Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1992, Síða 8
8
KIMM.TUPAGUR 23. JANÚAR 1992.
LífsstOl
DV kannar verð í matvöruverslunum:
Álagning verslana
er ædi misjöfn
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verð í eftirtöldum verslunum;
Bónusi, Skútuvogi, Rarðarkaupi,
Hafnarfirði, Hagkaupi, Eiðistorgi,
Miklagarði vestur í bæ og Kjötstöð-
inni í Glæsibæ.
Bónusbúðimar selja sitt grænmeti
í stykkjatali en hinar samanburðar-
verslanirnar selja eftir vigt. Til þess
að fá samanburð þar á milli er græn-
meti í Bónusi vigtað og umreiknað
eftir meðalþyngd yfir í kílóverð.
Að þessu sinni var kannað verð á
sveppum, gulri papriku, gulrótum,
rófum, mandarínum, banönum,
gúrkum, Royal búðingsdufti, nauta-
hakki, Cameliu dömubindum, norm-
al, 20 stk, Melroses te, 20 pokum, og
Ora maísbaunum, 430 grömmum.
Miklu munar að þessu sinni á
hæsta og lægsta verði á sveppum, eða
90%, en til samanburðar var munur-
inn 14% í desember á hæsta og lægsta
verði. Sveppir voru á lægsta verðinu
í Hagkaupi á 349 en verðið í Bónusi
og Fjarðarkaupi var 357. Sveppir
kostuðu 398 í Miklagarði og 679 í
Kjötstöðinni. Munurinn á hæsta og
lægsta verði á gulri papriku er heil
126% sem er ansi mikill munur. Gul
paprika var á lægsta verðinu í Bón-
usi á 221. Verðið var 315 í Fjarðar-
kaupi, 489 í Miklagarði og 499 í Hag-
kaupi en hún fékkst ekki í Kjötstöð-
inni að þessu sinni.
Aðeins 13% munur er á hæsta og
lægsta verði á gulrótum og reyndar
er sjaldgæft að miklu muni á þessari
tegund grænmetis. Gulrætur voru á
hagstæðasta verðinu í Bónusi á 128,
verðið var 137 í Kjötstöðinni, 145 í
Hagkaupi og Miklagarði og 147 í
Fjarðarkaupi. Munur á hæsta og
lægsta verði á rófum er aftur á móti
meiri, eða 74 af hundraði. Rófur voru
á sama verðinu í Fjarðarkaupi,
Miklagarði og Hagkaupi á 59. Lægst
var verðið hins vegar í Bónusi, 42
krónur, og hæst í Kjötstöðinn, 73
krónur kílóið.
Það er 72% munur á hæsta og
lægsta verði á mandarínum sam-
kvæmt könnuninni. Eini staðurinn,
þar sem kílóverðið er undir 100 krón-
um, er Bónus en þar var verðið 98
krónur. Mandarínur kostuðu 129 í
Kjötstöðinni, 148 í Miklagárði, 159 í
Hagkaupi og 169 í Fíarðarkaupi. Ban-
anar eru einnig misdýrir eftir versl-
unum. Lægsta verðið er 88 krónur í
Munur á hæsta og lægsta verði á pakkavöru er allt að helmingur og hlýtur það að vera að mestu leyti vegna
mismunandi álagningar verslana.
Bónusi en síöan kemur Fjarðarkaup,
118, Mikligarður og Hagkaup, 125, og
Kjötstöðin, 149. Munur á hæsta og
lægsta verði er 69 af hundraði.
Munur á hæsta og lægsta verði á
gúrkum reyndist vera 63%. Lægsta
verðið var að finna í Bónusi, 307, en
á eftir fylgdi Fjarðarkaup með 325,
Kjötstöðin með 369, Hagkaup með 498
og Mikligarður með 499. Furðu mik-
ill munur er á hæsta og lægsta verði
á Royal búðingsdufti, eða 50%, sem
er mikið fyrir vöru af því tagi. Lægsta
verðið, 56 krónur, er í Bónusi, næst
kemur Fjarðarkaup með 59, Hag-
kaup og Mikhgarður eru með sama
verðið, 66 krónur, og Kjötstöðin 84
krónur.
Nautahakk er á 659 krónur í Bón-
usi, 695 í Kjötstööinni, 724 í Fjaröar-
kaupi og Hagkaupi og 739 krónur
kílóið í Miklagarði. Munur á hæsta
og lægsta verði er ekki svo mikill eða
12%. Verð á Cameliu dömubindum
(normal, 20 stk.) er nokkuð misjafnt
DV-mynd BG
Litlar verö-
breytingar
Hæsta og lægsta verð
Nautahakk
Agúrkur
Royal búðingur Dömubindi
90 j--------I 210
í könnun verðþróunar á ávöxtum
og grænmeti bregöur nú svo við að
verðbreytingar eru í minni kantin-
um. í öllum tilfellum er svipað eða
sama meðalverð og í síðustu könnun
á þessum tegundum sem á súluritinu
sjást.
