bergdal, Eggert Kaaber,
Marinó Þorsteinsson, Agnes Þor-
leifsdóttir o.fl.
Alls em hlutverk 26 talsins í leik-
gerð Sunnu Borg auk „statista“ svo
hér er um mannmagra sýningu að
ræöa. í tilefni þessara tímamóta mun
Leikfélag Akureyrar gefa út hið
mikla ritverk Haraldar Sigurðssonar
í máh og myndum „Saga leiklistar á
Akureyri 1860-1992“.