Bananar eru á nákvæmlega sama
meðalverði nú og í miðjum desemb-
ermánuði á síðasta ári. Þar áður
hafði meðalverðið komist niður í 110
krónur í nóvember en er nú 121
króna. Meðalverð á mandarínum
viröist vera á hægri niðurleið en
verðlækkunin hefur hægt nokkuð á
sér og stendur nú í 141 krónu.
Einu verulegu sveiflumar á meðal-
verði em á sveppum. Meðalverðið
komst töluvert yfir 500 krónur í nóv-
ember síðasthðnum, datt niður í 428
í desember og er þaö sama í könnun-
inni nú. Meðalverð á rófum var um
og undir 70 krónum kílóið í október
á síðasta ári en lækkaöi um 10 krón-
ur í nóvember. Það hefur haldist
nokkuð stöðugt síðan og er nú 58
krónur.
Meðalverð á gulrótum var lengi vel
á uppleið en virðist hafa náð há-
marki um áramótin. Það er nú aftur
á niðurleiö og er nú 140 krónur.
Meðalverð á gulri papriku hefur tek-
iö nokkrum sveiflum á undanfómum
mánuðum. Lægst var verðið í miöj-
um október, um 350 krónur, komst
upp í rúmar 400 krónur í nóvember
en hefur lækkað aftur. Það er nú 381
króna. Gul paprika fékkst í 4 af fimm
samanburðarverslununum og var
úthtiðfyrstaflokks. -ÍS
mihi verslana. Lægsta veröið var í
Bónusi, 149 krónur, en á eftir fylgdu
Hagkaup, 163, Fjarðarkaup, 179,
Kjötstöðin, 199, og Mikhgarður, 207.
Munur á hæsta og lægsta verði á
þessari vöru er 39%. Heildsöluverðið
hlýtur aö vera það sama eða svipað
til verslana svo það er ljóst að álagn-
ingin er æði misjöfn.
Sömu sögu er að segja af Melroses
tei. Munur á hæsta og lægsta verði
er 51 af hundraði sem hlýtur að vera
nær eingöngu munur á álagningu.
Lægsta verðið var í Bónusi, 77, en á
eftir komu Fjarðarkaup, 79, Hag-
kaup, 93, Mikligarður, 95, og Kjöt-
stöðin, 116. Það munar 34% á hæsta
og lægsta verði á maísbaunum frá
Ora í 430 gramma dósum. Þær kosta
95 í Bónusi, 101 í Fjarðarkaupi og
Hagkaupi, 124 í Kjötstöðinni og 127 í
Miklagarði. -ÍS
Sértilboð og afsláttur:
lifrarkæfa
í Bónusverslununum á höfuð-
borgarsvæðinu er í gangi sértíl-
boðsverð á Toro kjúklingasúpu,
sem seld er á 47 krónur, St’Ives
sjampói og næringu, 2x472 ml, á
387, Nemh heimihsplastpokum, 3
rúllum saman, á 179 og 3 ham-
borgurum sem kosta aðeins 176
krónur.
í Kjötstöðinni í Glæsibæ voru
nokkur sértilboð x gangi í kjöt-
borðinu. Þar skal fyrst telja heita
lifrarkæfu, sem er á 195 krónur
bakkinn, nýja sviðasultu á 1.198
krónur kílóið og lúxus svikinn
héra sem er á 445 krónur kílóið.
Harðfiskur frá ísafirði er einnig
á sértilboði í versluninni.
í Miklagarði vestur i bæ var
kókómjólkin vinsæla í % 1 um-
búðum seld á 35 króna sértUboði,
Hreinol uppþvottalögur í tveggja
lítra brúsum kostar aðeins 199,
Hy Top salemispappír, 4 rúllur
saman í pakka, kostar 119 og allar
bragðtegundir af Maarud parti-
snakki í stærri pokunum (250 g)
eru á 199 krónur.
í Hagkaupi á Eiðístorgi voru
nokkur sértilboð í kjötborðinu.
Þar skal helst nefna nautalundir,
sem eru á kílóverðinu 2.169,
nautafihet, sem kostar 1.540 kíló-
iö, og nautagúhas á 1.042. Flnn
krisp hrökkbrauðið vinsæla í 200
gramma pökkum kostar aðeins
79 i Hagkaupi.
í Fiarðarkaupi er vert að geta
þess að á fimmtudögum er alltaf
grænmetismarkaður í gangi með
Iágu verði á mörgum tegundum.
Á mánudögum stendur til að hafa
afsláttarhom þar sem upp veröur
Stillt fjórum vörutegundum á af-
sláttarverði sem gildir í einn dag.
A sértilboðstorgi Fjarðarkaups er
Nuses súkkulaðiáltígg á 135 krón-
ur, 400 grömm, ýmist hreint eða
með heshlmetum. Crown maís-
baunir í dós era á sprengitilboðs-
verðinu 49 krónur, 340 gramma
dós. -ÍS